Fréttablaðið - 04.12.2008, Blaðsíða 36
Verslunin Reykjavik Bags var nýverið opnuð á Skólavörðustíg
2. Hún selur fjölbreyttan varning eftir íslenska hönnuði þó upp-
haflega hafi verið lagt upp með töskur eins og nafnið gefur til
kynna.
„Við verslum með ýmislegt fleira en töskur. Hér er að finna
hanska og fylgihluti en einnig íslenskt handverk í keramik og
fleiru,“ segir Finnur Thorl-
acius, einn eigenda verslun-
arinnar.
„Við erum á besta stað
í bænum og erum mjög
ánægð með að geta boðið
upp á íslenskar vörur fyrir
þessi jól. Bæði fyrir erlenda
ferðamenn og íslendinga.“
Meðal þess sem fæst í
Reykjavik Bags eru fylgi-
hlutir eins og hárskart eftir
handverkskonu á Suður-
eyri, húfur og vettlingar
úr þæfðri ull og silkivörur,
vandaðar töskur eftir Fjólu
Maríu og einnig hönnun
eftir Gústu, Sólbrá og Nönu.
Finnur segir áherslu hafa
verið lagða á gæði þegar
vörurnar voru valdar inn.
„Til dæmis seljum við skemmtilega tölvutösku úr plasti sem
vann til verðlauna um daginn. Hún er hönnuð af nemendum í
Listaháskóla Íslands í samvinnu við Örva sem er verndaður
vinnustaður í Kópavogi. Töskurnar eru nýkomnar í framleiðslu
og fást einungis hjá okkur eins og er.“ - rat
4. DESEMBER 2008 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● veljum íslenskt
Sumum börnum liggur á
að komast í heiminn, löngu
áður en líf utan móðurkviðar
er tímabært. Þessi kríli eru
agnarsmáir kroppar sem áður
voru klædd í dúkkuföt, en
hafa síðan átt öruggt skjól í
fyrirburafatnaði Jónu Bjargar
Jónsdóttur fatahönnuðar.
„Ég eignaðist litla frænku sem
var fyrirburi fyrir sextán árum
og saumaði á hana fyrirburaföt,
enda ófáanleg á þeim tíma hér-
lendis. Á sama tíma skynjaði ég
mikla þörf fyrir fatnað á þessi
litlu kríli sem drífa sig í heim-
inn aðeins fyrr en til stendur og
ákvað að hefja frekari hönnun og
framleiðslu á fyrirburafatnaði,“
segir Jóna Björg Jónsdóttir líf-
eindafræðingur og fatahönnuður,
sem hefur frá árinu 1997 starf-
rækt eigið hönnunarstúdíó, JBJ
Design, þar af fyrstu átta árin á
Laugavegi, en frá árinu 2005 í
Skólagerði 5 í Kópavogi.
„Þá hafði ég í fimmtán ár
saumað barnafatnað, allt að
fimm þúsund flíkur á ári; þótti
við hæfi að breyta til og hóf að
hanna fatnað úr ullarsilki fyrir
konur á öllum aldri, með aðferð
sem kallast þæfing. Þeirri hönn-
un var strax vel tekið og hefur ár-
angur allar götur síðan farið langt
fram úr björtustu vonum,“ segir
Jóna Björg sem með fram kven-
fatnaði sínum saumar enn falleg
föt á fyrirbura ásamt eftirsóttum
ungbarnasundfötum upp í tveggja
ára og flónelsnáttföt fyrir börn.
„Frá fyrstu tíð hef ég aðeins
notað vönduð náttúruefni í fyr-
irburaklæðin, stroff á ermar og
skálmar og aldrei smellur, renni-
lása né franska rennilása, því
slíkir aukahlutir henta ekki við-
kvæmri húð ungbarnsins. Fyr-
irburar eru svo sérstök börn og
þurfa mikla aðhlynningu, en fötin
eru aðallega gerð fyrir
foreldra þeirra því
það léttir hugarþel
þeirra að vita að fá-
anleg séu föt á svo
smátt barn,“ segir
Jóna Björg sem
hannaði fyrirbura-
línu sína í sam-
ráði við lækna
og ljósmæður
á vökudeild
Kvennadeild-
ar LSH.
„Fyrirburarn-
ir geta byrjað að
nota klæðin þegar þeir hafa náð
sex marka þyngd og haldið áfram
að nota þau upp í þrettán merk-
ur, en fötin fara vel allan tímann.
Þetta eru vöggugallar sem not-
ast jafnt á nóttu sem degi og flest
byrja börnin á því að fara bara
í treyjuna, sem þá nær þeim
niður á ökkla. Öll fötin eru tví-
skipt vegna rita og annarra
hluta sem þurfa að tengj-
ast líkama þeirra, og á öllum
eru handsaumaðar tölur og
bendlabönd,“ segir
Jóna Björg, sem ekki
hefur hækkað verð á
fyrirburafötum síðan
um aldamót.
„Nú ríkir mikil
vakning fyrir íslenskri
hönnun og fram-
leiðslu, þar sem allir
verða að leggja sitt
af mörkum til endur-
reisnar íslensks sam-
félags. Mitt framlag er
að halda verðinu óbreyttu
þótt hráefni hafi að undan-
förnu hækkað um fjörutíu
prósent. Það vill til að ég
hef yndi af því sem ég geri
og þykir litlu skipta þótt
ég fái minna fyrir fram-
leiðsluna. Auðvitað vildi
ég að engin börn kæmu
of snemma í heiminn, en á
sama tíma er bæði indælt
og gefandi að geta saumað
á þau falleg föt og mikil pressa á
mig að halda áfram. Því mun ég
halda tryggð við fyrirburana og
halda ótrauð áfram að framleiða
á þá fallegan fatnað,“ segir Jóna
Björg sem varð fyrst til að gefa
klæðleysi íslenskra fyrirbura
gaum.
„Áður höfðu konur sem þurftu
á slíkum klæðum að halda keypt
dúkkuföt á börn sín, en frá upp-
hafi varð siðfræði hjá mér að
selja fyrirburaföt mín aldrei sem
dúkkufatnað, þótt oft hafi verið
falast eftir því.“ - þlg
Heldur alltaf tryggð
við fyrirburana
Fatahönnuðurinn og lífeindafræðingurinn Jóna Björg Jónsdóttir varð fyrst Íslendinga til að sérhanna og sérsauma fatnað á fyrir-
bura, en það hefur hún gert óslitið í sextán ár. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Krúttlegur
daggalli með
lokuðum
skálmum og
samfylgd
Bangísmons,
mesta krútts
teiknimynda-
sögunnar.
Íslenskar töskur og
skart í jólapakkann
Finnur Thorlacius er einn eigenda
verslunarinnar Reykjavik Bags. Þar fæst
íslensk hönnun og handgerðir munir.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Taska
eftir Helenu
Sólbrá úr leðri
og laxaroði.
Taskan kostar
39.000 krónur.
Tölvutaska úr plasti unnin af nemendum Listahá-
skóla Íslands og HR í samvinnu við Örva í Kópavogi.
Hægt er að fá töskuna í ýmsum útfærslum eftir
óskum viðskiptavina. Taskan kostar 7.900 krónur.
Veski eftir
Gústu úr karfa-
roði á krónur
47.500.
Heilgalli
með
húfu og
lokuðum skálmum
með regnhlífaævintýri
Bangsímons og félaga.