Fréttablaðið - 03.09.2008, Side 6
6 3. september 2008 MIÐVIKUDAGUR
Verslunin Hobby Room er að fl ytja og býður þess
vegna allar sýningarvörur á ofboðslegum afslætti!
RÝMINGARSALA
80%
AFSLÁTTUR
ALLT AÐ
HOBBY ROOM · MIÐHRAUN 2 · GARÐABÆR
WWW.HOBBYROOM.IS
ÖLL POOLBORÐ NÚ ÁOFURAFSLÆTTI!SPARIÐ HUNDRUÐÞÚSUNDA!
VIÐ BRÚ
NA
HJÁ IKE
A!
REYKJ
AVÍK
HAFNA
RFJÖR
ÐUR
Fórst þú á Jemen-markaðinn
um helgina?
Já 5,1%
Nei 94,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Velur þú frekar innlenda fram-
leiðslu en innflutta vöru?
Segðu skoðun þína á vísi.is
EFNAHAGSMÁL „Mest ræddum við
hvaða lærdóm má draga af þessu
stormasama ári á fjármálamörk-
uðum,“ segir Björgvin G. Sigurðs-
son viðskiptaráðherra um fund
sinn í gær með Alistair Darling,
fjármála- og bankamálaráðherra
Bretlands.
Hann segir Breta hafa lagt í
mikla vinnu við að skoða það sem
fram hefur farið á fjármálamörk-
uðum undanfarið ár og hvað megi
læra af því. Hvernig bæta megi
eftirlit með fjármálastarfsemi
eftir niðursveiflu í kjölfar þess að
undirmálslán í Bandaríkjunum
gáfu sig.
Björgvin segir þá einnig hafa
rætt horfur á mörkuðum og sam-
skipti landanna. „Bretland er lang-
stærsta samskiptaland okkar á
sviði fjármálastarfsemi og hann
var ánægður með hvað samskipti
landanna væru
mikil á þessu
sviði,“ segir
Björgvin.
Í gærmorgun
heimsótti Björg-
vin útibú Glitnis
og Landsbank-
ans í Lundún-
um. Hann segir
heimsóknirnar
hafa verið gagn-
legar og fróðlegar en þar hafi for-
stöðumenn farið yfir stöðu mála
og hvað væri fram undan.
„Eftir gríðarlega útrás á undan-
förnum árum eru bankarnir að
hægja á og ná utan um starfsem-
ina.“ Það sé fjarri því að vera
neinn svartsýnis- eða uppgjafar-
tónn í bönkunum því eftir aðlögun
sé stefnt á frekari landvinninga.
- ovd
Viðskiptaráðherra fundar með fjármála- og bankamálaráðherra Bretlands:
Stormasamt ár á mörkuðum
ALISTAIR DARLING Fjármálaráðherra
Bretlands átti fund með Björgvini G.
Sigurðssyni í gær.
BJÖRGVIN G.
SIGURÐSSON
BRUNI „Þetta var ekki langur tími
en manni fannst þetta vera heil
eilífð,“ segir Guðmundur Karls-
son skipstjóri, sem í gær var
bjargað ásamt bróður sínum af
bátnum Sigurpáli ÞH-130. Eldur
kom upp í bátnum þegar hann var
um fjórar mílur norður af Húsa-
vík, á Skjálfandaflóa á ellefta tím-
anum í gærmorgun.
Þeir bræður hafa í sumar veitt
kúfisk og róið frá Þórshöfn en
voru í gær að sækja sér fisk í
soðið. Þegar þeir hugðust færa
bátinn urðu þeir varir við reykjar-
lykt. „Þegar ég kom aftur í stýris-
hús og opnaði hlerann niður í mót-
orinn varð bara eins og sprenging,“
segir Guðmundur. Mikill hiti og
reykur hafi staðið upp úr vélar-
rúminu og stuttu síðar stóðu eld-
tungurnar út úr stýrishúsinu.
„Þetta skeði svo snöggt að við
réðum ekki við eitt né neitt og
þökkum okkar sæla að sleppa
fram á hádekk,“ segir Guðmundur
sem fékk snert af reykeitrun og
brenndist á kinn við að ná í neyð-
artalstöð í logandi stýrishúsinu.
