Fréttablaðið - 27.07.2008, Síða 2
2 27. júlí 2008 SUNNUDAGUR
10 ltr.
4.590
NÝ MÁLNING
SÉRHÖNNUÐ FYRIR
ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR
Hrafnhildur Ýr, var þér ekkert
um þennan selskap?
„Nei, mér varð ekki um sel.“
Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir er
framkvæmdastjóri Selaseturs Íslands á
Hvammstanga sem stóð fyrir selatalningu
í Vatnsnesi á sunnudaginn þar sem taldir
voru 1.125 selir.
BELGRAD, AP Lögmaður Radovans
Karadzics, fyrrum leiðtoga
Bosníu-Serba,
póstlagði á
föstudag
frávísunar-
kröfu á
framsals-
beiðni til
handa
Karadzic til
stríðsglæpa-
dómstóls
Sameinuðu þjóðanna í Haag í
Hollandi.
Haft er eftir lögmanninum,
Svetozar Vujacic, að beðið hafi
verið með frávísunarkröfuna
fram á síðustu stundu til að tefja
fyrir framsali umbjóðanda hans
til dómstólsins. Karadzic var
handtekinn síðastliðinn mánudag
í Belgrad en búist er við því að
hann verði framseldur til
dómstólsins í næstu viku. - ovd
Tefur fyrir framsali:
Karadzic vill
ekki til Haag
RADOVAN KARADZIC
BANDARÍKIN Karlmaður á sextugs-
aldri var nýlega handtekinn í
Milwaukee í Bandaríkjunum
fyrir að skjóta sláttuvél sem
hann kom ekki í gang.
Maðurinn, Keith Walendowski
var ákærður fyrir ósæmilega
hegðun og fyrir að eiga afsagaða
haglabyssu. Verði hann fundinn
sekur má hann búast við allt að
11 þúsund dala sekt, jafnvirði
tæplega 900 þúsund króna og sex
og hálfs árs fangelsi. Haft er
eftir lögreglumönnum sem
handóku manninn að hann hafi
sagst eiga sláttuvélina og garðinn
og því hafi hann mátt skjóta
sláttuvélina. - ovd
Pirraður garðeigandi:
Skaut sláttuvél
með haglabyssu
BORGARMÁL Undanfarið hefur
verið unnið að því að rífa einn af
síðustu steinbæjunum í Reykja-
vík við Bergstaðastræti 22. Á
deiliskipulagi á að húsið að verða
friðað. Húsið var byggt árið 1893.
Bærinn er á horni Bergstaða-
strætis og Bjargarstígs og er oft
nefndur Miðgrund eða Sigur-
bjargarhús vegna þess að fyrsta
húsfreyjan á bænum var Sigur-
björg Sigurðardóttir. Steinbæir
eru sérreykvísk fyrirbæri í
húsagerð og stóð bygging þeirra
yfir á árunum 1870 til 1905. Færri
en tuttugu steinbæir standa eftir.
- vsp
Bergstaðastræti 22:
Gamall stein-
bær rifinn
RÚSTIR Í MIÐBÆNUM Búið er að rífa
húsið við Bergstaðastræti. Það var byggt
árið 1893. Fréttablaðið/Daníel
LÖGREGLUMÁL Lögreglunni á
Suðurnesjum var tilkynnt um
liggjandi mann við fjölfarna götu
í bænum í gærmorgun. Að sögn
varðstjóra taldi lögregla manninn
aðeins ölvaðan en þegar að honum
var komið sást að hann hafði orðið
fyrir mjög alvarlegri líkamsárás.
Hann reyndist vera ökklabrotinn
og með mikla áverka.
Í kjölfarið réðist lögreglulið
með aðstoð sérsveitar ríkislög-
reglustjóra inn í hús þar sem sá
grunaði átti að hafa verið í
gleðskap. Átta voru handteknir
vegna málsins og voru þeir færðir
til yfirheyrslu í dag. - hþj
Alvarleg líkamsárás í Keflavík:
Fótbrotinn á
Hafnargötunni
SKIPULAGSMÁL „Það er rétt að í sam-
keppnislýsingu um nýbyggingu
Listaháskóla Íslands eru bókanir
skipulagsráðs og sameiginlegur
vilji allrar borgarstjórnar Reykja-
víkur áréttað. En tillagan sem vann
mætir því ekki að fullu,“ segir
Hanna Birna Kristjánsdóttir, for-
maður skipulagsráðs Reykjavíkur-
borgar um vinningstillögu +Arki-
tekta að nýbyggingu Listaháskólans
á svokölluðum Frakkastígsreit við
Laugaveg.
Vísar hún til bókana fulltrúa í
skipulagsráði þar sem fram kemur
að þeir vilji sjá götumynd Lauga-
vegar á umræddum stað haldast
sem næst því sem hún er.
„Ég tek því undir með borgar-
stjóra að miðað við þessa afstöðu
tel ég einboðið að við munum óska
eftir samvinnu við Listaháskólann
til þess að tryggja að þessi sameig-
inlegi skilningur skipulagsráðs, um
að halda í götumyndina verði aðlag-
aður sem best að þessari ágætu
vinningstillögu.“
Ólafur F. Magnússon, borgar-
stjóri sagði í Fréttablaðinu í gær að
hann héldi að einhvers staðar í ferl-
inu hefði gleymst að taka tillit til
þessara sjónarmiða borgaryfir-
valda, að það beri að sýna gamalli
götumynd Laugavegar tillitssemi.
Hanna Birna segir margt afar
gott í tillögunni. „Við eigum fund
með forsvarsmönnum Listaháskól-
ans strax eftir helgi um hvernig
þessi tillaga geti sem best tekið mið
af því sem við höfum verið að óska
eftir,“ segir Hanna Birna sem stödd
er erlendis.
Hún fagnar því að Listaháskólinn
flytji sig í miðborg Reykjavíkur.
„Ég kvíði því ekki að takast á við
þetta verkefni með Listaháskólan-
um og ég er sannfærð um að við
finnum lausn sem fullnægir alger-
lega þörfum skólans og kemur til
móts við óskir borgaryfirvalda.“
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor
Listaháskóla Íslands segir að nú
fari tillagan til umræðu í skipulags-
ráði. „Ég treysti fólki þar til að taka
hana til málefna-
legrar og fag-
legrar umræðu
og afgreiða hana
þannig að allir
megi vel við
una,“ segir
Hjálmar.
Hann segir að
eftir boðaðan
fund með Hönnu
Birnu taki frek-
ara skipulags-
ferli við sem hann vonar að gangi
hratt fyrir sig. „Það er gott fyrir
skólann og borgina að fá niður-
stöður sem fyrst svo við getum
farið að byrja að undirbúa bygg-
inguna.“
„Það er einróma álit dómnefndar
og okkar sem að þessu stöndum að
byggingin upphefji þennan borgar-
hluta mjög mikið. Auðvitað er götu-
mynd ekki bara gömul hús og ég
treysti að skipulagsráð muni líta á
þetta með það í huga,“ segir Hjálm-
ar. olav@frettabladid.is
Rektor á fund skipu-
lagsráðs eftir helgi
Formaður skipulagsráðs segir tillögu að nýbyggingu Listaháskóla Íslands ekki
mæta kröfum borgarstjórnar um því sem næst óbreytta götumynd Laugavegar.
Rektor Listaháskólans segir götumyndina ekki bara snúast um gömul hús.
HANNA BIRNA
KRISTJÁNSDÓTTIR
HÚS LISTAHÁSKÓLA ÍSLANDS Vinningstillaga að fyrirhugaðri byggingu Listaháskólans á horni Laugavegar og Frakkastígs.
IÐNAÐUR Þrátt fyrir samdrátt á almennum bygginga-
markaði segist Gunnar H. Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar á Akranesi,
sjá fram á að verksmiðjan verði fullnýtt út þetta ár.
Salan verður þó nokkru minni í
ár en í fyrra eða líklega 130
þúsund tonn miðað við rúmlega
150 þúsund tonn árið áður. Þar
sem verksmiðjan seldi 20 þúsund-
um tonnum meira en framleiðslu-
geta hennar nemur varð að flytja
inn gjall frá Noregi en þess gerist
ekki þörf í ár.
