Fréttablaðið - 25.07.2008, Page 54
30 25. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Stúlknasveitin Kári? gæti
orðið næsta stórmál í
íslenska poppinu. Sveitina
skipa fjórar stúlkur fæddar
1993, þær Silvía, Auður,
Lilja og Margrét. Tvær
koma úr Árbænum, ein úr
Grafarvogi og ein frá Norð-
lingaholti. Þetta er því ekta
úthverfaband.
„Þetta er popprokk hjá okkur,
eitthvað svoleiðis,“ segir Silvía.
„Við kynntumst á Sönglist, nám-
skeiði hjá Borgarleikhúsinu, og
okkur langaði bara til að stofna
svona hljómsveit. Þetta vantaði
alveg hérna á Íslandi. Við erum
ekkert líkar Nylon enda búum
við til lögin okkar sjálfar og við
erum kraftmeiri en þær. Við
erum ekki alveg jafn miklir ljúfl-
ingar og þær. Við syngjum ekki
með spariröddunum. Við gætum
þó alveg sungið með sparirödd-
unum ef við værum með einhver
sparilög.“
Fyrir síðustu jól sömdu stelp-
urnar fyrsta lagið sitt, jólalagið
Jól án þín. Þær mættu galvaskar
í jólaþorpið í Hafnar-
firði þar sem Gunni
og Felix voru að
skemmta. „Þær
komu nú bara og
báðu um að fá að
syngja lagið sitt á
sviðinu,“ segir
Gunnar Helgason. „Það var nú
auðsótt mál. Við Felix féllum
alveg í stafi yfir þessu hjá þeim,
þetta var svo gott. Ég hvatti þær
eindregið til að halda áfram og
síðan höfum við verið í sambandi.
Ég el nú ekki þann draum í brjósti
mér að vera einhver Einar Bárð-
arson en ef ég gerði það myndi ég
tvímælalaust verða umboðsmað-
urinn þeirra. Ég sé mikla framtíð
í þessu hjá þeim. Þær syngja
mjög vel og af fullum krafti. Það
er gaman að sjá svona ungar
stelpur standa svona keikar og
syngja fullar sjálfstrausts.“
Silvía segir þær stelpurnar
hafa samið slatta af lögum síðan
– lög eins og Ég veit hvað ég vil,
Það sem þú gerðir og Friends
Forever – og þær fengu Hall Ing-
ólfsson til að búa til undirspil.
Með þetta ætla þær að troða upp
á næstunni – „Draumurinn er
auðvitað að gera plötu, en fyrst
er að stofna Myspace-síðu og
koma fyrsta laginu í spilun. Það
getur í sjálfu sér verið hvaða lag
sem er, þau eru öll jafngóð.“
En hvað á þetta nafn á hljóm-
sveitinni – Kári? – að fyrirstilla?
„Það er nú það,“ segir Silvía
leyndardómsfull. „Okkur fannst
þetta nafn bara fyndið og
skemmtilegt því fólk fer að
spá í því hver þessi Kári sé.
Hver er það? Nú, hann er
þessi sem er alltaf í felum!“
Kári? treður upp í Grundar-
firði nú á laugardaginn og
verður á Neistaflugi í Nes-
kaupstað um verslunar-
mannahelgina. Auk þess að
flytja eigið efni ætla þær að
hjálpa Gunna og Felix í nokkr-
um lögum.
gunnarh@frettabladid.is
Miklu kraftmeiri en Nylon
FULLAR SJÁLFSTRAUSTS OG SYNGJA KEIKAR EIGIN LÖG Stúlknasveitin Kári? gæti
orðið næsta stórmál í íslensku poppi. Frá vinstri eru þær Lilja, Silvía, Auður og
Margrét. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
GERÐIST UMBOÐSMAÐ-
UR HEFÐI ÉG METNAÐ
Í ÞAÐ Gunnar Helga-
son segir Kára? eiga
framtíðina fyrir
sér.
Leikkonurnar Elma Lísa Gunn-
arsdóttir og María Heba Þor-
kelsdóttir verða með flóamark-
að í húsnæði Félags íslenskra
leikara á Lindargötu nú um
helgina. „Við höldum okkur
bara á heimaslóðum, engin
ástæða til að fara með þetta
neitt út í hérað,“ segir María
Heba og hlær við. Hún og Elma
Lísa eru engir nýgræðlingar í
markaðshaldi, þó María segi
Elmu þó hafa yfirhöndina.
„Hún er náttúrulega útskrif-
uð með mastersgráðu í
flóamörkuðum. Ég hef
bara aðeins dýft litlu
tánni ofan í þetta í sam-
anburði við hana,“ segir
hún og hlær við.
