Fréttablaðið - 25.07.2008, Blaðsíða 48
24 25. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Á þessum degi árið 1946 stigu þeir
Dean Martin og Jerry Lewis í fyrsta
sinn saman á svið með skemmti-
sýningu sem átti eftir að slá ræki-
lega í gegn. Sýningin var haldin á
Club 500 í Atlantic City í New Jer-
sey.
Það sem gerði þessa sýningu
frábrugðna öðrum grínsýningum
á þessum tíma var að þeir félagar
einblíndu á samskipti sín á milli,
Jerry var með skrílslætin á meðan
Dean var hinn alvarlegri, frekar en
að vera með leikin grínatriði.
Fljótlega fór frægðarljós þeirra að skína skært
á landsvísu og eftir að skemmtisýning þeirra
hafði slegið í gegn buðust þeim hlutverk í bíó-
myndum, þeir fengu sinn eigin útvarpsþátt og
þeir komu einnig fram í sjónvarpi. Þeir félagar
urðu svo vinsælir að DC Comics
gaf út teiknimyndasögurnar „The
Adventures of Dean Martin and
Jerry Lewis“ frá 1952-1957 sem
urðu gríðarlega vinsælar.
Brestir komu í samstarf þeirra fé-
laga þegar Lewis fór að fá mun
stærri hlutverk en Dean og endaði
samstarf þeirra árið 1956. Teikni-
myndasögur um þá félaga héldu
áfram að koma út ári eftir að sam-
starfinu lauk. Báðir skemmti-
kraftar áttu góðu gengi að fagna
í skemmtanaheiminum eftir að
samstarfi þeirra lauk en í mörg ár vildi hvorugur
ræða ástæður samstarfsslitanna né kom það til
greina að hefja aftur samstarf. Jerry skrifaði um
samstarf þeirra í bók sinni Dean and Me, a Love
Story, sem kom út árið 2005 eftir andlát Deans.
MERKISATBURÐIR
1875 Hjálmar Jónsson skáld,
kenndur við Bólu í Skaga-
firði, lætur lífið í Brekku,
skammt frá Víðimýri í
Skagafirði.
1912 Hannes Hafstein verður
Íslandsráðherra í annað
sinn og situr í tæp tvö ár.
1929 Marteinn Meulenberg er
vígður biskup kaþólskra á
Íslandi, fyrstur eftir siða-
skipti.
1946 Alþingi samþykkir að
sækja um inngöngu Ís-
lands í Sameinuðu þjóð-
irnar.
1974 Alþjóðadómstóllinn í
Haag úrskurðar að Íslend-
ingum sé óheimilt að út-
víkka landhelgi sína í 50
mílur.
ARTHUR JAMES BALFOUR
FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1848
„Þar sem það er eldmóð-
urinn í manneskjunni sem
hreyfir við heiminum, þá er
það óheppilegt hversu marg-
ir haldnir eldmóði eru óheið-
arlegir.“
Arthur Balfour var forsætisráð-
herra Bretlands frá árinu 1902
til 1905. Hann tók við embætt-
inu á sama tíma og Edward
VII. var krýndur konungur og
Suður-afríska stríðinu lauk
ÞETTA GERÐIST: 25. JÚLÍ 1946
Tvær stjörnur saman á svið
Hinn árlegi kartöflusúpudagur Þykk-
bæinga verður haldinn hátíðlegur í
dag, fjórða árið í röð. Í ár verður þó
breyting á því hátíðin hefur verið sam-
einuð mikilli listaveislu í grunnskóla-
húsnæði Þykkvabæjar þar sem sýnd
verða verk eftir Georg Guðna, Arn-
gunni Ýr og Gunnhildi Jónsdóttur.
Það sem gerir kartöflusúpudag-
inn einnig sérstakan í ár er að veg-
legt verkefni verður afhjúpað af séra
Auði Eiri og Guðbjörgu Arnardóttur,
fyrrverandi og núverandi prestum í
Þykkva bæ. „Verkefnið ber nafnið þús-
und ára sveitaþorp, en við erum fjór-
ar hugmyndaríkar konur sem höfum
unnið með gamlar ljósmyndir af bæj-
unum hérna í Þykkvabæ, sem teknar
voru í kringum 1940 af Helga heitn-
um Hannessyni frá Sumarliðabæ. Við
höfum sett myndirnar á álplötur sem
við setjum á vegskiltin við bæina.
Þannig getur fólk séð hvernig bæirn-
ir litu út hér áður fyrr og hvernig þeir
eru í dag,“ segir Halldóra Hafsteins-
dóttir, ein þeirra fjögurra kvenna sem
staðið hafa að þessu verkefni, en hún
bendir á að myndirnar séu mikilvæg
heimild um húsagerð og bæjarmynd
liðinna tíma á svæðinu.
Hinar konurnar þrjár sem unnið
hafa að þessu með Halldóru eru
Bjarnveig Jónsdóttir, Sigrún Leifs-
dóttir og Brynja Rúnarsdóttir og hafa
þær allar gefið sína vinnu. „Verkefnið
hefur þó hlotið styrki frá ýmsum aðil-
um og í ár fengum við styrk frá menn-
ingarráði Suðurlands,“ segir Hall-
dóra.
