Fréttablaðið - 17.07.2008, Blaðsíða 48
28 17. júlí 2008 FIMMTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Bílasalan Bíll.is hefur verið
starfandi í 10 ár en Bíll.is
var fyrsta bílasalan hér á
landi til að notfæra sér netið
til að selja bíla.
G. Birnir Ásgeirsson er
stofnandi og eigandi bill.is
og hefur starfað við bíla-
sölu í tvo áratugi. „Ég eign-
aðist bílasöluna Skeifuna
árið 1988 og þar byrjaði ég
í þessum geira. Seldi hana
tíu árum seinna og stofnaði
Bíll.is og því má segja að ég
fagni tuttugu ára starfsferli
mínum sem bílasölumaður
og tíu ára afmæli Bíll.is,“
segir Birnir.
Fyrir tíu árum var engin
bílasala komin á netið og
var Bíll.is sú fyrsta sem
kom inn á þann markað. Á
síðunni var hægt að skoða
og skrá bíla.
„Þessu var rosalega vel
tekið, þetta var nýjung sem
aldrei hafði sést áður hér
á landi. Heimasíðan hefur
alltaf verið í stöðugri þróun
og er alltaf að bæta sig. Í
dag er síðan mjög öflug og
örugglega sú öflugasta, þótt
ég segi sjálfur frá,“ lýsir
Birnir.
Þrátt fyrir að Birnir hafi
selt bíla í tuttugu ár eru
engin þreytumerki að sjá á
honum.
„Það sem stendur upp
úr eftir öll þessi ár er að
mér þykir þetta alltaf jafn
skemmtilegt. Ég er fer-
tugur í dag og hef því eytt
hálfri ævinni á bílasölu sem
er frábært,“ segir Birnir.
mikael@frettabladid.is
BÍLL.IS: FAGNAR 10 ÁRA STARFSAFMÆLI
Hálfa ævina
á bílasölu
STOLTUR EIGANDI G. Birnir Ásgeirsson stofnaði Bíll.is og hefur starfað
þar frá upphafi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
DAVID HASSELHOFF, LEIKARI OG
SÖNGVARI, ER 56 ÁRA.
„Það eru mörg deyjandi börn
þarna úti og þeirra hinsta ósk
er að hitta mig.“
David Hasselhoff er þekktast-
ur fyrir sjónvarpsþættina Knight
Rider og Baywatch. David hefur
einnig notið mikilla vinsælda
fyrir söng sinn og þá helst í
Þýskalandi, Sviss og Austurríki.
MERKISATBURÐIR
1751 Á Þingvöllum voru Inn-
réttingarnar stofnaðar.
1930 Graf Zeppelin-loftskipið
þýska kom til Íslands og
flaug yfir alla suðurströnd
landsins. Það kom aftur
ári síðar.
1932 Á Skólavörðuholti í
Reykjavík var afhjúpuð
stytta af Leifi heppna Ei-
ríkssyni.
1946 Íslendingar léku sinn
fyrsta landsleik við Dani.
Leikurinn fór 0-3 fyrir
Dani.
1980 Saddam Hussein varð for-
seti Íraks.
1991 Arnór Guðjohnsen jafnaði
afrek Ríkharðs Jónsson-
ar með því að skora fjögur
mörk í landsleik í knatt-
spyrnu gegn Tyrkjum.
Disneyland er markaðs-
sett sem glaðlegasti staður-
inn á jörðinni. Disneyland-
garðurinn í Anaheim í Kali-
forníu var opnaður 17. júlí
árið 1955 og var sá fyrsti á
vegum Walt Disney-sam-
steypunnar. Þennan dag
voru vel valdir gestir og fjöl-
miðlar aðeins boðnir og við-
burðurinn sendur út um öll
Bandaríkin.
Dagurinn gekk ekki alveg
upp þar sem garðurinn var
yfirfullur af fólki, því það
mættu fleiri en höfðu verið
boðnir. Ekki bætti mikill
hiti þennan dag úr skák, til
dæmis þornuðu allir gos-
brunnar í garðinum upp og
nýlagt malbik í garðinum
varð svo mjúkt fyrir kven-
kynsgesti í háhælaskóm
að þær sukku. Allur matur
kláraðist og gasleki varð til
þess að loka varð þremur
svæðum garðsins.
Þetta dró ekki úr vinsæld-
um garðsins því frá opnun
garðsins hafa um 520 millj-
ónir manna heimsótt garð-
inn. Á síðasta ári heimsóttu
yfir fimmtán milljón manns
garðinn og gerðu hann
að næstmest heimsótta
skemmtigarð heims. Sá
mest sótti er Disney-garður-
inn í Flórída.
