Fréttablaðið - 16.08.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
LAUGARDAGUR
16. ágúst 2008 — 221. tölublað — 8. árgangur
FÓTBOLTI Enska úrvalsdeildin hefst
aftur í dag eftir 97 daga sumarfrí.
Grétar Rafn Steinsson hjá Bolton
er fyrsti Íslendingurinn til að
spila í ár en Bolton mætir nýliðum
Stoke á heimavelli klukkan 14 í
dag. Hermann Hreiðarsson og
félagar í Portsmouth spila á morg-
un alveg eins og ensku meistar-
arnir í Manchester United og
erkióvinir þeirra í Chelsea.
Fyrsti leikur tímabilsins er hins
vegar á milli Arsenal og WBA í
hádeginu. - óój / sjá íþróttir bls. 52
Enski boltinn byrjar í dag:
Grétar Rafn er
klár í slaginn
MÆTIR STOKE Grétar Rafn Steinsson
verður í eldlínunni í dag.
NORDICPHOTOS/GETTY
SKIPULAGSMÁL Vinningstillaga um
höfuðstöðvar Landsbankans í
miðbæ Reykjavíkur á eftir að skapa
mikið umtal, deilur og vangaveltur
að mati Margrétar Harðardóttur
arkitekts hjá Studio Granda.
Margrét var í dómnefnd í sam-
keppni um hönnun höfuðstöðva
Landsbankans. Vinningstillagan
hefur verið valin, en ekki enn verið
kynnt.
„Ég myndi vilja sjá einhvern sem
væri ábyrgur fyrir uppbyggingu
miðborgarinnar innan borgarinnar
óháð pólitík og hagsmunapoti og
hefði umboð til að halda utan um
þessi mál. Rétt eins og Umboðs-
maður Alþingis starfar væri gott
að hafa umboðsmenn gamla mið-
bæjarins, sem eins konar forvörn,
en ekki úrskurðaraðila eftir á,“
segir Margrét.
Margrét setur stórt spurningar-
merki við staðsetningu Lista-
háskóla á Laugavegi. „ Ef niður-
staðan er að halda í eldri götumynd
má ekki víkja neitt frá því.“ Mar-
grét telur einnig að fjárfestum
verði að setja skýrar skorður því
annars muni skipulagsmál taka kol-
vitlausa stefnu. „Reykjavík mun
enda með því að líta út eins og lítil
Dubai.“ - amb / sjá síðu 28
Margrét Harðardóttir arkitekt um höfuðstöðvar Landsbankans og miðborgina:
Vinningstillagan verður umdeild
NÆSTUM NYIR BILAR
www.heklanotadirbilar.is
Laugardag
Opið í dag
Baldursnesi 6
Akureyri
Sími 414 1050
Smiðjuvegi 76
Kópavogi
Sími 414 1000
Hannaðu heimilið
með Tengi
Hvítlaukssmjör me› steinselju
KONAN SEM ÁKVAÐ
AÐ SIGRA HEIMINN
Í dag verður söng-
konan Madonna
fimmtug. Fréttablaðið
rifjar upp skrautlegan
feril hennar. 36
ÞÚSUND OG EIN NÓTT
Buxurnar fyrir haust/vetur 2008 eru með kvenna-
búrssniði
46
STREKKINGUR VESTAN TIL Í dag
verður sunnan strekkingur vestan
til, annars hægari. Bjart með köflum
norðaustan og austan til, annars
skýjaðra og sums staðar væta sunn-
an til og vestan. Hiti 12-20 stig.
VEÐUR 4
13
17
16
1413
20
VEÐRIÐ Í DAG
VIÐSKIPTI „Hann er mjög mikill; 75
milljarðar fyrir Iceland. Þetta er
sennilega Íslandsmet,“ segir
Pálmi Haraldsson, um hagnað af
sölu á hlut Fons í Iceland. Fyrir
hlutinn fær Fons tæplega 35
prósenta hlut Stoða, áður FL
Group, í félaginu Northern Travel
Holding, sem meðal annars á
flugfélögin Iceland Express og
Sterling.
Liður í viðskiptum Fons er
einnig sala á hlutum í Landic
Property, Booker og Goldsmith.
Óvíst er hverjir kaupendur eru,
en fullyrt er að þeir séu bæði
innlendir og erlendir. Í heildina
munu hér vera á ferð viðskipti
upp á um 100 milljarða króna.
- ikh / sjá síðu 14
Segir hagnaðinn 75 milljarða:
Íslandsmet hjá Fons
OPNUNARHÁTÍÐ Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG Lokahönd hefur verið lögð á framkvæmdir við endurbyggingu efri hluta Skólavörðustígs og
bjóða því verslunareigendur við Skólavörðustíg, í samvinnu við Reykjavíkurborg og Ístak, til veglegrar opnunarhátíðar eftir hádegi
í dag. Dagskráin, sem hefst klukkan 13, er við allra hæfi; tónlist, dans, sirkus og mörg skemmtileg götuatriði og uppákomur í
verslunum. Ólafur F. Magnússon borgarstjóri ætlar að opna götuna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
REYKJAVÍK Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son borgarfulltrúi átti frumkvæði
að því að húsin við Laugaveg 4 til 6
voru keypt á 580 milljónir og keyrði
málið áfram af mikilli hörku, segir
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri.
Verndun húsanna hafi verið rædd
mikið í viðræðum um nýjan meiri-
hluta F-lista og Sjálfstæðisflokks,
en Ólafur hafi ekki viljað fara svona
geyst.
„Ég taldi þetta fullmikla hörku en
það var valtað yfir mig. Ég vildi láta
á það reyna að Húsafriðunarnefnd
friðaði húsin eftir nokkra daga. Það
hefði haft áhrif á verðið,“ segir
hann.
Hann telur kaupin hafa verið
gerð svo skyndilega til þess að
bjarga menntamálaráðherra úr
snörunni, en Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir átti að taka ákvörð-
un um hvort húsin yrðu friðuð.
„Hann kallaði Kaupang heim til
sín að mér forspurðum. Ég tók þátt
í viðræðunum og sá að þetta voru
óvandvirk vinnubrögð, sem ég hafði
ekki kynnst áður. En þau minntu
mig á framgang Vilhjálms í Orku-
veitunni,“ segir Ólafur.
200 daga meirihlutinn var kynnt-
ur 21. janúar og fyrsti fundur nýs
borgarráðs var 24. janúar.
Í millitíðinni, segir Ólafur, boðaði
Vilhjálmur til kaupsamninganna.
Síðan var tillaga að uppkaupum á
húsunum kynnt á borgarráðsfundi
sem tillaga Ólafs borgarstjóra og
húsafriðunarnefnd féll frá friðunar-
kröfu sinni.
„Mér var kennt um þetta, en ég
hefði ekki getað stöðvað þetta ferli,“
segir Ólafur. „Það er alls ekki minn
stíll að taka svona ákvarðanir nema
að mjög vel ígrunduðu máli.“
Líklegast er að rekstur REI verði
í höndum fjármögnunarsjóðs í eigu
Orkuveitu, banka og fjárfesta, en
almenningur fái ekki aðkomu að
honum, segja heimildir Fréttablaðs-
ins. - kóþ / sjá síðu 4 og 12
Sjálfstæðisflokkur
vildi fá Laugaveg 4-6
Borgarstjóri segir Vilhjálm Þ. hafa samið við fulltrúa Kaupangs heima við
og keyrt kaupin á húsunum í gegn, fyrir borgarráðsfund. Líklega til að bjarga
menntamálaráðherra úr snörunni. REI verður rekið af fjármögnunarsjóði.