Fréttablaðið - 27.07.2008, Blaðsíða 19
FERÐALÖG 3
Ú
t um alla borg eru skilti
sem telja niður að deg-
inum mikla 08.08.08
kl.08 en þá verða Ólymp-
íuleikarnir settir. Það er óhætt að
segja að maður hafi fundið fyrir
undirbúningnum á eigin skinni
síðustu mánuði en miklar fram-
kvæmdir hafa verið næstum því á
hverju götuhorni. Nú er þessu öllu
að ljúka og verið er að taka niður
síðstu stillasana og verkamenn-
irnir eru rétt að slá síðustu högg-
in. Það sem kemur undan öllu
þessu er borg í sparibúningi.
Margar stórar og glæsilegar bygg-
ingar hafa risið og einnig er búið
að lagfæra ýmislegt sem betur
mátti fara. Það verður þó að segj-
ast að sumt lítur nokkuð kald-
hæðnislega út. Til að mynda stór-
glæsileg verslunarmiðstöð sem
verið er að opna og skartar mörg-
um af þekktustu vörumerkjum
heims er við hliðina á einum af
hinum vinsælu mörkuðum sem
selja ódýrar eftirlíkingar af sömu
vörumerkjunum. Það sem einnig
áður tilfinnanlega skorti eins og
ruslafötur, eru nú næstum því við
hvert fótmál og skal flokka í end-
urnýtanlegt rusl og annað. Þá er
búið að planta ógrynni af blómum
í öllum regnbogans litum og skella
litlum pálmatrjám meðfram næst-
um öllum gangstéttum.
Það er óhætt að segja það að borg-
in er farin að skarta sínu fegursta en
þrátt fyrir það bera margir Kínverj-
ar kvíðboga fyrir stóru stundinni. Í
samtölum mínum við landann hefur
maður fundið fyrir eftirvænting-
unni og stoltinu yfir að geta boðið
heimsbyggðinni uppá að halda þenn-
an mikla heimsviðburð. Hins vegar
eru sumir sem hafa efasemdir um
að allt verði tilbúið og að Peking geti
tekið á móti öllum þessum gestum.
Jafnvel eru einhverjir sem hafa
áhyggjur af því að eitthvað slæmt
muni gerast. En þrátt fyrir það held-
ur undirbúningurinn áfram og
klukkan tifar. Nýjustu reglurnar
sem tóku gildi í því skyni að minnka
mengun í borginni virðast vera að
virka því það er allt annað líf að
bregða sér bæjarleið eftir að helm-
ingur bílaflota borgarinnar hefur
verið kyrrsettur á hverjum degi.
Umtalsverður munur er náttúrulega
á umferðarþunganum en jafnframt
gæðum andrúmsloftsins. Vonandi er
að sú þróun haldi áfram svo að
íþróttamennirnir geti keppt á leik-
unum án vandkvæða.
Annað sem ég hef rekið mig á
hérna undanfarið er að öllum örygg-
isreglum er fylgt mun strangar
eftir nú um mundir en áður. Sem
dæmi má nefna að ef útlendingur
var stöðvaður út á götu og beðinn
um vegabréf og gat ekki framvísað
því var hann góðlátlega beðinn um
að vera það með sér næst. Nú um
stundir getur það sama þýtt að vera
tekinn af lögreglu og haldið í nokkr-
ar klukkustundir. Um 110.000 lög-
reglumenn og aðrir munu sjá um að
gæta öryggis á meðan á leikunum
stendur. Einnig tilkynntu yfirvöld
nýverið að heimilt sé að vera með
mótmæli í þremur almenningsgörð-
um en þeir eru allir töluvert frá
Ólympíuleikasvæðinu. Þá hafa
meira að segja öryggisverðirnir
sem gæta blokkarinnar minnar nú
sett upp hvíta hanska og heilsa mér
að hermannasið í hvert skipti sem
ég fer út í búð.
Hvert sem maður lítur er búið
að setja upp marglituð skilti þar
sem fólk er boðið velkomið til Pek-
ing og slagorðunum “One World,
One dream” er flaggað. Og ef að
veðurguðirnir ætla að vera með
einhver leiðindi á setningardaginn
en talið er að það séu 41% líkur á
rigningu eru vísindamenn í start-
holunum til að skapa rétta veðrið.
ÓLYMPÍULEIKARNIR NÁLGAST ÓÐFLUGA
Kolbrún Ólafsdóttir
skrifar frá Peking
með ánægju
Kaupmannahöfn
Billund
Stokkhólmur
Gautaborg
Berlín
Frankfurt Hahn
Friedrichshafen
London
París
Barcelona
Alicante
Eindhoven
Varsjá
Basel
Bókaðu ævintýraferð fyrir alla fjölskylduna
á www.icelandexpress.is
50%
Börn:
Börn, 11 ára og yngri í fylgd með
fullorðnum, fá helmingsafslátt af
verði fyrir skatta og aðrar greiðslur.
Sól, sól
skín á þig!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A