Með henni kölluðu bræðurnir á
aðstoð neyðarlínunnar sem sendi
björgunarskipið Jón Kjartansson
frá Húsavík á staðinn auk þess
sem bátar á svæðinu komu til
aðstoðar.
Björgunarskipið var komið að
Sigurpáli á rúmum tíu mínútum
og flutti það þá bræður að landi á
Húsavík þar sem þeir fengu
aðhlynningu á heilsugæslustöð.
Slökkviliðsmenn og lögreglu-
menn náðu að slökkva eldinn í bát-
unum og var hann svo dreginn í
höfn á Húsavík þar sem slökkt var
í frekari glæðum. Eldsupptök eru
ókunn en báturinn er mikið
skemmdur. - ovd
Bræðrum bjargað af 26 tonna brennandi eikarbáti á Skjálfandaflóa í gær:
Bræður þakka sínu sæla að hafa sloppið
VIÐ BRYGGJU Á HÚSAVÍK Sigurpáll ÞH-
130 er 26 tonna eikarbátur, smíðaður
árið 1972 á Akureyri, en slökkviliðsmenn
slökktu í glæðum í bátnum við bryggj-
una á Húsavík.
SÍMAMYND/ÖRLYGUR HNEFILL
Auglýsingasími
– Mest lesið
LÖGREGLUMÁL Nokkrir áverkar
voru á enni mannsins sem fannst
látinn á heimili sínu við Skúla-
götu í fyrrakvöld. Rannsókn lög-
reglu beinist meðal annars að því
hvort þeir hafi leitt manninn til
dauða, eða hvort honum hafi
blætt út. Ljóst er af aðkomunni
að hann hafði misst mikið af blóði
áður en hann lést, samkvæmt
upplýsingum Fréttablaðsins.
Héraðsdómur Reykjavíkur
úrskurðaði í gærkvöldi karl-
mennina sem yfirheyrðir hafa
verið síðustu daga vegna málsins
í gæsluvarðhald til mánudags.
Það var um kvöldmatarleytið í
fyrradag, sem lögreglunni barst
tilkynning um að eitthvað gæti
verið athugunarvert í tilteknu
húsi við Skúlagötu. Karlmaður
sem hringdi í lögreglu hafði
ætlað að heimsækja manninn en
enginn kom til dyra þegar hann
hringdi dyrabjöllunni ítrekað.
Lögregla fór þegar á staðinn.
Þegar þangað var komið reyndist
húsráðandi vera látinn. Er talið
að hann hafi látist nokkrum
klukkustundum áður en lögregla
kom á vettvang.
Maðurinn sem hringdi í lög-
regluna reyndist vera í annar-
legu vímuástandi svo að hann
gisti fangageymslur í fyrrinótt.
Ekki var unnt að yfirheyra hann
fyrr en í gærdag.
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu hóf þegar að leita manna sem
hugsanlega höfðu verið á heimili
hins látna áður en til þess atviks
kom sem hugsanlega leiddi hann
til dauða. Lögreglan hafði síðan
upp á karlmanni sem einnig var í
yfirheyrslum í gær. Hann var
jafnvel talinn geta varpað ein-
hverju ljósi á málið.
Maðurinn sem lést var 68 ára
og var hann einhleypur. Rann-
sókn lögreglu er í fullum gangi.
Meðal annars er beðið bráða-
birgðaniðurstöðu krufningar,
sem mun væntanlega liggja fyrir
í dag.
Sigurbjörn Víðir Eggertsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn segir
að mennirnir tveir hafi verið yfir-
heyrðir í gær. Aðrir en þeir hafi
ekki komið við rannsókn málsins,
að hans sögn. jss@frettabladid.is
SKÚLAGATA Nær sjötugur karlmaður fannst látinn á heimilli sínu við Skúlagötu í
fyrrakvöld. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Hinn látni hafði
misst mikið blóð
Maðurinn sem fannst látinn á heimili sínu við Skúlagötu í fyrrakvöld var með
áverka á enni og hafði misst mikið blóð. Bráðabirgðaniðurstöður krufningar
væntanlegar í dag. Tveir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald.
KJÖRKASSINN