Fréttablaðið - 16.08.2008, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 16.08.2008, Blaðsíða 2
2 16. ágúst 2008 LAUGARDAGUR flugfelag.is Gríptu augnablikið! REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR VESTMANNAEYJAR ÍSAFJÖRÐUR VOPNAFJÖRÐUR ÞÓRSHÖFN GRÍMSEY Flugvallarskattar innifaldir, takmarkað sætaframboð, einungis bókanlegt á netinu. Akureyri frá 3.990 kr. KJARAMÁL „Þetta endurspeglar vilja ljósmæðra vel,“ segir Guð- laug Einarsdóttir, formaður Ljós- mæðrafélags Íslands. Yfirgnæf- andi meirihluti félagsmanna hefur samþykkt boðun verkfallsaðgerða í næsta mánuði en kosningu lauk í gær. Metþátttaka var í atkvæða- greiðslunni en yfir níutíu prósent félagsmanna greiddu atkvæði. Nær 99 prósent þeirra sem atkvæði greiddu voru fylgjandi verkfallsaðgerðunum næðust ekki kjarasamningar. Guðlaug segir ljóst að verkfall ljósmæðra muni meðal annars bitna á þjónustu á borð við mæðra- vernd og sónar. „Ljósmæður veita grundvallarþjónustu í heilbrigðis- kerfinu og því mun verkfallið hafa víðtæk áhrif,“ segir Guðlaug. „Við munum fara yfir lista sem gilda yfir þá sem undanþegnir eru verkfalli í næstu viku,“ segir Guð- laug. „Þeir hafa þó ekki verið upp- færðir svo lengi að flestar stofn- anir sem þar eru nefndar eru ekki til lengur.“ Undanþágulistarnir hafa ekki verið uppfærðir í þrettán ár eins og fram hefur komið í Fréttablað- inu. „Fæstir ættu því að vera undan þegnir verkfalli samkvæmt ströngustu túlkun,“ segir Guð- laug. Guðlaug segir á ábyrgð ríkisins að uppfæra listana árlega. „Það er algjört virðingarleysi við störf ljósmæðra og fjölskyldur sem þiggja þjónustu þeirra að sinna þessu ekki.“ Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar ríkisins, segir að einungis sé hægt að breyta undan þágulistum einu sinni á ári og breytingar á þeim væru því ómögulegar áður en boðuð verk- föll ljósmæðra hæfust. Einnig hafi tveir dómar fallið sem standi í vegi fyrir að listunum sé breytt. „Við teljum þó að nafnabreyt- ingar á stofnunum komi ekki í veg fyrir að listarnir gildi um sam- bærileg störf,“ segir Gunnar. Gunnar segir að til að koma í veg fyrir að neyðarástand skapist sé önnur nefnd við störf sem eigi að taka á slíkum tilfellum, komi þau upp. „Auðvitað höfum við áhyggjur af fyrirhuguðu verkfalli og röskun sem það mun valda,“ segir Gunnar. helgat@frettabladid.is Ljósmæður einhuga um verkfallsaðgerðir Metþátttaka var í kosningum Ljósmæðrafélags Íslands um verkfallsaðgerðir í næsta mánuði. Nær 99 prósent þeirra sem tóku þátt eru fylgjandi verkfalli ef samningar nást ekki. Verkfallið mun hafa víðtæk áhrif að sögn formannsins. LJÓSMÓÐIR AÐ STÖRFUM Ef af verkföllum ljósmæðra verður mun það bitna meðal annars á mæðravernd og sónarskoðunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI REYKJAVÍK Ekki var boðið upp á næturstrætó í sumar, líkt og Ólafur F. Magnússon borgarstjóri lagði til í júní. Hann segir að kostnaður við verkefnið hafi reynst of mikill. „Við höfum náð góðum árangri í miðbænum án þess kostnaðarauka sem í þessu hefði falist,“ segir Ólafur. Eitt af því sem horft var til þegar keyrslu strætós á nóttunni var hætt fyrir nokkrum árum var að hún ýtti undir unglingadrykkju. Geir Jón Þórisson, yfir- lögregluþjónn í Reykjavík, staðfestir það. „Já, á þessum tíma var mikið um miðborgarfyll- erí og næturstrætó var ein af orsökunum fyrir því.