Kartöflusúpudagurinn, sem hald-
in verður í íþróttahúsinu í Þykkva-
bæ, hefst klukkan hálfsex þegar
ljósmyndir frá verkefninu Þúsund
ára sveitaþorp verða afhjúpaðar.
„Við byrjum svo að selja kartöflu-
súpuna okkar klukkan sex, en ágóði
hennar rennur til uppsetningar sýn-
ingar á ljósmyndum Helga heitins
Hannes sonar. Skemmtiatriði hefjast
um áttaleytið og klukkan níu verða
svo haldnir gospeltónleikar,“ útskýr-
ir Halldóra. Sama kvöld munu Páll
Óskar og Mónika troða upp í Hábæj-
arkirkju.
Í fyrra var hátíðin vel sótt og að
sögn Halldóru kom fólk alls staðar að,
bæði frá Reykjavík og annars staðar
frá. „Dagurinn hefur verið að vinda
upp á sig ár frá ári,“ segir Halldóra,
en svo skemmtilega vill til að árið í
ár er ár kartöflunnar samkvæmt yfir-
lýsingu Sameinuðu þjóðanna.
klara@frettabladid.is
KARTÖFLUSÚPUDAGURINN: HALDINN Í FJÓRÐA SINN
Súpa og sögulegar heimildir
Kartöflusúpudagurinn hefur verið að stækka ár frá ári og er Halldóra hæstánægð með þá þróun.
FRETTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Demantsbrúðkaup
60 ára brúðkaupsafmæli
Önnu Hafl iðadóttur og
Árna Helgasonar
frá Neðri-Tungu. Í dag eru 60 ár síðan Anna og Árni voru gefi n saman í
Breiðavíkurkirkju, Anna 21 árs og Árni 26 ára. Leiðir þeirra lágu fl jótt
saman þar sem þau voru uppalin í sömu sveit og fóru snemma að gefa
hvort öðru auga. Eftir brúðkaup hófu þau búskap á Hvallátrum í félagi
við foreldra Önnu. Árið 1950 festu þau kaup á jörðinni Neðri Tungu í
Örlygshöfn og bjuggu þau þar til ársins 1980. Undanfarin ár hafa Anna
og Árni búið á Patreksfi rði. Ávöxtur hjónabands þeirra eru 9 börn,
talin frá vinstri Ólafur, Rúnar, Helgi, Ásbjörn Helgi, Halldór, Hafl iði,
Jón, Erna og Dómhildur. Afkomendur þeirra telja nú 34 barnabörn og
20 barnabarnabörn eða 63 beinir afkomendur. Í dag eyða Árni og Anna
deginum með börnum sínum í átthögum þeirra fyrir vestan.
Jóna Sæmundsdóttir
Minningarathöfn verður haldin í Seyðisfjarðarkirkju
sunnudaginn 27. júlí kl. 14.00.
Guðbjörg Ragnarsdóttir Gestur Guðnason
Tryggvi Ragnarsson
Arnfríður Ragnarsdóttir Sigurður Másson
Guðrún Ágústa Sæmundsdóttir
og barnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafað-
ir, afi og langafi,
Jón Bergsson
Ketilsstöðum
lést miðvikudaginn 23. júlí á Heilbrigðisstofnun
Austurlands á Egilsstöðum.
Elsa Guðbjörg Þorsteinsdóttir
Halldóra S. Jónsdóttir Birgir Sigfússon
Bergur Jónsson Olil Amble
Ragnheiður Jónsdóttir
Steinunn Jónsdóttir Einar Valur Oddsson
barnabörn, langafabörn og aðrir aðstandendur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Aðalbjörg Sigurðardóttir
frá Hróarsstöðum, Víðilundi 24, Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt
21. júlí. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstu-
daginn 1. ágúst kl. 11.00.
Hjörtur Hermannsson Rannveig Gísladóttir
Svala Hermannsdóttir Bárður Guðmundsson
Sigurður Hermannsson Antonía Lýðsdóttir
Stefán Hermannsson
Brynjar Hermannsson Sigríður Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
AFMÆLI
PÁLL STEIN-
GRÍMSSON
KVIK-
MYNDA-
GERÐAR-
MAÐUR ER
78 ÁRA Í
DAG.
SKJÖLDUR
EYFJÖRÐ
FANNARS-
SON ER 30
ÁRA Í DAG.
MATT
LEBLANC
LEIKARI ER
41 ÁRS Í
DAG.
KRISTJÁN
KRISTJÁNS-
SON HEIM-
SPEKINGUR
ER 49 ÁRA Í
DAG.
Fyrir þær fjölskyldur sem
leggja leið sína að Arnar-
stapa um helgina er tilvalið
að slást í lið með land vörðum
Snæfellsnesþjóðgarðs.
Klukkan 11 á laugardags-
morgni má finna þá við Arn-
arbæ þar sem þeir bíða eftir
félagsskap.
Takmarkið er að mynda
frítt föruneyti barna á aldr-
inum sex til tólf ára og kanna
náttúruna í kringum bæinn,
segja nokkrar sögur og auð-
vitað gleyma sér í hinum
ýmsu leikjum.
Foreldrum er velkomið
að taka þátt í herlegheitun-
um sem ætlað er að taki um
eina klukkustund.
- tg
Landverðir leika sér
Landverðir taka á móti börnum
við Arnarbæ alla laugardaga kl.
11. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA