Fréttablaðið - 27.07.2008, Síða 51
SUNNUDAGUR 27. júlí 2008 19
Lagt hefur verið til fyrir borgar-
stjórn hinnar annars umburðar-
lyndu San Fransisco-borgar í
Bandaríkjunum að lögleiða bann
við list sem sýnir dýr misnotuð
eða beitt ofbeldi og jafnframt list
sem sýnir dýr drepin.
Borgarfulltrúinn Christine Gar-
cia segir lögin setja listheiminum
mikilvæg mörk. „Ef við leyfum
því að viðgangast að það þyki
ásættanlegt að pynta og drepa dýr
í þágu listar, þá er það óhjákvæmi-
legt að sífellt fleiri listamenn muni
beita slíkum aðferðum til þess að
öðlast frægð, enda alkunna að
ofbeldisfull list vekur umtal og
athygli.“
Hugmyndin að banninu kvikn-
aði í kjölfar sýningar í safninu San
Fransico Art Institute. Þar sýndi
listamaðurinn Adel Abdessemed
myndbandsverk sem innihélt
myndskeið af slátrun sex dýra.
Myndbandsverkið fékk aðeins að
standa í viku þar sem safninu
barst fjöldi kvartana og hótana frá
öfgafullum dýraverndunarsinn-
um. Safnið vill þó meina að slátrun-
in sem fór fram í verkinu hafi
verið dæmigerð fyrir matvæla-
iðnaðinn í Mexíkó, en þar voru
myndirnar teknar, og að ekki hafi
verið beitt óvenju hörkulegum
drápsaðferðum.
Þetta sama verk var sýnt í
Frakklandi fyrr á árinu án þess að
yfir því væri kvartað. Hins vegar
var hætt við sýningu á verkinu í
Skotlandi vegna ótta við mótmæli
dýraverndunarsinna. - vþ
Kl. 16
Tónlistarhópurinn Njúton kemur
fram í íbúð á jarðhæð á Grettisgötu
18 í dag kl. 16. Þar flytja þau verk
eftir Ragnhildi Gísladóttur, Þuríði
Jónsdóttur, Malin Bång, Karólínu
Eiríksdóttur, Mist Þorkelsdóttur og
Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur.
Tónleikarnir eru í samstarfi við
Ingibjörgu Magnadóttur myndlistar-
mann og er aðgangseyrir 1.500 kr.
menning@frettabladid.is
Í dag kl. 15 verður opnuð
sýning á verkum Höskuldar
Björnssonar í Listasafni
Árnesinga í Hveragerði.
Höskuldur skipar sérstakan
sess í íslenskri listasögu
en hann var lengi vel helsti
fuglamálari Íslands.
„Sýningin ber nafnið Á ferð með
fuglum, en þar má sjá á níunda tug
verka eftir Höskuld. Þetta eru
aðallega olíumálverk og vatnslita-
myndir en einnig má þar finna
teikningar og verk unnin með
blandaðri tækni,“ segir Hrafnhild-
ur Schram, sýningarstjóri sýning-
arinnar. „Þáttur Höskuldar í
íslenskri listasögu er merkur en
hann var fyrstur til að kanna áður
ónýtt myndefni úr íslenskri nátt-
úru – fuglalífið. Hann notaði þetta
myndefni á markvissan hátt og
það varð með tímanum veigamesti
þátturinn í listsköpun hans.“
Fuglar höfðu fyrir þann tíma
einkum verið viðfangsefni
útskurðarmanna úr alþýðustétt,
sem unnu bæði úr beini og tré, að
ógleymdum leirverkum Guð-
mundar frá Miðdal sem fóru víða
og eru nú í miklum metum. Áhuga-
menn um þennan þátt myndtúlk-
unar hafa ekki enn áttað sig á hinu
mikla magni verka sem til eru
eftir Höskuld sem nú má sjá hluta
af í Hveragerði.
Sérstaða Höskuldar sem helsta
fuglamálara landsins hélst vel
fram á sjöunda áratuginn og í
hugum margra landsmanna lifir
hann enn sem slíkur. Hundruð
verka hans eru enn til á heimilum
landsmanna af eldri kynslóðinni,
en sökum þess að hann hélt áfram
að mála dýralíf og landslag féll
hann í skuggann af fyrirferðar-
meiri samtíðarmönnum á þeim
árum sem örfáir málarar nutu
almennrar athygli. Höskuldur átti
þó alltaf sína aðdáendur. Hann var
einnig afkastamikill landslags-
málari en hann málaði fyrst og
fremst á Suður- og Suðausturlandi
og einbeitti sér meðal annars að
fjarlægum sjóndeildarhringnum
og óendanlegum himni hins víð-
áttumikla landslags.
