Fréttablaðið - 06.09.2008, Page 6
6 6. september 2008 LAUGARDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Fjöldi manns safn-
aðist saman fyrir utan Alþingishúsið
á Austurvelli í hádeginu í gær til að
lýsa yfir stuðningi við ljósmæður
og kröfur þeirra. Tveggja daga
verkfalli ljósmæðra lauk á mið-
nætti í nótt.
Rannveig Rúnarsdóttir, sviðs-
stjóri á Landspítalanum, segir að
rólegt hafi verið á fæðingardeild
Landspítalans í verkfallinu og starf-
semin gengið hefðbundið fyrir sig
en verkfallið hafi valdið töluverð-
um truflunum í sængurlegunni.
Sængurkonur hafi fundið fyrir
ónæði og truflun á þjónustu og
sömuleiðis þær sem liggi inni vegna
meðgönguvandamála.
„Í staðinn fyrir að vera einar á
stofu eru þrjár eða fjórar á stofu.
Þær fá sína þjónustu en það þéttist
ansi mikið á stofunum því að það
vantar alveg sængurleguna í
Hreiðrinu. Það munar ansi miklu,“
segir hún.
Níu börn fæddust á fimmtudag
og sjö voru þegar fædd á Landspít-
alanum síðdegis í gær þannig að þá
höfðu fæðst samtals sextán verk-
fallsbörn. Þrjár konur voru í fæð-
ingu þannig að fyrirsjáanlegt var
að tæplega tuttugu börn myndu
fæðast áður en verkfalli lyki á mið-
nætti í nótt. Á Akureyri höfðu tvö
börn fæðst.
Næsti samningafundur hefur
verið boðaður á þriðjudaginn. Ljós-
mæður hafa boðað annað tveggja
daga verkfall aðfaranótt fimmtu-
dags. - ghs
SAMSTAÐA MEÐ LJÓSMÆÐRUM Fjöldi
fólks safnaðist saman á samstöðufundi
með ljósmæðrum á Austurvelli í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Mikill fjöldi fólks sýndi ljósmæðrum samstöðu á Austurvelli í gær:
Þröngt á sæng á Landspítala
HAFNARFJÖRÐUR Ný og glæsileg
sundmiðstöð, Ásvallalaug, í
Hafnarfirði verður opnuð í dag við
hátíðlega athöfn. Ókeypis aðgang-
ur verður fyrir alla sundgesti í dag
og á morgun en laugin verður opin
frá þrjú til átta í dag og frá átta til
átta á morgun.
Í Ásvallalaug er aðstaða til
sundiðkunar og afþreyingar með
því besta sem völ er á, 50 metra
sundlaug, kennslulaug og barna-
laug, sex heitir pottar inni og úti,
eimbað, rennibraut og leiktæki. Í
Ásvallalaug verður einnig
líkamsræktarstöðin Hress, aðstaða
fyrir Sundfélag Hafnarfjarðar,
Íþróttafélagið Fjörð, sjúkraþjálfi
og veitingaaðstaða. - ghs
Ásvallalaug opnuð í dag:
Ókeypis í sund
um helgina
NÝ SUNDLAUG OPNUÐ Ný sundmiðstöð,
Ásvallalaug, verður opnuð í Hafnarfirði
í dag. Í lauginni er 50 metra innilaug,
barnalaug, heitir pottar og leiktæki.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SELTJARNARNES Fyrstu skóflu-
stungurnar að byggingu Lækn-
ingaminjasafns voru teknar í gær.
Safnið kemur senn til með að rísa
á safnasvæði Seltjarnarness við
Nesstofu. Bygging og rekstur
Lækningaminjasafnsins er
samstarfsverkefni Seltjarnarnes-
bæjar, menntamálaráðuneytis,
Þjóðminjasafns Íslands, Lækna -
félags Reykjavíkur og Lækna-
félags Íslands. Því er ætlað að
vera miðstöð safnastarfsemi á
sviði lækna- og heilbrigðisvísinda.
Áætlað er að safnið verði um
1.600 fermetrar að stærð. - kg
Skóflustunga á Seltjarnarnesi:
Lækninga-
minjasafn rís
UPPHAF Menntamálaráðherra, bæjar-
stjóri Seltjarnarness og fleiri tóku fyrstu
skóflustungurnar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SKÓLAMÁL Enn vantar um áttatíu
leikskólakennara í borgina auk
130 starfsmanna á frístundaheim-
ilum. Þorbjörg Helga Vigfús dóttir,
formaður leikskólaráðs Reykja-
víkurborgar, segir mönnun á leik-
skólum í Vesturbænum hafa
reynst erfiðasta fyrir þetta haust.
Á leikskólunum Gullborg og
Sæborg, sem báðir eru í Vesturbæ
Reykjavíkur, hefur þurft að skerða
þjónustu mjög og senda börn heim
vegna manneklu.
Rannveig Júníana Bjarnadóttir,
leikskólastjóri á Gullborg, segir að
um óákveðinn tíma þurfi leikskól-
inn að loka klukkan fjögur á dag-
inn. „Álagið er mjög mikið. Verst
þykir mér að sjá hvernig það bitn-
ar á börnunum,“ segir Rannveig.
Hún segir mikla útsjónar semi og
tilfæringar starfsfólks nauðsyn-
legar til að reyna að halda skólan-
um gangandi. Það sjái hver maður
að slíkt reyni mjög á starfsmenn
sem og börn. Þá séu ótalin þau
vandræði sem foreldrar barnanna
verða fyrir af ástandinu.
