Fréttablaðið - 27.07.2008, Side 53
SUNNUDAGUR 27. júlí 2008 21
Jeff Who? eru í
hljóðveri þessa
dagana. „Það gengur
vonum framar. Þetta
verður bara geðveik
plata, ég held það.
Ég er náttúrlega
engan veginn
hlutlaus en ég held
að við séum allir í
skýjunum hérna.
Það er bara búið að
taka upp trommurn-
ar og við erum strax
farnir að brosa. Það
veitir nú á gott,“
segir Elís Pétursson
bassaleikari. „Við
erum hérna með
honum Axel
Árnasyni, hann er að
taka okkur upp.
Hann er algjör
galdramaður á
tökkunum.“ Stefnt
er á að klára
upptökur í lok ágúst
og gefa út sem fyrst. „Ég held að það sé bara sami gamli frasinn, bara
fyrir Airwaves, þá kemur platan. Það þýðir ekkert annað. Airwaves er
ákveðinn hornsteinn sem maður lítur ekki framhjá. Svo er þetta
auðvitað tengt jólasölunni. Þú gefur ekki út plötu í desember ef þú
ætlar að komast inn í hana.“ Smekkleysa gefur út, eins og með síðustu
plötu sveitarinnar. Elís segir ekki miklar breytingar í vændum hvað
varðar tónlistina. „Við erum enn samkvæmir sjálfum okkur en færum
aðeins út kvíarnar í öllu, allt frá lögum, til spilamennsku, til útsetn-
inga.“ Þeir hafa verið lengi að semja nýtt efni. „Það er óhætt að segja
það. Síðasta platan okkar kom út 2005 og við höfum verið að semja
síðan þá. Svo hafa verið mannabreytingar. Það kom þarna smá tímabil
þar sem við þurftum aðeins að anda. En núna erum við búnir að koma
þessu öllu á hreint og ætlum bara að kýla á þetta.“ - kbs
Leikstjórarnir Sammi og
Gunni gerðu nýlega auglýs-
ingu fyrir stórfyrirtækið
Samsung. Fótboltastjarnan
Michael Ballack er í aðal-
hlutverki í auglýsingunni.
Leikstjórarnir eru komnir á
samning við erlenda um-
boðsskrifstofu sem gefur
þeim tækifæri á frekari
verkefnum erlendis.
„Við fengum verkefnið eftir að
hafa kynnt okkar hugmynd mjög
ítarlega, en fjöldi annarra leik-
stjóra sóttist eftir
því,“ segir leik-
stjórinn Samúel
Bjarki Péturs-
son um Sam-
sung-auglýs-
ingu sem
hann og sam-
starfsfélagi
hans, Gunnar Páll
Ólafsson, gerðu nýverið
fyrir þýskan og pólskan
markað.
„Michael Ballack, fót-
boltamaður hjá Chelsea, lék í
þýsku útgáfunni en Ebi
Smolarek í þeirri pólsku. Öll
auglýsingin var tekin upp í
Black Island Studios í London
sem er eitt af stóru upptöku-
verum Bretlands, en við
notuðumst við svokallað
„green screen“ því í aug-
lýsingunni eru fótbolta-
mennirnir í hálfgerðum
Sin City-heimi sem er
allur tölvugerður. Það
var samt ákveðið að hafa
þennan tilbúna heim
nýtískulegri og bjartari
en í kvikmyndinni,“
útskýrir Samúel og
lætur vel af fótbolta-
stjörnu Chelsea.
„Við fengum að hafa
Michael Ballack í sex
klukkustundir á tökustað.
Hann lét aðeins bíða eftir sér
eins og sannri stjörnu sæmir,
en hann var mjög almennileg-
ur í alla staði. Gunnar er meiri
fótboltaáhugamaður en ég svo
hann áttaði sig kannski betur á
því hversu mikil stjarna hann er,“
segir Samúel og útskýrir að í
þeim skotum sem ekki náðust
með Michael var tvífari hans
fenginn í hlut-
verkið.
Um 100 manns
komu að gerð aug-
lýsingarinnar og
eftirvinnslan tók
sex vikur. Samúel
segir að öllu hafi
verið tjaldað til
og heilu leik-
myndirnar
smíðaðar í upp-
tökuverinu. „Í
báðum auglýsing-
um kom fyrir bar,
en Þjóðverjarnir
vildu nýtískuleg-
an bar á meðan
Pólverjarnir
vildu hafa sinn gamaldags, svo á
einni viku voru smíðaðir tveir
risastórir, ólíkir barir,“ útskýrir
Samúel og segir að rýnihópar hafi
haft sitt að segja um lokaútkom-
una. „Á einum stað í auglýsing-
unni átti til dæmis að koma fyrir
köttur með rauð augu. Það var
talið of óhuggulegt svo í staðinn
var höfð ugla. Þá kom í ljós að
uglur boða ógæfu í Kóreu svo við
enduðum með hvítan hest,“ bætir
hann við og hlær.
Samúel og Gunnar eru þrítugir
að aldri en hafa skapað sér mikla
reynslu sem leikstjórar. Þeir hafa
gert tónlistarmyndbönd fyrir
hljómsveitir á borð við Quarashi,
Sálina og Jeff Who? auk þess að
hafa leikstýrt auglýsingum fyrir
stórfyrirtæki eins og Glitni,
Landsbankann, Egils og Toyota.
Þeir leikstýrðu nýlega umtöluð-
um auglýsingum fyrir Símann
þar sem Jón Gnarr fór á kostum í
hlutverki Júdasar og Galileo sem
og myndbandi Merzedes Club.
