Fréttablaðið - 16.08.2008, Side 33
DANSKIR DAGAR HEFJAST Í DAG Í STYKKISHÓLMI OG
DRAGA TIL SÍN BROTTFLUTTA OG FLEIRI GESTI. ÍBÚ-
ARNIR HAFA ÞEGAR SKREYTT HÚS SÍN OG GÖTUR.
Grillveislur verða víða í Stykkishólmi í kvöld og fara
matsmenn um bæinn að meta veisluföng, skreyt-
ingar og söng til verðlauna. Aðalhátíðis dagurinn
er svo á morgun, og þá verður gengið fylktu liði
frá grunnskólanum á hátíðasvæðið, sem heitir Tív-
olí til heiðurs því danska, þar sem glæsileg dag-
skrá verður fyrir alla fjölskylduna. Um kvöldið er
bryggjuball og flugeldasýning í Súgandisey. Þetta
er fimmtánda hátíðin með þessum brag í Stykkis-
hólmi og að sjálfsögðu verður danski fáninn við
hún alla helgina. Heimild/Skessuhorn
Danskur fáni við hún
Fjölbreytt dagskrá er í
boði á Dönskum dögum
í Stykkishólmi.
Nýr golfvöllur verður vígður í
dag að Indriðastöðum í Skorra-
dal þegar fyrstu níu holurnar
verða teknar í gagnið af tuttugu
og sjö.
„Við erum með boðsmót fyrir
klúbbfélaga og vini og verður ræst
klukkan 11 í fyrsta hring og klukk-
an 14 í annan þannig að það verða
um 100 manns sem spila fyrsta
daginn,“ segir Jón G. Sandholt
ánægjulegur þegar hann er spurð-
ur út í vígslu nýs golfvallar á
Indriðastöðum í Skorradal. Jón er
eigandi staðarins ásamt konu sinni
Láru Sandholt og þar eru þau að
koma upp stórri frístundabyggð
ásamt 27 holu golfvelli svo þetta
er bara byrjunin. Golfklúbbur
Skorradals var stofnaður á síðasta
ári og er kominn í Golfsamband
Íslands, að sögn Jóns. 200 félagar
skráðu sig svo hann fer vel af
stað.
Framkvæmdir við golfvöllinn
hófust sumarið 2004 og Jón segir
landsliðið í golfvallargerð hafa
komið að þeim. Vallarstjóri er
Haraldur Már Stefánsson. - gun
Ræst í fyrsta hring
Ungverjarnir Istvan og Yoenne unnu að gerð skrauttjarna á golfvellinum.
MYND/HARALDUR MÁR
Árlegir Djúpavíkurdagar eru
haldnir nú um helgina og þar
verður veisla.
Kajaksiglingar, kerlingafleyting-
ar í fjörunni, tónleikar með hljóm-
sveitinni Hrauni og útsýnisferð á
bátnum Djúpfara eru á meðal dag-
skráratriða Djúpavíkurdaga sem
hefjast í dag og standa fram á
sunnudag. Hótel Djúpavík verður
með kræsingar á borðum: hefð-
bundinn kvöldverð í kvöld, sjávar-
réttahlaðborð annað kvöld og á
sunnudaginn verður þar síðasta
kaffihlaðborð sumarsins.
Gamla síldarverksmiðjan skip-
ar sinn sess á hátíðinni. Skoðunar-
ferðir verða um hana alla dagana
klukkan 14 og þar verður leikritið
Vinir sýnt klukkan 20 í kvöld. Eftir
sýninguna býður hótelið upp á
kaffisopa áður en haldið er í mið-
næturrölt klukkan 24 þar sem
Djúpavíkurhringurinn verður
gengin með leiðsögn. - gun
Kajaksigling
og kræsingar
Hótel Djúpavík er miðpunktur hátíða-
haldanna.
NESTI er gott að taka með sér í ferðalög þótt þau séu
stutt, fyrir börnin. Það skapar alltaf skemmtilega stemn-
ingu að stoppa og borða nestið úti í náttúrunni.
Fídjieyjar eru lýðveldi í Kyrrahafinu. Eyjaklasinn er
rúmlega 300 eyjar og 500 smáeyjar. Íbúafjöldi er
tæplega níu hundruð þúsund manns en eyjarnar
fengu sjálfstæði frá Bretlandi 10. október árið 1970.
wikipedia.org
BÍLALEIGUBÍLAR
SUMARHÚS Í DANMÖRKU
Sumarhús
Útvegum sumarhús í
Danmörku af öllum stærðum
Fjölbreyttar upplýsingar á
www.fylkir.is
LALANDIA - Rødby
Lágmarksleiga 2 dagar.
LALANDIA - Billund
Nýtt frábært orlofshúsahverfi
rétt við Legoland.
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975.- pr. viku.
Innifalið í verði;
ótakmarkaður akstur, allar
tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
( Afgr.gjöld á flugvöllum).
Höfum allar stærðir bíla, 5 – 7
manna og minibus 9 manna og
rútur með eða án bílstjóra.
Kynning fyrir
fagaðila
í ferðaþjónustu
á starfsemi Sérferða ehf
fyrir sumarið 2009
verður haldin á næstunni.
Áhugasamir vinsamlegast
hafi ð samband við
Magnús í síma 892-0099 eða á
info@puffi nexpress.is
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is