Fréttablaðið - 25.11.2008, Side 8
8 25. nóvember 2008 ÞRIÐJUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Umræða um vantraust á ríkisstjórnina
fiú fær› rá›gjöf og tilbo› hjá sölufulltrúum
okkar í eftirfarandi símanúmerum;
Söludeild Reykjavík s. 569 2200 og söludeild Akureyri s. 460 9610.
Einnig getur›u sent fyrirspurnir á netföngin ostakorfur@ms.is
og soludeild@ms.is e›a me› bréfsíma í númer 569 2222.
Á vefsí›u okkar www.ostur.is er a› finna nánari uppl‡singar
um sælkeraostakörfurnar okkar og ostana sem í fleim eru.
Gómsæt gjöf
fyrir sælkera
Falleg gjafakarfa me› úrvali af brag›gó›um
íslenskum ostum er tilvalin jólagjöf
handa starfsfólki og vi›skiptavinum
E
N
N
E
M
M
N
M
35
72
2
/s
ia
.is
Kristinn H. Gunnarsson, þingmað-
ur Frjálslynda flokksins, greiddi
atkvæði gegn tillögu formanna
stjórnarandstöðuflokkanna um
vantraust á ríkisstjórnina og nýjar
kosningar. „Ég tel kosningar nú
ótímabærar enda yrðu það kosn-
ingar á grundvelli sögusagna og
æsinga en ekki á málefnalegum
forsendum,“ sagði Kristinn í samtali
við Fréttablaðið í gærkvöldi.
„Til að fólk geti gert upp þessi
mál og kosið þurfa upplýsingar um
aðdraganda og málsatvik, bæði þátt
fólks og fyrirtækja, að liggja fyrir.
Þegar þær liggja fyrir og flokkarnir
hafa unnið úr þeim og endur-
metið stöðu sína getur fólk tekið
ákvörðun.“
Kristinn var ekki á mælendaskrá
Frjálslyndra í umræðunum. „Mér var
boðið að tala en þegar ég gerði for-
manninum grein fyrir afstöðu minni
var ég sviptur málfrelsinu. Það þótti
mér miður.“
„Enginn sviptir Kristin H. Gunnars-
son málfrelsi,“ sagði Guðjón A.
Kristjánsson, formaður Frjálslynda
flokksins. „En sá sem ekki ætlar að
mæla fyrir tillögu getur ekki talað
fyrir henni.“
Hvorugur gat sagt fyrir um
líkleg áhrif þessa á störf Kristins í
þingflokknum. „Nú þarf að leggja
flokksmál og innanflokksmál til
hliðar,“ sagði Kristinn og vísaði til
ástandsins í þjóðfélaginu. „Ég veit
ekki hvaða áhrif þetta kann að
hafa,“ sagði Guðjón.
Kristinn af mælendaskrá Frjálslyndra
GUÐJÓN A.
KRISTJÁNSSON
KRISTINN H.
GUNNARSSON
Skylmast var um stjórn-
málin í fimm tíma löngum
umræðum á Alþingi í gær.
Stjórnarliðar mærðu eigin
verk en stjórnarandstaðan
fann þeim allt til foráttu.
Vantrausti var lýst á báðar
hendur. Átján greiddu
atkvæði með vantrauststil-
lögu.
Ríkisstjórnin er enn við völd –
hvorki veikari né sterkari – eftir
umræður gærdagsins um van-
trauststillögu stjórnarandstöð-
unnar.
Í fimm klukkustundir ráku
stjórnarliðar og stjórnarandstæð-
ingar hornin hvorir í aðra án ann-
arrar niðurstöðu en þeirrar að
stjórnarandstaðan vill ríkisstjórn-
ina frá og kosningar sem fyrst en
stjórnarliðar, og þá ekki síst ráð-
herrar, telja sig réttu mennina til
að halda um stjórntaumana.
Bjóst einhver við öðru?
Stjórnarandstæðingar notuðu
öll orðin í orðabókinni til að lýsa
því hve vonlaus ríkisstjórnin væri.
Bent var á að hún nyti ekki trausts
samkvæmt skoðanakönnunum,
kröfur um að hún færi frá bærust
alls staðar að, hún væri sundur-
lynd, verkfælin og bara að öllu
leyti vanhæf til að takast á við
verkefnin fram undan.
Á móti fengu stjórnarandstæð-
ingar að heyra að þeir sjálfir væru
æði sundurlyndir, hefðu engar til-
lögur eða hugmyndir um hvernig
takast ætti á við vandann og hefði
þar að auki stutt viðamiklar
aðgerðir ríkisstjórnarinnar á borð
við neyðarlögin og aðstoðina frá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Við
lok umræðunnar lýsti svo forsætis-
ráðherra yfir einu allsherjar van-
trausti á stjórnarandstöðuna.
