Fréttablaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 56
32 5. desember 2008 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
SÖNGVARINN JOSÉ CARRERAS ER
62 ÁRA Í DAG.
„Þegar þú ert kominn á
ákveðið stig er mjög auð-
velt að segja já. Þá er orðið
tímabært að læra að segja
nei.“
Spænski tenórinn José Carrer-
as hefur sungið helstu óperu-
rullurnar við helstu tónleika-
húsin síðustu þrjá áratugi.
Innósentíus VIII. páfi
gaf þennan dag árið
1484 út tilskipun-
ina Summis desid-
erantes sem skipaði
Heinrich Kramer og
rannsóknardómarann
Jacob Sprenger til þess
að uppræta meintar
nornir í Þýskalandi, og
markaði það upphaf-
ið að einhverjum um-
fangsmestu nornaveið-
um sögunnar.
Nornaveiðar hafa alltaf verið til í gegnum
tíðina. Þær komu strax fram í Evrópu í frum-
kristni. Í tilskipun Innosentíusar kom fram að til-
vist norna væri staðreynd og þær væru ógn við
samfélag kristinna manna. Innósentíus styrkti
rannsóknarréttinn til
muna og lagði áherslu
á að nornafárið væri
helst að finna í Þýska-
landi. Kramer gaf síðan
út ritið Nornahamar-
inn (Malleus Malefia-
carum) sem fjallaði um
hvernig nornir hegðuðu
sér og hvernig mætti
þekkja þær. Nornaveið-
ar breiddust síðan út
um alla Evrópu og til
Ameríku. Á Íslandi urðu
rúmar tuttugu galdrabrennur en aðeins ein kona
var brennd.
Óljóst er hve margir létu lífið af völdum þessa
galdrafárs. Heyrst hafa tölur frá 50.000 og upp í
tvær milljónir.
ÞETTA GERÐIST: 5. DESEMBER 1484
Nornaveiðar hefjast af krafti
Elskaður sonur okkar, bróðir, barnabarn,
mágur og frændi,
Ísak Helgason
Grundargerði 8b, Akureyri,
lést sunnudaginn 30. nóvember. Útför fer fram frá
Akureyrarkirkju þann 15. desember kl. 13.30.
Helgi Steingrímsson Steinlaug Kristjánsdóttir
Gunnhildur Helgadóttir Sævar Már Árnason
Steinunn Helgadóttir
Jökull Sævarsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður og afa,
Gunnars Jónssonar
dúklagningameistara, Rjúpnasölum 14,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 11E á Hringbraut,
líknardeildar Landspítala Kópavogi og Karítasar.
Guðríður Ríta Ágústsdóttir
Ari Guðjón Gunnarsson Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir
Helga Gunnarsdóttir Halldór Sigurðsson
Gyða Rut, Karen Birna, Bryndís, Sara Hrund og Gunnar
Helgi.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
Guðrúnar J. Geirdal
Suðurgötu 38, Akranesi.
Dröfn Lavik Severin Lavik
Njörður Geirdal Sigurbjörg Snorradóttir
og ömmubörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Tómas Þorvaldsson
Gnúpi, Grindavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 2. desember
síðastliðinn. Jarðsungið verður frá Grindavíkurkirkju
þriðjudaginn 9. desember kl. 14.00. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hins
látna er bent á Björgunarsveitina Þorbjörn í Grindavík.
Eiríkur Tómasson Katrín Sigurðardóttir
Gunnar Tómasson Rut Óskarsdóttir
Stefán Þorvaldur Tómasson Erla Jóhannsdóttir
Gerður Sigríður Tómasdóttir Jón Emil Halldórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sigrún Guðný
Guðmundsdóttir
frá Bala Stafnesi, Stapavöllum 19,
Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sunnu-
daginn 30. nóvember sl. Útför hennar fer fram frá
Safnaðarheimilinu í Sandgerði laugardaginn
6. desember nk. kl. 14.00.
Guðmundur H. Ákason
Guðrún Gunnarsdóttir
Jón Gunnarsson Guðrún Gunnarsdóttir
Kristþór Gunnarsson Ásrún Rúdólfsdóttir
Guðmundur G. Gunnarsson Þórhalla M. Sigurðardóttir
Þjóðbjörg Gunnarsdóttir Reinhard Svavarsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Okkar ástkæra sambýliskona, móðir,
amma og langamma,
Málhildur Sigurbjörnsdóttir
til heimilis að Heiðarbrún,
áður Holtsgötu 14a, Reykjavík,
er látin. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 9. desember kl. 15.00.
