Fréttablaðið - 06.09.2008, Blaðsíða 32
!"
#
$%&'($'&)*'* +
,-./0 1 23,
1 23,
! "#$ % &
'
(
)*
!" #$ $ "
"$%
$ &
'$ ( #
)
# *
( #
(
(
+ $ ,*
&
-
, - .
,
/
$"
% 0,
) .
$ ,4 56784719. $
1
234#555$ .'
0 . 675555 80(
6+ (
# " #
, $,
#. ( ##
#$ ,".* Haustferðir í september:
Skráning í síma 562 1000 eða
utivist@utivist.is
• Grill og gaman í Básum
• Laugavegur -hraðferð
• Jeppaferð um Breiðbak
• Jeppaferð norðan Hofsjökuls
Myndir úr gönguferð ÍT-ferða um
Svartfjallaland síðastliðið vor
verða sýndar í fundarsal ÍBR á 3.
hæð í íþróttamiðstöðinni í Laugar-
dal á morgun, sunnudaginn 7. sept-
ember. Í framhaldinu verður
kynning á gönguferðum ÍT-ferða
árið 2009.
Myndasýningin hefst klukkan
16 en kynningin klukkan 17 og
allir eru velkomnir á hvortveggja.
Svartfjalla-
land til sýnis
Vinkonur á göngu um Svartfjallaland.
MYND/HJÖRDÍS
FJÓRHJÓLAÆVINTÝRI bjóða upp ýmsar gerðir ferða á Reykja-
nesi og í Krísuvík. Fyrirtækið skipuleggur líka ferðir fyrir hópa eftir
samkomulagi, til dæmis starfsmannaferðir, fjölskylduferðir og fleira.
Frekari upplýsingar á www.atv-adventures.com/ og info@atv4x4.is.
Hótel Laxnes er heiti á nýju
hóteli sem var opnað í hjarta
Mosfellsbæjar í gær.
Nýja hótelið býður upp á svítur,
rúmgóð herbergi og herbergi með
sérinngangi og eldunaraðstöðu
ásamt sérútbúnum stúdíóíbúðum
fyrir fatlaða á fyrstu hæð. Útsýnið
frá hótelinu er vítt þar sem það
stendur á ási í miðjum bænum.
Stutt er í sundlaug, hestaleigu og
strætisvagnastöð og þá eru golf-
vellir einnig skammt undan. Fjöl-
breyttar gönguleiðir eru í kring,
bæði um stíga og ósnortna náttúru.
Eigandi hótelsins er Albert Rúts-
son, þekktur sem bílasalinn og
skemmtikrafturinn Alli Rúts.
Upplýsingar eru á www.hotel-
laxnes.is - gun
Svítur og sérinngangur
Hótel Laxnes í hjarta Mosfellsbæjar. MYND/HÓTEL LAXNES
Frásagnir og
fjársjóðsleit
TEAM EVENT BÝÐUR UPP HÓP-
EFLISLEIKI OG GÖNGUFERÐIR UM
KAUPMANNAHÖFN.
Fyrirtækið Team Event stendur
fyrir hópeflisleikjum í miðborg
Kaupmannahafnar sem eru
tilvaldir fyrir hópa og fyrirtæki
á leið borgarinnar. Fjársjóðsleit
kallast leikur sem fer fram á
afmörkuðu svæði og gengur út á
að leysa vísbendingar sem eiga
það sameiginlegt að tengjast
sögu og staðháttum í miðborg-
inni. Copenhagen Race er hins
vegar leikur í þremur stigum
þar sem hóparnir leysa sem
flestar þrautir og verkefni á sem
skemmstum tíma. Fyrirtækið
býður líka upp á gönguferðir fyrir
hópa á athyglisverða staði í mið-
borginni sem er ágæt leið til að
kynnast betur Kaupmannahöfn.
Nánar á www.teamevent.is og
info@teamevent.org. - rve
Kaupmannahöfn er í brennidepli í
leikjum Team Event. MYND/ÚR EINKASAFNI
Ferðafélag Íslands efnir til göngu
á Kvígindisfell sunnudaginn 21.
september, en útsýni af því telst
vera einstakt. Hingað til hefur
ekki verið ýkja tíðförult á það
þótt það sé létt yfirferðar. Kvíg-
indisfell er á mörkum Árnessýslu
og Borgarfjarðarsýslu, nálægt
Uxahryggjaleið, í um klukku-
stundar akstri frá Reykjavík.
Ferðafélagið lauk stikun göngu-
leiðar á það í hittifyrra. Það mun
setja upp upplýsingaskilti um
fjallið og útsýni af því við upp-
göngustað í Víðikerum á næstu
dögum. Lagt verður af stað í
ferðina frá Mörkinni 6 klukkan
10.30. Farið er á einkabílum en
þátttakendur safnast saman í bíla
fyrir brottför.
Sjá www.fi.is.
Einstakt útsýni
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS EFNIR
TIL GÖNGU Á KVÍGINDISFELL 21.
SEPTEMBER.