Fréttablaðið - 06.09.2008, Page 64
44 6. september 2008 LAUGARDAGUR
Tónleikar til heiðurs tónskáldinu
Þorkeli Sigurbjörnssyni sjötug-
um fara fram í Salnum annað
kvöld. Þar mun píanóleikarinn
Kristín Jónína Taylor leika öll
verk Þorkels fyrir píanó.
Kristín, sem á ættir að rekja
bæði til Íslands og Bandaríkj-
anna, er prófessor við Waldorf
College í Iowa-ríki og deildar-
stjóri tónlistardeildar skólans.
Hún hefur mikið fjallað um nor-
ræna tónlist á fræðilegum vett-
vangi; doktorsritgerð hennar
fjallaði um píanókonsert Jóns
Nordal og hún hefur einnig lagt
áherslu á að flytja norræna tón-
list á tónleikum sínum. „Ég
kynntist Þorkeli fyrir nokkrum
árum þegar ég var stödd hér á
landi við rannsóknarvinnu,“ segir
Kristín. „Það leið ekki á löngu
þar til ég heillaðist algerlega af
verkum hans; sérlega kann ég að
meta húmorinn sem er gegnum-
gangandi í tónlistinni.“
Kristín kveður það afar
ánægjulegt að fá tækifæri til
þess að heiðra Þorkel á þessum
tímamótum. „Ég held að allir
íslenskir tónlistarmenn hafi orðið
fyrir áhrifum frá Þorkeli og að
áhrif hans á íslenskt menningar-
líf séu meiri en margan grunar.
Til að mynda hafa flestir Íslend-
ingar sem hafa farið í kirkju
sungið sálm eftir hann. Það er
mér því mikill heiður og sann-
kölluð ánægja að fá að leika tón-
list hans við þetta tækifæri.“
Tónleikarnir hefjast kl. 20
annað kvöld. Miðaverð er 2.500
kr. - vþ
Píanóverk Þorkels í Salnum
PÍANISTINN OG TÓNSKÁLDIÐ Kristín Jónína Taylor og Þorkell Sigurbjörnsson við
æfingar í Salnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 6. september
➜ Opnanir
14.00 Hjörtur Hjartarson opnar
sýningu á verkum í Verðandi galleri
á Laugavegi 51. Sýningin stendur til
30. september.
15.00 8+8 Made in Hafnarfjörður
Til sýnis verður afrakstur samstarfs
átta alþjóðlegra hönnuða og átta
hafnfirskra framleiðslufyrirtækja.
Sýningin er í tilefni af 100 ára
afmæli Hafnarfjarðarbæjar og
fer fram í sýningarsalnum Dverg,
Lækjagötu 2.
15.00 Handverk og hefðir - jap-
önsk nytjalist Sýningin stendur
til 5. október. Þjóðarbókhlaðan,
Arngrímsgötu 3.
17.00 Tilbrigði - Variation
Sigurlín M. Grétarsdóttir opnar
sýningu á Café Karólínu. Sýningin
stendur til 3. október. Café
Karólína, Kaupvangsstræti 23,
Akureyri.
20.00 Appelsínurauði eldur-
inn sem þú sýndir mér Ásdís Sif
Gunnarsdóttir opnar sýningu í Kling
& Bang galleríi. Sýningin stendur til
28. september. Kling & Bang gallerí,
Hverfisgötu 42.
Sjónarrönd Sæþór Örn Ásmundson
opnar sína fjórðu einkasýningu í
Saltfélaginu, Grandagarði 2. Sýningin
stendur yfir úr septembermánuð.
Hjónin Ása Heiður Rúnarsdóttir og
Birgir Breiðdal opna samsýningu í
Gallerí List, Skipholti 50a. Sýningin
stendur yfir til 16. september.
➜ Sýningar
13.00
Margsaga/
Equivocal
Katrín
Elvarsdóttir
tekur á móti
gestum og
gangandi í
Gallerí Ágúst
kl. 13-15 og
leiðir um sýningu sína Margsaga.
Sýningin samanstendur af nýjum
ljósmyndaverkum og stendur til 27.
september.
➜ Fundir
13.00 UNIFEM-umræður Fyrsti
fundur vetrarins í fundaröð þar sem
starf UNIFEM er kynnt og fjallað
um stöðu kvenna í þróunarríkjum.
Fundurinn er haldinn í Miðstöð
Sameinuðu þjóðanna, Laugavegi 42.
➜ Síðustu Forvöð
Tilraunamaraþoni í Listasafni
Reykjavíkur lýkur á mánudag. Fjöldi
listamanna koma að sýningunni
sem er hluti af Listahátíð í Reykjavík.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsinu.
Opið alla daga frá 10-17. Opið
fimmtudaga til 22.
➜ Opið Hús
13.00 Korpúlfsstaðir Vinnustofur
listamanna verða opnar og gefst
gestum og gangandi kostur á að
skoða málverk, leirlist, grafík, textíl
og hönnun ýmiss konar milli kl. 13
og 17.
➜ Markaðir
13.00 Safnaramarkaður í Gerðu-
bergi verður opinn frá 13-16.
Menningarmiðstöðin Gerðuberg,
Gerðubergi 3-5.
➜ Ljósmyndasýningar
17.00 Fés og fígúrur Ellert
Grétars son opnar ljósmyndasýn-
ingu í Fótó grafí, Skólavörðustíg 4.
Sýningin stendur tl 3. október.
➜ Tónlist
21.00 Hljómsveitirnar Gjöll og
Digital Madness spila á Dillon.
Andrea Jóns þeytir skífum. Dillon,
Laugavegi 30.
➜ Hverfahátíð
14.00 Hverfahátíð Miðborgar og
Hlíða verður haldin á MIklatúni.
Upplýsingar um viðburði sendist
á hvar@frettabladid.is
Boðið verður upp á opið hús í Þjóð-
leikhúsinu í dag á milli kl. 13 og 16.
Þar verður margt skemmtilegt um
að vera; Tinna Gunnlaugsdóttir
þjóðleikhússtjóri mun taka á móti
gestum í sínu fínasta leikhúspússi,
ræningjarnir úr Kardemommu-
bænum ætla að grilla á tröppum
Þjóðleikhússins og starfsfólk og
leikarar hússins verða á ferð og
flugi um alla bygginguna, uppá-
klædd í tilefni dagsins, leitandi að
ísbirni sem ku hafa tekið sér ból-
festu í húsinu.
Leikhúsunnendur sem vilja
tryggja sér varanlegt sæti úr Þjóð-
leikhúsinu geta einnig tryggt sér
stól í þessari ferð því örfá „sæti“ úr
gamla salnum verða til sölu á opna
húsinu. Stólarnir eru með hinu
sígilda Þjóðleikhúsáklæði og í fínu
standi, en ósamsettir. Kynnisferðir
baksviðs verða tímasettar og verð-
ur farið í litlum hópum um húsið.
Síðast en ekki síst munu Skoppa og
Skrítla, Einar Áskell og Maddam-
amma og Putti litli úr Skilaboða-
skjóðunni gleðja yngstu gestina. - vþ
Þjóðleikhúsið opið
SKOPPA OG SKRÍTLA
Leika á als oddi í
Þjóðleikhúsinu í dag.