Fréttablaðið - 25.07.2008, Blaðsíða 55
FÖSTUDAGUR 25. júlí 2008 31
VALUR GREFUR BUBBADISKA Hann segir það dapurlega þróun að erfitt er nú til dags
að greina milli listar og auglýsinga. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Meðan peningahyggjan og
auglýsingamennskan veður
uppi og hvert vígið á fætur
öðru fellur er aðeins einn til
að andæfa: Valur Gunnars-
son rithöfundur sem telur
sig þó ekki einan á báti þótt
ekki heyrist í mörgum.
„Fyrir fimmtán árum hefði
engum listamanni dottið í hug að
selja lög sín í auglýsingar. Nú er
eins og allir hafi látið glepjast af
græðginni,“ segir Valur Gunn-
arsson rithöfundur.
Nýverið fréttist að Megas
hefði selt Toyota-lag sitt Ef þú
smælar framan í heiminn í aug-
lýsingu. Töldu þá margir síðasta
vígið, ef undan er skilinn Bjart-
mar, fallið því Megas hefur hing-
að til tekið því fjarri að selja lög
sín í auglýsingar. Valur bendir á
þá nöturlegu staðreynd að í texta
lagsins syngi Megas: „Því best er
að vera fremstur í fláttskap og
vélum/ og mæla framan í fjand-
ann í sátt.“ – línur sem Valur
hefði talið til kaldhæðni en reyn-
ast svo bókstaflegrar merkingar.
„Af hverju er Toyota að tala við
Megas? Af því að hann er sér-
fróður um Toyota? Bíla? Að hann
sé þekktur fyrir að keyra Toy-
ota? Nei, af því þeir vita að hann
hefur áhrif á fólk og þeir eru að
kaupa þau áhrif,“ segir Valur.
Verst er að ef fólk sér ekki leng-
ur mun á list og auglýsingum þá
missir listin marks. Og það sem
meira er, þeir listamenn sem eru
útfarnir í að selja list sína í aug-
lýsingar hætta að vera eftirsókn-
arverðir hjá auglýsendum. Jafn-
vel læðist að manni sá grunur að
auglýsingamennirnir sæki sér í
lagi í þá sem hafa gefið sig út
fyrir að vera á móti því að list
þeirra sé höfð í auglýsingaskyni.
Valur tók sig til og gróf Bubba-
plötur sínar eftir að Bubbi seldi
lög sín Sjóvá. Hann segir það tíu
ára ferli með auglýsingamennsku
Bubba og Megas sleppi nú með
gula spjaldið hvað sig varði.
„Bubbi seldi allt sem hann hefur
samið fyrir þremur árum.
Umfjöllunin um þann gerning
var á þá leið að þetta hefði verið
gott hjá honum og tónlistarmenn
loks fengið þá virðingu sem þeim
ber. Ég held að engum finnist
þetta nú góð hugmynd, síst lík-
lega Bubba sem hefur tapað
öllum peningunum og lögunum
líka,“ segir Valur aðspurður
hvort hann sé ekki einn á báti
með að benda á skörun listar og
auglýsinga. Valur segir bara
engan hafa hag af því að andæfa
og heldur áfram að nefna dæmi
um list sem höfð er til auglýs-
inga: Glitnis-iPodda á Gljúfra-
steini og Óttar Proppé sem seldi
pönk sitt „Burt með kvótann“
sem „Skítt með kerfið“ – eins og
það sé eitthvert „steitment“ að
kaupa áskrift að símafyrirtæki?
„Þarna er pönkið dautt,“ segir
Valur sem ætlar að gera betur
grein fyrir sjónarmiðum sínum í
grein sem birtist í Lesbók Mogg-
ans á morgun. Ætla má að sú
grein veki upp umræður.
jakob@frettabladid.is
Auglýsingar eru
að drepa listina
Ástæðan fyrir því að Angelina Jolie og Brad Pitt eignuðust
tvíbura á dögunum ku vera sú að þau nýttu sér tæknifrjóvgun,
en þá er algengt að fleira en eitt egg frjóvgist og nái ból-
festu. Þessu heldur tímaritið US Weekly nú fram.
„Börnin komu undir í tæknifrjóvgun. Þau vildu
bæði ólm eignast fleiri börn sem fyrst,“ segir
heimildarmaður blaðsins. Í viðtali við blaðið segir
læknirinn Arthur Wisor, sérfræðingur í tæknifrjóvg-
unum, að líkurnar á því að kona á aldri Angelinu, sem
er 33 ára, verði þunguð af tvíburum á náttúrulegan
hátt séu undir einu prósenti. Með tæknifrjóvgun eru
líkurnar hins vegar í kringum 25%.
Heimildarmaður blaðsins segir að Angelina hafi
valið að fara þessa leið, svo hún þyrfti ekki að
takast á við stressið sem fylgdi því að reyna að
verða ólétt.
Jolie og Pitt í
tæknifrjóvgun?
TVÍBURARNIR GLASABÖRN? Slúður-
ritið Us Weekly heldur því fram að
Angelina og Brad hafi notfært sér
tæknifrjóvgun við getnað tvíburanna.
Lögmál 4: Bikarinn er fullur og froðutoppurinn
rís upp yfir brúnina. Þá er froðusveðjan tekin.
Henni er beint frá líkamanum og strokið lárétt með
45 gráðu halla, hársbreidd yfir brúninni. Stærstu
loftbólurnar hafa leitað efst í froðuna og mistakist
þetta skref munu þær springa þeim afleiðingum að
froðan fellur hratt. Án froðunnar er ölið varnar-
laust og verður flatt á skammri stundu.
Lögmál 5: Að lokum verður að tryggja að froðu-
toppurinn sé af nákvæmlega réttri þykkt.
Fullkomnunin felst í smáatriðunum: Í 33 cl
bikar skal froðan vera nákvæmlega 3 cm. Hvorki
meira né minna. Þetta samsvarar samanlagðri
breidd vísifingurs og löngutangar þess sem
njóta skal.