Fréttablaðið - 04.12.2008, Page 38
4. DESEMBER 2008 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● veljum íslenskt
Sérhönnuð handklæði frá
Vinnustofunni Ás hafa verið
sett á markað. Ás er vernd-
aður vinnustaður og unnu
starfsmenn með frönskum
listamanni að verkefninu.
Nýju handklæðin frá Vinnustof-
unni Ás eru myndskreytt með
teikningum starfsmanna. Hand-
klæðin hannaði franskur skipti-
nemi við Listaháskóla Íslands,
Ulysse Neau, eftir að hafa heim-
sótt Vinnustofuna með skólafé-
lögum sínum.
„Ulysse spurði í framhaldinu
hvort hann mætti koma og hitta
hóp af fötluðum einstaklingum
og fá þá til að teikna myndir,“ út-
skýrir Halldóra Þ.
Jónsdóttir, forstöðu-
þroskaþjálfi Vinnu-
stofunar Áss, en
Ulysse er núna
staddur í París.
„Hann kom
nokkrum sinn-
um og hitti þau.
Þau teiknuðu
myndir sem
voru svo bród-
eraðar í handklæð-
in og á umbúðunum kemur fram
hvaða listamaður stendur á bak-
við teikninguna. Samvinnan gekk
mjög vel og Ulysse tók alla vinn-
una upp á vídeó.“
Halldóra segir vinnustofuna
ekki hafa unnið með
listamanni á þennan
hátt áður en núna
stendur yfir verk-
efnavinna með
Listaháskóla Ís-
lands. „Mér finnst
þetta samstarf
mjög spennandi.
Það hleypir nýju
lífi í okkar starf.“
Á heimasíðunni www.we-
towels.com gerir Ulysse
verkefninu skil og þar má
sjá bæði myndir og vídeó
af vinnslu verkefnisins.
Handklæðin fást hjá vinnu-
stofunni Ás. - rat
Teikning eftir
Hugrúnu.
Persónulegar bróderingar
Halldóra Þ. Jónsdóttir forstöðuþroskaþjálfi segir samstarf við utanaðkomandi lista-
menn spennandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Góður andi er á Vinnustofunni Ás en þar eru saumuð handklæði og viskustykki svo
fátt eitt sé nefnt.
Lilja á
heiðurinn
að þessari
teikningu.
Teikning eftir Vöku.
Dreifingaraðili:
Fæst í verslunum um land allt
NÝTT Á ÍSLANDI
Hin geysivinsæla Disney útgáfa er komin í verslanir:
Opnaðu töfraheim Disney og
spilaðu Trivial Pursuit með
allri Fjölskyldunni.