Fréttablaðið - 07.11.2008, Page 4

Fréttablaðið - 07.11.2008, Page 4
4 7. nóvember 2008 FÖSTUDAGUR Nánar á expressferdir.is eða í síma 5 900 100 F í t o n / S Í A Aðventu- ferð til Berlínar Í A F í t o n / S Í 28. nóv.–1. des. Upplifðu stemninguna á þýskum jólamörkuðum! Verð á mann í tvíbýli: 49.900 kr. Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, gisting í 3 nætur á 3* hóteli með morgunverði og íslensk fararstjórn. VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 19° 13° 12° 14° 11° 14° 14° 8° 11° 13° 23° 13° 18° 27° 2° 12° 20° 6° 6 5 5 6 6 7 7 8 7 7 3 6 4 4 5 5 5 5 8 4 4 5 6 6 77 Á MORGUN Breytileg átt 3-8 m/s SUNNUDAGUR 3-13 m/s, hvassast NV- og SA-til 7 4 4 4 6 6 HELGARHORFUR Hún verður nokkuð kafl askipt helgin. Á morgun verður hæg austlæg átt með vætu mjög víða, einkum þó sunnan til og vestan en einhverjir dropar kunna að falla austan til. Norðaustan til verður þurrt að mestu. Á sunnudag snýst hann í norðaust- læga átt með skúrum eða slydduéljum nyrðra en syðra léttir smám saman til. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur ALÞINGI Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, sagðist á Alþingi í gær reiðubúinn að flytja þingmál þess efnis að ríkið kaupi þá fjölmiðla sem nú eru í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannes- sonar og selji aftur. Guðni lýsti skömm sinni á nýlegum viðskiptum með fjölmiðlana fyrir milligöngu ríkisbankans Landsbankans og sagði að ef bankaráðið, sem starfar tímabundið, hefði komið að gjörningnum væri hann á ábyrgð ríkisstjórnarinnar. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra kvaðst vita það eitt að bankinn hefði ekki lánað peninga til viðskiptanna. - bþs Guðni Ágústsson: Ríkið kaupi og selji fjölmiðla Jóns Ásgeirs UMHVERFISMÁL „Við ættum frekar að laga okkur að 21. öldinni en þeirri nítjándu. Ísland getur byggt færri, smærri og grænni virkjanir. Við ættum að nota fjármálakrepp- una til að verða algjörlega sjálfbær,“ sagði Björk Guð- mundsdóttir í ræðu sinni á blaðamanna- fundi CoolPlan et 2009 í húsakynn- um Sameinuðu þjóðanna í Brussel í gær. Blaðamannafundurinn var haldinn í tilefni ráðstefnu umhverfissamtakanna Road to Copenhagen. Björk var kynnt á sviðið sem fyrsti almenni borgar- inn sem gengur til liðs við samtök- in. - kg Björk Guðmundsdóttir: Vill nýta fjár- málakreppuna BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR STJÓRNMÁL Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs hefur lagt fram frumvarp sem kveður á um afnám laga um eftir- laun forseta, ráðherra, alþingis- manna og hæstaréttardómara. Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir að laun þessara stétta verði tuttugu prósentum lægri til ársloka 2009. „Þolinmæðin er á þrotum,“ segir VG en flokkurinn hefur lengi kall- að eftir breytingum á eftirlauna- lögunum. Er í frumvarpinu gert ráð fyrir að hér eftir greiði áður- nefndir hópar iðgjöld í A deild Líf- eyrissjóðs starfsmanna ríkisins, eftir þeim reglum sem um sjóðinn gilda. VG leggur til að laun forseta, ráðherra, alþingismanna og hæsta- réttardómara umfram 450 þúsund krónur á mánuði lækki um tuttugu prósent og að sú ákvörðun standi til loka árs 2009. Segir í athuga- semd að þetta sé lagt fram til að tryggja að viðkomandi aðilar deili, að minnsta kosti að þessu marki, kjörum með þjóðinni á erfiðum tímum. Verði frumvarpið að lögum myndu laun forseta lækka um 275 þúsund krónur á mánuði og nema rúmlega einni og hálfri milljón. Laun forsætisráðherra myndu lækka um 128 þúsund og verða 960 þúsund, laun annarra ráðherra lækka um 108 þúsund og verða 880 þúsund og þingfararkaup myndi lækka um 22 þúsund krón- ur og verða 540 þúsund krónur á mánuði. - bþs VG leggur fram frumvarp um afnám eftirlaunalaganna og lækkun launa: Laun forseta lækki um 275 þúsund FORYSTA VG Steingrímur, Katrín og Ögmundur. SAMFÉLAGSMÁL Ráðstefna um vinnu Reykjavíkurborgar og fleiri aðila með kólumbískum flóttafjölskyldum sem komu til Íslands haustið 2007 verður haldin í Öskju í dag. Askja er nýleg bygging Háskóla Íslands við hliðina á Norræna húsinu. Starfsmenn á Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða hafa haldið utan um daglega vinnu með flóttamönnunum. Þeir munu kynna vinnu sína þar ásamt öðrum aðilum. Ráðstefnan stendur yfir frá 13 til 16.15, er öllum opin og ókeypis. - hhs Vinna með flóttamönnum: Reynslan rædd á ráðstefnu í dag HEILBRIGÐISMÁL Forvarnadagurinn var haldinn meðal 9. bekkinga í þriðja