Fréttablaðið - 16.08.2008, Blaðsíða 10
10 16. ágúst 2008 LAUGARDAGUR
SKIPULAGSMÁL „Við erum
að byggja Akrópólis Kópa-
vogs,“ segir Gunnar I.
Birgisson, bæjarstjóri í
Kópavogi, um tillögu arki-
tektastofunnar Arkþings
ehf. sem í gær sigraði í
samkeppni um hönnun
óperuhúss í Kópavogi.
Undirbúningsnefnd um
byggingu óperuhúss í
Kópavogi kynnti niður-
stöður dómnefndar í Salnum í gær.
Tvær arkitektastofur tóku þátt í
framhalds-samráðskeppni um
hönnun óperuhússins eftir að dóm-
nefndin ákvað, 31. mars síðastlið-
inn, að þær tillögur sem þá höfðu
borist fullnægðu ekki markmiðum
samkeppninnar.
Í áliti dómnefndar segir að höf-
undar hafi lagt sig fram um að
vinna úr ábendingum dóm nefndar.
Vinningstillagan falli vel að land-
halla í lóðinni og útlit hússins sé
agað og stílhreint. Þá sé tillagan
sannfærandi og vel framsett.
Í dómnefndinni sátu, auk Gunn-
ars I. Birgissonar, Stefán Baldurs-
son óperustjóri og arkitektarnir
Ásdís Ingþórsdóttir, Ólafur Axels-
son og Þorvaldur S. Þorvaldsson.
Gunnar segir tillöguna falla vel
inn í umhverfið. „Í húsinu
er mjög gott innra flæði
og mjög góðar lausnir á
mörgum málum.“
Húsið verði jafnframt
ekki mjög fyrirferðar-
mikið. „Við viljum ekki að
húsið skyggi á kirkjuna
sem er tákn Kópavogs. En
þegar nýja húsið er risið
verða tvö tákn fyrir Kópa-
vog, kirkjan og óperan.“
Hann vonast til að geta byrjað á
byggingu óperuhússins næsta
sumar en um tvö ár taki að byggja
húsið. Á því geti þó orðið einhver
seinkun þar sem enn eigi eftir að
ganga frá fjármögnun.
Kostnaður er áætlaður 2,6 til 3
milljarðar króna. Byggingin
verður fjármögnuð með fé frá
einka aðilum, Kópavogsbæ og með
framlagi frá Íslensku óperunni
sem selur núverandi húsnæði sitt.
Þá segir Gunnar líklegt að ríkis-
sjóður leggi fé til byggingar
óperuhússins.
„Menningarþjóð verður að koma
þaki yfir þessa listgrein svo að
sómi sé að og næst á dagskrá er að
koma óperuhúsinu í skipulags-
ferli.“
olav@frettabladid.is
Akrópólis
Kópavogs
Arkitektastofan Arkþing varð hlutskörpust í sam-
keppni um hönnun óperuhúss í Kópavogi. Bæjarstjóri
segir húsið verða annað tveggja tákna Kópavogs.
HÁBORG Á HAMRABORG Bæjarstjóri Kópavogs segir fyrirhugað óperuhús verða
ásamt kirkjunni kennileiti Kópavogs.
TILLAGA AÐ ÓPERUHÚSI Hönnuðir eru sagðir sækja innblástur til sagna um álfa í og
við Borgarholtið, þar sem álfabyggð er talin hvað blómlegust.
GUNNAR I.
BIRGISSON
VINNUMARKAÐUR Skráð atvinnu-
leysi í júlí var óbreytt milli mán-
aðanna júní og júlí á þessu ári, eða
1,1 prósent. Að meðaltali voru
1.968 manns á atvinnuleysisskrá í
júlí og þýðir það að atvinnuleysið
er enn með minnsta móti, sam-
kvæmt því sem fram kemur á vef
Vinnumálastofnunar.
„Hins vegar eru að jafnaði 126
fleiri atvinnulausir en í júní sem
gerir um sjö prósenta aukningu,“
segir þar. „Árstíðabundin aukn-
ing vinnuafls hefur hins vegar
áhrif á hlutfall atvinnuleysis á
þriðja ársfjórðungi. Atvinnuleysi
er nú nokkru meira en á sama
tíma fyrir ári þegar það var 0,9
prósent.“
Atvinnuleysi eykst á höfuð-
borgarsvæðinu um tíu prósent
frá júní til júlí og er 1,1 prósent
en var 1,0 prósent í júní. Á lands-
byggðinni breytist atvinnuleysið
lítið, var 1,3 prósent eða sama
hlutfall og í júní.
Þegar skipting milli kynjanna
er skoðuð kemur í ljós að atvinnu-
leysi karla eykst um níu prósent
frá júní og er 0,9 prósent en var
0,8 prósent í júní. Atvinnuleysi
kvenna eykst um fimm prósent
en mælist enn 1,5 prósent líkt og
í júní.
Þeim sem verið hafa á skrá
lengur en sex mánuði fjölgar
lítils háttar og voru 500 í lok júlí
en 477 í lok júní. Í júlí hefur 231
maður verið atvinnulaus í meira
en eitt ár. Fjöldi þess fólks, sem
hefur verið svo lengi atvinnu-
laust, hefur minnkað lítið eitt síð-
ustu mánuði.
