Fréttablaðið - 25.11.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
SKOÐANAKÖNNUN Tæplega sjötíu
prósent segjast vilja flýta alþing-
iskosningum, samkvæmt nýrri
skoðanakönnun Fréttablaðsins.
5,9 prósent segjast vilja kosning-
ar fyrir áramót. 19,0 prósent vilja
kosningar í ársbyrjun 2009.
Stærsti hópurinn, eða 38,6 pró-
sent, vilja kosningar vorið 2009.
7,2 prósent segjast vilja flýta
kosningum, en þó þannig að þær
fari fram eftir næsta vor, en áður
en kjörtímabilið rennur út. 29,3
prósent vilja ekki nýjar kosning-
ar fyrr en árið 2011 þegar kjör-
tímabilinu lýkur.
Lítill sem enginn munur er á
afstöðu eftir kyni, en íbúar höf-
uðborgarsvæðisins eru óþolin-
móðari eftir kosningum en íbúar
landsbyggðarinnar. Ef litið er á
óskir um kosningar eftir stuðn-
ingi við stjórnmálaflokka vilja
nánast allir kjósendur Framsókn-
arflokksins kosningar eftir ára-
mót eða í vor. 85,7 prósent Vinstri
grænna vilja kosningar í síðasta
lagi í vor, en 10,5 prósent þeirra
vilja bíða fram til 2011 þegar
kjörtímabilinu lýkur. Af þeim
sem ekki gefa upp stuðning við
flokk vilja 63,9 prósent kosning-
ar í síðasta lagi í vor, en 28,0 pró-
sent vilja bíða fram til 2011.
Ef litið er til stuðningsmanna
stjórnarflokkanna er meiri stuðn-
ingur fyrir því að flýta alþingis-
kosningum meðal kjósenda
Samfylkingarinnar en kjósenda
Sjálfstæðisflokks.
71,3 prósent kjósenda Sjálf-
stæðisflokks vilja ekki flýta
kosningum en 23,3 prósent vilja
kosningar í síðasta lagi í vor. 27,6
prósent samfylkingarfólks vilja
hins vegar ekki flýta kosningum,
en 63,7 prósent þeirra vilja kosn-
ingar í síðasta lagi í vor.
Hringt var í 800 manns laugar-
daginn 22. nóvember og skiptust
svarendur jafnt eftir kyni og
hlutfallslega eftir búsetu. Spurt
var: Hvenær telur þú að eigi að
ganga næst til kosninga? 90,8
prósent aðspurðra tóku afstöðu
til spurningarinnar.
- ss
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Hugmyndafræðin heillaði mig
þar sem hún er heilsteypt og
gengur ekki aðeins út á hugleiðslu
og líkamsæfingar heldur líka
siðfræði, þar sem rétt breytni er í
hávegum höfð. Svo nær hún yfir
hugmyndir um réttlátt samfélag,“
segir Bergsteinn Jónsson, verk-
efnastjóri hjá Unicef, sem hefur
stundað andlegan lífsstíl í AnandaMarga-hreyfi
lætiskenndin verður sterkari.
Maður getur verið rosalega þröng-
sýnn, upptekinn af því hverju má
klæðast svo dæmi sé nefnt, og að
sama skapi mjög opinn. Þráin eftir
óendanleikanum vaknar. Menn
hrærast í heiminum eftir einhverj-
um krafti, annaðhvort í áttina til
hans eða frá Ég leit ði í
Laukur, hvítlaukur, sveppir og egg
eru hins vegar á bannlista þar sem
mælt er með að halda sig frá þeim
fæðutegundum eigi að stunda
djúpa hugleiðslu. Sú hugmynd er
algengari á Indlandi heldur en á
Vesturlöndum. Líkaminn bnefnil
Trúir á réttlátt samfélag
Bergsteinn Jónsson stundar þann andlega lífsstíl sem Ananda Marga-hreyfingin boðar og segir hug-
myndafræðina hafa fært sér orku, kærleik og hugrekki til að takast á við áskoranir daglegs lífs.
