Fréttablaðið - 01.11.2008, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Fréttablaðið er með 116%
meiri lestur en Morgunblaðið.
33,47%
72,34%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18–49 ára. Könnun Capacent í maí–júlí 2008.
Sími: 512 5000
LAUGARDAGUR
1. nóvember 2008 — 299. tölublað — 8. árgangur
Búðingur með nostalgíubragði
Royal-búðingur er alltaf eins og bragðið fram-
kallar fortíðarþrá hjá stórum hluta þjóðarinnar.
30
heimili&hönnunLAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2008
● Í ALDANNA RÁSStóllinn Skata framleiddur á ný
● ATHAFNAKONAN RAGNA ERWINRekur textílfyrirtæki í London
● INNLITGolfvöllur í eldhúsinu
H
Ú
S&
H
EI
M
IL
I
ALLIR BÍLAR Á EINUM
STAÐ - Á KLETTHÁLSI
ENDURSKOÐUM
GILDIN Í KREPPUNNI
Hamingjan felst í fjöl-
skyldu og vinum, segir
Páll Matthíasson geð-
læknir sem hefur kynnt
sér hamingjufræði.
VIÐTAL 28
VEÐRIÐ Í DAG
FÓLK Kvikmyndin Brúðguminn, í
leikstjórn Baltasar Kormáks, sló
sex ára gamalt
met Hafsins
þegar tilnefningar
til Eddunnar,
verðlauna
sjónvarps- og
kvikmyndaaka-
demíunnar, voru
tilkynntar á Nasa
í gærkvöldi.
Gamla metið var
tólf tilnefningar
en Brúðguminn
fékk alls fjórtán.
Myndin hefur þegar tryggt sér
ein verðlaun því hún fékk allar
tilnefningarnar í flokknum besti
aukaleikari ársins.
Spennumynd Óskars Jónassonar
gerði það einnig gott því hún fékk
tíu tilnefningar. Verðlaunin verða
afhent hinn 16. nóvember og
verður verðlaunaafhendingunni
sjónvarpað beint á RÚV.
- fgg / sjá síðu 47
Brúðguminn slær Eddumet:
Með fjórtán
tilnefningar til
Eddunnar
BJARTVIÐRI Í dag verða vestanátt-
ir 8-18 m/s, hvassast norðan til og
enn hvassara þar í hviðum. Lægir
síðdegis. Víðast léttskýjað í dag. Hiti
3-8 stig um hádegi en ört kólnandi
veður síðdegis og í kvöld.
VEÐUR 4
6
6
3
3
4
NEYTENDUR „Það var meira að gera í dag en um meðal-
áramót. Fólkið heyrir um 25 prósenta hækkun og
drífur sig af stað til að hamstra,“ sagði Einar Jónat-
ansson, verslunarstjóri Vínbúðar ÁTVR í Austur-
stræti, undir lok vinnudags í gær. Gríðarleg örtröð
skapaðist í vínbúðum víðs vegar um borgina í kjöl-
far sögusagna og frétta ýmissa vefmiðla um vænt-
anlega 20 til 25 prósenta hækkun á áfengisverði. Á
sumum sölustöðum þurfti að hleypa viðskiptavin-
um inn í hollum. Verðið á áfengi hækkar um 5,25
prósent og verðið á tóbaki um 8,87 prósent að
meðaltali í dag.
„Ég held að hækkunin sé ekki jafn mikil og fólk
bjóst við,“ segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðar-
forstjóri ÁTVR. Hún segir nýlegar gengisbreyting-
ar ekki hafa haft eins mikil áhrif til hækkunar og
margir hafi búist við. „Stór hluti útsöluverðsins er
skattar og áfengisgjald, sem er föst krónutala á
áfengisprósentu og breytist ekki. Einnig helst álagn-
ingarprósenta ÁTVR óbreytt. Mikið hefur heyrst um
að almennt verðlag sé að hækka og kannski setja
einhverjir samasemmerki þarna á milli,“ segir
Sigrún Ósk.
Hækkanir ÁTVR í dag ná til allra vöruflokka og
breytist verð á rúmlega helmingi þess áfengis sem
er í boði í Vínbúðunum. 37 prósent af þeim áfengis-
tegundum sem verð breytist á er rauðvín, 19 prósent
hvítvín og 11 prósent bjór. - kg
Sögusagnir um allt að 25 prósenta hækkun í ÁTVR ollu öngþveiti í Vínbúðum:
Áfengi hamstrað í Ríkinu
ÖRTRÖÐ Í RÍKINU Biðraðir mynduðust í Vínbúðunum í gær þegar sögusagnir um 25 prósenta hækkun á áfengi fóru eins og
eldur um sinu á netinu. Hækkunin var þó ekki nærri svo mikil eða rúm 5 prósent. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
EFNAHAGSMÁL Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra segir endurskoðun á pen-
ingamálastefnu ríkisstjórnarinnar
eitt brýnasta verkefni stjórnvalda
og í það verk verði gengið fljót-
lega. Hún gagnrýnir opnun
IceSave-reikninga Landsbankans í
Hollandi og Seðlabankann fyrir að
hafa ekki leyft bönkunum að gera
upp í evrum. Sú ákvörðun átti þátt
í falli bankanna, að hennar mati.
Menntamálaráðherra segir
endurskoðun peningamálastefn-
unnar aðkallandi verkefni en
telur í því sambandi ekki ráðlegt
að ganga í myntbandalag við
Noreg. Í því fælist algjört valda-
afsal. „Ég tel þetta því vart raun-
hæft. Þetta gerist alltaf þegar
umræðan um Evrópusambandið
tekur á loft. Þá er bent á aðrar
lausnir. Auðvitað er sjálfsagt að
skoða þær en ég held að ef við
ætlum að hverfa frá þeirri pen-
ingamálastefnu sem nú er, að þá
sé það eðlilegt að við leitum inn í
Evrópusambandið.“
Aðspurð um ákvarðanir stjórn-
valda og stofnana í ljósi efnahags-
kreppunnar segir hún að margar
erfiðar spurningar bíði svara frá
stjórnvöldum, Seðlabankanum,
Fjármálaeftirlitinu og ekki síst
forystumönnum þeirra fyrirtækja
sem þar um ræðir. Þorgerður
gagnrýnir til dæmis harðlega að
Landsbankanum hafi verið heim-
ilað að opna IceSave-reikninga
sína í Hollandi í því ljósi að breska
fjármálaeftirlitið hafði gert
athugasemdir við reikningana
þar í landi.
Aðspurð um hvort nú sé ástæða
til að endurvekja Þjóðhagsstofn-
un segir Þorgerður að það geti
verið nauðsynlegt.
- shá / sjá viðtal á síðu 22
Ríkisstjórnin sammála um
endurskoðun peningamála
Endurskoðun peningamálastefnunnar hefst fljótlega, segir menntamálaráðherra. Hún gagnrýnir opnun
IceSave-reikninga Landsbankans í Hollandi harðlega og útilokar ekki að Þjóðhagsstofnun verði endurreist.
BALTASAR
KORMÁKUR