Arthur Karl Eyjólfsson
Sigmundur Karlsson Linda B. Sigurðardóttir
Unnur Sigurbjörg Karlsdóttir
Karl Sesar Karlsson Þorbera Fjölnisdóttir
Þóra Lind Karlsdóttir Salómon V. Reynisson
barnabörn og barnabarnabörn.
MERKISATBURÐIR
771 Karlamagnús verður kon-
ungur Frakklands eftir lát
bróður síns Karlóman.
1492 Kristófer Kólumbus stígur
fæti á Hispaníóla.
1796 Í Reykjavíkurskóla er
frumsýnt leikritið Slað-
ur og trúgirni eftir Sigurð
Pétursson. Síðar fékk það
nafnið Hrólfur.
1901 Taflfélag er stofnað á Ak-
ureyri.
1933 Áfengisbanninu í Banda-
ríkjunum lýkur.
1945 Sveit fimm sprengjuflug-
véla á vegum bandaríska
flotans týnist í Bermúda-
þríhyrningnum.
1968 Jarðskjálfti af stærðinni 6
stig finnst í Reykjavík og
er hann sá snarpasti frá
1929.
Vísindafélag Íslands fagnar 90 ára af-
mæli um þessar mundir en það var
stofnað hinn 1. desember árið 1918, eða
sama dag og Ísland varð fullvalda ríki.
Þann dag komu tíu kennarar við Há-
skóla Íslands saman og var tilgangur-
inn að stofna félagsskap íslenskra vís-
indamanna sem hefði það markmið að
efla vísindastarfsemi í landinu.
Tilgangur félagsins er enn sá sami en
að sögn Þórarins Guðjónssonar, varafor-
seta félagsins, sem gegnir störfum Þórs
Eysteinssonar forseta á meðan hann er
í námsleyfi, er markmiðið nú að efla fé-
lagið enn frekar og vill hann sjá að það
taki frumkvæði í vísindalegri umræðu
á Íslandi. „Við þurfum að færa umræð-
una meira út í samfélagið og veita stjór-
völdum aðhald. Þá viljum við reyna að
fá til liðs við okkur meira af ungu fólki
en félagsskapurinn er vettvangur þar
sem vísindin, hvort sem þau heita fé-
lagsvísindi, heimspeki, raunvísindi eða
lífvísindi sameinast,“ segir Þórarinn og
heldur áfram: „Það var framsýnt átak
að stofna þetta félag á sínum tíma en
nú er rétti tíminn til að stórefla félags-
skapinn. Reynslan sýnir að á erfiðum
tímum gera þjóðir átak í að efla vísind-
in sem leiðir til nýrra tækifæra.“
Þórarinn segir fundi síðasta miðviku-
dag í hverjum mánuði fasta liði í starf-
semi félagsins en þar eru flutt erindi
um vísindaleg efni. Að auki hefur fé-
lagið haldið hin ýmsu málþing og staðið
fyrir margvíslegri útgáfu. Félaginu er
einnig ætlað að standa við bakið á vís-
indamönnum. „Við viljum til að mynda
geta stutt vísindamenn sem lenda í því
að niðurstöður þeirra séu dregnar í efa
ef þær stangast á við hagsmuni stórfyr-
irtækja, útgerðarmanna eða annarra
hagsmunaaðila. Eins þarf stöðugt að
vera að minna á ákveðna hluti og má þar
nefna stöðu ungra vísindamanna sem er
erfið. „Ég myndi vilja sjá að nýtt og öfl-
ugt fólk ætti greiðari leið inn í háskól-
ana að loknu doktorsnámi en mjög lítil
nýliðun er á dósentsstigi. Nemendum
fjölgar stöðugt en lítið er gert til að búa
í haginn fyrir þá sem hafa lokið námi og
ættu að bera kyndilinn áfram.“
Í tilefni afmælisins stendur félag-
ið fyrir málþingi í hátíðarsal Háskóla
Íslands. Það hefst klukkan 14 á morg-
un, laugardag, og ætti að vekja at-
hygli fróðleiksfúsra. Þar verður farið
um víðan völl og fjallað um lýðheilsu-
vísindi, svefn, örtæknirannsóknir og
mannkynbætur. vera@frettabladid.is
VÍSINDAFÉLAG ÍSLANDS: FAGNAR 90 ÁRUM MEÐ FRÓÐLEGU MÁLÞINGI
Nú er tími nýrra tækifæra
ERFIÐLEIKUM MÆTT MEÐ AUKINNI ÞEKKINGU Þórarinn Guðjónsson segir að nú sé rétti tíminn til að stórefla félagsskapinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA