Fréttablaðið - 17.07.2008, Blaðsíða 56
36 17. júlí 2008 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
ÞAR SEM ALLT SNÝST
UM FÓTBOLTA!
NÝTT
Á GR
AS.IS
Leikir Skemmtun
NÚ FÆRÐU GRAS.IS
FÉTTIR Í SÍMANN!
Ofurhetjan Hellboy er snúin
aftur. Fjögur ár eru liðin
síðan fyrri myndin kom í
bíó og hefur framhaldið,
The Golden Army, fengið
fínar viðtökur úti í heimi.
Eins og svo margar ofurhetjur á
Hellboy sér uppruna í myndasög-
um. Ekki er hægt að segja að Hell-
boy hafi verið mjög þekkt nafn
þegar fyrri kvikmyndin var frum-
sýnd fyrir fjórum árum. Það
breytti því þó ekki að bíógestir
kunnu vel að meta þessa nýju
hetju; myndin fékk bæði góða
umsögn gagnrýnenda og skaust í
efsta sæti aðsóknarlista í Banda-
ríkjunum.
Mexíkóski leikstjórinn Guill-
ermo del Toro er við stjórnvölinn
hér eins og í fyrri myndinni. Ron
Perlman leikur sömuleiðis Hell-
boy og Selma Blair ofurkærust-
una Liz Sherman.
Myndin hefst þegar langvarandi
vopnahlé milli mannkyns og
myrkra valdanna er rofið. Framtíð
mannkyns er í hættu og Hellboy
er kallaður til bjargar. Almenning-
ur veit ekkert um tilvist Hellboy
fyrr en upplýsingar um hann og
deild hans leka út. Hellboy og
almenningur eiga ekki beint sam-
leið og þetta reynir á samband
hans við kærustuna Liz. Johann
Krauss, samstarfsmaður Hell-
boys, kann hins vegar betur við
sig í sviðsljósinu og virðist passa
ágætlega við hlið Liz. Á endanum
þurfa þau þó öll að standa saman í
baráttunni við hið illa, sem í þessu
tilviki er prinsinn Nuada. Sá
stjórnar her álfa og trölla og
hyggst reyna að endurvekja Gull-
herinn sem faðir hans stjórnaði
eitt sinn. Verkefnin eru því næg
fyrir Heljardrenginn.
Rauða ofurhetjan snýr aftur
ORRUSTAN UNDIRBÚIN Hellboy (Ron Perlman) undirbýr orrustu við Gullherinn ásamt Abe og hjálparmönnum.
HÖRÐ ÁTÖK Hellboy lætur prinsinn Nuada, höfuðóvin sinn í myndinni, finna fyrir því.
Leikstjórinn Guellermo del Toro, sem stýrir Hellboy 2,
þykir einn af þeim eftirtektarverðari nú um stundir.
Hann hóf ferilinn í heimalandinu Mexíkó og starfaði
sem förðunar- og brellumeistari í áratug. Meðfram því
prófaði hann sig áfram sem framleiðandi og leikstjóri
í sjónvarpi. Fyrsta kvikmyndin sem del Toro gerði í
fullri lengd var hrollvekjan Cronos árið 1992. Myndin
vakti mikla athygli, í heimalandinu og utan þess, hlaut
til að mynda verðlaun gagnrýnenda í Cannes árið 1993.
Eftir þetta færði del Toro sig yfir til Hollywood og
gerði hina misheppnuðu Mimic. Næsta Hollywood-
mynd hans var Blade II og þá voru hjólin farin að
snúast hjá honum. Del Toro afþakkaði að leikstýra
þriðju Harry Potter-myndinni til að gera Hellboy. Í
kjölfarið var hann á hvers manns vörum. Næsta mynd
hans var El Laberinto del Fauno (Völundarhús
skógarpúkans, eða Pan‘s Labyrinth) sem flestir telja
hans bestu mynd. Hlaut hún enda þrenn Óskarsverð-
laun.
Til marks um uppgang leikstjórans Del Toros er að
næstu verkefni hans verða tvær myndir byggðar á
sögu Tolkiens um Hobbitann. Eru þær væntanlegar í
bíó 2010 og 2011.
Hæfileikaríkur Mexíkói
AÐ STÖRFUM Guillermo del Toro leikstýrir Ron Perlman og
Selmu Blair í Hellboy 2.
Imdb.com: 8,1 af 10.
Metacritic.com: 78 af 100.
Rottentomatoes.com: 89 af 100.