Þær stöllur bjóða gestum og
gangandi aðstoð við að klæða
sig upp fyrir öll tækifæri.
„Okkur finnst gaman að fá að
stílisera fólk og dúllast. Það
eru alltaf einhverjir sem að
nýta sér það að fá smá aðstoð
við stíliseringu, enda ýmislegt
skemmtilegt sem gerist
á flóamörkuðum,“
segir María Heba.
Þeir sem eru á hött-
unum eftir dressi
fyrir Gay Pride
gætu einnig fund-
ið eitthvað við
sitt hæfi hjá
leikkonun-
um. „Það er
fullt af
pallíettum
og glamúr
og gersem-
um hjá okkur, svo það er sko
aldrei að vita,“ segir hún.
Flóamarkaðurinn verður
með heimilislegum formerkj-
um. „Það verður heitt á könn-
unni og ekki ólíklegt að mað-
urinn minn skelli í eins og
eina sort eða tvær,“ segir
María Heba.
Flóamarkaðurinn fer
fram á Lindargötu 6, og
er opinn frá 11 til 18 á
laugardag, en 13 til 17 á
sunnudag. - sun
Stílisera viðskiptavinina
MASTERSGRÁÐA
Elma Lísa Gunnars-
dóttir er þaulreynd í
flóamarkaðshaldi.
HEIMILSLEGT María Heba Þorkels-
dóttir lofar heitu kaffi og heimilis-
legri stemningu á markaðnum.
> HATAR RÆKTINA
Leikarinn James McAvoy
sést nú á hvíta tjaldinu í
hlutverki leigumorðingja
í myndinni Wanted, þar
sem hann er í fantaformi.
Hann er það hins vegar
ekki lengur, því McAvoy
kveðst ekki hafa farið í
ræktina síðan tökum lauk.
„Í hreinskilni sagt myndi ég
frekar borða hundaskít en
fara í ræktina,“ segir hann.
ATÓMSTÖÐIN Hefur í nógu að snúast
um helgina.
Hljómsveitin Atómstöðin mun
hafa í nógu að snúast um helgina
því í kvöld verður blásið til
mótmælendatónleika á horninu
hans Helga Hóseassonar á
Langholtsvegi og með þeim er
ætlað að vekja athygli á málefnum
Helga. „Við vildum sýna Helga
þakklæti og stuðning í verki. Hann
er orðinn níræður og treystir sér
ekki lengra en út á þetta götuhorn
og þess vegna ætlum við að fara
þangað og standa með honum eins
og hann stendur með sannfæringu
sinni. Helgi er það sem miklu
fleiri Íslendingar ættu að vera, við
sitjum og kvörtum yfir kaffinu en
gerum aldrei neitt,“ segir
Guðmundur Ingi Þorvaldsson,
söngvari. Tónleikarnir hefjast
klukkan 19 og standa yfir í um
klukkustund.
Annað kvöld verður hljómveitin
svo með útgáfutónleika á Organ
og þar mun kenna ýmissa grasa.
Trúbadorinn JoJo mun hefja
kvöldið og skemmta gestum með
söng sínum og gítarleik, því næst
mun harmónikkuleikari stíga á
svið og leika fyrir dansi, einnig
mun hljómsveitin Vicky Pollard
taka nokkur lög og mun Stjáni
Stuð klára kvöldið og þeyta
skífum fram undir morgun. - sm
Standa
með Helga
Hóseassyni
Lögmál 1: Bikarinn skal vera tandurhreinn, þveginn
upp úr fitulausri sápu og skolaður í köldu vatni þar
til hann nær sama hitastigi og ölið. Þannig verður
froðan þéttari og heldur hvítum hlífiskildi sínum
lengur yfir hinum dýrmæta vökva. Minnstu óhrein-
indi geta spillt fyrir og mengað fullkomin bragðgæði
Stellu Artois.
Lögmál 2: Þegar byrjað er að hella er bikarnum hallað um
45 gráður. Þá sjáum við hvernig dýrmætur vökvinn hringar
sig ofan í bikarinn og myndar iðuna sem er galdurinn við
fljótandi gullgerðarlist. Þegar ölið kemst í samband við súr-
efni myndast smám saman þétt froða sem innsiglar inni-
haldið og verndar það frá fyrsta sopa til hins síðasta.
Lögmál 3: Þegar bikarinn, sem
hingað til hefur hallað um
45 gráður, hefur verið fylltur að
þremur fjórðu skal hann réttur
við. Með jafnri hreyfingu er hann
samtímis færður niður frá flösku-
opi um sem nemur hæð bikarins.
Þannig krýnum við ölið þéttri
froðu sem skýlir innihaldi bikars-
ins og tryggir ferskleika og líf
þessa fljótandi gulls.