Höskuldur fæddist í Dilksnesi í
Nesjum á Hornafirði 26. júlí árið
1907 en bjó síðustu sautján ár ævi
sinnar í Hveragerði þar sem hann
lést árið 1963. „Hveragerði var
sannkölluð listamannanýlenda á
árunum eftir stríð, en þá bjó hér
fjöldi þjóðþekktra listamanna;
listmálarar og myndhöggvarar,
tónskáld, rithöfundar og skáld,“
segir Inga Jónsdóttir, safnstjóri
LÁ, og bætir við að tímabært sé að
rifja upp þessa merku sögu og
heiðra minningu listamannanna.
Litamannanýlendan í Hveragerði
var alkunn á þeim árum þegar
menn á borð við Kristmann Guð-
mundsson, Jóhannes úr Kötlum og
Kristinn Pétursson bjuggu þar -
auk Höskuldar.
„Við bjóðum áhugasama vel-
komna á opnunina í dag en þá mun
Hörður Friðþjófsson leika valin
lög á klassískan gítar. Svo er safn-
ið opið alla daga í sumar frá kl. 12-
18, en þar má kaupa kaffi og með-
læti, glugga í upplýsingarit um
myndlist og leyfa yngstu kynslóð-
inni að njóta sín í barnahorninu,“
segir Inga.
pbb@frettabladid.is
Fuglamyndir Höskuldar
MYNDLIST Í Listasafni Árnesinga í Hveragerði verður opnuð í dag sýning með fjölda
verka eftir Höskuld Björnsson sem var afkastamikill málari og einbeitti sér að fugla-
myndum. MYND: LISTASAFN ÁRNESINGA
MYNDLIST Höskuldur Björnsson listmál-
ari (1907-1963) - sjálfsmynd.
Dýr vernduð fyrir
listamönnum
GEITUR Í GÓÐU YFIRLÆTI Það er ljótt að
vera vondur við dýrin.
Þýski listamaðurinn Alexander
Steig fer mikinn á Akureyri þessa
helgina. Í gær var opnuð í Gallerí
Boxi, Kaupvangsstræti 10, sýn-
ingin Polaris, en þar sýnir Steig
þrjú myndbandsverk. Í dag kl. 11
opnar Steig svo sýninguna TV-tra-
iner í sýningarrýminu Kunstraum
Wohnraum sem er til húsa á heim-
ili Hlyns Hallssonar og Kristínar
Kjartansdóttur í Ásabyggð 2.
Sýningin TV-Trainer byggir á
gjörningi og myndbandsinnsetn-
ingu og hefur þegar verið sýnt í
Musée d´Art Moderne et Cont-
emporain de Strassbourg, Dar-
tington Gallery í Totnes á Bret-
landi og í MoNA í Poznan í
Póllandi. Sýningin stendur í Kun-
straum Wohnraum til 13. sept-
ember. - vþ
Sjónvarpsþjálfarinn
GÓÐ LÍKAMSRÆKT Brot úr verki Alex-
anders Steig sem sýnt er í Kunstraum
Wohnraum á Akureyri.
Hinn þekkti finnski orgelleikari Kalevi Kiviniemi
leikur á tónleikum Alþjóðlegs orgelsumars í
Hallgrímskirkju í kvöld kl. 20. Í orgelheiminum
er hann þekktur fyrir vandaðar
umritanir á verkum tónskálda
sem skrifuðu lítið eða ekkert
fyrir orgel, eins og til dæmis
Wagner og Rachmaninoff. Þá
stóð hann fyrir orgelhátíðinni
í Lathi í mörg ár. Hann hefur
leikið inn á meira en 100
hljómdiska og er virtur spuna-
maður.
Efnisskrá tónleikanna er
mjög finnsk og gefur þannig
mjög góða innsýn í finnska orgeltónlist frá því um
aldamótin 1900 og fram til dagsins í dag. Það er
þjóðartónskáld Finna, Jean Sibelius, sem hljómar
fyrst. Intrada op. 111a var skrifað árið 1925 í
tilefni af heimsókn sænsku konungshjónanna.
Seinna verkið er Surusoitto, eða Útfarartónlist op
111b, sem jafnframt var síðasta verkið sem Sibel-
ius skrifaði fyrir hljóðfæri. Þá leikur hann Lux aet-
erna, eitt af þekktari verkum finnska tónskáldsins
Joonas Kokkonen sem hann
skrifaði árið 1974. Á efnis-
skránni er einnig Útfararmars
eftir samtíðarmann Sibeliusar,
Oskar Merikanto, þekktan höf-
und ættjarðarlaga og kórtón-
listar. Þá leikur Kiviniemi einnig
tvo spuna, annars vegar um tvö
stef eftir Sibelius og hins vegar
um íslenskt stef. Inn á milli leik-
ur einnig Kiviniemi hljómsveit-
arkafla sem hann hefur umritað
úr óratóríunni Rédemption eftir César Fransk og
þrjár stuttar umritanir sem Kiviniemi hefur gert
á verkum eftir Franz Liszt: Konsert í Des-dúr,
Huggun í Des-dúr og Fantasie.