DÓMAR UM HELLBOY 2
Constantin Costa-Gavras kvikmyndaleik-
stjóri verður heiðursgestur RIFF, Alþjóð-
legrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík,
sem haldin er 25. september og stendur í
ellefu daga, eða til 5. október. Af þessu til-
efni verða nokkrar mynda hans sýndar á
hátíðinni en hann mun sjálfur taka þátt.
Costa-Gravas hefur gert myndir síðan
1965, en hann er helst þekktur fyrir póli-
tískar spennumyndir, líkt og Missing frá
1982, State of Seige frá 1972 og Mad City
frá 1997. Þá hlaut Costa-Gavras Óskarinn,
BAFTA-verðlaunin og Gullpálmann fyrir
handrit Missing og var tilnefndur til Ósk-
arsverðlauna fyrir leikstjórn Z, 1969, auk
fjölda annarra verðlauna. Costa-Gravras
er 75 ára að aldri og er ættaður frá Grikk-
landi, en flestar myndir hans eru á frönsku
eða ensku, þar sem hann hefur dvalið betri
hluta ævi sinnar í Frakklandi. Þetta er í
fyrsta sinn sem Costa-Gavras kemur til
Íslands.
Costa-Gavras á RIFF í haust
STÓRJAXL Costa-Gavras er þungavigtarmaður í
pólitískri kvikmyndagerð. NORDICPHOTOS/AFP
>TRANSFORMERS 2 EKKI ÞVINGUÐ FRAM
Michael Bay er spenntur fyrir næstu Transformers-mynd.
„Ég sagði við höfundana: „Ég þoli ekki framhaldsmyndir
sem reyna að halda söguþræðinum
og þynna hann út í þriðju myndina.
Látið eins og það verði aldrei þriðja
myndin og þið þurfið að klára þetta
í annarri. Ég þoli ekki myndir þar
sem endirinn er óræður. Leyfum
þessari bara að standa á eigin
fótum.“ Mér finnst þetta ekki
vera þvingað framhald af fyrstu
myndinni. Mér finnst handritið
mjög gott og það er fullt af
nýju efni í henni.“
>MIKLAR VINSÆLDIR
Batman-myndin The Dark Knight
verður frumsýnd í Bandaríkjunum á
morgun. Ótrúleg forsala hefur verið á
aðgöngumiða á myndina; alls er upp-
selt á 700 sýningar um öll Bandaríkin.
Fullyrt er að netsala á
myndina sé þegar meiri
en á Spider-Man 3 og
Lord of the Rings:
The Two Towers
svo ekki sé minnst
á Pirates of the
Caribbean: Dead
Man‘s Chest.
The Dark Knight
verður frum-
sýnd hér á
landi á mið-
vikudaginn í
næstu viku.
Svik og prettir
„Ertu laus í kvöld?“ Maður skildi
halda að spurningin væri ein-
föld, en annað kemur á daginn í
nýjustu mynd Marcel Langen-
egger, Deception, sem komin er í
sýningar í íslenskum kvikmynda-
húsum.
Endurskoðandinn Jonathan
MCQuarry (leikinn af Ewan
McGregor) lifir fyrir vinnuna og
finnur sig ekki meðal elítu New
York. Þegar hann hittir hinn
aðlaðandi lögfræðing, Wyatt
Bose (leikinn af Hugh Jackman)
dregst hann inn í undarlegan
kynlífshóp forstjóra og milli-
stjórnenda Manhattan. Eftir
átján tíma vinnudag hafa þessir
áhrifaríku einstaklingar engan
tíma fyrir einkalíf, en bæta sér
það upp með „Listanum“, ein-
hvers konar kynlífsklúbbi, þar
sem allt sem þarf til þess að næla
sér í skyndikynni er rétt síma-
númer og fjögur orð: „Ertu laus í
kvöld?“
Wyatt sannfærir Jonathan um
að stíga inn í þennan heim, sem
honum er sagt að bjóði upp á
nánd án allra tilfinningaflækja.
Áður en hann veit af hefur hann
kynnst dekkri hlið á sjálfum sér,
brotið allar reglur klúbbsins með
dularfullri ókunnugri konu sem
hann þekkir aðeins sem ‚S‘ (leik-
in af Michelle Williams), flækst í
margra milljón dollara rán og
orðið heltekinn af mannshvarfi.
„Listinn“ bíður ekki aðeins upp á
heim skyndikynna, heldur svika,
pretta og morða.
Rotten Tomatoes 11% rotin
IMDB 5,8/10
Metacritic 31/100
SVIKULL Wyatt (Jackman) kemur
alveg ekki hreint fram við Jonathan
(McGregor) um „Listann“.
HIN DULARFULLA ´S‘ Michelle Williams
heillar Jonathan til að brjóta reglurnar