Bergsteinn Jónsson segist betur í stakk búinn til að takast á við lífið og tilveruna eftir að hann tileinkaði sér boðskap Ananda
Marga.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
JÓLASÝNING Árbæjarsafns verður opin þrjá sunnudaga í aðventu, hinn 7. desember, 14. desember
og 21. desember. Jólasýningin hefur notið mikilla vin-
sælda síðustu ár enda gaman að fylgjast með undir-
búningi jólanna eins og hann var í gamla daga.
Árskort í tækjasal
aðeins 3.333 kr.
á mánuði*
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
Patti húsgögnlandsins mesta úrval af sófasettum
Íslenskframleiðsla
Bonn
Köln
Aspen-Lux
Verð kr. 251.900,-
Verð Kr. 282.900,-
Verð Kr. 313.900,-
Verðdæmi :
Yfir 200 tegundir af sófasettum
kr.149.900,-
verð frá
Smíðum eftir þínum þörfum
VERÐHRUN
n á t t ú r u l e g
Inga Kristjánsdóttir, næringarþerapisti D.E.T. leiðir ykkur í allan sannleikann
um hversu auðvelt það er í raun að breyta mataræðinu til batnaðar.
Upplýsingar og skráning í síma: 899 5020 eða á eig@heima.is
Farið verður með einföldum hætti yfir:
• Hvernig við getum náð stjórn á blóðsykrinum!
• Hvernig verðum við okkur úti um þau næringarefni sem líkaminn þarfnast!• Hvernig við getum auðveldlega öðlast meiri orku, vellíðan og heilbrigði!Í lok fyrirlestrar fáið þið leiðbeiningar um val á
heilsufæði. Innifalið í námskeiði er mappa með
uppskriftum og fróðleik.Námskeiðið verður þriðjud. 2. des.kl. 20-22. í Heilsuhúsinu Lágmúla.Verð aðeins kr. 3.500.-
Langar þig að breytamataræðinu til batnaðar?Veist þú ekki hvar þú átt að byrja?
33,4%
70,7%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Fréttablaðið er með 112%
meiri lestur en Morgunblaðið
Allt sem þú þarft... ... alla daga
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18–49 ára. Könnun Capacent í ágúst - október 2008.
Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
25. nóvember 2008 — 323. tölublað — 8. árgangur
ÓL
2008
JÓLIN 2008
Jólasiðir, jólaföndur,
jólamatur og sætindi
sérblað um jólin
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
BERGSTEINN JÓNSSON
Kærleikur og hugrekki
til að takast á við lífið
• heilsa • jólin koma
Í MIÐJU BLAÐSINS
Vill fara til FCK
Rúnar Kárason stefnir á að fá
samning hjá
danska stórliðinu
FCK og kom sér
sjálfur á framfæri
við félagið.
ÍÞRÓTTIR 26
VEÐRIÐ Í DAG
HVENÆR Á AÐ KJÓSA?
SKV. KÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS 22.11.´08
Síðar, en
fyrir 2011
29,3%
5,9%
19,0%
38,6%
7,2%
Í ársbyrjun
2009
Fyrir áramót
Í vor
Þegar
kjörtímabili
lýkur
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi
Baldursnesi 6 • Akureyri
Mikið úrval af
upphengdum salernum
Opið virka daga frá 8 -18
laugardaga frá10 -15
tengi.is
LÚDÓ OG STEFÁN
Léku fyrir Sigur
Rós á Nasa
Voru engu síðri en ungviðið
FÓLK 30
45 ár í
bransanum
Rúni Júl frestar
hrörnuninni með
morgungöngu-
túrum í hvaða
veðri sem er.
FÓLK 22
Konur sjá ný
tækifæri
Félagsmálaráðuneytið
ver auknu fé í atvinnu-
rekstur kvenna.
TÍMAMÓT 18
VÍÐA NOKKUÐ BJART Framan af
degi verður stíf vestan átt á landinu,
8-15 m/s. Það lægir smám saman
síðdegis eða í kvöld. Bjart með
köflum sunnan og austan til, annars
skýjaðra og yfirleitt þurrt. Kólnandi.