Gert er ráð fyrir að atvinnu-
leysi verði 1,1-1,4 prósent í
ágúst. - ghs
Skráð atvinnuleysi í landinu:
Atvinnuleysi óbreytt
GEORGÍA Rauði krossinn hefur sent
sex milljónir króna í neyðaraðstoð
til Georgíu en Alþjóða Rauða
krossinn sendi nýlega frá sér
neyðar beiðni vegna átakanna þar.
Neyðarbeiðnin hljóðar upp á jafn-
virði 600 milljóna íslenskra króna
og fer í að aðstoða tugþúsundir
manna sem hafa orðið illa úti í
átökunum milli Georgíumanna,
Osseta og Rússa síðustu daga.
Í tilkynningu frá Rauða krossin-
um kemur fram að tryggja þurfi
brýna læknisþjónustu fyrir særða,
og eins að nauðsynleg hjálpargögn
berist um 60 þúsund mönnum sem
eru á vergangi í Suður-Ossetíu eða
hafa leitað hælis í Georgíu og
Rússlandi. Þá muni Alþjóða Rauði
krossinn efla eftirlit með því að
stríðandi aðilar komi fram við
fanga í samræmi við alþjóðleg
mannúðarlög.
Alþjóða Rauði krossinn hefur
sent teymi af neyðarskurðlæknum
til Georgíu og Rauði krossinn í
Noregi mun setja upp neyðarspít-
ala í borginni Gori. Sérþjálfaðir
sendifulltrúar Rauða kross Íslands
í neyðarskurðlækningum hafa
verið settir í viðbragðsstöðu.
„Það er mikil þörf á sérhæfðu
starfsfólki á vettvangi og mjög lík-
legt að sendifulltrúar Rauða kross
Íslands verði fengnir til starfa á
næstu dögum eða vikum. Við
munum svo meta þörfina á frekari
aðstoð eftir því sem meiri upplýs-
ingar berast um ástandið,“ segir
Helga Þórólfsdóttir, sviðsstjóri
alþjóðasviðs Rauða krossins, en
hún var í Georgíu 1997-1998 og
gjörþekkir aðstæður þar. - ghs
Rauði kross Íslands hefur sent sex milljóna króna í neyðaraðstoð til Georgíu:
Sérhæft starfsfólk líklega sent
DANMÖRK Danska leynilögreglan,
PET, vill að dönsk stjórnvöld
hætti að nota orð sem tengjast
hryðjuverkum, til dæmis „jihad“
sem stendur fyrir heilagt stríð
og „martyr“ sem þýðir píslar-
vottur, að sögn danska ríkis-
útvarpsins DR, og hefur komið
með tillögur um hvað megi nota í
staðinn.
Lögreglan telur að hryðju-
verkamenn geti notað þessi orð
til að réttlæta ofbeldi. „Hryðju-
verkamenn berjast ekki aðeins
með ofbeldi heldur líka í orðum –
um ákveðna sýn á heiminn,“
segir Anja Dalgaard-Nielsen,
stjórnandi hjá PET. - ghs
Baráttan við hryðjuverk:
Dönsk lögregla
vill banna orð
SAMGÖNGUR Fyrirtækið KNH ehf. á
Ísafirði átti lægsta tilboðið í
lagningu Suðurstrandarvegar milli
Krísuvíkur vegar
og Þorláks-
hafnarvegar.
Tilboðið hljóðar
upp á tæpar 700
milljónir, sem
eru rúm 73
prósent af
kostnaðar-
áætlun.
„Ég er
ánægður með að
við getum loksins ráðist í verkið,“
segir Kristján Möller samgöngu-
ráðherra, en verkið hefur verið á
vegaáætlun frá árinu 1999 og marg-
sinnis verið frestað. „Verkinu
verður lokið 2011 en ekki 2015 eða
2016 eins og síðustu áætlanir gerðu
ráð fyrir,“ segir hann. - ges
Ráðist í Suðurstrandarveg:
Fjórðungi
undir áætlun
KRISTJÁN L.
MÖLLER
ÞÖRF Á SÉR-
HÆFÐU FÓLKI
„Það er mikil
þörf á sérhæfðu
starfsfólki á
vettvangi,“ segir
Helga Þórólfs-
dóttir, sviðsstjóri
alþjóðasviðs
Rauða krossins.
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444
VITA er í eigu Icelandair Group
og flýgur með Icelandair
á vit ævintýranna.
VITA er lífið
Þú getur notað
Vildarpunktana hjá okkur
Skráðu þig í netklúbbinn - VITAferðir.is
Til Ítalíu
á skíði
hið ljúfa
la dolce líf
Madonna di Campiglio
og Canazei
Verð frá 109.900 kr.
og 15.000 Vildarpunktar
á mann í þríbýli, 2 fullorðnir og
1 barn, í 7 nætur, með hálfu fæði,
á Hotel Splendid, brottför 31. jan.
Almennt verð: 119.900 kr.
NÝTT!
Njóttu lífsins í fegurð ítölsku Alpanna.
Fylltu lungun af fersku fjallalofti áður en þú
svífur niður brekkurnar með roða í kinnum
af mjallhvítu fjöri og sól.
Fararstjórar: Anna og Einar
Beint morgunflug til Verona:
24. og 31. janúar og
7., 14., 21. og 28. febrúar.
Vetur 2009
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
4
21
26
0
8.
20
08
SKREYTTUR PAKISTANI Þessi ungi
maður hafði látið mála sig í þjóð-
fánalitum Pakistans í tilefni af þjóð-
hátíðardegi landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP