Fréttablaðið - 27.07.2008, Blaðsíða 39
RAÐAUGLÝSINGAR
SUNNUDAGUR 27. júlí 2008 19
Æskulýðssjóður
Næsti umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er
1. september 2008.
Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin
verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðs-
samtaka:
1. Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og
ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra.
2. Þjálfun forustufólks, leiðbeinenda og
sjálfboðaliða.
3. Nýjungar og þróunarverkefni.
4. Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og
æskulýðssamtaka.
Hvorki er heimilt að styrkja árvissa eða fasta
viðburði í félagsstar , svo sem þing, mót eða þess
háttar viðburði, né ferðir hópa.
Umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er fjórum sin-
num á ári, 1. febrúar, 1. apríl, 1. september og
1. nóvember og er umsóknarfrestur auglýstur
hverju sinni.
Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er
gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef
Stjórnarráðsins á vefslóðinni http://umsoknir.stjr.
is.
Nánari upplýsingar um Æskulýðssjóð og
umsóknarferlið er að nna á vef men-
ntamálaráðuneytis. Einnig veitir Pálína Kristín
Garðarsdóttir upplýsingar í síma 545 9500 eða í
tölvupósti á palina.gardarsdottir@mrn.stjr.is
Menntamálaráðuneyti, 25. júlí 2008.
menntamalaraduneyti.is
Til leigu
Til leigu 77m2 snyrtilegt skrifstofuhúsnæði í
Ármúla 24. Húsnæðið er laust.
Upplýsingar veitir Óskar í síma 5852800 eða 8925990
Starfslaun listamanna
Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun listamanna
sem úthlutað verður árið 2009, í samræmi við ákvæði
laga nr. 35/1991 með áorðnum breytingum.
Starfslaunin eru veitt úr fjórum sjóðum, þ.e.:
1. Launasjóði rithöfunda
2. Launasjóði myndlistarmanna
3. Tónskáldasjóði
4. Listasjóði
Umsóknir einstaklinga, ásamt fylgigögnum, skulu berast
Skrifstofu Stjórnar listamannalauna, Hallveigarstöðum,
Túngötu 14, 101 Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum
fyrir kl. 17:00 fi mmtudaginn 2. október 2008. Ef um-
sókn er send í pósti gildir dagstimpill pósthúss.
Umsóknir skulu auðkenndar “Starfslaun listamanna
2009” og tilgreindur sá sjóður sem sótt er um laun til.
Heimilt er að veita starfslaun úr Listasjóði til stuðnings
leikhópum enda verði þeim varið til greiðslu starfslauna
til einstakra leikhúslistamanna. Umsóknir leikhópa til
Listasjóðs fyrir einstaka leikhúslistamenn, ásamt fylgigög-
num, skulu berast Skrifstofu Stjórnar listamannalauna,
Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík, á þar til
gerðum eyðublöðum fyrir kl. 17.00 fi mmtudaginn 2.
október 2008. Ef umsókn er send í pósti gildir póstst-
impill. Umsóknir skulu auðkenndar “Starfslaun listaman-
na 2009 - leikhópar”.
Með umsókn skal fylgja greinargerð um verkefni það sem
liggur til grundvallar umsókninni ásamt upplýsingum um
hve langan starfstíma er sótt um og rökstuðningi fyrir
tímalengd. Jafnframt skulu fylgja upplýsingar um náms-
og starfsferil, verðlaun og viðurkenningar. Þessir þættir
skulu að jafnaði liggja til grundvallar ákvörðun um
úthlutun starfslauna
Athugið að hafi umsækjandi áður hlotið starfslaun verður
umsókn hans því aðeins tekin til umfjöllunar að hann
hafi skilað Stjórn listamannalauna skýrslu um störf sín í
samræmi við ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr.
35/1991 með áorðnum breytingum.
Umsóknareyðublöð fást á vef Stjórnar listamannalauna
www.listamannalaun.is og á skrifstofu stjórnarinnar að
Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 2. hæð.
Umsóknarfrestur rennur út fi mmtudaginn 2. október
2008.
