Fréttablaðið - 25.07.2008, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 25.07.2008, Blaðsíða 50
26 25. júlí 2008 FÖSTUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Í alvörunni, Selma! Sjá allir að ég nota kollu? Tja... Það er mögulega hægt að sjá smá litamun! Þá fer hún af! Vík frá mér! Ertu viss? Selma! Hvern er ég að plata? Þessi sjálfsblekking verður að fá enda! Frá og með nú mun ég spjara mig með því hári sem náttúran hefur gefið mér! Stolt af þér! Meinarðu að allir hafi átt svona stóra hátalara einhvern tíma? Ekki allir ... bara þeir virkilega flottu. Maður tengdi svona djöfla við magnara og plötuspil- ara, nældi í plötu upp úr umslaginu og setti nálina á og þá fékk maður um tuttugu mínútna nokkurn veginn óbjagaða tónlist. Svo sneri maður plötunni og hlustaði á hina hliðina Hver ertu? Thomas Edison? Læknadót fyrir byrjendur Skurðstofa Ó, Sfinx, hvernig er hægt að fá hunda til að hætta að gelta yfir baksætið í bílum? Sestu í framsætið. Stopp Tómatar og múffur!? Af hverju ekki saft? Tómatar og múffur til sölu Við áttum enga saft Af hverju ekki aspas og rem- úlaði? Áttuð þið það ekki heldur? Aðrar verslanir fá við- skiptavini ... Við fáum vandræðagemsa Voffi elskar Sfinxinn! Bíddu aðeins, elskan, pabbi þarf fyrsta að svæfa manninn ... og ur lu Sem ungur drengur var ég stækur aðdáandi hljómplötunnar með ævintýrum Emils í Kattholti. Nú vill svo til að tveggja ára dóttir mín hefur líka tekið ást- fóstri við Emil, en kýs að njóta skammarstrika hans í formi sænskrar DVD-myndar með íslenskri talsetningu. Ég horfði á myndina með dóttur minni um dag- inn, og rann þá upp fyrir mér hversu mikið hlutirnir geta breyst á tveimur áratugum. Það sést best á Alfreð, vinnumanni í Kattholti. Á sínum tíma þótti mér Alfreð algjör toppmaður. Fyrsta flokks töffari sem kallaði ekki allt ömmu sína, nema ef vera skyldi ömmu sína, sem bjó á fátækrahæli skammt frá Kattholti. Það persónuleikamat byggðist á djúpri og þýðri rödd Arnars Jónssonar leikara, sem fór með hlutverk Alfreðs á plötunni. Maður með svona flotta rödd gæti aldrei orðið undir í lífinu. Í DVD-mynd dóttur minnar er rödd Alfreðs orðin undarlega skræk og skrámug, og gefur til kynna að vinnumaðurinn sé greindarskertur fæðingarhálfviti sem eigi við alvar- lega geðfötlun að stríða. Þessi umskipti setja persónu Alfreðs í spánnýtt samhengi. Getur verið að þegar platan var gerð, í síðróttækni áttunda áratugarins, hafi það þótt sjálfsagt að rödd hins sterka vinnu- manns Alfreðs endurspeglaði að um væri að ræða vel gefinn prýðis- pilt? Getur þá líka verið að í tal- setningu hins firrta tíunda áratug- ar hafi rödd hins auma vinnuþræls átt að benda til þess að Alfreð væri ræfill af lágstétt, dæmdur til eilífðar vistar í vanefnum og heimsku? Spyr sá sem ekki veit. Ég tók líka eftir öðru athyglis- verðu í fari Alfreðs. Vinnukonan á bænum, Lína, er bálskotin í vinnu- manninum og gefur honum sífellt undir fótinn. Alfreð sýnir Línu ekki vott af áhuga, en er hins vegar ávallt til í að rölta niður að vatni og stinga sér til sunds með Emil. Þótti ekkert tiltökumál að fullorðnir karlmenn böðuðu sig kviknaktir með drengjum undir lögaldri í gamla daga? Tímarnir eru svo sann- arlega breyttir. STUÐ MILLI STRÍÐA „Þú og ég, Emil. Þú og ég.“ KJARTAN GUÐMUNDSSON LÍTUR Á ALFREÐ VINNUMANN SEM TÁKN UM BREYTTA TÍMA Allra síðustu sætin! Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Montreal 6. og 13. júní. Þetta er einstakt tækifæri til að njóta lífsins í þessari stórkostlega spennandi borg sem er önnur stærsta borg Kanada. Í borginni mætast gamli og nýi timinn, rík sagan og iðandi nýbreytnin á einstaklega skemmtilegan hátt. Það er frábært að skoða sig um, versla og njóta lífsins í Montreal; fallegar byggingar, endalaust úrval verslana og veitingastaða og mjög hagstætt verðlag. Gríptu tækifærið og smelltu þér til Montreal og njóttu þess besta sem þessi spennandi heimsborg hefur að bjóða. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is BYLGJAN BER AF Samkvæmt könnun Capacent í aldurshópnum 18-54 ára á tímabilinu 1. janúar til 29. júní 2008. Hlutdeild - hlustun í mínútum á dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.