Fréttablaðið - 25.07.2008, Side 34

Fréttablaðið - 25.07.2008, Side 34
t íska ferskleiki dagsins í dag KATE MOSS GERIR SNYRTIVÖRUR Ofurfyrirsætan Kate Moss hefur þegar sent frá sér eitt ilmvatn, Kate by Kate Moss, og er með annað í bígerð. Hún ætlar nú einnig að leggja nafn sitt við snyrtivörur sem fyrirtækið Coty mun framleiða. Það er einnig fyrirtækið á bak við Rimmel-snyrtivöru- línuna, en Kate hefur verið andlit hennar árum saman. Stórt skal það vera 1. Armböndin frá Accessorize standa alveg ein og sér, en þeim má líka hrúga saman til að ýkja stærðina enn frekar. 2. Hálskeðjan úr Spúútnik ætti að falla vel í kramið hjá þeim sem finnst stærðin skipta máli, en hún er ekki jafnþung og hún lítur út fyrir að vera. 3. Litskrúðugt og áberandi úr Topshop. 4. Grafískt og flott viðarhálsmen frá Oasis. 5. Stórir og flottir eyrnalokkar úr Accessorize. 6. Áberandi flottur hringur frá Oasis. 7. Burberry Prorsum sýndi risastórar hálsfestar. 8. Givenchy hlóð hálskeðjunum á sínar fyrirsætur. Útsölurnar standa í fullum blóma og verið er að rýma til fyrir haust- vörunum sem hvað úr hverju taka að streyma inn í verslanir. Ég er ein þeirra sem eru allsendis ekki tilbúnir til að sleppa tök- unum á sumrinu nú þegar, enda heill yfirlýstur sumarmán- uður eftir. Um leið og haustvörurnar berast og kápurnar fara að skjóta upp kollinum kemur þó óneitanlega dálít- ill fiðringur í fingurna sem halda traustataki í budd- una. Þeir sem vilja daðra aðeins við haustið, án þess þó að skipta sumarkjólum og hælaskóm út fyrir gráan ullarfatnað, þótt fallegur sé, geta hins vegar tileinkað sér eitt heitasta tískufyrirbæri haustsins: stóra skartgripi. Stór og klunnaleg armbönd, fyrirferðarmikil háls- men og eyrnalokkar voru í aðalhlutverki á tísku- pöllunum þegar helstu hönnuðir heims sýndu línur sínar fyrir komandi haust. Burberry Prorsum lagði áherslu á einn stóran skartgrip, en einnig má til- einka sér hugsun Givenchy og hlaða á sig hverri keðjunni á fætur annarri þangað til hálsinn mótmælir sökum þunga. Konur eiga aldrei nóg af tvennu: skóm og skarti. Báðir hlutir geta gerbreytt annars hlutlausum klæðnaði og sett á hann sterkan svip, eins og fyrirsæta Givenchy sannar. Skart hefur þar að auki þann kost að það þarf ekki að kosta skyrtuna, ef svo má að orði komast. sunna@frettabladid.is1 2 3 4 5 6 7 8 10 • FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2008 Útsölulok á morgun 50% afsláttur af útsöluvörum Opið föstudag 11-18.30 laugardag 11-1

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.