Fréttablaðið - 16.08.2008, Side 72
52 16. ágúst 2008 LAUGARDAGUR
sport@fretta-
FÓTBOLTI 97 daga bið lýkur í dag
þegar sjö leikir fara fram í fyrstu
umferð í ensku úrvalsdeildinni.
Veislan hefst með hádegisleik
Arsenal og West Brom á Emirat-
es leikvanginum, en Arsenal var
taplaust á heimavelli sínum í
deildinni á síðasta tímabili.
Liverpool heimsækir Sunder-
land þar sem allra auga verða á
sóknarpari Liverpool, Fernando
Torres og Robbie Keane.
Juande Ramos, knatt-
spyrnustjóri Tottenham,
telur lið sitt nú nógu sterkt
til þess að berjast á toppn-
um en Tottenham mætir
Middlesbrough í dag.
Óvissa varðandi framtíð
Dimitar Berbatov gæti
þó sett strik í reikning-
inn hjá Ramos.
Everton mætir
Blackburn en báðum
liðum hefur gengið illa að styrkja
leikmannahópa sína í sumar.
Björgólfur Guðmundsson,
stjórnarformaður West Ham, er
einnig búinn að halda að sér
höndunum hvað varðar leik-
mannakaup í sumar en lið hans
mætir Wigan á Upton Park.
Hull fær Fulham í heimsókn í
fyrsta leik nýliða Hull í efstu
deild í 104 ára sögu félagsins.
Grétar Rafn Steinsson verður
í byrjunarliði Bolton sem mætir
Stoke en Heiðar Helguson er
frá vegna meiðsla.
Englandsmeistarar
Manchester United
hefja titilvörn sína á
morgun gegn New-
castle, en þá mætast
einnig FH-banarnir í
Aston Villa og
Manchester City og
Hermann Hreiðars-
son og félagar í
Ports mouth heim-
sækja Chelsea. - óþ
Fyrsta umferð ensku úrvalsdeildarinnar hefst í dag:
Biðin er loks á enda
LEIKFÆR Wayne Rooney er
klár í slaginn gegn Newcastle
á morgun. NORDIC PHOTOS/GETTY
Landsliðsmaðurinn Grétar Rafn Steinsson verður í eldlínunni
með félagi sínu Bolton sem mætir nýliðum Stoke í fyrstu
umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Grétar Rafn er eðlilega
fullur tilhlökkunar og telur sig vera í fínu standi fyrir komandi
átök í deildinni.
„Ég hlakka mjög til að þetta fari allt saman af stað.
Undirbúningstímabilið gekk vel, ég er að spila mikið
og hef sem betur fer alveg sloppið við meiðsli,“ sagði
Grétar Rafn.
Siglfirðingurinn knái fékk mikið lof fyrir frammi-
stöðu sína með Bolton á síðasta tímabili og hefur
hug á því að halda sínu striki áfram.
„Maður verður bara að gera það sem fyrir mann er lagt og
leggja sig allan fram, þá leikur maður vel. Svo einfalt er það,“
sagði Grétar Rafn.
Bolton þurfti að berjast fyrir tilverurétti sínum í úrvals-
deildinni á síðustu leiktíð. Eftir að hafa tapað þremur fyrstu
leikjum sínum um haustið var félagið í bullandi fallbaráttu
nánast allt tímabilið. Frábær endasprettur þar sem Bolton var
taplaust í fimm síðustu leikjunum, vann þrjá og gerði tvö jafn-
tefli nægði að lokum félaginu til þess að halda sæti sínu í deildinni
en Grétar Rafn vonast eftir betri árangri á komandi tímabili.
„Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að byrja tímabilið vel og
fyrstu leikirnir segja í raun um það hvar liðið stendur í
samanburði við önnur lið í deildinni. Það er því mikill
hugur í okkur að koma af krafti inn í tímabilið,“ sagði
Grétar Rafn.
Nokkrar breytingar hafa átt sér stað á leikmanna-
hópi Bolton eins og gengur og gerist og leikmenn
á borð við El-Hadji Diouf, Stelios Giannakopoulos og
Ivan Campo eru horfnir á braut. Bolton hefur keypt
fjóra nýja leikmenn, þá Fabrice Muamba, Mustapha
Riga, Danny Shittu og framherjann sænska Johan Elm-
ander.