VEÐUR 4
4
4
3
5
7
Þjóðin vill flýta kosningum
Tæplega 64 prósent vilja kosningar í vor eða fyrr. Sjö prósent vilja kosningar eftir vorið, en áður en kjör-
tímabilið rennur út. Tæplega þrjátíu prósent vilja bíða með kosningar til 2011 þegar kjörtímabilinu lýkur.
VIÐSKIPTI Sigurður Einarsson er
ennþá stjórnarformaður Kaup-
þings í Lúxemborg og samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins vinnur
hann að því hörðum höndum að
koma bankanum í hendur nýrra
eigenda. Takist það ekki innan tíu
daga, segir heimildarmaður
Fréttablaðsins, er bankinn kominn
í þrot.
Frá skilanefnd Kaupþings feng-
ust hins vegar þau svör að Sigurð-
ur væri stjórnarformaður Kaup-
þings í Lúxemborg „að nafninu
til“ og ólíklegt væri að hann fengi
aðgang að gögnum bankans.
Knútur Þórhallsson, sem sæti á
í skilanefnd, segir jafnvel að Sig-
urður hafi ekki greiðari aðgang að
gögnum bankans frekar en allur
almenningur. Það stangast á við
svör háttsetts starfsmanns bank-
ans í Lúxemborg sem segir Sigurð
hafa aðgang að gögnum bankans
sem stjórnarformaður hans þar í
landi.
Hreiðar Már Sigurðsson hefur
hins vegar hætt öllum afskiptum
af bankanum. Hann hefur ekki
komið í höfuðstöðvarnar í Lúxem-
borg eftir bankahrunið og kemur
ekki að kaupum eða sölu bankans
samkvæmt heimildum blaðsins.
Leitað hefur verið að kaupend-
um að bankanum víða um heim, án
árangurs enn sem komið er, en
viðræður standa nú yfir við fjár-
festa og eru miklar vonir bundnar
við þær. 180 starfsmenn vinna hjá
bankanum og átján íslenskar fjöl-
skyldur vinna þar fyrir sér.
- jse
Sigurður Einarsson reynir að finna nýja eigendur að Kaupþingi í Lúxemborg:
Aðstoðar við sölu bankans
Öldur reiðinnar
„Opin og almenn umræða og
fjölsóttir borgarafundir eru það
besta sem hægt er að hugsa sér
í núverandi aðstæðum,“ skrifar
Jónína Michaelsdóttir.
Í DAG 16
STJÓRNMÁL Vantrausttillaga á
ríkisstjórnina var felld eftir fimm
klukkustunda umræður á Alþingi í
gær þar sem vantrausti var lýst á
báða bóga. 18 greiddu atkvæði með
tillögunni en 42 á móti. Meðal
þeirra sem greiddu atkvæði á móti
tillögunni var Kristinn H. Gunnars-
son, þingmaður Frjálslynda
flokksins. „Ég tel kosningar nú
ótímabærar enda yrðu það
kosningar á grundvelli sögusagna
og æsinga en ekki á málefnalegum
forsendum,“ sagði hann í samtali
við Fréttablaðið.
Þingmönnum var mörgum
hverjum heitt í hamsi og áttu sumir
þeirra erfitt með að sitja þöglir í
sætum sínum. Fólk sem fylgdist
með af pöllunum lét einnig í sér
heyra og var nokkrum stjórnarand-
stæðingum klappað lof í lófa fyrir
málflutning sinn og oft þurfti að
sussa á þá.
Geir H. Haarde forsætisráðherra
sat heldur ekki hljóður undir
málflutningi andstæðinga sinna og
lýsti hann yfir allsherjar vantrausti
á stjórnarandstöðuna. - bþs / sjá síðu 8
Alþingi í gær:
Vantraust á
báða bóga
RÁÐHERRARNIR SKAMMAÐIR Átta af tólf ráðherrum ríkisstjórnarinnar mættu á borgarafund í Háskólabíó í gærkvöldi. Davíð
Oddsson seðlabankastjóri mætti ekki. Troðfullt var langt út úr dyrum og mikill hiti var í viðstöddum. Hér hlýða ráðherrarnir á orð
Benedikts Sigurðarsonar framkvæmdastjóra, sem meðal annars kallaði verðtrygginguna vítisvél andskotans. sjá síðu 2
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N