Fréttablaðið - 07.11.2008, Page 33
7. nóvember föstudagur 7
„Josy Zareen er náttúrulega meistarinn minn í
magadansi og við erum mjög góðar vinkonur.
Hún hefur ekki kennt mér bara magadans, held-
ur samba, salsa, losað um mjaðmirmar á mér
og næstum öllu Íslandi. Magadansinn er frábær á marg-
an hátt, fyrir bakið, móðurlífið og allan líkamann. Þetta er
elsti dans í heimi, maður notar allar sjö orkustöðvarnar
og það er ákveðin heilun í honum fyrir utan hvað hann er
brjálæðislega skemmtilegur. Josy er frá Rio de Janeiro í
Brasilíu og er lærður grafískur hönnuður, orgelleikari og
dansari. Hún byrjaði að kenna magadans í kringum 2001
og stofnaði magadanshúsið. Hún hannaði líka vefsíðuna
magadans.is og var að ljúka við síðuna mína helgabraga.
is. Josy hefur opnað fyrir mér margar dyr, bæði í dansi,
andlegri og líkamlegri vellíðan. Við höfum ferðast saman
og ég stefni á að fara til Brasilíu þegar það verður
ferðafært héðan.“
JOSY ZAREEN
Helga Braga Jónsdóttir ÁHRIFA-
valdurinn
Hverju myndir þú sleppa ef þú
þyrftir að spara?
Ég byrjaði að spara fyrir al-
vöru þegar ég sagði upp
vel launaðri vinnu til að
gerast rithöfundur og
skáld í fullu starfi. Þá fór
ég að venja komur mínar
oftar á bókasöfn og til skó-
smiða en ég hafði áður gert.
segir að starfið hafi komið sér
skemmtilega á óvart því hún hafi
aldrei haft mikinn áhuga á að
vinna í sjónvarpi. Það skemmti-
lega við starfið í Mannamáli
finnst Gerði að fá tækifæri til að
tala um barnabækur. „Þær eiga
það til að gleymast hjá fjölmiðl-
um. Þeir róa að því öllum árum að
börn lesi bækur en virðast nokk
sama hvort verið sé að skrifa fyrir
þau eða ekki.“
Hefur einhver orðið rithöfund-
ur orðið reiður við þig út af bóka-
dómi?
„Já, það hefur einu sinni komið
fyrir en það var allt í lagi. Ég veit
ósköp vel hvað það getur tekið á
að vera með bók í flóðinu og vita
að afkoma næsta árs liggur undir
viðbrögðunum við henni. Þá skil-
ur maður ekki alltaf hvers vegna
maður valdi sér þetta starf. Ekki
var maður svona stressaður þegar
maður vann í býtibúrinu á Land-
spítalanum – sem var líka þægileg
innivinna. Í upphafi nýs árs gleymi
ég hins vegar öllum hamagang-
inum og þá hvolfist alltaf mikill
vinnuhamur yfir mig. Þá man ég
það eitt hvað það er skemmtilegt
að skrifa og það fleytir mér áfram
við vinnuna.“
Fyrir rúmum mánuði yfirgaf
Gerður Kristný eiginmann og
syni og skaust til Stokkhólms þar
sem hún orti ljóð í ró og næði en
síðasta ljóðabók hennar, Högg-
staður, var tilnefnd til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna. Afrakst-
urinn af skáldskapunum kemur út
í ljóðabók innan fáeinna ára. „Ég
ákvað að binda á mig sauðskinns-
skóna og arka beinustu leið í forn-
eskjuna. Ég er farin að rata og svo
hitti ég ekki marga á leiðinni nú
orðið. Yrkisefnið er sótt í nor-
rænu goðafræðina. Það voru svo
skrýtin hljóð í herberginu sem ég
leigði mér í Stokkhólmi að ég svaf
frekar lítið. Þess í stað sat ég upp
við dogg í rúminu mínu heilu og
hálfu næturnar og orti eins og ber-
serkur. Svo var ég í Kaupmanna-
höfn í tvo daga og þá ákvað VISA
að bjóða viðskiptavinum sínum
upp á sitt eigið prívatgengi. Verð-
ið á kjólnum sem ég keypti mér
rauk upp úr öllu valdi og ég held
ég verði að nota hann daglega
fram á haustmánuði 2124 til að
þessi kaup borgi sig – en hvað um
það, flottur er hann!“ segir Gerður
Kristný og hlær.
Hvar er hamingjan?
„Elizabeth Gilbert fer með okkur í pílagrímsferð og kryddar
hana með þeim húmor, töfrum og innsæi sem aðeins skapast
þegar heiðarleg sjálfsskoðun og ritsnilld fara saman.“
Jack Kornfield
Borða, biðja, elska (Eat, pray, love) hefur setið í
efstu sætum metsölulista bæði vestan hafs og austan
mánuðum saman.
Ferðasaga, uppbyggileg sjálfsskoðun og ástarsaga
full af húmor og frásagnargleði. Höfundurinn ferðaðist
víða um heim til að leita hamingjunnar. Og nú er hún
komin til Íslands!
Elizabeth Gilbert
Uppáhaldsbók Opruh Winfrey