„Það verður spennandi að sjá hvernig nýju leikmenn-
irnir koma inn í þetta hjá okkur. Það fer náttúrlega gott
orð af Johan Elmander og hann hefur skorað mikið af
mörkum á sínum ferli og nú er bara að bíða og sjá hvort hann
nái að pluma sig vel í ensku úrvalsdeildinni og aðlagast leik
okkar,“ sagði Grétar að lokum.
GRÉTAR RAFN STEINSSON: ER FULLUR TILHLÖKKUNAR FYRIR TÍMABILIÐ Í ENSKU ÚRVALSDEILDINNI SEM HEFST Í DAG
Mikilvægt fyrir okkur að byrja tímabilið af krafti
FÓTBOLTI Guðmundur Steinarsson
hefur spilað frábærlega í sumar
og er nú annar tveggja marka-
hæstu leikmanna Landsbanka-
deildar karla með 11 mörk í 14
leikjum. Um leið hefur Guðmund-
ur stungið sér upp í annað sætið
yfir markahæstu leikmenn Kefla-
víkur í efstu deild en hann hefur
skorað 59 mörk fyrir félagið.
Það er aðeins einn Keflvíkingur
sem hefur skorað fleiri mörk –
faðir hans Steinar Jóhannsson
sem skoraði 72 mörk á árunum
1970 til 1980. Guðmundur er enn á
besta aldri og ætti því að eiga
góðan möguleika á að taka metið
af föður sínum á næstu árum.
„Ég verð að viðurkenna það að
ég hef verið að gjóa augunum að
þessu meti annað slagið og fylgj-
ast með því hvað maður ætti mörg
mörk eftir til að ná honum. Þetta
er óneitanlega farið að styttast,“
segir Guðmundur og bætir við:
„Nú fer maður að gera alvöru
atlögu að þessu meti á næstunni. Á
maður ekki að segja það að maður
hætti ekki fyrr en maður er búinn
að ná pabba,“ segir Guðmundur í
léttum tón.
„Ef strákurinn heldur áfram að
skora eins og í sumar þá gæti
metið verið fokið á næsta ári. Það
væri flott ef hann næði metinu
sem fyrst,“ segir Steinar Jóhanns-
son, methafi og faðir Guðmundar.
„Það er kominn tími á þetta met
því það er orðið svo langt síðan
maður skoraði þessi mörk. Það er
samt mjög gaman að hafa átt þetta
met svona lengi,“ segir Steinar,
sem skoraði mörkin 72 í aðeins
139 leikjum.
Guðmundur var í 4. sæti fyrir
þetta tímabil en hefur komið sér
upp fyrir þá Ragnar Margeirsson
og Óla Þór Magnússon.
„Það er ákveðinn heiður að hafa
komist fram úr þeim því þeir voru
báðir goðsögn í Keflavík þegar
maður var að alast upp. Þetta voru
þeir leikmenn sem maður horfði
upp til og því mjög skemmtilegt
að hafa komist fram úr þeim,“
segir Guðmundur.
Það má segja að eplið hafi
ekki fallið langt frá eikinni
hvað varðar markahæfi-
leika feðganna en það finn-
ast þó varla ólíkari leik-
menn og sem dæmi um
það er Guðmundur
örvfættur en Steinar
faðir hans er rétt-
fættur.
„Ég held að hann
hafi ekki verið neitt
rosalega svipaður mér.
Hann var talinn vera
mjög snöggur leik-
maður og var réttur
maður á réttum stað.
Maður heyrir að hann hafi verið
klókur að koma sér í færi og
skora,“ segir Guðmundur og bætir
við:
„Eina samlíkingin sem ég hef
heyrt um okkur er að við höfum
báðir verið duglegir að skora
mörk. Við höfum ekki verið taldir
vera líkir leikmenn,“ segir Guð-
mundur og Steinar tekur undir
það. „Hann er öðruvísi leikmaður
en ég var. Hann skýlir boltanum
betur, er betri skallamaður og
betri skotmaður. Ég var meira á
fartinni og ferðinni,“ segir Steinar,
sem fylgist vel með stráknum.
„Maður fær alltaf nytsamlega
punkta frá honum annað slagið og
hann fylgist mjög vel með. Hann
mætir á langflesta leiki sem
maður spilar,“ segir Guðmundur.
Keflavík er í toppbaráttunni í
Landsbankadeildinni en félagið
hefur ekki orðið Íslandsmeistari
síðan 1973, sem var einmitt síð-
asta tímabilið sem Steinar skorað
tíu mörk í deildinni.
