Fréttablaðið - 27.07.2008, Side 4
4 27. júlí 2008 SUNNUDAGUR
STJÓRNSÝSLA Björn Bjarnason,
dóms- og kirkjumálaráðherra,
segir á heimasíðu sinni að hraðinn
í máli Keníumannsins Pauls Ram-
ses sé í hefðbundnu ferli stjórn-
sýslukæru en hraðinn á málinu sé
meiri en venjulega. „Látið er í fjöl-
miðlum eins og einhver hæga-
gangur sé á máli Pauls Ramses hjá
ráðuneytinu. Það á ekki við nein
rök að styðjast“, segir á heimasíð-
unni.
Spurður um málshraða kæru
Pauls sagði Björn þetta: „Meðferð
málsins er lögum samkvæmt
innan ráðuneytisins en þar vinna
menn verk af þessu tagi ekki eftir
skeiðklukku heldur taka mið af
efni máls og hvernig það er lagt í
hendur ráðuneytisins.“
Mál Pauls Ramses barst dóms-
málaráðuneytinu 9. júlí með kæru
lögmanns Pauls, Katrínar Theó-
dórsdóttur. Kæran fór til Útlend-
ingastofnunar daginn eftir sem
skilaði umsögn af sér 15. júlí. Dag-
inn eftir var hún send til Útlend-
ingastofnunar lögmanninum til
umsagnar.
Keníumaðurinn Paul Ramses
hefur verið mikið í umræðunni
undanfarnar vikur eftir að honum
var vísað úr landi í byrjun mánað-
ar. Dómsmálaráðuneytið hefur nú
til meðferðar hvort Paul hafi með
réttmætum hætti verið sendur úr
landi. Niðurstaða er væntanleg í
ágúst að sögn Björns.
- vsp
Enginn hægagangur er í máli Pauls Ramses að sögn dómsmálaráðherra:
Ekki unnið eftir skeiðklukku
BJÖRN BJARNASON Dómsmálaráðherra
segir mál Pauls vera í eðlilegum farvegi.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BANDARÍKIN Munurinn milli
frambjóðendanna Baracks
Obama og Johns McCain fer
minnkandi samkvæmt skoðana-
könnunum. Þannig munar einu til
sex prósentum í þeim flestum.
Evrópuferð Obama virðist ekki
hafa jákvæð áhrif á framboð hans
heima fyrir, þótt honum hafi
verið tekið vel í Berlín og
Bretlandi. McCain hefur hins
vegar einbeitt sér mun meira að
innanríkismálum og fundað í
helstu barátturíkjunum undan-
farnar vikur. - vsp
McCain saxar á Obama:
Aðeins nokkur
prósent skilja að
LYFJAMÁL Smásöluverð á lyfjum er
allt að því sjöfalt hærra hér á landi
en í Svíþjóð, Danmörku og Noregi.
Þetta kemur fram í könnun Lyfja-
greiðslunefndar sem gerð var nú í
júlímánuði. Könnunin náði til 33
veltuhæstu pakkninganna sem
greiddar eru niður af Trygginga-
stofnun.
Þegar miðað er við meðalverð
lyfjanna var heildsöluverðið hér
yfir meðallagi á fimmtán pakkn-
ingum af þrjátíu og þremur. Smá-
söluverð er hærra en meðalverð í
mun fleiri tilfellum eða 25, sem er
fjölgun um eina pakkningu frá því
í síðasta mánuði.
Þrátt fyrir að vera í aðeins
þremur tilvikum með hæsta heild-
söluverðið, eru Íslendingar með
hæsta smásöluverðið í fjórtán til-
vikum, oftar en öll hin viðmiðun-
arlöndin.
Athygli vekur að af löndunum
fjórum er Ísland eina landið sem í
einhverjum tilfellum er með
lægsta heildsöluverðið en hæsta
smásöluverðið. Pakkningarnar
tvær sem um ræðir eru af floga-
veikilyfinu Lyrica.
Magalyfið Lómex-T er næstum
því sjö sinnum dýrara í smásölu á
Íslandi en í Svíþjóð. Hér kostar
lyfið í smásölu 10.586 krónur en í
Svíþjóð kostar það 1.578 krónur.
Guðmundur Gylfi Guðmunds-
son hjá Lyfjagreiðslunefnd segir
ástæðuna fyrir háu smásöluverði
vera þá að hér á landi hafi hærra
smásöluverð tíðkast lengi.
„Þá verður að taka til greina að
hér á landi eru verðin hámarks-
verð en á hinum Norðurlöndunum
eru verðin föst.“ Þetta þýðir að
íslensk apótek megi lækka verð
hjá sér ef þau vilja.
Þegar gerð var óformlega verð-
könnun á flogaveikilyfinu Lyrica í
fjórum apótekum í Reykjavík kom
á daginn að aðeins tvö þeirra,
Lyfja og Apótekarinn, seldu lyfið
undir leyfilegu hámarksverði. Hið
síðarnefnda á lægsta verðinu. Lyf
og heilsa og Lyfjaver seldu lyfið á
hámarksverði.
Norðmenn koma best út úr
könnuninni en þeir eru ekki aðeins
með lægsta heildsöluverðið á 21
pakkningu af 33 heldur eru þeir
með lægsta heildsöluverðið á 24
pakkningum, eða þremur fleiri.
Þessar þrjár pakkningar eru allar
með lægst heildsöluverð á
Íslandi.
Danir koma verst út hvað varð-
ar heildsöluverð, þeir eru fimmt-
án sinnum með hæst verð. Íslend-
ingar eru oftast með hæsta
smásöluverðið, eða í fjórtán tilvik-
um. helgath@frettabladid.is
Langmest álagning
á lyfjum hér á landi
Í samaburðarrannsókn á lyfjaverði í Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Íslandi
kemur fram að þrátt fyrir að vera næstoftast með lægst heildsöluverð á veltu-
hæstu lyfjapakkningunum eru Íslendingar oftast með hæsta smásöluverðið.