ÞETTA GERÐIST: 17 JÚLÍ 1955
Disneyland opnað í fyrsta sinn
Ögmundur Jónasson, þing-
flokksformaður Vinstri grænna,
alþingismaður og formaður
BSRB, er sextugur í dag.
Hann tekur á móti gestum
við heimili sitt að Grímshaga í
Reykjavík á milli klukkan 17 og
20. Allir vinir og velunnarar vel-
komnir.
Ögmundur fæddist í Reykja-
vík 1948 og eru foreldrar hans
Jónas B. Jónsson fræðslustjóri
og Guðrún Ö. Stephensen hús-
móðir.
Ögmundur 60 ára í dag
ÖGMUNDUR JÓNASSON
Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
Rósa Pétursdóttir
frá Norðurgarði, Grænumörk 5, Selfossi,
sem lést sunnudaginn 6. júlí, verður jarðsungin frá
Selfosskirkju föstudaginn 18. júlí kl. 15.00.
Jónas Guðmundsson Sólveig Jóhannsdóttir
Ragnheiður Eiríksdóttir Gunnar Haraldsson
Sigmar Eiríksson Sigríður Ástmundsdóttir
Pétur Eiríksson Jóna Jónsdóttir
Sævar Eiríksson Inga Finnbogadóttir
Valdimar Eiríksson Guðbjörg Hrafnsdóttir
Soffía Ellertsdóttir Tómas Tómasson
barnabörn og langömmubörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Björn Sigurðsson
fæddur á Kópaskeri 7. mars 1936,
lést í Hamborg hinn 7. júlí síðastliðinn.
Útför hans fer fram í dag, fimmtudag 17. júlí,
frá Neskirkju kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda
Hannelore Sigurðsson
Halldóra Björnsdóttir Grímur Friðgeirsson
Sigfríður Björnsdóttir
Sigurður Björnsson
Birta Björnsdóttir Kristinn Dagur Gissurarson
og barnabörn.
90 ára afmæli
Sigfús B.
Sigurðsson
Goðalandi 6, Reykjavík, verður
90 ára föstudaginn 18. júlí. Af því
tilefni tekur Sigfús á móti gestum í
safnaðarheimili Seljakirkju 18. júlí kl.
17.00. Ætting jar og vinir hjartanlega
velkomnir. Gjafi r eru vinsamlegast
afþakkaðar.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, tengdasonur, afi, langafi og
bróðir,
Þráinn Pálsson
lést á heimili sínu, Heiðarbrún 67, hinn 10. júlí. Útför
hans fer fram frá Hveragerðiskirkju laugardaginn
19. júlí kl. 14.00.
Auður Aðalsteinsdóttir
Andrea Margrét Þráinsdóttir Guðjón Sigurðsson
Aðalsteinn Dagsson Selma D. Ásmundsdóttir
Ómar Geirsson Aksonesuda Sangmee
Emma Geirsdóttir Kristján V. Grétarsson
Andrea Margrét Þorvaldsdóttir
afabörn, langafabörn og systkini.
Ástkæra móðir okkar, amma og lang-
amma,
Marselía Kristinsdóttir
Skúlagötu 80, Reykjavík,
lést á Vífilsstöðum föstudaginn 11. júlí 2008.
Ómar Eggertsson
Eggert Eggertsson.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Eiríkur Alexandersson
frá Grindavík, Prestastíg 11, Reykjavík,
lést á krabbameinsdeild Landspítala við Hringbraut
föstudaginn 11. júlí. Útförin fer fram frá
Grindavíkurkirkju föstudaginn 18. júlí kl. 14.00.
Hildur Júlíusdóttir
Almar Eiríksson Kittý Magnúsdóttir
Leifur Eiríksson Þórey G. Guðmundsdóttir
Margrét B. Eiríksdóttir Edvard G. Guðnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær afi okkar, tengdafaðir og langafi,
Sverrir Hermannsson
húsasmíðameistari, lengst af til heimilis
að Aðalstræti 38 Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn
18. júlí klukkan 13.30. Blóm og kransar vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á
líknarfélög.
Auður Elva Jónsdóttir Snæbjörn Magnússon
Guðrún Lilja Jónsdóttir Sigurður Sigurðsson
Sverrir Már Jónsson
Jón Ásmundsson Sigrún Gunnarsdóttir
Birkir Már, Katrín og Nói.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafað-
ir og afi,
Bergsteinn Gizurarson
sem lést miðvikudaginn 9. júlí, verður jarðsunginn
frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 18. júlí kl.
11.00. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á sagn-
fræðisjóð dr. Björns Þorsteinssonar í vörslu Háskóla
Íslands, s. 525 4000.
Marta Bergmann
Gizur Bergsteinsson Bylgja Kærnested
og barnabörn.