Fréttablaðið - 06.09.2008, Side 16

Fréttablaðið - 06.09.2008, Side 16
16 6. september 2008 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Kristján Hjálmarsson, Trausti Hafliðason og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI RITSTJÓRA: Páll Baldvin Baldvinsson. VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson og Óli Kr. Ármannsson. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Skólastjórinn í Malenga er mjög lágvaxinn maður, svo sem títt er um Malava sem bera í sér erfðaþátt pygmea. Þar sem hann situr virðulega klæddur í jakka með bindi við borð í kompu sinni ná spjöld hátt upp eftir öllum veggjum svo hvergi sér í. Þetta eru mætingatöflur, ein- kunnagröf, nemendaskrár og línurit. Allar þessar upplýsingar kæmust snyrtilega fyrir á einu skjali í töflureikni í tölvu. En hér er engin tölva. Ekki heldur sími. Hann og aðstoðarskólastjórinn sýna okkur pappaspjöld með ýmsum orðum sem skráð hafa verið með sandi og lími. Til lesæfinga; hér eru afskaplega fáar bækur. Foreldrar komu saman og bjuggu til orðaspjöldin. Fyrir utan kytruna er hálfköruð bygging úr heimagerðum múrsteinum. Foreldrar ætla að byggja skólabókasafn. Það vantar reyndar þakjárn og sement. Haft var samband við þingmann um að redda hlutum. Já, og reyndar vantar líka bækur. Á móti stendur gamla skólaálman með þakið hrunið inn í kennslustofu, en „nýja“ álman sem senn verður 20 ára stendur hurðalaus, vanbúin öllu. Í skólanum eru 900 nemendur og átta kennarar. Hlutfall nemenda og kennara er 120:1 en „æskilegt“ hlutfall í þessu landi er 60:1 gangi þróunarverkefni eftir. Ef allir krakkar á svæði skólans mættu væri hlutfallið 200 nemendur á hvern kennara; hér tíðkast það bara ekki að krakk- arnir mæti allir í skóla. Skráð börn eru mikið fjarverandi og stúlkur ljúka oft ekki grunnskóla því ótímabær þungun er algeng. Krakkarnir ganga 5-15 km daglega í skólann. Í þorpunum í kring búa sjálfsþurftarbændur sem varla hafa í sig og á og þegar mikið er að gera á búinu getur verið þörf smárra handa að hjálpa til. Í skjóli við gömlu álmuna er bambusveggur og þar innan eru stúlkur sem kokka sér mat. Metnaðurinn er mikill fyrir hönd þeirra sem eiga að gangast undir samræmdu prófin. Tveimur mánuðum áður en þau hefjast er krökkunum sagt að mæta með steinolíu og mat, koma sér fyrir í skólanum með brekán og bastmottur og lesa af kappi. Piltar eru við samskonar matseld við hlóðir, kennarar stía sundur kynjunum til að halda aga og festu við próflærdóminn. Hér og þar standa litlar ferðatöskur með því sem þau hafa tekið með sér. Ef þau ná samræmdu prófunum geta þau sótt um framhaldsskóla. Þeir eru flestir óbyggðir í héraðinu og kennt á berri jörðinni eins og reyndar er títt með skóla í Malaví. Innan við 6-7% í hverjum árgangi fara í framhaldsskóla. Ástæða heimsóknar okkar er sú að Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur hjálpað til við byggingu á nær tveimur tugum skóla í héraðinu og nú er komið að þessum. Gera þarf upp kennarahúsin, því án þeirra fæst ekki hæft starfsfólk. Koma þarf upp umhverfisvænum kömrum. Þá vantar húsgögn í kennslustof- ur, þjálfa þarf kennara, útvega námsgögn og lykilatriði í öllu skólastarfi er svo að bjóða upp á skólamáltíðir. Læsi í Malaví er rúmlega 60%, minna hjá konum en körlum. Skólastefna stjórnvalda næsta áratug gerir ráð fyrir að 20% af ríkisútgjöldum fari til mennta- mála, með aðaláherslu á grunn- skóla, en líka með framlögum til leikskóla og framhaldsskóla auk fullorðinsfræðslu og mennta- brauta fyrir unglinga sem hafa dottið úr skóla. Áætlunin er útfærð allt niður í fjölda lesbóka og blýanta sem hvert barn á að fá. Byggja á 500 skóla og útvega 650 000 skólamáltíðir árlega. Vonast er til að þá útskrifist 80% af hverjum árgangi úr grunn- skóla sem væri stórkostlegt framfaraskref. Þetta kostar sitt. Ef hagvöxtur verður 6,5% árlega eins og spáð er, og framlög verða áfram 20% af ríkisútgjöldum, vantar 150 milljónir Bandaríkja- dala árlega til að ná endum saman. Það eru litlir 12 milljarð- ar króna á ári hverju. Erlend ríki hafa skuldbundið sem svarar til helmingi þess fjár í ár, en óvíst er með framtíðina. Það vantar því töluvert mikið til að hægt sé að fjármagna þessa áætlun, enda landið með þeim fátækustu í heimi. Það má heita metnaðar- fullt að verja fimmtungi ríkis- útgjalda til menntamála, en lýsandi er fyrir stöðuna að á áratug þurfi samt að minnsta kosti 60 milljarða íslenskra króna erlendis frá til viðbótar við álíka upphæð sem nú er veitt á ári í þróunaraðstoð til mennta- mála. Og þá er allt annað eftir. En á næstunni eru samræmd próf í Malaví og krakkarnir sem nú kokka bak við hús og sofa á bastmottum allar nætur milli lestranna ætla sér stóra hluti hvað sem öllu líður. Höfundur starfar fyrir Þróunar- samvinnustofnun í Namibíu. O rð geta stækkað menn og smækkað eftir atvik- um. Orðið stækkaði Sigurbjörn Einarsson biskup. Hann var andans maður tuttugustu aldarinnar. Um það efast fáir. Síst er ofmælt að nafn hans sé við hlið þeirra sem fram til þessa hefur verið skipað á fremsta bekk kirkjusögunnar. En var Sigurbjörn Einarsson þá fyrst og fremst maður liðins tíma? Eða var hann ef til vill boðberi trúar sem ekki fangar lengur huga fólksins? Hvort tveggja eru þetta spurningar sem eðlilegt er að velta upp nú þegar lífshlaupi hans er lokið. Þegar að er gáð var ævi hans öfugt farið við flesta að því leyti að orð hans komst innar í hugskot þorra fólks eftir því sem aldur hans færðist nær því að fylla tíunda tuginn. Hann náði háum aldri en varð aldrei gamall í hugsun. Hitt er þó merki- legra að við ævilok náðu orð hans til Íslendinga tuttugustu og fyrstu aldarinnar jafnt sem hinna er nær honum stóðu í tíma. Sigurbjörn Einarsson þjónaði æðsta embætti íslensku þjóðkirkjunnar. Það gera ekki aðrir en þeir sem eitthvað er í spunnið. Hann óx vissulega af embættisverkum sínum. En áhrif hans helguðust ekki af embættisstöðunni. Hún er í sjálfu sér eins konar aukahlutverk þegar áorkan hans á samfélagið er vegin og metin. Með öðrum orðum var það ekki biskupsskrúðinn sem varð til þess að fólk lagði fremur við hlustir þegar hann talaði en aðrir menn. Það var andagift hans og skýrt íslenskt tungutak sem greiddi götu hans að huga og hjarta þjóðarinnar. Trúlega er rétt að hann hafi komist nær hjartarótum fleiri Íslendinga en nokkur samferðamaður hans. Einu gilti hvort menn fylgdu trúarskoðunum hans, höfðu um þær efasemdir eða létu þær sér í léttu rúmi liggja. Hann átti erindi við alla. Þannig var hann miklu meira en kirkjuleiðtogi. Í Sigurbirni Einarssyni var einnegin merkisberi íslenskrar menningar. Vel má vera að leyndardómurinn að baki áhrifavaldi orða hans felist í þeim einfalda veruleika að hann var alla tíð trúr uppruna sínum. Í honum var einhver merkileg blanda þeirrar hógværðar og lágu bursta sem einkenna skaftfellska sveita- menningu og mustera heimsmenningarinnar. Sigurbjörn Einarsson var forystumaður um endurreisn Skál- holtsstaðar. Þar kom glöggt fram næmur skilningur á að sú mikla arfleifð trúar- og menningarsögu íslensku þjóðarinnar er ekki aðeins fyrir spjöld sögunnar. Hún er lifandi hluti sam- tímans og ein af undirstöðum framtíðarinnar. Því fer fjarri að Sigurbjörn Einarsson hafi alltaf mælt á þann veg sem vænta mátti að flestir vildu heyra. Orð hans gátu valdið vindsveipum í umræðunni. En þegar upp er staðið hafa flestir samferðamanna hans borið hlýjar tilfinningar í garð hans. Þjóðkirkja sem kveður slíkan mann er ekki einangruð. Kirkjan á hins vegar ekki sögu hans ein og sér. Á sinn hátt var Sigurbjörn Einarsson svo ríkur þáttur í sjálfsmynd Íslendinga að í sögunni verður hann maður fólksins í landinu. Sigurbjörn Einarsson: Maður fólksins í landinu ÞORSTEINN PÁLSSON SKRIFAR Skólinn í Malenga UMRÆÐAN Ögmundur Jónasson skrifar um upplýsingaskyldu Talsvert er um liðið síðan farið var að ræða um að lög og reglur yrðu settar um upplýsingaskyldu þingmanna og ráðherra. Kröfur þessa efnis hafa ágerst eftir því sem fólk hefur orðið þess áskynja að hugtakið einkavinavæðing var ekki fundið upp að ástæðulausu. Hagsmuna- og eignatengsl á milli fyrirtækja og einstaklinga sem hagnast á einkavæðingu annars vegar, og síðan stjórnmála- manna sem með slíkt véla hins vegar, eru mjög raunveruleg. Þetta þekkjum við frá einkavæðingu ríkisbankanna sérstaklega og hið sama dúkkar upp nú þegar heilbrigðiskerfið er komið inn á færiband einkavæðingar. Um þetta þurfa fjölmiðlar að vera meðvitaðir og upplýsa almenning. Frumskyldan hvílir hins vegar hjá viðkomandi þingmönnum og ráðherrum. Að sjálfsögðu ber þeim að upplýsa um öll þau eigna- og hagsmunatengsl sem máli geta skipt. Einfaldasta leiðin er að sett verði lög hvað þetta varðar og hefur þingflokkur VG verið þess mjög fylgjandi að svo verði gert. Hið sama hefur heyrst frá þingflokki Samfylkingarinnar. Einn grundvallarmunur er þó á þessum tveimur þingflokkum. Þingmenn VG ákváðu að bíða ekki eftir því að þeir yrðu lögþving- aðir til þessarar upplýsingagjafar. Að eigin frumkvæði birtu þeir á heimasíðu flokksins allar upplýsingar um tekjur sínar, eignir og hagsmunatengsl. Hafa þessar upplýsingar legið fyrir opinberlega um nokkurt árabil. Hvað Samfylkinguna áhrærir þá hefur hún mikið talað um þörf á lögum sem þvingi þingmenn til sagna. En lengra nær það ekki. Getur verið að beita þurfi Samfylkinguna lögþvingun til að gera það sem hún galar um á torgum að hún vilji gera? Hvers vegna ekki að finna samræmi í orðum og athöfnum? Auðvitað eiga allir sem eru slíkri upplýsingagjöf samþykkir að stíga skrefið fyrir sjálfa sig þegar í stað og undan- bragðalaust og þá láta hina sitja uppi með skömmina takist ekki að ná samstöðu á Alþingi um lögbundnar reglur um hagsmunatengsl þingmanna. Ef hins vegar dæma skal af opinberum yfirlýsingum um þetta efni þá er fyrir þessu meirihluti á Alþingi. Nema menn kannski tali af kokhreysti vegna þess að þeir viti að þeir þurfi ekki að standa við orð sín? Svona einsog með eftirlaunalögin. Höfundur er formaður þingflokks VG. Þarf að beita lögþvingun? ÖGMUNDUR JÓNASSON STEFÁN JÓN HAFSTEIN Í DAG | Þróunarhjálp Drengjakór Reykjavíkur auglýsir eftir söngelskum drengjum 6-7 ára. Æfi ngar eru einu sinni í viku í 45. mín. Uppl. www.drengjakor.is eða í síma 896 4915. Ekki fyrir fram Eins og sagt var frá í blaðinu í fimmtudag liggur umboðsmaður Alþingis enn undir feldi og íhugar hvort Árni Mathiesen hafi brotið gegn góðum stjórnsýsluháttum með því að skipa Þorstein Davíðsson héraðs- dómara. Umboðsmaður hefur haft málið á sinni könnu í nokkra mánuði en segist ekki vita hvenær úrskurðar sé að vænta. Málið hafi þó ekki tekið óeðlilega langan tíma. Hvað sem því líður má að minnsta kosti gera því skóna að áhyggjur Árna Mathiesen, af því að umboðsmaður hafi þegar mynd- að sér skoðun í málinu áður en hann tók það til umfjöllunar, hafi verið ástæðulausar. Café Avion Gísli Marteinn Baldursson hefur verið í forsvari fyrir hóp sem vinnur að því að koma kaffihúsi í Hljómskálagarð- inn. Vissulega fín hugmynd, enda ljúft að eyða sólskinsdögunum í garðinum líkt og margir vita. Þó ber gjarnan skugga á þær unaðsstundir þegar flugvélar fljúga í lágflugi yfir garðinn til lendingar á Reykjavíkurflugvelli. Kannski fær kaffihúsið nafnið Café Avion – Flug- kaffi? Úthugsað? Gísli vill skapa rólega og skemmtilega stemmningu á kaffihúsinu og það er trauðla hægt á meðan flugvélarnar sleikja rafta hússins. Kannski þetta sé liður í að koma flugvellinum í burtu? Kaffihúsið í Hljómskálagarðinum snýst því kannski mun fremur um brotthvarf flugvallar í Vatnsmýrinni en huggulegt afdrep fyrir kaffiþyrst fólk. Sem væri óneitanlega kaldhæðið. Stuðningsmenn flugvallarins sjá rautt þegar kemur að kaffidrykkju þeirra sem vilja hann burt og tala um „Café au lait-þambandi 101-pakk“. Kannski kaffihúsið í Hljómskála- garðinum verði klúbbhús þess hóps? bergsteinn@frettabladid.is kolbeinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.