Þorbjörg segir stöðuna í starfs-
mannamálum þó í betra horfi en
hún var á sama tíma og í fyrra.
Svo virðist sem staðan í Vestur-
bænum hafi versnað. „Í fyrra voru
þó einhver viðbrögð við atvinnu-
auglýsingum frá okkur, nú gerist
ekkert,“ segir Rannveig um aukna
erfiðleika við mönnun.
„Þetta eru báðir alveg frábærir
leikskólar og ég trúi bara ekki
öðru heldur en staðan verði orðin
betri í október,“ segir Þorbjörg
vongóð. Spurð hvort borgin kunni
hugsanlega að grípa til einhverra
neyðarúrræða til að koma til móts
við þá leikskóla
sem standa
verst vegna
manneklu svar-
aði hún að af og
til hefði komið
fyrir að skrif-
stofufólk á
vegum borgar-
innar hefði lagt
niður hefðbund-
in störf sín til að
liðsinna leik-
skólum þar sem mikil mannekla
hefur verið.
Slík neyðarúrræði myndu þó
engan vanda leysa til lengri tíma
litið og því ekki hægt að tala um
slíkar tilfæringar sem úrræði við
viðvarandi vanda. Það sýni þó hve
allir séu boðnir og búnir til að
reyna að gera sitt besta til að koma
til móts við þarfir leikskólanna.
Rannveig segist gjarnan vilja
horfa björtum augum til starfs á
komandi vetri, það sé þó fremur
erfitt þegar enn eigi eftir að taka
tíu börn inn á leikskólann af bið-
lista. Fjölskyldur þeirra barna bíði
eftir lausn á málinu, sem og þeir
foreldrar sem nú þegar eiga börn í
leikskólanum. Þetta reyni mjög á
og langt sé síðan hún hafi getað
sinnt hefðbundum störfum sínum
á skrifstofu leikskólans þar sem
hún sé að hlaupa til í almenn störf
þar til að létta undir.
karen@frettabladid.is
Skrifstofufólk reynir
að létta á leikskólum
Formaður leikskólaráðs segir alla vilja koma til móts við leikskólana. Skrifstofu-
fólk borgarinnar hafi jafnvel lagt niður störf til að reyna að létta á með þeim.
Vandinn er óvenjumikill í Vesturbænum. Áttatíu leikskólakennara vantar nú.
ÞORBJÖRG HELGA
VIGFÚSDÓTTIR
LEIKSKÓLABÖRN Enn vantar um áttatíu leikskólakennara til starfa í borginni. Vandinn
er mestur í Vesturbænum. Leikskólastjóri segir þetta reyna mjög á börn, starfsfólk
og foreldra. Þá er vandi þeirra fjölskyldna sem ekki hefur enn verið úthlutað pláss
ótalinn.
UMHVERFISMÁL Ölgerðin hefur
tekið í notkun þrjá metanbíla frá
Heklu, sem notaðir verða af
sölumönnum fyrirtækisins í
Reykjavík. Eldsneytið á bílana,
sem framleitt er af Sorpu bs., er
unnið úr sorpi af höfuðborgar-
svæðinu.
Í tilkynningu segir að sá litli
koltvísýringur sem frá bílunum
komi sé endurunninn, og bæti því
ekki við heildarmagn gróðurhúsa-
lofttegunda. Einnig að mengun af
metanbíl sé margfalt minni en af
dísil- eða bensínbílum. Til dæmis
þurfi hátt í 120 metanbíla til að
menga jafn mikið og einn
fólksbíll. - kg
Eldsneyti unnið úr sorpi:
Ölgerðin með
þrjá metanbíla
Vilt þú að fyrrum vistmenn á
Breiðavíkurheimilinu fái hærri
bætur en frumvarp forsætisráð-
herra gerir ráð fyrir?
Já 71,3%
Nei 28,7%
Viltu að kaffihús taki til starfa í
Hljómskálagarðinum?
Segðu þína skoðun á visir.is
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á
Akranesi fann fíkniefni og meint
þýfi í bíl sem fór út af veginum á
Akranesvegi í fyrrakvöld.
Ökumaðurinn var undir áhrifum
fíkniefna. Við leit í bílnum
fundust fíkniefni og meint þýfi,
meðal annars nokkur greiðslukort
sem grunur leikur á að hafi verið
misnotuð.
Ökumaður og farþegi voru
færðir til yfirheyrslu, en að sögn
lögreglunnar á Akranesi þekkir
hún til mannanna, sem eru úr
Reykjavík. - kg
Keyrði út af í vímuefnaakstri:
Grunur um
kortamisferli
SKIPULAGMÁL „Það er þessi nálgun
safnaðarins á virðingu fyrir
náttúrunni og fínleiki þessara
bygginga sem gerir það að
verkum að þetta mun verða mjög
farsælt á þessum stað,“ segir
Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður
skipulagsráðs, um fyrirhugað hof
Búddistafélags Íslands í Hádegis-
móum.
Skipulagsráð samþykkti á fundi
sínum á miðvikudag að félagið
fengi að reisa hofið á umræddum
stað. „Þetta tengist náttúrunni með
mjög opnum hætti þannig að öllum
er heimilt að umgangast eða njóta
þessara bygginga sem þarna verða
reistar,“ segir Júlíus Vífill. - ovd
Búddahof í Hádegismóum:
Virðing fyrir
náttúrunni
KJÖRKASSINN