„Við finnum vissulega fyrir
samdrætti á almennum markaði
og á sölu til stóriðju nú þegar
verkefninu fyrir austan er nær
lokið,“ segir Gunnar. „En það eru enn stór verkefni á
suðvesturhorninu, þar var salan til dæmis mun
meiri í síðasta mánuði en á sama tíma í fyrra. Munar
þar mest um byggingu tónlistarhúss í Reykjavík.“
„En svo veit maður ekki hvað tekur við þegar líða
tekur á haustið,“ segir hann. Hann segist vongóður
um að hið opinbera hefji umfangsmiklar fram-
kvæmdir á næstunni. „Einnig að það liðki fyrir því
að áfram verði virkjuð umhverfisvæn orka og hún
nýtt til frekari uppbyggingar orkufreks iðnaðar.
Slíkar framkvæmdir draga ekki bara úr þenslu á
meðan á byggingu mannvirkjanna stendur heldur
auka hagsæld í landinu áratugum saman eftir
gangsetningu.“ - jse
Sementsverksmiðjan á Akranesi finnur fyrir samdrætti eftir metár:
Fullnýting þrátt fyrir samdrátt
GUNNAR H.
SIGURÐSSON
SEMENTSVERKSMIÐJAN Á AKRANESI
Unnið er á fullum afköstum í Sements-
verksmiðjunni á Akranesi. Þar fara menn
þó vissulega ekki varhluta af ástandinu.
LÖGREGLUMÁL Kappakstri á Hring-
brautinni í fyrrinótt lauk með
þriggja bíla árekstri. Ökumenn á
tveimur bílum komu á miklum
hraða með þeim afleiðingum að
þeir rákust á leigubíl. Annar bíl-
anna lenti á gönguljósum við
Furumel en hinn fór á húsvegg sem
sprakk og glugginn brotnaði.
Bílarnir eru ónýtir en ökumenn
sluppu með skrekkinn. Mildi þykir
að bílarnir fóru ekki á hóp ungl-
inga sem höfðu farið hjá örskömmu
fyrir atvikið.
Þeim íbúum sem Fréttablaðið
ræddi við þykir nóg um ástandið
og segja að vart sé svefnfrið að fá
fyrir ískri í hjólbörðum og ámóta
ólátum. Íbúarnir voru sammála um
að taka þyrfti á vandanum. Þeir
biðla til borgaryfirvalda að setja
strax upp myndavélar til þess að
hræða ökufantana frá. Annars sé
bara tímaspursmál hvenær alvar-
legt slys verði.
Egill Bjarnason, yfirlögreglu-
þjónn í umferðardeild, segir að lög-
reglan viti af þessu en að oft sé erf-
itt að aðhafast eitthvað því
bílstjórar hagi sér vel um leið og
þeir sjái lögregluna.
„Að sjálfsögðu reynum við að
bregðast við og hvetjum íbúa til
þess að hringja þegar þeir verða
vitni að þessum kappakstri.“
- hþj
Íbúar við Hringbraut í Reykjavík biðla til borgaryfirvalda um aðgerðir:
Þrír bílar ónýtir eftir kappakstur
KEYRÐU NIÐUR GÖNGULJÓS Íbúar óttast
að kappakstrarnir eigi eftir að enda með
alvarlegu slysi.
Innbrot í Reykjanesbæ
Tilkynnt var um innbrot um tvöleytið
í gær. Þegar lögreglan kom á vettvang
voru tveir menn í íbúðinni. Þeir voru
handteknir og vistaðir í fangageymsl-
um.
Ók undir áhrifum fíkniefna
Ökumaður var handtekinn grunaður
um að aka undir áhrifum fíkniefna.
Tvö grömm af efni sem talið er
amfetamín fundust á honum. Hann
var látinn laus að lokinni yfirheyrslu.
Annar bílstjóri var stöðvaður á Reykja-
nesbraut fyrir hraðakstur. Hann er
grunaður um ölvun við akstur.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Sexfaldur vinningur næst
Enginn var með allar tölur réttar í
lottóinu í gær. Potturinn var fimmfald-
ur og nam upphæðin tæpum nítján
milljónum króna. Potturinn verður því
sexfaldur í næstu viku.
LOTTÓ
SPURNING DAGSINS