Gagnrýnin
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur VG, sagði við upphaf umræð-
unnar að ríkisstjórninni væru mis-
lagðar hendur í björgunaraðgerðum
sínum sem aðallega fælust í gríðar-
legum lántökum og þar með skuld-
setningu komandi kynslóða.
Valgerður Sverrisdóttir, formað-
ur Framsóknarflokksins, benti á að
þriðjungur ráðherra Samfylkingar-
innar og margir þingmenn flokks-
ins vildu kosningar. Þá furðaði hún
sig á að forsætisráðherra hefði
frekar treyst orðum bankastjóra
viðskiptabankanna um að allt væri
í himnalagi, fremur en viðvörunar-
orðum seðlabankastjóra.
Guðjón A. Kristjánsson, for-
maður Frjálslyndra, sagði að rík-
isstjórnin væri rúin trausti og það
væri sjálfsagður réttur þjóðar-
innar að fá að kjósa sér nýja for-
ystu. Gagnrýndi hann ráðherra
fyrir að halda upplýsingum um
bága stöðu efnahagsmála og bank-
anna leyndum.
Vörnin
Geir H. Haarde forsætisráðherra
sagði að vantrauststillagan virtist
vanhugsuð og einkum setta fram til
að valda óróa. Ekkert vit væri í að
steypa þjóðinni út í kosningabar-
áttu núna. Þá væri tillagan gölluð að
forminu til því í raun gerði hún ráð
fyrir kosningum á gamlársdag.
Fjallaði hann um aðdraganda banka-
hrunsins og sagði marga hafa haft
uppi varnaðarorð. Þeim varnaðar-
orðum hefðu þó sjaldnast fylgt til-
lögur um úrbætur. Miklu fleiri hafi
hins vegar verið þeirrar skoðunar
að bankakerfið stæði traustum
fótum.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan-
ríkisráðherra kvaðst fagna að fá
tækifæri til að fara yfir stöðuna og
ræða ástæður þess að þjóðin stæði í
þeim sporum sem hún stendur í.
Sömuleiðis að fá tækifæri til að
útskýra hvað ríkisstjórnin aðhefð-
ist til að byggja samfélagið upp á
ný. Að því búnu furðaði hún sig á að
Valgerður Sverrisdóttir væri að
spyrja hvernig þjóðin gæti verið
komin í þá stöðu sem hún væri í.
Hún sjálf ætti að svara því þar sem
vandræðin hefðu komið upp á
hennar vakt.
Stemningin
Sjaldgæft er að klappað sé í
þingsalnum en það gerðist nokkr-
um sinnum í gær. Gestir á þing-
pöllum voru svo hrifnir af ræðum
nokkurra stjórnarandstæðinga
að þeir gátu ekki annað. Aldrei
var klappað fyrir stjórnarliðum.
Oft þurfti þingforseti að berja í
bjöllu sína og sussa á fólk, ekki
bara vegna klappsins heldur líka
vegna frammíkalla. Fór svo að
lokaviðvörun var gefin og fólki
gert ljóst að pallarnir yrðu rýmd-
ir ef ekki fengist vinnufriður.
Reyndar var fólk á pöllunum ekki
eitt ábyrgt fyrir háreysti því
þingmenn áttu sumir hverjir erf-
itt með að sitja þögulir undir
ræðum pólitískra andstæðinga.
Gjamm og köll voru tíð.
Algjört vantraust
TRAUST Fimm ráðherrar grúfðu sig ofan í pappíra á meðan Valgerður Sverrisdóttir skammaði þá. Umræður og atkvæðagreiðsla á
Alþingi í gær leiddu í ljós traust 42 stjórnarliða og eins stjórnarandstæðings á ríkisstjórninnni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Atkvæðagreiðslan um vantrausts-
tillöguna var gerð með nafnakalli.
Flestir þingmenn svöruðu úr
sætum sínum en sumir kusu að
gera grein fyrir atkvæði sínu. Þegar
upp var staðið voru niðurstöðurn-
ar afgerandi: 18 á móti en 42 með.
Þrír voru fjarverandi.
BÝSNA AFGERANDI
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FRÉTTASKÝRING
BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON
bjorn@frettabladid.is
NIÐUR MEÐ RÍKISSTJÓRNINA Fólk lét
álit sitt á stjórnvöldum í ljós við
um ræðurn ar. Oft þurfti að sussa á gesti
á pöllunum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR