Fréttablaðið - 06.09.2008, Síða 54
34 6. september 2008 LAUGARDAGUR
Hvenær varstu hamingjusamastur?
Það er svo auðvelt að rugla saman hamingju og
stolti. En ég var hamingjusamur þegar ég kom
heim með drenginn minn af fæðingardeildinni,
ég var mjög ánægður þegar ég gaf út breið-
skífu Reykjavík!ur og ég er oft hamingju samur
þegar ég er í góðra vina hópi með fjölskyldu
minni!
Ef þú værir ekki söngvari, hvað myndirðu þá
vera?
Þá væri ég klárlega svona Ultimate Fighting
Champion í átthyrndu búri í Las Vegas, allur
löðrandi í blóði og algerlega snælduvitlaus
öllum stundum. Nú, eða heimspekiprófessor
við virtan háskóla í Mið-Evrópu.
Hvað er það dýrasta sem þú hefur nokkurn tím-
ann keypt þér?
Ég keypti mér íbúð, ég er enn að súpa af því
seyðið. Það var alveg geðveikt dýrt ævintýri
sem vart sér fyrir endann á. Svo hef ég keypt
mér Apple-tölvu og sjónvarp. Hvort tveggja
reif í. Ég hef ekkert sérstaklega gaman af því
að kaupa mér hluti. Veraldlegar eigur eru eitt-
hvað svo glataðar þegar allt kemur til alls.
Hvað er það versta sem nokkur hefur sagt við
þig?
Mamma mín sagði mér einu sinni að ég væri
latur. Það þótti mér miður þar til ég gerði mér
grein fyrir því að á þeim tímapunkti í lífinu var
ég húðlatur og ábyrgðarlaus. Nú kveður við
annan tón í lífi mínu! Svo sagði einhver ónefnd-
ur aðili á internetinu að ég syngi eins og gór-
illa. Ég mana þann hinn sama til þess að stíga
fram og gangast í ábyrgð orða sinna!
Ef þú byggir ekki í Reykjavík, hvar myndirðu
vilja búa?
Ég væri mjög til í að búa í Mjóafirði eða Berlín.
Svo fannst mér Köln spennandi borg.
Draumahelgin þín í einni setningu?
Stokkseyri, humar, rauðvín og kelerí!
Lagið sem þú verður að syngja opinberlega
áður en þú deyrð?
Bohemian Rhapsody en það yrði líklega það
síðasta sem ég myndi gera í þessu lífi! Er
maður ekki myrtur fyrir að gera svoleiðis?
Hvert er versta starf sem þú hefur nokkurn
tíman gegnt?
Ég var alveg glataður málari og lét það bitna á
starfinu, bölvaði því í sand og ösku. Það var
samt alveg fínt!
Uppáhaldsstaðurinn þinn á jörðinni?
Vöðlavík.
Hverskonar tónlist hefur mest áhrif á þig og
hvaða lag ertu að hlusta á mest í dag?
Öll tónlist sem ég hlusta á hefur áhrif á mig.
Mest áhrif hefur þó svona útúrkóluð klúbba-
músík, það eru ekki góð áhrif þó! Það eru mjög
slæm áhrif, ég svitna í handarkrikunum, verð
ör og pirraður. Pendulum er príma dæmi um
tónlist sem hefur mikil áhrif á mig. Ég fer að
efast um allt hið góða í heiminum, efast um
mannkyn. Annars er ég mest að hlusta á lagið
1414 með Valentinoland og Repticon.
Ef þú ættir tímavél, hvert myndirðu fara og af
hverju?
Veistu, ég bara er ekki viss. Ég væri alveg til í
að fara aftur í tímann og sannfæra George
Lucas að hugsa sig tvisvar um áður en hann fór
að vinna aftur að Star Wars-myndunum sínum.
Svo væri ég til í að sjá svosum eina grameðlu
og fljúgast á við hana! Svo væri nú alveg grand
að skjótast eina kvöldstund aftur til ársins 1976
og dansa í skugga óminnishegrans með Charles
Bukowski.
Er eitthvað sem heldur fyrir þér vöku á nótt-
unni?
Stundum ef ég hef ekki staðið í skilum þá ligg
ég andvaka. Hafi ég til að mynda ekki skilað
mynd á leiguna, bók á bókasafnið eða ekki stað-
ið við skuldbindingar gagnvart þeim sem ég
hef mætur á!
Ef þú gætir breytt einhverju í fortíð þinni, hvað
myndi það vera?
Ég vildi óska þess að ég hefði verið viðkunn-
anlegri við marga samferðamenn mína á
grunnskólaárunum. Ég var oftar en ekki alger
viðbjóður í samskiptum, dónalegur og
óviðkunnan legur. Svo skammast ég mín stund-
um fyrir það hversu lélegur ættingi ég hef
verið í gegnum tíðina, ekki sinnt minni fjöl-
skyldu sem skyldi.
Hvenær fékkstu síðast hláturskast?
Ég fæ mjög reglulega hlátursköst. Sonur minn
sér iðulega til þess! Svo er ég líka með svo
sjúklega fyndnum strákum í hljómsveit.
