Fréttablaðið - 25.07.2008, Blaðsíða 59

Fréttablaðið - 25.07.2008, Blaðsíða 59
FÖSTUDAGUR 25. júlí 2008 35 FÓTBOLTI Blikar unnu Keflavík 3-2 í bráðfjörugum leik í Kópavogi í gær. Leikurinn hófst fjörlega og strax á 12. mínútu kom Guðjón Árni Antoníusson Keflvíkingum yfir með góðu marki. Hann fékk sendingu við vítateiginn hægra megin, lék þar á varnarmann og skoraði með frábæru skoti neðst í fjærhornið. Aðeins fjórum mínútum síðar jafnaði Jóhann Berg Guðmunds- son metin nánast upp á eigin spýt- ur. Hann fékk knöttinn rétt fyrir utan vítateiginn hægra megin, lék boltanum inn á miðjuna og skoraði með frábæru skoti í nærhornið. Keflvíkingar voru greinilega ekki ánægðir með leik sinni í fyrri hálfleik því þeir gerðu tvær breyt- ingar á liði sínu í hálfleik. Það hafði lítið að segja því þegar síðari hálfleikur var einungis rúmlega mínútu gamall þá kom Jóhann Berg Breiðablik yfir með sínu öðru marki. Hann fékk sendingu inn fyrir vörn Keflavíkur, stakk varnarmennina af og skoraði með hnitmiðuðu skoti í fjærhornið. Guðmundur Steinarsson jafnaði síðan metin með góðum skalla eftir frábæra sendingu Símuns Samuelsen af vinstri kanti en Keflvíkingar höfðu sótt töluvert í sig veðrið eftir mark Breiðabliks og uppskáru eftir því. Eftir mark Keflvíkinga áttu bæði lið tækifæri til að komast yfir og það var varamaðurinn Magnús Páll Gunnarsson sem nýtti sitt tækifæri vel þegar hann skoraði sigurmarkið fimm mínút- um fyrir leikslok. Keflvíkingar náðu ekki að jafna þrátt fyrir stífa sókn undir lok leiksins og það voru því heimamenn sem fögnuðu vel í leikslok. Magnús Páll var vitaskuld ánægður með úrslitin. „Gerist þetta nokkuð sætara en þetta? Það þurfti einhvern í þetta hlutverk að klára leikinn og í þetta skiptið var það ég. Mér fannst við hafa góð tök á þessum leik, bæði liðin eru virkilega vel spilandi en ég vil meina að við höfum mætt grimmir til leiks strax í upphafi og það skóp þennan sigur,“ sagði Magnús og bætti við að nú ætluðu Blikar að fara skrefinu lengra í bikarnum en þeir gerðu í fyrra en þá fóru þeir einnig í undanúrslit. „Já það er alveg klárt að við ætlum að bæta fyrir tapið í Laug- ardalnum og við sjáum ekkert nema alla leið í þessu. Við ætlum allavega að selja okkur mjög dýrt.“ Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, var svekkur í leikslok, en sagðist hafa vitað frá upphafi að þetta yrði erfitt. „Já það er leið- inlegt að vera dottinn út úr þessari frábæru keppni en við fórum erf- iðu leiðina. Náðum að skora tvö mörk á útivelli gegn góðu liði, en það er erfitt að vinna sigur á úti- velli ef þú færð á þig þrjú mörk, það er of mikið,“ sagði Kristján. „Fyrst Breiðablik sló okkur við finnst mér þeir ansi líklegir en það verða fleiri sterk lið í hattin- um þegar verður dregið,“ sagði Kristján en dregið verður í dag. Fjölnir átti ekki í vandræðum með Víkinga á heimavelli sínum í gær. Víkingar stilltu upp fjögurra manna vörn og sex manna miðju með engan sóknarmann. Tómas Leifsson skoraði eina markið í bragðdaufum leik. Fylkir komst áfram eftir fram- lengingu gegn Haukum á gervi- grasinu í Hafnarfirði. Haukar voru síst lakari aðilinn og stríddu úrvalsdeildarliðinu svo um mun- aði. En Fylkismenn voru sterkari í framlengingunni og undir lok hennar skoraði Kjartan Ágúst Breiðdal eina mark leiksins. - sjj Breiðablik, Fjölnir og Fylkir komust öll áfram í undanúrslit VISA-bikars karla í gærkvöldi: „Gerist það nokkuð sætara en þetta?“ FYRSTI LEIKUR Jóhann B. Guðmundsson spilaði sinn fyrsta leik í Keflavíkurtreyj- unni í nokkur ár þegar hann kom inn á í síðari hálfleik. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FRÁBÆR Jóhann Berg Guðmundsson kemur Keflavík hér yfir í 2-1. Hann skoraði tvö mörk og átti frábæran leik. FÓTBOLTI KR er komið í undanúr- slit Visa-bikarsins eftir 3-2 sigur á Grindavík í spennuþrungnum leik í Frostaskjólinu í gærkvöld. Leik- urinn var frábær skemmtun og hefðu bæði lið hæglega getað skorað fleiri mörk KR-ingar fengu sannkallaða óskabyrjun þegar Björgólfur Tak- efusa kom þeim röndóttu yfir eftir aðeins þriggja mínútna leik. Átta mínútum síðar tvöfaldaði Gunnar Örn Jónsson forystuna með öðru marki sínu gegn Grindavík á fjór- um dögum. Bæði mörkin komu eftir að Grindvíkingar klúðruðu dauðafærum hinum megin. Mbang Ondo minnkaði muninn í 2-1 þremur mínútum fyrir leikhlé með mark af stuttu færi eftir að Pétur Marteinsson hafði bjargað skoti Tomasz Stolpa á línu. Aðeins voru liðnar sjö mínútur af síðari hálfleik þegar Marinko Skaricic jafnaði metin fyrir Grindavík. Það tók KR aðeins þrjár mínút- ur af svara fyrir sig og ná for- ystunni á nýjan leik. Óskar Örn Hauksson stakk sér þá inn fyrir vörn Grindavíkur og tryggði KR sigur á sínum gömlu félögum. Þegar tæpur hálftími var eftir af leiknum var dæmt víti þegar Pétur Marteinsson handlék knött- inn inni í vítateignum. Stefán Logi Magnússon varði víti Scotts Rams- ay meistaralega og tryggði liði sínu sæti í undanúrslitunum. Pétur Marteinsson var hæst- ánægður með að vera kominn í undanúrslit bikarsins eftir erfið- an leik. „Þeir reyndust okkur erf- iðir. Þeir sóttu á mörgum mönnum þegar þeir sóttu. Þetta var leikur þar sem manni fannst maður hafa tögl og hagldir og stjórna gangi leiksins en þeir voru engu að síður hættulegir. Þeir áttu líka færi í fyrri hálfleik áður en við skorum þannig að við erum geysilega ánægðir með að vera komnir í undanúrslit í keppninni. Þetta var fullerfitt að mínu mati,“ sagði Pétur. Milan Stefán Jankovic var ánægður með sína menn þrátt fyrir tapið. „Það var fínn fótbolti í dag. Við blönduðum saman bar- áttu og spili og ég var ánægður með okkar leik frá fyrstu mínútu. Við fengum fullt af færum í leikn- um og ég er mjög ánægður með mína stráka. Ég hrósaði þeim í hálfleik og ég get hrósað þeim aftur núna í leikslok,“ sagði Jank- ovic í leikslok. -gmi KR og Grindavík buðu áhorfendum upp á veislu í í VISA-bikarnum í gær: Stefán Logi tryggði KR áfram SKORAÐI SIGURMARKIÐ Óskar Örn Hauksson í góðu færi en að þessu sinni varði Zankarlo í marki Grindavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL VISA-bikar karla Breiðablik-Keflavík 3-2 0-1 Guðjón Árni Antoníusson (12.), 1-1 og 2-1 Jóhann Berg Guðmundsson (16. og 46.), 2-2 Guðmundur Steinarsson (64.), 3-2 Magnús Páll Gunnarsson (82.). KR-Grindavík 3-2 1-0 Björgólfur Takefusa (4.), 2-0 Gunnar Örn Jónsson (11.), 2-1 Gilles Mbang Ondo (42.), 2-2 Marinko Skaricic (53.), 3-2 Óskar Hauksson (55.). Fjölnir-Víkingur 1-0 Tómas Leifsson (37.). Haukar-Fylkir 0-0 (0-1 eftir framl.) 0-1 Kjartan Ágúst Breiðdal (105.) 1. deild karla: Leiknir-Selfoss 1-2 Njarðvík-Víkingur Ólafsvík 1-1 ÍBV-Þór 4-1 Íslandsmótið í golfi í Eyjum: Karlar: (eftir fyrsta dag) 1. Björgvin Sigurbergsson, GK 66 2. Heiðar Davíð Bragason, GR 69 3. Ólafur Björn Loftsson, NK 70 3. Sigmundur Einar Másson, GKG 70 3. Örn Ævar Hjartarson, GS 70 3. Axel Ásgeirsson, GR 70 3. Hlynur Geir Hjartarson, GK 70 3. Kristján Þór Einarsson, GKJ 70 Konur: (eftir fyrsta dag) 1. Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO 74 2. Tinna Jóhannsdóttir, GK 77 3. Ásta Birna Magnúsdóttir, GK 79 3. Nína Björk Geirsdóttir, GKj 79 3. Andrea Ásgrímsdóttir, GA 79 6. Hanna Lilja Sigurðardóttir, GR 80 6. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 80 6. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL 80 9. Ragnhildur Sigurðardóttir, GR 81 HM U-20 ára kvk: Ísland-Þýskaland 24-23 Mörk Íslands: Þórey Rósa Stefánsdóttir 6, Karen Knútsdóttir 5/3, Rut Jónsdóttir 4, Hildigunnur Einarsdóttir 4, Sunna María Einarsdóttir 1, Hildur Þorgeirsdóttir 1, Auður Jónsdóttir 1, Rebekka Rut Skúladóttir 1, Arna Sif Pálsdóttir. Guðrún Ósk Maríasdóttir varði 19/2 skot. ÚRSLIT GÆRDAGS FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.