Spurður um tilkomu Samsung-
verkefnisins segir Samúel það
hafa komið í gegnum umboðs-
skrifstofuna Crossroads sem þeir
Gunnar undirrituðu samstarfs-
samning við nýverið. Crossroads
hefur séð um framleiðslu fjölda
auglýsinga úti um allan heim og
tónlistarmyndbanda fyrir lista-
menn á borð við Britney Spears
og Bon Jovi. Skrifstofur fyrir-
tækisins eru víðs vegar um
Bandaríkin og í Bretlandi, en
Samúel og Gunnar eru í samstarfi
við fyrirtækið á báðum stöðum.
„Við höfum verið hjá Saga film
síðastliðin fjögur ár, en komumst
í samband við Crossroads á ráð-
stefnu í Cannes í fyrra. Þetta er
gríðarlega öflugt fyrirtæki sem
býður upp á alls kyns spennandi
möguleika fyrir okkur Gunnar,“
segir Samúel að lokum. Auglýs-
inguna ásamt öðrum verkum
þeirra má sjá á heimasíðu þeirra
www.samuelandgunnar.com
alma@frettabladid.is
Gerðu auglýsingu með Ballack
FÓTBOLTASTJARNA Á TÖKUSTAÐ Gunni og Sammi ásamt fótboltastjörnunni Michael Ballack á tökustað, en til
hægri er Patrick Thiede, hönnunarstjóri auglýsingarinnar.
MICHAEL BALLACK
Eitt af stærstu nöfn-
unum í fótboltanum
í dag þó hann tapi
öllum úrslitaleikj-
um sem hann
tekur þátt í.
Rapparinn P Diddy er á leið upp
að altarinu bráðlega, en hann bað
kærustu sinnar fyrir stuttu.
Diddy og söngkonan Cassandra
Ventura kynntust árið 2006 þegar
útgáfufyrirtæki Diddys tók að sér
að gefa út tónlist Ventura. „Diddy
hefur beðið alla um að þegja um
trúlofunina því hann vildi að
nánasta fjölskylda fengi að heyra
fréttirnar fyrst. Þau hafa
ekki ákveðið dagsetn-
ingu að svo stöddu en
þau eru bæði mjög
ánægð og spennt,“
sagði heimild-
armaður.
Diddy er
sautján
árum eldri
en Ventura
en hann var
með Kim
nokkurri
Porter í
heil tíu ár
og á með
henni
tvíburadæt-
ur.
P Diddy bið-
ur sér konu
Madame Tussaud-vaxmynda-
safnið hefur nú bætt í safnið sitt
styttu af söngkonunni Amy
Winehouse. Foreldrar Amy
afhjúpuðu styttuna við hátíðlega
athöfn fyrr í vikunni. Faðir Amy
sagði að dóttir hans væri að
jafna sig eftir að dómur í máli
Blake Fielder-Civil féll, en hann
var dæmdur í 27 mánaða
fangelsi. „Hún hefur það ágætt,
hún er öll að braggast og verður
sterkari með hverjum deginum.
Hún borðar vel og er að bæta á
sig. Þessa dagana er hún
aðallega að einbeita sér að nýju
plötunni sinni,“ sagði Mitch
Winehouse. Mitch sagði jafn-
framt að Amy væri að reyna að
draga úr eiturlyfjanotkun sinni
og vonaðist hann til að Blake
geri slíkt hið sama. „Ef Blake
tekur sig á, sem ég er viss um að
hann geri, þá munu hann og Amy
eiga gott líf saman og við getum
þá fyrst notið þess að vera
fjölskylda.“ Þegar Mitch og kona
hans, Janis, voru spurð hvernig
þeim litist á vaxstyttuna af
dóttur sinni slógu þau á létta
strengi og sögðust ætla að taka
þessa Amy með heim og skila
hinni.
Amy
Winehouse
komin í vax
AMY KOMIN Á MADAME TUSSAUDS
Amy Winehouse og Blake eiginmaður
hennar geta orðið ánægð í framtíðinni
ef þau hætta neyslu. NORDICPHOTOS/GETTY
JEFF WHO? Í STÚDÍÓI Axel Árnason upptökumaður,
fremst á myndinni, sér um að taka upp nýja plötu
Jeffaranna. Frá vinstri eru þeir Elli, Baddi og Valdi.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Jeff Who? tekur upp
V
in
n
in
g
a
r
ve
rð
a
a
fh
e
n
d
ir
h
já
B
T
S
m
á
ra
lin
d
. K
ó
p
av
o
g
i.
M
e
ð
þ
v
í a
ð
t
a
k
a
þ
á
tt
e
rt
u
k
o
m
in
n
í
S
M
S
k
lú
b
b
. 1
4
9
k
r/
sk
e
yt
ið
.
FRÁ MANNFÓLKINU SEM FÆRÐI OKKUR
„FINDING NEMO“ OG „RATATOUILLE“
“…EINHVER BESTA TEIKNIMYND
SEM ÉG HEF SÉð.”
– KVIKMYNDIR.IS
“…EIN BESTA MYND SUMARSINS…”
–USA TODAY
“…MEISTARVERK.”
– NEW YORK MAGAZINE
FRUMSÝND 30. JÚLÍ
HVER VINNUR!
9.
SENDU SMS
BTC WALL
Á NÚMERIÐ 1900
VINNINGAR: BÍÓMIÐAR, WALL· E TÖLVULEIKIR,
DVD MYNDIR OG FLEIRA!