Fréttablaðið - 16.08.2008, Blaðsíða 12
12 16. ágúst 2008 LAUGARDAGUR
NÝR MEIRIHLUTI Í BORGARSTJÓRN
Björn Ingi Hrafnsson,
fyrrverandi oddviti
Framsóknar, mun ekki
taka að sér störf á vegum
flokksins í Reykjavík, nú
þegar nýr meirihluti
hefur verið myndaður.
Hann útilokar það.
Eins og fram hefur
komið mun Marsibil
Sæmundardóttir, sem
situr í þriðja sæti fram-
boðslistans á eftir Óskari Bergs-
syni, ekki gera það heldur.
Í fjórða sætinu er Ásrún
Kristjánsdóttir hönnuður.
Hún var búin að slíta öllu
samstarfi við flokkinn á
sínum tíma en segir að nú
horfi málin öðruvísi við.
„Ég hef mikla trú á þeim
Óskari og Hönnu Birnu.
Það er verið að þrýsta á
mig að vera með í þessu og
ég býst ekki við öðru en að
ég geri það,“ segir hún.
Læknirinn Steinarr Björnsson, í
fimmta sæti, er í námi erlendis og
verður því að teljast ólíklegur í
ábyrgðarstörf í nefndum og
ráðum, þótt fordæmi séu fyrir því.
Ekki náðist í hann í gær.
Helena Ólafsdóttir íþróttakenn-
ari situr í sjötta sæti og segir harla
ólíklegt að hún taki þátt í flokks-
starfinu. Hún styðji þó Óskar
Bergsson heilshugar og lítist vel á
nýja meirihlutann.
- kóþ
Óvíst hverjir setjast í ráð og nefndir fyrir Framsóknarflokkinn:
Björn Ingi snýr ekki aftur
BJÖRN INGI
HRAFNSSON
„Mér var tilkynnt að það
væri einlægur vilji þeirra
sem eru að taka við í Ráð-
húsinu að ég klári verkefni
mín, enda eru þau brýn,“
segir Gunnar Smári Egils-
son, sem nýlega var ráðinn
til að gera heildarúttekt á
upplýsingamálum Reykja-
víkurborgar.
Jakob Frímann Magnús-
son segir það liggja fyrir
að hann haldi áfram starfi
sínu sem framkvæmdastjóri mið-
borgarmála. „Það komu skýr skila-
boð um það að ég yrði áfram.”
Gísli Marteinn Baldursson,
borgar fulltrúi Sjálfstæðisflokks,
segir að það sé ljóst að innan Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks
sé mikill stuðningur við rannsóknir
á Bitruvirkjun. „Rannsóknirnar
verða líklega settar af stað strax en
það er óljóst hvað verður í
framhaldinu.“
Allar ákvarðanir liggja
fyrir um uppbyggingu
Laugavegar fjögur til sex
að sögn bæði Vilhjálms Þ.
Vilhjálmssonar og Gísla
Marteins. Þá muni skipu-
lagsráð borgarinnar ræða
nýbyggingu Listaháskóla
Íslands í samstarfi við
stjórnendur skólans og
arkitektana.
„Fyrir liggur að ekki verður
tekin ákvörðun um framtíð flug-
vallar í Vatnsmýri á þessu kjör-
tímabili,“ segir Vilhjálmur. „Enn
standa yfir rannsóknir til dæmis á
veðurfarslegum skilyrðum á
Hólmsheiði og ekki er hægt að taka
ákvörðun um flugvöllinn fyrr en
fullnægjandi upplýsingar um það
svæði liggja fyrir.“ - vps/ht
Rannsóknir á Bitruvirkjun meðal fyrstu verka:
Gunnar og Jakob áfram
Óskar Bergsson, borgarfulltrúi
Framsóknar, segir að andrúms-
loftið hafi verið gott og opinskátt
innan minnihlutans sem var. Margt
hafi verið rætt, meðal annars
myndun nýs Reykjavíkurlista.
Fulltrúi Samfylkingar, Dagur B.
Eggertsson, hafi hins vegar eytt
þeirri umræðu og ekki viljað ganga
bundinn til kosninga.
Dagur staðfestir að hann hafi
talið ótímabært að ræða um kosn-
ingabandalag á miðju kjörtímabili.
„Enda liggur fyrir sú stefna
Samfylkingarinnar að bjóða fram
sem víðast undir eigin nafni,“
segir Dagur og undrast þessa
umræðu „daginn eftir að Óskar
lokaði á allar aðrar leiðir en að
vera hækja fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn. Ætli þetta tengist því nú ekki
frekar en öðru,“ segir Dagur.
Óskar segir einnig að hann hafi
byrjað að efast um stað
sinn innan minnihlutans
þegar samherjar sínir hafi
fagnað því að Bitruvirkj-
un hafi verið slegin út af
borðinu. „Það fannst mér
absúrd,“ segir hann.