SMÁSÖLUVERÐ LYFJA ER HÁTT HÉR Á LANDI Lyfið Lómex-T er næstum því sjöfalt
dýrara á Íslandi en í Svíþjóð.
BRETLAND, AP Forsetaframbjóðand-
inn Barack Obama átti fund með
Gordon Brown, forsætisráðherra
Bretlands í Lundúnum í gær.
Eftir fundinn sagði Obama að
fundurinn hafi verið góður.
Mikilvægt sé að koma á auknu
samstarfi milli Bretlands og
Bandaríkjanna í umhverfismálum,
efnahagsmálum og baráttunni
gegn hryðjuverkum. Eftir
fundinn, sem stóð í tvær klukku-
stundir, fóru þeir saman í stuttan
göngutúr. Obama átti einnig fund
með Tony Blair, fyrrverandi
forsætisráðherra Bretlands og
David Cameron, leiðtoga Íhalds-
flokksins. - vsp
Obama hitti Gordon Brown:
Áttu fund og
fóru í göngutúr
BROWN OG OBAMA Forsetaframbjóð-
andinn átti í gær fund með helstu
leiðtogum Bretlands. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BANDARÍKIN, AP George Bush
sagðist í gær vera ólmur í að
undirrita frumvarp til laga sem
þrefaldar framlög Bandaríkjanna
til hjálpar baráttunni gegn
alnæmi og öðrum vásjúkdómum.
Þetta sjaldgæfa samstarf Hvíta
hússins og þingsins, þar sem
demókratar eru í meirihluta, mun
kosta um 3.800 milljarða íslenskra
króna á næstu fimm árum.
Bush mun undirrita frumvarpið
í næstu viku, en hann hefur árum
saman verið mikill stuðningsmað-
ur baráttunnar gegn alnæmi.
Lögin munu taka gildi í septemb-
er. - vsp
Samþykkir alnæmisfrumvarp:
Þreföldun á
framlögunum
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
Helsinki
Eindhofen
Amsterdam
London
Berlín
Frankfurt
Friedrichshafen
París
Basel
Barcelona
Alicante
Algarve
Tenerife
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
17
18
20
15
20
13
17
17
15
25°
27°
32°
25°
27°
23°
30°
27°
27°
31°
30°
25°
29°
28°
28°
31°
28°
21°
Á MORGUN
8-13 m/s s- til annars
3-8. Síðdegisskúrir.
ÞRIÐJUDAGUR
3-8 m/s.
20
14
14
22
20
20
5
4
4
8
5
6
6
15
6
2 6
16
22
22
15
17
25 15 20 20
18
1517
20
22
EKKERT LÁT Á
HLÝINDUNUM
Ekki er að sjá
annað en vikan
sem framundan
er verði áfram af-
skaplega hlý, líkt og
verið hefur. Veðrið
verður þó sýnu
best á norðanverðu
landinu. Þar verður
bjartast sem og
hvað hlýjast og má
vel reikna sig í 25
stig þar um slóðir á
morgun.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
SLYS Tveir menn slösuðust
alvarlega eftir bílveltu í Norður-
árdal um kvöldmatarleytið á
föstudaginn. Sá þriðji slapp með
smá skrámur.
Að sögn lögreglunnar í
Borgarnesi bar slysið að þegar
bílstjóri á norðurleið ætlaði að
taka fram úr en þegar hann lenti
úti á vegöxl reyndi hann að rétta
sig snögglega af með þeim
afleiðingum að bifreiðin þeyttist
af stað í margfalda bílveltu.
Ökumaður og farþegi í aftur-
sæti voru báðir fluttir á gjör-
gæslu. Farþeginn, sem var
beltislaus, er þar ennþá mjög
alvarlega slasaður. - hþj
Bílslys í Norðurárdal:
Tveir á gjör-
gæslu eftir veltu
Þá verður að taka til
greina að hér á landi eru
verðin hámarksverð en á hinum
Norðurlöndunum eru verðin
föst..
GUÐMUNDUR GYLFI GUÐMUNDSSON
STARFSMAÐUR LYFJAGREIÐSLUNEFNDAR
SAMGÖNGUR Forstjóri Qantas,
Geoff Dixon, segir tæringu ekki
hafa verið ástæðu þess að stórt
gat myndaðist á bol farþegaflug-
vélar á leið frá Bretlandi til
Ástralíu í fyrradag. Sú var
kenningin upphaflega en talið er
mögulegt að ytra byrði vélarinnar
hafi skemmst við óhapp.
Vélin, sem var af gerðinni
Boeing 747-400 nauðlenti á
Filippseyjum eftir að upp komst
um gatið. Rúmlega 360 manns
voru um borð í vélinni. Einnig
myndaðist gat í farþegarými svo
sást niður í farangursgeymslur.
- vsp
Rannsókn á flugatvikinu:
Ekki um tær-
ingu að ræða
FLUGVÉLIN Eins og sést er gatið tiltölu-
lega stórt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GENGIÐ 25.07.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
163,6289
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
80,96 81,34
161,68 162,46
127,44 128,16
17,077 17,177
15,755 15,847
13,465 13,543
0,7545 0,7589
131,85 132,63
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Fyrsta Risa-Syrpan
er komin út með 15
æsispennandi sögum
af íbúum Andabæjar.
Hörðustu Syrpu-
aðdáendur fá mikið
fyrir sinn snúð því
bókin er hvorki
meira né minna en
448 blaðsíður og
allar í lit!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Síðumúla 28 • 108 Reykjavík • Sími 522 2000