Stjórn listamannalauna 25. júlí 2008
Auglýsingar um skipulag
Deiliskipulag Vestur-Skógtjarnarsvæðis
Tillaga að nýju deiliskipulagi
Bæjarstjórn Álftaness auglýsir hér með tillögu
að nýju deiliskipulagi Vestur-Skógtjarnarsvæðis í
Sveitarfélaginu Álftanesi sbr. 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.
Deiliskipulagið tekur til svæðis í landi Skógtjarnar,
Lambhaga og Búðarfl atar. Svæðið afmarkast til
vesturs af friðlýstu svæði á Hliði og til austurs af
Sólbarða og Tjarnarlandi, þ.e. byggð við Miðskóga,
Lambhaga og Búðarfl öt, auk stakra húsa (Tjarnar-
lands, Sólbarða, Hleinar, Vestri Skógtjörn, Tjarnarbak-
ka, Strandar, Vindáss, Helguvíkur og Melshúss).
Gerð er tillaga um samræmt skipulag á ofangreindu
svæði með nýrri útfærslu að göngustígum og lagna-
leiðum stofnlagna fráveitu.
Deiliskipulag Hliðs
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi
Bæjarstjórn Álftaness auglýsir hér með tillögu að
breytingu á deiliskipulagi Hliðs í Sveitarfélaginu
Álftanesi skv. 2. mgr. 26. gr., sbr. 25. gr. skipulags-
og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.
Skipulagssvæðið afmarkast vesturs af íbúðarsvæði
við Búðarfl öt, og til norðurs, austurs og suðurs af
sjó. Breytingin felur í sér að deiliskipulagsmörk Hliðs
hliðrast til vesturs vegna aðlögunar að tillögu að
nýju skipulagi Vestur-Skógtjarnarsvæðis á Álftanesi.
Fjórar einbýlishúsalóðir á Hliði eru felldar burt til
samræmis við aðalskipulag Álftaness 2005-2024 og
svæðinu breytt í opið svæði.
Deiliskipulag Miðsvæðisreits 1999
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi
Bæjarstjórn Álftaness auglýsir hér með tillögu að
breytingu á deiliskipulagsmörkum Miðsvæðisreits
(1999) í Sveitarfélaginu Álftanesi skv. 2. mgr. 26. gr.,
sbr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997
m.s.br. þar sem lóðir innst við Miðskóga verða felldar
inn í deiliskipulagstillögu Vestur-Skógtjarnarsvæðis.
Ofangreindar deiliskipulagstillögur verða til sýnis
á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Álftaness,
Bjarnastöðum, 225 Álftanes frá kl. 08:00 - 16:00
alla virka daga frá 29. júlí 2008 til 27. ágúst 2008,
og á heimasíðu Sveitarfélagsins Álftaness,
www.alftanes.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er
gefi nn kostur á að gera athugasemdir við tillögur-
nar. Athugasemdir skulu vera skrifl egar og þeim
skilað til skipulags- og byggingarfulltrúa Álfta-
ness að Bjarnastöðum. Frestur til að skila inn
athugasemdum er til kl. 16:00, miðvikudaginn
10. september 2008. Þeir sem ekki gera athuga-
semdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja
tillögurnar.
Álftanesi, 25. júlí 2008
Bjarni S. Einarsson,
skipulags- og byggingarfulltrúi
Tilboð óskast
Tilboð óskast í KNAUS SUDWIND hjólhýsi, árgerð 2006.
Skemmt eftir foktjón. Tilboð skilist inná heimasíðu Trygginga-
miðstöðvarinnar hf. ( útboð tjónabíla ) í síðasta lagi kl 08.00
að morgni 29.júlí. 2008. Hýsið er til sýnis í Tjónaskoðunar-
stöð TM, Hamarshöfða 2 110 Reykjavík
á opnunartíma ( frá 8.30 til 16.30 virka daga )
OPIÐ HÚS MÁNUDAGINN
9. JÚNÍ KL. 17.00 - 18.30
Línakur - 4ra herbergja íbúðir
Þorlákur Ó. Einarsson, lögg. fasteignasali
.isLágmúli 7, sími 535_1000
Verð frá 29.5 / 32.5 millj.
Hjálpaðu umhverfinu með
Blaðberanum
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
3