Fréttablaðið - 16.08.2008, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 16.08.2008, Blaðsíða 4
4 16. ágúst 2008 LAUGARDAGUR VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg London París Frankfurt Friedrichshafen Berlín Alicante Mallorca Basel Eindhoven Las Palmas New York Orlando San Francisco HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 22° 21° 18° 20° 23° 20° 23° 25° 23° 20° 29° 30° 22° 23° 28° 28° 31° 17° Á MORGUN 5-10 m/s. MÁNUDAGUR Hæg, breytileg átt. 13 16 17 20 16 12 14 13 13 14 12 13 7 4 4 6 5 4 9 10 13 5 14 17 16 1315 12 15 14 1412 BEST NORÐ- AUSTAN TIL Í dag verður leið- inda vindur vestan til á landinu en þar lægir hins vegar nokkuð á morgun. Eystra verður hægari vindur. Bjart verður með köfl um norðaustan til á landinu um helgina en annars staðar verður skýj- aðra og hætt við vætu sunnan til og vestan. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur REYKJAVÍK Reykjavíkurborg var lagalega skuldbundin til að taka tilboði litháísks fyrirtækis í byggingu Sæmundarskóla, að því er fram kemur í svari Ólafs F. Magnússonar fráfarandi borgar- stjóra við fyrirspurn Óskars Bergssonar borgarfulltrúa. Óskar taldi álitamál að tilboð fyrirtækis- ins væri hagkvæmast, þótt lægst væri, sökum mögulega aukinnar áhættu af tilboði þess. Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar, segir að fyrirtækið uppfylli allar hæfnis- kröfur og ekki komi til greina að láta huglægt mat á mögulega aukinni áhættu hafa áhrif á val tilboðs. - gh Ólafur F. um Sæmundarskóla: Urðu að taka lægsta tilboði LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Mos- fellsbæ hafði hendur í hári tveggja skemmdarvarga á miðvikudagskvöld. Um var að ræða unglingspilta sem höfðu gert sér að leik að sprengja upp ruslatunnu í bænum með heima- gerðri sprengju. Piltarnir forðuðu sér af vettvangi eftir atvikið, en lögreglumenn náðu þeim á flótta. Þeir viðurkenndu sekt sína greiðlega. Annar piltanna hafði í fórum sínum aðra heimatilbúna sprengju, og var hún gerð upptæk. Piltarnir voru færðir til síns heima og foreldrum þeirra gert viðvart. - kg Skemmdarverk í Mosfellsbæ: Sprengdu upp ruslatunnu VINNUMARKAÐUR „Allar fullyrðing- ar um að við sópum slysatilvikum undir teppið eru rangar,“ segir Ágúst Hafberg, framkvæmda- stjóri viðskiptaþróunar og sam- skipta hjá Norðuráli. Fyrrverandi starfsmaður álvers Norðuráls á Grundartanga sagði í Fréttablaðinu á fimmtudag að hann hefði sjálfur þurft að búa um þriðja stigs brunasár eftir vinnu- slys, og að verið kallaður í vinnu daginn eftir til að gefa skýrslu, þrátt fyrir að vera metinn óvinnu- fær af lækni. Ágúst segir að almennt tjái stjórnendur fyrirtækisins sig ekki um málefni einstakra starfs- manna. Lýsing á þessu atviki komi þó á óvart. Til dæmis séu vel þjálf- aðir hjálparliðar á hverri vakt sem veiti fyrstu hjálp. „Skráningar slysa eru mjög ítar- legar hjá okkur. Það hvort starfs- maður kemur á staðinn daginn eftir til að gefa skýrslu eða ekki hefur engin áhrif á það hvernig slysið er skráð,“ segir Ágúst. Vinnuslys telst alvarlegra missi starfsmaður úr vinnu vegna þess. Ágúst segir þrátt fyrir það af og frá að starfsmenn séu hvattir til að koma slasaðir til vinnu. Unnið verði að því á næstunni að fara yfir verklagsreglur vegna vinnu- slysa hjá Norðuráli. - bj Fara á yfir verklagsreglur um vinnuslys hjá Norðuráli og bæta úr sé ástæða til: Sópa ekki slysum undir teppið NORÐURÁL Það er af og frá að slasaðir starfsmenn séu hvattir til að mæta til vinnu segir Ágúst Hafberg. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR DÓMSMÁL Síbrotamaður á fimm- tugsaldri hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir fjölda brota. Maðurinn er dæmdur fyrir á þriðja tug þjófnaða, um tug fjársvika og nokkur fíkniefnamál. Brotin framdi maðurinn frá því í nóvember 2006 þar til í maí á þessu ári. Hann játaði öll brotin. Brotaferill mannsins er afar langur. Fyrsta dóm sinn hlaut hann árið 1979 og alls eru dómarnir nú orðnir 31 talsins. Hann er dæmdur til að greiða fimm aðilum tíu til tuttugu þúsund krónur í skaðabætur. - sh Brotamaður í tvö ár í fangelsi: Með yfir þrjátíu dóma á bakinu LÖGREGLA Maður á sjötugsaldri situr nú í gæsluvarðhaldi á Akureyri grunaður um gróft kynferðisbrot. Maðurinn er sakaður um að hafa nauðgað konu á þrítugsaldri á heimili sínu á Skagaströnd á þriðjudagskvöldið. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Konan fór strax á neyðarmót- töku fyrir þolendur kynferðis- ofbeldis á Sjúkrahúsinu á Akur- eyri og var maðurinn hand tekinn í kjölfarið. Hann hefur verið úrskurðaður í gæslu varðhald sem rennur út í dag. Beðið er niðurstaðna úr sýnum sem tekin voru á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri. - ghs Skagaströnd: Maður grunað- ur um nauðgun REYKJAVÍK Líklegasta lending Sjálf- stæðisflokks og Framsóknar- flokks um Reykjavík Energy Invest, REI, verður sú að fjárfest- ingarsjóður verður stofnaður til að fjármagna verkefni fyrirtækis- ins, samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins. Aðilar að sjóðnum, auk Orkuveitu Reykjavíkur, verði aðallega bankar, fjárfestar og fjárfestingafyrirtæki. Sigrún Elsa Smáradóttir, borgar- fulltrúi Sam- fylkingarinnar og stjórnar- maður í REI, staðfestir að þetta hafi verið til umræðu í stjórn REI. „Það kæmi mér á óvart ef farin væri önnur leið. Þetta er búið að vera í vinnslu núna í allt sumar í stjórn REI, undir for- ystu Kjartans Magnússonar, og sátt ríkir þar um málið. Hins vegar er endanleg útfærsla ekki komin því ekki er búið að semja við neinn,“ segir Sigrún. Sigrún segir að það sem helst hafi strandað á hingað til sé and- staða ákveðinna borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og þá helst Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. „Því þykir mér merkilegt að hún ætli nú að kokgleypa þetta og jafnvel láta að því liggja að þetta sé útfærsla sem hún og Óskar Bergs- son hafi unnið.“ Orkuveita Reykjavíkur mun verða einn af hluthöfum í sjóðnum. Hún mun ekki leggja fjármagn til sjóðsins heldur veita sjóðnum þá þekkingu, það orð- spor og ákveðin verkefni sem stofnunin hefur upp á að bjóða, að sögn Sigrúnar. Samið verður við banka eða aðra fjárfestingarstofnun um að stofna sjóðinn með REI. „Fjárfestingar- stofnunin mun sjá um fjármála- legan rekstur sjóðsins og safna fjármagni í hann,“ segir Sigrún. Líklega verður aðeins fjárfest- um og fjármálafyrirtækjum gef- inn kostur á því að fjárfesta í sjóðnum. Ekki er víst að almenn- ingi gefist tækifæri á því að taka þátt í sjóðnum, að sögn Sigrúnar en þó á enn eftir að útfæra hvernig þessum málum verði háttað. REI-málið svokallaða í október 2007 var ástæða þess að borgar- stjórnarmeirihluti Sjálfstæðis- flokks og Framsóknar sprakk. Nú hafa oddvitar beggja flokka lýst því yfir að sátt hafi náðst um málið og samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er fjármögnunarsjóður líklegasta lendingin. vidirp@frettabladid.is REI verður gert að fjárfestingarsjóði Líklegasta lending nýs meirihluta um REI verður að stofna fjárfestingarsjóð til að fjármagna rekstur fyrirtækisins. Hugmyndin hefur verið í vinnslu í allt sumar. Bankar og fjárfestingarfyrirtæki fá að taka þátt en ekki almenningur. FUNDUR VEGNA REI Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokks fundar um málefni REI í október í fyrra. Borgarfulltrúar flokksins voru ósammála um hvernig útfæra ætti málefni REI. FRÉTTABLAÐIÐ/GVASIGRÚN ELSA SMÁRADÓTTIR Eldur í tjörupotti Eldur kom upp í tjörupotti á þaki nýbyggingar í Löngumýri í Garðabæ í gær. Slökkviliðið var kallað á staðinn og tókst fljótlega að slökkva eldinn. Litlar skemmdir urðu. LÖGREGLUMÁL Olían hreinsuð Töluvert magn af olíuvökva upp- götvaðist á Lækjargötu í Hafnarfirði, í brekkunni skammt fyrir neðan gatnamótin á Reykjanesbraut, um kaffileytið í gær. Vegagerðin kallaði til hreinsunarfyrirtæki og tókst að hreinsa upp olíuna. Lokað var fyrir umferð í tæpa þrjá tíma. Ekki er vitað hvaðan olían kom. Það kæmi mér á óvart ef farin væri önnur leið. Þetta er búið að vera í vinnslu núna í allt sumar í stjórn REI. SIGRÚN ELSA SMÁRADÓTTIR STJÓRNARMAÐUR Í REI Vatnsleki á Nasa Vatnsleki varð á skemmtistaðnum Nasa í gær þar sem stórt fiskabúr var farið að leka. Farið var með bíl Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á staðinn og tókst að dæla úr búrinu og koma þannig í veg fyrir að það spryngi. LÖGREGLUMÁL GENGIÐ 15.08.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 157,7371 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 82,02 82,42 152,30 153,04 120,71 121,39 16,182 16,276 15,104 15,192 12,909 12,985 0,742 0,7464 128,69 129,45 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR Rangt var haft eftir Þórunni Svein- bjarnardóttur umhverfisráðherra í blaðinu á þriðjudag. Hún sagði; „Ég er umhverfisráðherra í þessu landi og mér ber að framfylgja lögum um umhverfisvernd.“ Ranglega var sagt til um ferðatíma frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur með tilkomu nýrrar ferju fré Bakka. Rétt er að ferðin styttist um um það bil níutíu mínútur. LEIÐRÉTTINGAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.