sinn í gær. Í tilkynningu frá aðstandendum dagsins segir að rannsóknir hafi sýnt að samvera, þátttaka í íþrótta- og tómstundastarfi og seinkun þess að hefja áfengis- neyslu séu bestu forvarnirnar gegn fíkniefnum. Á þessum þremur heilræðum byggir dagskrá forvarnadagsins. Að deginum standa ÍSÍ, UMFÍ, Skátahreyfingin og Samband íslenskra sveitarfélaga en lyfjafyrirtækið Actavis styrkir verkefnið. - ovd Forvarnadagurinn: Forsetinn heim- sótti Húsaskóla FRÁ HÚSASKÓLA Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti Íslands, heimsótti Húsaskóla í Grafarvogi á forvarnadaginn í gær. MYND/SIGRÍÐUR KRISTÍN HRAFNKELSDÓTTIR LÖGREGLUMÁL Fjórum mönnum sem úrskurðaðir höfðu verið í gæsluvarðhald vegna nauðgunar- máls fyrr í vikunni, hefur verið sleppt. Ekki þótti ástæða til að halda þeim lengur inni eftir yfirheyrslur. Rannsókn málsins verður haldið áfram. Sautján ára stúlka hafði kært nauðgun til lögreglu snemma morguns fyrr í vikunni. Hún lýsti atburðarás og gaf upp númer á bíl. Skömmu síðar fann lögregla bílinn. Þrír menn voru handteknir og sá fjórði skömmu síðar. Þeir hafa borið að samræði hafi átt sér stað, en með vilja stúlkunnar. - jss Nauðgunarmálið: Öllum mönn- unum sleppt EFNAHAGSMÁL Pattstaða virðist komin upp við afgreiðslu Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins (IMF) á umsókn Íslands um neyðaraðstoð. Geir H. Haarde forsætisráðherra segir sjóðinn bíða eftir því að vil- yrði fyrir láni frá Norðurlöndun- um liggi fyrir. Fulltrúi sænska seðlabankans segir bankann hins vegar bíða afgreiðslu IMF, fyrr verði ekkert ákveðið um lán til Íslands. Afgreiðslu stjórnar IMF hefur verið frestað í tvígang. „Ástæða frestunar sjóðsins er sú að það er ekki búið að ljúka þeirri viðbótarfjármögnun sem við þurfum að klára. Þá erum við fyrst og fremst að tala um fjár- mögnun frá Norðurlöndunum, sem getur annaðhvort verið í formi lána eða gjaldeyrisskipta- samninga. Þetta er ástæðan fyrir því að þetta hefur dregist hjá IMF,“ segir Geir. Mathias Persson, hjá sænska seðlabankanum, sagði við frétta- veituna Dow Jones, að þar á bæ biðu menn afgreiðslu stjórnar IMF. Samþykki stjórnin umsókn Íslendinga muni sænski seðla- bankinn „kynna sér smáatriðin“ áður en ákvörðun verður tekin um framhaldið. Spurður hvort forsendur máls- ins hafi ekki breyst, þar eð að upphaflega hafi lánafyrirgreiðsla frá Norðurlöndunum verið háð því að lán frá IMF væri í hendi segir Geir að IMF og íslensk stjórnvöld hafi verið sammála um að meira fé þyrfti að koma til en sjóðurinn væri tilbúinn að lána. „Það eru þessir sex milljarðar dollara en 2,1 milljarður kemur frá IMF. Það þurfa að vera fyrir- heit til staðar, peningarnir þurfa ekki að vera komnir í veskið, um að við náum langleiðina upp í þessa upphæð áður en IMF gengur frá sínu máli.“ Forsætisráðherra segist ekki vita til þess að lánafyrirgreiðsla og önnur efnahagsaðstoð frá IMF hafi verið dregin til baka eftir að samkomulag á milli samninga- nefndar og lands hefur verið sent til afgreiðslu hjá stjórn IMF. Hann hefur ekki áhyggjur af því að stjórn IMF hafni beiðni Íslands um aðstoð. „Ég treysti því að lánið fáist og framkvæmdastjóri sjóðs- ins, Dominique Strauss-Kahn, sagði mér það í símtali í vikunni að hann sæi engan meinbug á þessu máli. Þá trúir maður því þangað til annað kemur í ljós.“ Ólafur Darri Andrason, hag- fræðingur ASÍ, segir lánið frá IMF lykilinn að öllu öðru í við- reisn efnahagslífsins. „Fáist það ekki verður sú djúpa niðursveifla sem við horfum fram á, enn dýpri. Þá erum við ekki að tala um eitt prósent til eða frá í hagvexti eða kaupmætti heldur margfalt stærri tölur.“ svavar@frettabladid.is kolbeinn@frettabladid.is Beðið eftir vilyrði frá Norðurlöndunum Forsætisráðherra segir stjórn IMF bíða eftir vilyrði Norðurlandanna fyrir láni. Fyrr verði neyðaraðstoð ekki samþykkt. Sænski seðlabankinn segir ákvörðun um norrænt lán ekki verða tekna fyrr en niðurstaða stjórnar IMF liggur fyrir. Á FUNDI FORSÆTISRÁÐHERRA Geir H. Haarde sagðist ekki trúa því fyrr en hann tæki á því að Icesave-reikningar hefðu áhrif á afgreiðslu neyðarláns frá IMF. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR GENGIÐ 06.11.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 222,8941 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 128,41 129,03 204,65 205,65 165,54 166,46 22,237 22,367 18,947 19,059 16,462 16,558 1,3143 1,3219 191,62 192,76 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.