Fréttablaðið - 17.07.2008, Page 60
40 17. júlí 2008 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> FOX FITNAR
Megan Fox var skipað að bæta
á sig um fimm kílóum áður en
tökur á næstu Transformers-
mynd hófust. Leikstjóri mynd-
anna, Michael Bay, ku nefni-
lega ekki vera hrifinn af allt
of títlulegum stelpum. Fox lét
ekki á sér standa og hámar nú
í sig kökur á hverju kvöldi til
að mæta kröfum Bays.
Nýtt myndaband með Merz-
edes Club lítur dagsins ljós
á næstu dögum og er um
teiknimyndamyndband að
ræða.
Hilmar Birgir Haraldsson hefur
gert teiknimyndafígúrur úr með-
limum Merzedes Club en nýtt
myndband þeirra er framleitt af
Pipar auglýsingastofu og hefur
vinnsla nú staðið yfir í um 3 vikur.
Myndbandið er við lagið „I wanna
touch you“ sem er titillag plötu
hljómsveitarinnar sem kom út í
síðustu viku. Nú standa yfir
breytingar á teikningunum þar
sem teikna þarf Möggu Eddu
Gnarrsdóttur inn í teiknimyndina
en hún var nýlega tekin í hljóm-
sveitina sem fer innan tíðar til
Portúgal til að skemmta á Club
Kiss.
„Nú er bara spurningin hvort
myndbandið nær að skáka vin-
sældum Frelsis-myndbandsins
sem fór á lista Youtube í Þýska-
landi, Belgíu, Hollandi, Bretlandi,
Canada og Nýjasjálandi. Það
myndband er nú komið með tæp-
lega 300.000 skoðanir á netinu,“
segir Valgeir Magnússon umboðs-
maður hljómsveitarinnar.
Myndbandið er unnið í sams
konar stíl og myndirnar um
Family Guy. jakob@frettabladid.is
Merzedes Club í teiknimynd
HINN ÓGURLEGI GAZ-MAN Ekki er hægt
að segja annað en vöðvastæltir meðlim-
ir MC henti vel í teiknimyndina.
REBEKKA SÖNGKONA Myndar skemmti-
legan kontrast við vöðvatröllin en mynd-
irnar eru í stíl við Family Guy.
TEIKNIMYNDAVÆNIR Þarna eru dans-
ararnir og söngvararnir Gaz-man og
Cerez4 í góðum gír.
PARTÝ-HANZ OG GILLZENEGGER Jafnvel
nöfnin eru líkt og um teiknimynda-
fígúrur sé að ræða.
Sienna Miller hefur búið
hjá nýjasta kærastanum,
olíuerfingjanum Balthazar
Getty, í rétt um mánuð, eða
nánast frá því að hún sleit
sambandi sínu og Rhys
Ifans í síðasta mánuði.
Getty er harðgiftur, en
vinir Siennu halda því
fram að hjónaband hans
og Rosettu Millington
hafi staðið á brauðfótum mánuðum
saman og Sienna tengist því ekki
neitt. Getty og Millington eiga saman
fjögur börn.
Barnastjarnan Miley Cyrus, sem
olli nokkru fjaðrafoki í Bandaríkjun-
um fyrr á árinu þegar hún sat fyrir
hálfnakin á myndum sem birtust í
Vanity Fair, segist ekki ætla að stunda
kynlíf fyrr en hún giftir sig. Hún segir
hring sem hún ber stöðugt tákna
loforð sem hún hefur gefið sjálfri
sér og fjölskyldu sinni um
skírlífi. Hvort Miley stendur
við það eður ei á eftir
að koma í ljós, en hún
virðist nú stefna hraðbyri
í að verða næsta
Britney Spears, sem
var með svipaðar yfir-
lýsingar á sínum tíma.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Kate Hudson
hefur tekið að sér
hlutverk í söngva-
myndinni Nine, sem
byggð er á söngleik
sem naut mikilla
vinsælda á Broad-
way. Söngleikurinn
er aftur á móti byggður á mynd
ítalska leikstjórans Federico Fellini,
8½. Hlutverk Hudson ku hafa verið
skrifað sérstaklega fyrir hana, eftir
að aðstandendur myndarinnar heill-
uðust af söng- og danshæfileikum
leikkonunnar. Meðal annarra leikara
í myndinni eru Daniel Day-Lewis,
Nicole Kidman, Penelope Cruz,
Judi Dench og Sophia Loren.
Jake Gyllenhaal er í blótsyrðaátaki.
Það er ekki sjálfskipað, heldur eitt
af skilyrðunum sem kærasta hans,
Reese Witherspoon, setti fyrir því
að hann flyttist inn á heimili hennar
og barnanna Övu og Deacon, sem
Reese á með Ryan Phill-
ippe. „Jake var vanur að
blóta eins og sjóari, en ekki
lengur. Ef hann gerir
það þarf hann að
biðjast afsökunar,“
segir vinur leikar-
ans.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Næsta föstudag stendur til að
taka upp auglýsingu fyrir BYR,
sem framleiðendur fullyrða að
verði „magnaðasta sjónvarps-
auglýsing fyrr og síðar“.
Þar verður Páll Óskar
Hjálmtýsson fremstur í
flokki, en auglýsingin
á að vera í söngleikja-
stíl, með skrúðgöngu
og dansatriðum sem
fléttast um söngvar-
ann vinsæla. Pegasus
sér um framleiðslu
auglýsingarinnar,
sem á að kynna
námsmannaþjón-
ustu BYRs.
Páll Óskar er
ekki óvanur auglýsingagerð en hann
hefur áður auglýst Rís og fleira.
Auglýst hefur verið eftir þátttak-
endum í skrúðgönguna á Facebook
og víðar. Ekkert hefur hins vegar
verið gefið upp um hvaða lag
mun heyrast í auglýsingunni.
„Menn verða bara að bíða og
sjá en ég veit að Páll fór á
lokadansæfingu í gær og
hann segir mér það að þetta
sé geðveik „choreograph“-ía.
Þetta verður eitthvað mjög
Páls Óskars-vænt,“ sagði Helga
Jónasdóttir hjá BYR. Páll Óskar ku
hafa verið valinn vegna þess að „hann
er sá flottasti. Auk þess sem hann er
mjög meðvitaður um sína fjárhags-
legu heilsu.“ Engar tölur liggja
frammi um kostnað við auglýsinguna,
sem var sett í uppboð. Eina sem
stendur í vegi fyrir framleiðslu og þá
sýningu auglýsingarinnar á þessu
stigi er veðrið.
„Eins og Páll Óskar sagði, nú
liggjum við á bæn að fá sól og heiðan
himinn,“ sagði Helga. Um 130
statistar og þrír danshópar, break-
danshópur, fimleikahópur og hefð-
bundinn danshópur koma fram í
auglýsingunni.
-kbs
Páll Óskvar í söngvamyndagír
FLOTTASTUR Páll Óskar Hjálmtýrsson
auglýsir BYR FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
ÚTSALA
ALLAR ÚTSÖLUVÖRUR Á
1.000 - 7.000 KR.
SMÁRALIND
ÚTSALA
ALLAR ÚTSÖLUVÖRUR Á
500 - 4.000 KR.