“ segir Geir Jón. Hann telur þó allt í lagi að láta á það reyna að koma ferðunum aftur á, verði það ekki til þess að unglingar leiti aftur í miðbæinn. Þá lokuðust allir staðir klukkan þrjú og safnaðist þá oft saman mikill hópur fólks í miðbænum. Ýmsir hafa lagt til að það fyrirkomulag verði tekið upp að nýju. Borgarstjóri segir að menn hafi velt öllum hliðum upp hvað varðar næturvagnana, þar með talið drykkju ungmenna. Reynir Jónasson, forstjóri Strætó, segir að kostn- aður við næturstrætó sé í kringum 400 þúsund krónur hverja helgi. Hann segir reynsluna af því fyrirkomulagi slæma. „Aðsóknin var léleg á sínum tíma og umgengnin alveg skelfileg, enda mikil partí í vögnunum,“ segir Reynir. - kóp Næturstrætó lagður af á sínum tíma vegna unglingadrykkju: Næturstrætó kemur ekki aftur ENGINN NÆTURVAGN Hætt hefur verið við að taka nætur- strætó upp að nýju vegna kostnaðar. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR BANDARÍKIN Rúmlega þrítugur maður frá Suður-Karólínuríki situr nú í fangelsi eftir að hann stal bjarnar húni úr dýragarði með lausum dýrum og rukkaði fólk síðan um einn dollara fyrir að klappa honum. Maðurinn hefur verið ákærður fyrir innbrot og þjófnað. Hann ók með björninn heim til frænku sinnar og sagði henni að hann hefði stolið honum. „Ég var ekki hissa,“ sagði hún. „Hann hefur átt mörg framandi dýr og gert margt heimskulegt.“ Fyrst reyndi hann að stela hettuapa, en var bitinn af öðrum apa og þurfti frá að hverfa. - sh Bauð fólki að klappa húni: Græddi á þjóf stolnum birni ■ Fyrsta verkfall – hefst 4. sept- ember og lýkur 5. september. ■ Annað verkfall – hefst 11. sept- ember og lýkur 12. september. ■ Þriðja verkfall – hefst 17. sept- ember og lýkur 19. september. ■ Fjórða verkfall – hefst 23. september og lýkur 26. sept- em ber. ■ Fimmta verkfall – hefst 29. september ótímabundið. BOÐAÐAR AÐGERÐIR LJÓSMÆÐRA BÍLAR Óvenju góð þátttaka er í alþjóðarallinu sem fer fram í Reykjavík dagana 21. til 23. ágúst næstkomandi en 31 bíll er skráður til keppni. Þar af eru sjö frá Bretlandi og eru þeir flestir á vegum breska hersins. „Sex af sjö bílum eru frá hernum en mótið er hluti af innanhúsmóti breska hersins,“ segir Tryggvi Magnús Þórðarson, keppnisstjóri alþjóða- rallsins, og bætir við að auðvitað séu þeir allir á Land Rover. Keppnin hefst klukkan 17 hinn 21. ágúst og verður fyrsta sérleið ræst frá Perlunni. - eö/ sjá Allt Alþjóðarallið í Reykjavík: Bretarnir flestir á Land Rover GEORGÍA, AP Mikhaíl Saakashvili, forseti Georgíu, hefur undirritað vopnahléssamkomulag við Rússa. Condoleezza Rice, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, var viðstödd undirritunina og sagði að Dmitri Medvedev Rússlandsforseti muni einnig undirrita þetta samkomulag, sem gert var fyrr í vikunni. Hún sagði að nú yrðu Rússar að kalla allt herlið sitt heim frá Georgíu, en Dmitri Medvedev Rússlandsforseti sagði í gær ólík- legt að Ossetíumenn og Abkasíu- menn gætu nokkru sinni deilt ríki með Georgíu mönnum, „eftir það sem á hefur gengið“. Saakashvili sakaði í gær Rússa um að hafa mánuðum saman búið