Tónleikunum lýkur á Finlandia eftir Jean Sibeli-
us. - vþ
Finnsk orgeltónlist hljómar í kvöld
HALLGRÍMSKIRKJA Hýsir tónleika
finnska orgelleikarans Kalevi
Kiviniemi í kvöld.
> Ekki missa af …
tónleikum Hildigunnar
Halldórsdóttur fiðluleikara
og Sigurðar Halldórssonar
sellóleikara í Skálholtskirkju
kl. 15 í dag. Þar leika þau Sjö
spökur eftir Hafliða Hallgríms-
son og flétta inn í þær tveimur
einleiksþáttum úr Offerto
fyrir fiðlu og þremur einleiks-
þáttum úr Solitaire fyrir selló.
Aðgangur er ókeypis.
Þær Guðrún Ingimarsdóttir sópransöngkona og Jón-
ína Erna Arnardóttir píanóleikari halda tónleika í
stofunni á Gljúfrasteini í dag kl. 16. Á efnisskránni
verða lög við texta Halldórs Laxness eftir tónskáldin
Jón Ásgeirsson, Jón Þórarinsson, Jórunni Viðars og
Atla Heimi Sveinsson. Lagavalið kemur frá stórum
hluta af höfundarverki Halldórs en meðal verka eru
Únglíngurinn í skóginum og Íslenskt vögguljóð á
Hörpu auk laga úr leikritunum Sjálfstæðu fólki og
Heimsljósi. Aðgangseyrir er aðeins 500 kr. og allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Guðrún Ingimarsdóttir er uppalin á Hvanneyri í
Borgarfirði. Hún stundaði söngnám við Söngskólann
í Reykjavík og lauk þaðan námi með hæstu einkunn.
Guðrún nam jafnframt söng í Lundúnum og í Stutt-
gart, en síðan námi lauk hefur Guðrún starfað sem
söngkona í Þýskalandi og fleiri löndum á meginlandi
Evrópu auk þess að taka þátt í fjölmörgum óperuupp-
færslum. Meðal hlutverka sem hún hefur sungið eru:
Despina í Cosi fan tutte, Blondchen úr Brottnáminu
úr kvennabúrinu, Næturdrottningin úr Töfraflaut-
unni og fleiri.
Jónína Erna Arnardóttir nam píanóleik við Tónlist-
arskólann í Reykjavík og Tónlistarháskólann í Berg-
en í Noregi. Í dag starfar hún sem kennari og deildar-
stjóri píanódeildar í Tónlistarskóla Borgarfjarðar
auk þess að sinna meðleik við söngdeild skólans. Jón-
ína hefur einnig starfað sem meðleikari og stjórn-
andi karlakóra og er jafnframt listrænn stjórnandi
IsNord tónlistarhátíðarinnar í Borgarnesi.
Aðgangseyrir að tónleikunum er 500 kr. og eru allir
velkomnir á meðan húsrúm leyfir. - vþ
Sungin lög við texta Halldórs
GUÐRÚN INGIMARSDÓTTIR Syngur lög við texta Halldórs
Laxness á Gljúfrasteini í dag.
Í Hlöðunni við Halastjörnuna á
Hálsi í Öxnadal hafa sauðlaukar
myndlistarinnar sprottið af krafti í
sumar og var þar önnur sýning
sumarsins opnuð í gær.
Þau Marta María Jónsdóttir og
Arnaldur Máni Finnsson leiða þar
saman hesta sína í sýningunni Höf-
guð, en hún samanstendur af mál-
verkum og skúlptúr eftir Mörtu en
bænahúsi Arnaldar Mána. Að auki
framdi Arnaldur gjörninginn
Hringlaga skurður tímans við
opnun sýningarinnar í gær.
Arnaldur hefur í myndlist sinni
unnið í ýmsa miðla í gegnum tíð-
ina. Gjörningur hans að þessu sinni
fjallar um þær leiðir sem tengt er
við guðdóminn með fórnum sem og
táknmáli tilbeiðslunnar, samhæf-
ingu hugar og líkama, en síðast og
ekki síst samruna tíma og rúms í
athöfn sem framkalli sælukennd
vökudraumsástands; höfgi.
Í verkum sínum leitast Marta
við að eiga í lífrænu sambandi við
list fjórða og fimmta áratugarins.
Verkin eru formföst, í þeim er ekk-
ert flúr, en krafti fútúrismans og
afbyggingu hins hlutbunda er við-
haldið. Á þennan hátt vísar Marta
bæði til leiksins en um leið til íhug-
unar hinna myndrænu skilaboða
sem hvorki þarfnast tákna né titla.
- vþ
Tveir listamenn í Hlöðunni
ÖXNADALUR Fagurt umhverfi fyrir mynd-
listarsýningu.