Nýlega hélt ég að ég myndi hreinlega gefa upp
öndina en þá voru þeir tveir strákanna að leika
Robert Smith og Jakob Frímann í gufubaði.
Þeir náðu glæsilegum eftirhermum.
Áttu þér einhverja leynda nautn?
Engar nautnir minna eru leynilegar!
Uppáhaldsbókin þessa stundina?
Mín uppáhaldsbók er Grendel, en hún á sér þó
harða samkeppni í Frelsinu og Brekkukots-
annáli. Nei, þegar allt kemur til alls þá er Litli
prinsinn klárlega besta bók í heiminum!
Hvaða núlifandi manneskju lítur þú mest upp
til?
Ég lít upp til svo margra í kringum mig, ég
kann því ekki við að reyna að smætta aðdáun
mína á mörgum niður í einhvern eintakling.
En hvaða núlifandi manneskju þolirðu ekki?
Gaurinn sem er allur húðflúraður og gataður
og þykist vera eðla. Hann er alveg óþolandi!
Hann á svo erfitt með að vera eðlilegur!
Uppáhaldsorðið þitt?
Chewbacca.
Hvaða eitt atriði myndi fullkomna lífsgæði
þín?
Áhyggjuleysi.
Hvað er næst á dagskrá?
Að gefa út plötuna okkar sem verður klárlega
nýr kafli í íslenskri tónlistarsögu. Ég þori svo
sannarlega að standa frammi fyrir hverjum
sem er og segja hreint út – Þessi plata er mögn-
uð! Hún er okkar „Off the Wall“, okkar „...And
Justice for All“, okkar „Tímarnir okkar“ og
okkar „Vulgar Display of Power“.
Langar að fljúgast á við grameðlu
Bóas Hallgrímsson er söngvari rokksveitarinnar Reykjavík! en hún er að leggja lokahönd á nýja breiðskífu
sem tekin er upp af Ben Frost. Anna Margrét Björnsson heyrði í Bóasi og fékk nokkur mjög mikilvæg atriði á
hreint.
Ég var oftar en
ekki alger við-
bjóður í sam-
skiptum, dónalegur og óvið-
kunnanlegur.
BÓAS HALLGRÍMSSON SÖNGVARI „Ég þori að standa frammi fyrir hverjum sem er og segja hreint út – Þessi plata
er mögnuð.“
ÞRIÐJA GRÁÐAN
FULLT NAFN: Bóas Hallgrímsson
STARFSFERILL Í HNOTSKURN: Ég hef fyrst og
fremst eytt starfsævi minni með ungu fólki.
Fyrst á leikskólum, síðar með táningum í
félagsmiðstöð í miðborginni og nú síðasta ár
hef ég sinnt kennslu. Einnig hef ég unnið hjá
málarameistara, á kaffihúsi og svo auðvitað
sem tónlistarmaður!
FÆÐINGARÁR OG HVAÐ GERÐIST MARKVERÐ-
AST Á ÞVÍ ÁRI: Ég fæddist á því herrans ári
1980. Þá kusu Íslendingar fyrstir þjóða konu
sem leiðtoga. Star Wars-myndin „The Empire
Strikes Back“ sló í gegn. John Lennon var
myrtur af feitum aula og Queen gaf út lagið
„Another One Bites the Dust“. Frábært ár!
■ Á uppleið
Sund Ódýr og afslappandi líkams-
rækt. Hvað er hægt að biðja um meir
á krepputímum?
Treflar Það er að koma
haust með tilheyrandi
blæstri. Góður
hálsklútur gerir
hvorutveggja: lífgar
upp á útlitið og dregur
verulega úr líkum á
hálsbólgu.
Leikhús Ef marka má sölu á leikhú-
smiðum í haust þá
stefna landsmenn
sem óðir væru í leik-
hús í vetur.
Reyniber hafa hingað til verið vel
varðveitt leyndarmál matgæðinga en
úr þeim má búa til dýrindis hlaup.
Það er ekki eftir neinu að bíða fyrir
alla hina að spreyta sig.
Svartur ælæner Dökk augn-
umgjörð er málið í vetur og blautur
ælæner er best til þess fallinn að gera
hana sem dekksta.
■ Á niðurleið
Háskólanám Það eru allir eða hafa
verið í háskóla þannig að það er
ekkert sérstakt að hafa gráðu og þar
fyrir utan er ekki tryggt að námið bæti
kjörin. Sjáið bara ljósmæður.
Húsgagnabúðir Nú getum við ekki
lengur tekið lán til að endurnýja allt
heima hjá okkur og því örugglega
ekki lengur þörf á öllum þessum hús-
búnaðarverslunum um allan bæ.
Næturlíf í Reykjavík Organ var
lokað í vikunni sem eru slæm tíðindi
fyrir rokk í Reykjavík og þá sem á
það vilja hlusta annars staðar en í
iPodinum.
Stress Sífellt kemur betur í ljós
hversu stress er óhollt, streita eykur
ofnæmi sýna nýjustu rannsóknir.
Laufblöð Þau
falla brátt af
trjánum, svo mikið
er víst.
MÆLISTIKAN