sig undir innrás í Suður-Ossetíu og hernám í beinu framhaldi. Þeir hafi greinilega verið reiðubúnir, því aðeins fáeinum klukkustundum eftir að Georgíuher réðst á Suður- Ossetíu hafi 1.200 rússneskum skriðdrekum verið ekið yfir landa- mærin. Saakashvili segist einnig ítrekað hafa varað Vesturlönd við hernaðar- uppbyggingu Rússa í Suður-Osse- tíu, en viðbrögð Vesturlanda hafi verið dræm. Fleiri þjóðarleiðtogar á Vestur- löndum hafa hvatt Rússa til að draga her sinn til baka. George W. Bush Bandaríkjafor- seti sakaði í gær Rússa um að beita Georgíumenn ofríki og fautaskap, en Bandaríkjamenn myndu ekki láta þjóðir Sovétríkjanna fyrrver- andi eiga sig. - gb Forseti Georgíu undirritar vopnahléssamkomulag: Rússar kalli herinn heim CONDOLEEZZA RICE OG MIKHAÍL SAAK- ASHVILI Utanríkisráðherra Bandaríkj- anna í heimsókn hjá Georgíuforseta. NORDICPHOTOS/AFP LÖGREGLUMÁL Sjötugur karlmaður fannst látinn á heimili sínu í Hamraborg í Kópavogi seint á fimmtudagskvöld. Talið er að hann hafi látist af slysförum. Lögreglan handtók í kjölfarið mann og konu sem tengjast manninum. Þau voru í haldi lögreglu í nótt, en var sleppt eftir yfirheyrslur í gærmorgun. Samkvæmt Friðriki Smára Björgvinssyni, aðstoðaryfirlög- regluþjóni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, liggur fólkið ekki undir grun um refsivert athæfi. Friðrik gat ekki upplýst um möguleg tildrög slyssins. Beðið er eftir niðurstöðu krufn- ingar. - kg Andlát í Hamraborg: Fannst látinn í íbúð sinni Gleymdi leynigögnum Starfsmaður sænska hersins hefur verið ákærður fyrir að hafa gleymt leynilegum gögnum í tölvu á háskóla- bókasafni. Hermaðurinn átti ekki eigin tölvu og notaðist því við tölvu á háskólabókasafninu í Stokkhólmi. Þar gleymdi hann gögnum, sem fjöll- uðu um Afganistan. Sá sem notaði tölvuna næst uppgötvaði efnið og fór með það beint í fjölmiðla. SVÍÞJÓÐ Steinn Logi, er þetta ekki bara algjör steypa? „Jú, steypa og stál er málið í dag.“ Sölumet var sett hjá Húsasmiðjunni og BM Vallá í júlí. Steinn Logi Björnsson er framkvæmdasjtóri Húsasmiðjunnar. BRETLAND, AP Í dýragarðinum í Edinborg var mörgæs nokkur gerð að riddara í gær. Mörgæsin heitir Nils Olav og hefur árum saman verið í lífvarðasveit Ólafs Noregskonungs. Nils Olav er þriðja mörgæsin í dýragarðinum sem hefur haft þessi nánu tengsl við Noregskon- ung. Sú fyrsta var gerð að lífverði Noregskonungs árið 1972 og fékk jafnframt nafnið Nils Egelien. Norska lífvarðasveitin hefur síðan heimsótt Edinborg á hverju ári til að heilsa upp á þennan óvenjulega félaga. Það var breski herforinginn Euan Loudon sem fékk þann heiður í gær að slá sverði á axlir mörgæsarinnar fyrir hönd Noregskonungs við hátíðlega athöfn í dýragarðinum. - gb Skoska mörgæsin Nils Olav: Riddari í sveit Noregskonungs HIN KONUNGLEGA MÖRGÆS Marserar undir trommuleik hinna norsku félaga sinna. NORDICPHOTOS/AFP Þrír látnir í flugslysi Þrír einstaklingar létust í flugslysi í Saimen-vatni í suðurhluta Karjalahér- aðanna í Finnlandi í gær. Lítil flugvél af gerðinni Piper var í kennsluflugi frá Kuopio til Villmanstrand þegar hún hrapaði í vatnið. Ekki er vitað hvers vegna flugvélin hrapaði. FINNLAND SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.