Fréttablaðið - 04.12.2008, Side 31
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Fatastíll Aðalbjargar Erlendsdótt-
ur, textíl- og fatahönnuðar sem
hannar undir merkinu Budda
design, er að eigin sögn kolsvart-
ur. „Ég á nú ekki mikið af fötum og
get lofað því að þau eru öll svört.
En ég kaupi þá frekar vönduð föt.
Það er alveg sama hvað ég reyni
að kaupa annað, það endar alltaf í
svörtu,“ segir Aðalbjörg glaðvær
og bætir við að hún reyni þá frek-
ar að lífga upp á með litum í fylgi-
hlutum og skartgripum. Aðalbjörg
heldur mikið upp á sjal sem hún
bjó til.
„Sjalið er úr þunnu, gagnsæju
silki og rennur úr bláum lit yfir í
svartan en ég geri oft svona sjöl
sem fara úr björtum lit yfir í
svart,“ segir Aðalbjörg áhugasöm
og nefnir að sjalið passi sérstak-
lega vel við svartan klæðnað. „Ég
hef verið með sjalið á tveimur
sölusýningum undanfarið og það
selst eins og heitar lummur. Þetta
hentar vel í kreppunni þar sem
hægt er að sveipa sjalinu utan um
gamla kjólinn og breyta þannig
um stíl,“ segir Aðalbjörg brosandi
og bætir við að þannig megi skapa
nýja flík auk þess sem nota megi
sjalið á ýmsan máta. „Hægt er að
nota það sem trefil, pils eða dúk ef
því er að skipta en silki er ótrú-
lega sterkt. Margir halda að það sé
miklu viðkvæmara en það í raun
er.“
Aðalbjörg er mikið í ýmiss
konar textílhönnun og auk sjala,
slæða og trefla hannar hún púða,
kjólaefni, myndverk og gardínur.
„Ég hef einna mest verið í að útbúa
gardínufleka upp á síðkastið úr
ýmiss konar efnum. Ég vinn úr
bómull, hör og silki með ákveðinni
pressutækni og þetta er rosalega
smart,“ útskýrir Aðalbjörg.
Hún lærði fatahönnun árið 1992
og leiddist meira út í textílinn upp
frá því. „Núna er ég að flytja inn
til Sigrúnar í Shanko-silki á Skóla-
vörðustíg 22b, þannig að þetta
verður aðal-silkibúllan í bænum,“
segir hún og hlær. „Við Sigrún
erum mjög ólíkar þannig að þetta
verður breitt úrval og góð blanda,“
segir Aðalbjörg en fræðast má
nánar um hönnun hennar á www.
budda.is.
hrefna@frettabladid.is
Kryddar klæði með litum
Bjartir litir og dimm nótt mætast í silkislæðum Aðalbjargar Erlendsdóttur, textíl- og fatahönnuðar, og er
það að vissu leyti lýsandi fyrir fatastíl hennar sem er kolsvartur en Aðalbjörg skreytir sig með litum.
Aðalbjörg Erlendsdóttir er sums staðar betur þekkt undir nafninu Budda Design. Hún vinnur mikið með bjarta og fallega liti þegar
hún gerir silkislæðurnar sínar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
STEIKARPOTTUR og aðrir góðir pottar eru eitthvað
sem þeir sem eru að fara að halda sín fyrstu jól sjálfir
þurfa að eignast fyrir hátíðarnar. Ekki er gott að lenda í
pottavandræðum þegar verið er að elda jólamatinn.
TónleikaríViðeyjarstofu
íkvöld
Dúettinn PIKKNIKK
LeiðsögnaðImaginePeaceTower
TilboðáléttumveitingumíViðeyjarstofu
SigltfráSkarfabakkakl20:00
Miðaverð2.000kr
ATH:Pantaþarffyrirfram
Sími5553565 www.elding.iswww.veislurettir.is