Af málefnun nýs meiri-
hluta verst Óskar frétta.
Meginverkefnið sé að
koma á festu í stjórnkerfi
borgarinnar. Málefna-
samningur frá fyrsta meirihlutan-
um verði til grundvallar.
REI-málið varð banabiti fyrsta
meirihlutans. Óskar hefur rætt
um aðkomu einkaaðila að fyrir-
tækinu og útrás þess. Hann var
spurður hvort REI yrði hugsan-
lega selt í einhverri mynd.
„Ég vil hvorki játa né neita því.
Við oddvitarnir teljum að það séu
ákveðnar lausnir á teikniborðinu
og það væri ekki sann-
gjarnt að ræða þær að svo
stöddu,“ segir hann.
Um framkvæmdir og
varðveislu við Laugaveg,
gefur Óskar ekkert upp
um hvað verði um Lista-
háskólann. Hann sé mikill
aðdáandi timbur- og báru-
járnshúsa.
„En að kaupa hús fyrir
580 milljónir [líkt og á
Laugavegi 4 til 6] og gera þau upp
fyrir 400 til 500 milljónir er öfga-
stefna sem ég get ekki fellt mig
við,“ segir hann. Kemur þá til
greina að horfið verði frá hug-
myndum um Laugaveg 4 til 6?
„Það hefur ekki verið rætt, en
ég er sannfærður um að við kom-
umst að niðurstöðu í því,“ segir
Óskar.
- kóp
Bitruvirkjun gerði útslagið fyrir Óskar Bergsson:
Dagur sló R-lista af borðinu
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri
segir mikla sorg í hjarta sínu en
einnig létti yfir því að vera laus
undan Sjálfstæðisflokknum. Hann
harmar framgöngu Kjartans
Magnús sonar vinar síns, sem hafi
legið í honum allan valdatíma 100
daga meirihlutans og heitið því,
ásamt Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni,
að samstarfið myndi endast út kjör-
tímabilið. Ólafur óttast nýjan meiri-
hluta og segir tillögur liggja fyrir
um að skera niður á velferðarsviði.
„Það liggja fyrir tillögur um flatan niður-
skurð á launaútgjöldum til að ná kostnaði
niður á tímum versnandi efnahags. Þetta
þýðir að það þarf að skera niður vinnufram-
lag á stofnununum og sérstaklega þeim sem
snúa að velferðarmálum,“ segir Ólafur.
„Mér þykir þetta blóðugt því ég hef verið
að berjast gegn þeirri forgangsröðun að
leggja ellefu milljarða stokk í götuna að
Ánanaustum. Svo voru gerðir tveir samn-
ingar um íþróttamál upp á fimm milljarða.
Þrjú verkefni upp á sextán milljarða, sem
ekki voru í málefnasamningnum, sem hét
Velferð og öryggi. En ef þeir eru með svona
forgangsröðun, hvernig ætla þeir þá að
verja velferðarmál borgarinnar?“
Ólafur segir að á sama tíma og þetta hafi
verið gert hafi hann leitað allra leiða til að
verja velferðarmálin. Ágreiningur um for-
gangsröðun hafi því verið mikill innan
meirihlutans.
„Og velferðar- og réttlætismálin verða
vanrækt í meirihluta Framsóknar- og Sjálf-
stæðisflokks. Hinir sterku bakhjarlar þess-
ara flokka eru alltaf í fyrsta sæti þegar
þessir flokkar eru saman í völd. Þetta er
versti kosturinn fyrir Reykvíkinga. Sam-
starf þeirra dregur fram það versta í þeim
báðum, sem er sérhagsmunapotið,“ segir
hann.
Öfgastefna og 19. öldin
„Þegar við erum að tala um 19. aldar götu-
myndina erum við að tala um gömlu götu-
myndina sem heild en ekki eitt og eitt hús.
Við erum að tala um tíðaranda og ímynd,
en ekki að verja fúaspýtur. Þetta mega
jafnvel vera eftirlíkingar, hvað eru húsin í
Dresden, sem öll var lögð í rúst í stríðinu,
annað en eftirlíkingar? Þau eru frábær
samt, því þau ná fram tíðarandanum,“
segir Ólafur.
„Mér finnst það öfgastefna, þegar ein-
ungis þrjú prósent húsa í borginni eru frá
því fyrir 1907 og það á samt að rífa þau
niður, það eru öfgar. Við þurfum ekkert að
rífa niður allt sem er gamalt.“
Um kaupin á Laugavegi 4 til 6 segir
Ólafur: „Að sjálfsögðu hefði það verið í
takt við mín vinnubrögð að friðunarferlið
hefði fengið að klárast. Þá hefði reynt á
menntamálaráðherra því henni hefði ekki
verið annað fært en að friða þetta. Þá hefð-
um við haft betri stöðu til að kaupa húsin,
þegar búið er að binda hendur verktakans.