„Ég vona að hann skori einhver
mörk í viðbót en maður veit aldrei.
Maður vonar bara að liðið standi
upp úr og spjari sig. Ef þeir halda
dampi og vinna þessa leiki sína
þá ættu þeir að geta verið í bar-
áttunni við Val og FH,“ segir
Steinar.
Bæði Guðmundur og
Steinar hafa orðið marka-
hæstir í efstu deild, Guð-
mundur sumarið 2000 en
Steinar nítján árum áður,
sumarið 1971. Þriðji marka-
kóngur Keflavíkur í sögunni
er einnig í fjölskyldunni
en Jón bróðir Stein-
ars náði einnig að
verða markahæstur
1966.
ooj@frettabladid.is
Hætti ekki fyrr en ég næ pabba
Guðmundur Steinarsson er orðinn annar markahæsti leikmaður Keflavíkur og vantar nú þrettán mörk til
þess að jafna met föður síns Steinars Jóhannssonar. Menn eru sammála um að þeir séu mjög ólíkir leikmenn.
ÞRÍR ÆTTLIÐIR MARKASKORARA? Guðmundur Steinarsson, Guðni Ívar Guðmunds-
son og Steinar Jóhannsson. VÍKURFRÉTTIR/HILMAR BRAGI
Viltu skjól á veröndina?
www.markisur.com og www.markisur.is
Veðrið verður ekkert vandamál
Hrein fjárfesting ehf, Dalbraut 3, 105 Reykjavík
Upplýsingar í síma 567 7773 og 893 6337 um kvöld og helgar
STEINAR JÓHANNSSON
Ár í boltanum: 1969-1982
Leikir/mörk: 139/72 (0,52 í leik)
Markakóngur: 1 (1971)
Mörk fyrir tvítugt: 15
Mörk 20-24 ára: 35
Mörk eldri en 25 ára: 22
GUÐMUNDUR STEINARSSON
Ár í boltanum: 1996-
Leikir/mörk: 163/59 (0,36 í leik)
Markakóngur: 1 (2000)
Mörk fyrir tvítugt: 3
Mörk 20-24 ára: 25
Mörk eldri en 25 ára: 31
MARKAFEÐGARNIR
MARKAHÆSTIR HJÁ
KEFLAVÍK Í EFSTU DEILD
1. Steinar Jóhannsson 72
2. Guðmundur Steinarsson 59
3. Óli Þór Magnússon 57
4. Ragnar Margeirsson 49
5. Þórarinn Kristjánsson 48
> Spila um bronsið við Svía á sunnudag
Íslenska 18 ára landsliðið tapaði með fimm mörkum,
28-33, fyrir Þjóðverjum í undanúrslitaleik Evrópu-
mótsins í handbolta í Tékklandi í gær. Ísland mætir
Svíþjóð í leiknum um þriðja sætið á sunnudaginn.
Selfyssingurinn Guðmundur Árni Ólafs-
son (sjá mynd) var markahæstur
með átta mörk en FH-ingurinn
Aron Pálmason var með 5 mörk og
5 stoðsendingar. Þá skoruðu þeir
Oddur Grétarsson frá Akureyri og
Ragnar Jóhannsson frá Selfossi fjögur
mörk hvor.
FÓTBOLTI Stjarnan hélt spennunni í
baráttunni um sæti í Landsbanka-
deild karla með því að vinna 6-1
sigur á Selfossi í 1. deild karla í
gær. Selfoss hefði náð níu stiga
forskoti á Garðbæinga með sigri
en nú munar aðeins þremur
stigum á liðunum tveimur.
Þorvaldur Árnason og Ellert
Hreinsson skoruðu báðir tvö
mörk fyrir Stjörnuna og þeir
Zoran Stojanovic og Halldór Orri
Björnsson eitt hvor en Henning
Jónasson minnkaði muninn.
Tveir aðrir leikir fóru fram í
gær; Njarðvík vann Hauka 2-1 og
KS/Leiftur og KA gerðu marka-
laust jafntefli. - óój
1. deild karla í fótbolta í gær:
Stjörnusigur og
áfram spenna
ÁFALL Dusan Ivkovic í liði Selfoss fékk
rautt spjald á 14. mínútu fyrir brot á
Zoran Stojanovic. FRÉTTBLAÐIÐ/ARNÞÓR