Fréttablaðið - 16.08.2008, Side 56

Fréttablaðið - 16.08.2008, Side 56
36 16. ágúst 2008 LAUGARDAGUR Þ egar Madonna kom á sjónarsviðið árið 1983 með úfið hár og í druslulegum fötum voru gagnrýnendur fljótir að afskrifa hana. Madonna lék og söng dans- tónlist og farnaðist ágætlega á klúbbum New York-borgar með fyrstu plötuna sína, Madonna. Henni var skipaður sess við hlið fjölda annarra söngkvenna sem flestar hafa fallið í gleymsku í dag. Þegar önnur plata hennar, Like a Virgin, kom út haustið 1984 lagði hún poppheiminn undir sig. Gagn- rýnendur voru þó ekki sannfærðir og sögðu margir að hún myndi fljótt gleymast. Cindy Lauper var hins vegar hafin upp til skýjanna. Lauper var fremri tón- listarmaður að mörgu leyti og nýtti sér ekki kynferði sitt í framset- ingu tónlistar sinnar. Madonna gerði það hins vegar óspart og hún kunni að nýta sér fjöl- miðla til verksins. Hún sagði við Dick Clark í þættinum American Bandstand árið 1985: „Ég ætla að leggja undir mig heiminn.“ Heimsyfirráð Ef heimsyfirráð felast í fjölmiðlaumfjöllun hefur Madonnu tekist ætlunarverk sitt. Á íhalds- sömu Reagan- árun- um seldi hún kyn- þokka sinn í gegn- um tónlist af afli sem ekki hafði sést síðan Marilyn Mon- roe var og hét. Þær voru oft bornar saman. „Ég hef aldrei ætlað mér að verða eins og Monroe,“ sagði Madonna í viðtali við MTV-sjónvarpsstöð- ina. „Hún var fórnar- lamb, það er ég ekki.“ Þegar henni þótti tími kominn til lagði hún rytjulegu fötunum, klippti hárið í snyrtilega greiðslu og hóf að gera þroskaða popptónlist með gagnrýn- um undirtóni. Þá hófst barátta hennar við stofnanir og þrýstihópa. Þrjátíu og eins árs sendi hún frá sér plötuna Like a Prayer (1989) sem hlaut náð fyrir eyrum gagn- rýnenda og var lengi vel álitin hennar besta verk. Þar sendi hún skipulögðum trúarbrögðum tón- inn og var gagnrýnd harðlega af páfanum. „Mig langar til þess að snerta fólk og vera pólitísk. Ég vil fá fólk til að hugsa.“ Niðurleið Það getur ekki alltaf gengið vel og þegar Madonna sendi frá sér plöt- una Erotica seldist hún ekki jafn vel og fyrri plötur. Um svipað leyti kom út bókin Sex en í henni var Madonna mynduð í bak og fyrir allsber að leika sér við vini sína. Bókin þótti ekki hafa mikið list- rænt gildi og Madonna sagði sjálf síðar að hún hefði verið í uppreisn. Fjölmiðlarnir sem höfðu alltaf verið henni hliðhollir tóku hana nú í gegn. „Um það leyti sem bókin kom út var talað svo illa um mig í fjölmiðlum að ég þurfti að hætta að lesa blöðin,“ sagði hún á MTV. „Ég þurfti að láta mér vaxa þykkan skráp.“ Uppreisn æru Madonna barðist lengi fyrir aðalhlutverkinu í kvikmyndinni Evita. Þótt Madonnu hafi tekist vel með tónlistarferilinn verður ekki annað sagt en að í flestum tilfellum sé hún afleit leikkona. Engu að síður fékk hún hlutverk Evu Perón í myndinni og fékk fyrir það verðlaun og lof. Með Evitu kom Madonna ferli sínum aftur á rétta braut og árið 1998 kom út ný plata. Ray of Light var samin af Madonnu og William Orbit stuttu eftir að hún eignaðist dótturina Lourdes. Plat- an bæði endurspeglar nýfenginn þroska hennar og næmt auga fyrir samstarfsmönnum. Samvinna hennar og Orbits var metnaðarfull og Madonna uppskar bestu umfjöllun sem hún hafði nokkrun tímann fengið. Fjölskyldulíf Móðir Madonnu lést þegar hún var sex ára og hefur hún rætt málið opinskátt í fjölmiðlum. „Ég held að allt líf mitt hafi mótast af móðurmissinum,“ segir hún. „Ég var alltaf að keppa við systkini mín fimm um athygli föður okkar og að sumu leyti endurspeglar upphaf tónlistar- fers míns þá þrá eftir athygli.“ Madonna segir að líf hennar hafi breyst eftir að hún eignaðist sína eigin fjölskyldu. „Það var stórt gat í hjarta mínu. Ég var alltaf að reyna að fylla það með einhverju,“ sagði hún á VH1, „og ég fann það sem vantaði þegar dóttir mín fædd- ist.“ Árin eftir aldamót hafa verið umsvifamikil í lífi Madonnu. Hún flutti til Englands, giftist leikstjóranum Guy Ritchie og eignaðist með honum soninn Rocco. Síðar ættleiddu þau drenginn David frá Malaví. Ferillinn heldur áfram Madonna hélt áfram að gefa út plötur og árið 2005 sendi hún frá sér plötuna Confessions on a Dancefloor. Platan er óður til danstónlistar. „Mig langaði að gera plötu sem var bara með danstónlist, með engum þögnum á milli laga,“ sagði hún við The Observer. „Við hlustuðum á mikið af tónlist á meðan við gerðum plötuna og eins og greinilega má heyra er hún undir áhrifum frá ABBA og Giorgio Moroder.“ Ætlar að halda veislu Madonna hefur lýst því yfir að hún sé hætt að leika. Þess í stað hefur hún sest í leikstjóra- og framleiðendastólinn. Á þessu ári framleiddi hún heimildarmyndina I Am Because We Are sem segir frá ástandi munaðarlausra barna í Malaví, fæðingarlandi yngsta sonar hennar. Þrátt fyrir að vera orðin fimm- tug sýnir hún engin merki þess að hægja á sér. Aðspurð um fimmtugsafmælisdaginn í viðtali við Vanity Fair sagði Madonna: „Afmælið er að minnsta kosti góð ástæða til þess að halda veislu.“ Konan sem ákvað að sigra heiminn Í dag verður skemmtikrafturinn Madonna fimmtug. Í tuttugu og fimm ár hefur hún borið höfuð og herðar yfir allar aðrar konur í popptónlistar- heiminum. Ferill Madonnu hefur verið misjafn, stundum hefur hún stigið feilspor en alltaf rís hún á fætur og sannar að fáir tónlistarmenn hafa út- hald hennar og getu til þess að halda stöðugum vinsældum áfram. Svona er Madonna. MADONNA SÝNIR HREYSTI Á TÓNLEIKUM ÁRIÐ 2004 MADONNA 2008 Með börnin sín þrjú, Lourdes, Rocco og David. MADONNA ÁRIÐ SEM HÚN SLÓ Í GEGN Boy Toy-beltið varð vörumerki hennar. Ég kom til New York, mig langaði til að verða stjarna, ég lagði hart að mér og draumurinn rættist. MADONNA Á ÞESSU ÁRI Hún stundar líkamsrækt í þrjá klukkutíma á dag. MADONNA Á TÓNLEIKUM Hún leggur mikinn metn- að í sviðsframkomu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.