Það var mín lína, en sjálfstæðismenn knúðu
hitt í gegn, eins og margt annað í byrjun
samstarfsins. Þeir fengu til dæmis í gegn á
fyrsta borgarstjórnarfundi að lækka fast-
eignaskatta. Ég fékk hins vegar ekki í gegn
mínar tillögur um sértækar lækkanir fyrir
aldraða eða frítt í strætó, sem er málefni
sem ég ber sérstaklega fyrir brjósti.“
Blekktur í 300 daga
„Fyrir lá mjög sterk beiðni sjálfstæðis-
manna um málefnasamning, sem ég treysti
ekki. Ég var varaður við, enda var þetta of
gott til að vera satt. Þessi samningur var
blekking. Fyrir lágu einnig skýrar heitbind-
ingar Kjartans Magnússonar og Vilhjálms
Þ. Vilhjálmssonar um að þeir myndu ekki
fara að starfa með Framsóknar flokknum.
Ég treysti því á, jafnvel þótt fimmmenning-
arnir færu að tala við Framsókn, að þá
myndu þeir tveir ekki bregðast mér. Vil-
hjálmur hefur áður valdið mér sárum von-
brigðum en ég trúi því varla enn að Kjartan
hafi gengið svona langt, eftir að hafa, alla
þá daga sem 100 daga meirihlutinn starfaði,
verið stöðugt að biðja mig að koma til sam-
starfs gegn miklum heitbindingum.“
Eftirsjá
„Ég kastaði bjargarhring út til Sjálfstæðis-
flokksins í janúar, þegar þeir lágu kylli-
flatir, en í staðinn kasta þeir mér út fyrir
Framsókn. Ég treysti Sjálfstæðisflokknum
aldrei aftur, það máttu hafa eftir mér. Það
er mikil sorg í hjarta mínu en það er líka
mikill léttir að vera laus úr samstarfi við
Sjálfstæðisflokkinn,“ segir hann.
Umdeild ráðning
Ólafur vildi fá Gunnar Smára Egilsson
fyrir aðstoðarmann, en sjálfstæðismenn
lögðust gegn því.
„Þeir vildu ekki að maður sem hefði talað
illa um Sjálfstæðisflokkinn starfaði fyrir
borgina. Samt hafði Anna Kristinsdóttir
verið ráðin sem mannréttindafulltrúi, hún
hafði talað mun verr um mig en Gunnar
Smári um Sjálfstæðisflokkinn. Ég hugsa
bara ekki svona, fólk verður að geta starfað
saman. Ég hef ekki hugmynd um pólitískar
skoðanir Gunnars Smára, enda skipta þær
engu máli, faglega séð.“
Borgarfulltrúarnir gerðu þá samkomu-
lag við Ólaf um að Gunnar Smári yrði ekki
ráðinn inn á skrifstofu borgarstjórnar, en
Ólafur segir að hann hafi verið kominn of
langt í samningum við Gunnar Smára til að
snúa við. Gunnar Smári var því ráðinn í
tímabundið starf.
„Og þeir gera mikið mál úr þessu, jafnvel
eftir að ég hafði gert þá málamyndun að
aðstoðarmaður Hönnu Birnu, Magnús Þór
Gylfason, yrði aðstoðarmaður minn líka.“
klemens@frettabladid.is
Sorgmæddur en feginn að losna
VILHJÁLMUR OG ÓLAFUR HANDSALA MEIRIHLUTA
SEM ALDREI VARÐ ÁRIÐ 2006 Eftir að þessi mynd
var tekin ræddi Vilhjálmur við Framsókn og mynd-
aði meirihluta með Birni Inga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
200 DAGA MEIRIHLUTINN KYNNTUR Í JANÚAR Ólafur telur að þarna hafi hann verið svikinn öðru sinni, til
að bjarga Sjálfstæðisflokknum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þá hefðum við haft betri stöðu til
að kaupa húsin, þegar búið er að
binda hendur verktakans. Það var mín lína.
ÓLAFUR F. MAGNÚSSON
BORGARSTJÓRI
„Ég er bara ánægð, eiginlega líður mér betur
en ég bjóst við,“ segir Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir borgarfulltrúi um stofnun nýs
meirihluta.
„Samstarf okkar við Ólaf var ekki að ganga
og við vorum öll sammála um að það þyrfti að
reyna eitthvað annað,“ segir Þorbjörg og
segir að mörg stór mál hafi ekki verið
afgreidd í tíð fráfarandi meirihluta.
„Við þurftum að takast á við fjárhagsáætl-
un og minnkandi tekjur borgarinnar og við
vorum ekki að komast neitt með þau mál,“
segir Þorbjörg.
- vsp
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir:
Tókumst ekki á við stór mál
ÞORBJÖRG HELGA
VIGFÚSDÓTTIR
ÓSKAR BERGSSON VILHJÁLMUR Þ.
VILHJÁLMSSON