Fréttablaðið - 02.10.2008, Side 32
2. október 2008 FIMMTUDAGUR4
Í nýju höfuðfati sem stungið
hefur upp kollinum fléttast sam-
an náttúran, hefðin og nútíminn.
Hrútahúfan er eftir fatahönn-
uðinn og fjölmiðlafræðinginn
Arndísi Bergsdóttur.
„Mig langaði bara að hanna húfu
sem fæli í sér mýkt íslensku sauð-
kindarinnar og tæki mið af sterk-
um höfuðformum hrútsins,“ segir
Arndís glaðlega þegar hún er
spurð um hugmyndina bak við
hrútahúfuna. „Ég vil líka rifja það
upp að saga sauðkindarinnar hér á
landi er jafngömul sögu Íslend-
ingsins og að þjóðin hefði aldrei
lifað af harðærin án kindarinnar.
Með handverkinu er ég því að
segja 1100 ára sögu en um leið ber
það keim af 21. öldinni.“
Hrútahúfurnar eru allar hand-
gerðar úr íslenskri ull og hornin
fyllt með ullarkembu. Eins og sjá
má á meðfylgjandi myndum eru
hornin það sem einkum greinir
þær frá öðrum höfuðfötum. Sum
þeirra eru útprjónuð með íslensku
lopa peysumunstri og jafnvel er
saumað á þau skraut.
Húfurnar eru til sölu í tveimur
verslunum í Reykjavík, Kraumi í
Aðalstræti 10 og Kirsuberjatrénu
á Vesturgötu 4. - gun
Náttúran, hefðin
og nútíminn
Íslenskt lopapeysumunstur er á sumum hornunum.
Meðgönguverslunin Tvö líf býður
til árlegs haustfagnaðar í versl-
uninni í dag en þar verða helstu
nýjungar í kynntar.
„ESPRIT byrjaði að framleiða
meðgöngufatnað í fyrra og hafa
viðtökur viðskiptavina verið góðar,
segja Ásdís Birta Gunnarsdóttir
og Sigríður Lára Einarsdóttir, eig-
endur verslunarinnar Tvö líf,
innt ar eftir helstu nýjungum í búð-
inni.
„Eins hefur Boob, stærsti fram-
leiðandi í brjóstagjafafatnaði í
heiminum, vaxið mikið síðastliðið
ár og línan stækkað.“
Í tilefni hins árlega haustfagn-
aðar segja þær stöllur að efnt verði
til lukkuleiks þar sem fjömargir
vinningar verða í boði en auk þess
verður 15 prósent afsláttur af
öllum vörum. Þá kemur Ragnheið-
ur Guðfinna og kynnir sokkabuxur
fyrir verðandi mæður en þær örva
blóðflæði um líkamann. - ve
Óléttum
fagnað
Tvö líf þarf bæði að næra og klæða..
Ég hef þurft að glíma við aukakíló í nokkur ár. Hef prófað ýmsa kúra
og ekkert gengið. Það er ekki fyrr en ég kynnist Ultratone að
sentímetrar og kíló fjúka af. Komin úr stærð sextán í stærð tólf í
buxum og úr átján í fjórtán í bolum. Og svo er ég komin með mitti
sem eg vissi ekki af. Er líka ánægðari með sjálfa mig. Staffið er
æðislegt og umhverfið þægilegt. Búin að vera í Ultratone í fimm
vikur og mæli með þessu.
- Rósa Sigurðardóttir
Loksins eitthvað vem virkar! Á þessum mánuði, sem ég er
búin að vera í Ultratone hef ég misst sex kíló og mittismálið
minnkað um ellefu sentímetra. Maginn, sem var togaður og
teygður eftir fimm meðgöngur er loksins stinnari (og ekki bara
skvap). Ég hlakka alltaf til að mæta, þjónustan er frábær og svo líður
mér svo vel, líkamlega og andlega eftir hvern tíma. Bara frábært í alla staði.
- Margrét Sigurpálsdóttir
Mörkinni 6, Símí 588-5518
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 10-16
Alla föstudaga