Fréttablaðið - 25.07.2008, Blaðsíða 30
K
atrín er 43 ára lærður nudd-
ari og kennari. Hún er bú-
sett á Kiðafelli í Kjós ásamt
eiginmanni sínum, Birni
Hjaltasyni bókbindara, og starf-
ar sem kennari í Klébergsskóla
á Kjalarnesi. Saman eiga þau tví-
burana Þorstein og Cýrus, þriggja
ára, en bæði eiga þau syni úr fyrri
samböndum svo oft er mikið líf og
fjör á hemilinu.
Þrátt fyrir að vera fædd og
uppalin í Vogunum í Reykjavík er
Katrín mikið náttúrubarn og finnst
fátt betra en að njóta útiverunnar
í Kjósinni og ganga á fjöll, en það
var eitthvað sem hún var ekki fær
um að gera fyrir ári af heilsufars-
ástæðum.
„Upphaflega ætlaði ég að fara
í hjáveituaðgerð því ég var eigin-
lega viss um að ég gæti þetta ekki
sjálf. Ég hafði lengi haft áhuga
á fjallgöngu en aldrei komist.
Hreyfigetan var takmörkuð, ég
var með bullandi astma og það
var skelfilegt að búa í þessari
náttúruparadís í Kjósinni og geta
ekki gengið á fjöllin sem eru allt í
kring,“ segir Katrín.
„Ég tók mig alltaf til annað slag-
ið og fór í átak, þar sem ég gekk
og hreyfði mig meira, en svo gafst
maður bara upp á því. Ég vissi að
ég þyrfti hjálp við að koma mér í
form svo ég sótti um að komast inn
á Reykjalund í byrjun fyrrasum-
ars, en þá átti ég orðið erfitt með
að hreyfa mig. Eðlilegar hreyf-
ingar, eins og að fara út úr bíln-
um, voru orðnar erfiðar og ég varð
móð við minnstu áreynslu,“ út-
skýrir Katrín sem komst í læknis-
viðtal eftir langa bið, en var þá tjáð
að hún þyrfti að missa fimm pró-
sent af líkamsþyngd sinni áður en
hún kæmist að. „Þegar ég var í
viðtalinu hjá lækninum í lok maí
Katrín Cýrusdóttir gafst upp á öllu sem fól í sér
orðið „kúr“ fyrir mörgum árum. Eftir að hafa
þjáðst af astma, of háum blóðþrýstingi og verið
langt yfir kjörþyngd um árabil ákvað hún að leita
sér hjálpar. Katrín var þá farin að íhuga hjá-
veituaðgerð, en lausnin birtist henni með öðrum
hætti. Í dag er hún þrjátíu kílóum léttari og nýtur
þess að ganga á fjöll við hvert tækifæri. Alma
Guðmundsdóttir hitti Katrínu og forvitnaðist um
afrek þessarar jákvæðu og orkumiklu konu.
Breytti
um lífsstíl
Katrín tókst á við breyttan lífsstíl með
mikilli jákvæðni og segist aldrei hafa
upplifað aðhaldið sem einhverskonar
erfiðleika eða átök.
Opnunartími:
Föstudagur 25. júlí: 9:00-18:00 Laugardagur 26. júlí: 10:00-16:00 Mán - Fim 28. – 31. júlí: 9:00-18:00 Föstudagur 1. ágúst: 9:00-16:00
6 • FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2008