Fréttablaðið - 05.12.2008, Qupperneq 68
FÖSTUDAGUR 5. desember 2008
Bróðir leikarans Marks Ruffalo
er í bráðri lífshættu eftir að
skotið var á hann í Beverly Hills.
Hinn 39 ára Scott Ruffalo, sem er
hárgreiðslumaður, fannst
snemma á mánudag í íbúð sinni
eftir að hafa fengið byssuskot í
höfuðið.
Lögreglan í Beverly Hills segir
að kringumstæður hafi verið
grunsamlegar í íbúðinni en hefur
þó ekki staðfest að glæpur hafi
verið framinn.
Scott Ruffalo er tveimur árum
yngri en Mark, sem er þekktastur
fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni
Zodiac.
Bróðir Marks
í lífshættu
MARK RUFFALO Bróðir Marks Ruffalo er
í bráðri lífshættu um þessar mundir.
Nýjasta smáskífulag söngkonunn-
ar Leona Lewis hefur selst mest
allra í Bretlandi af þeim sem hafa
eingöngu komið út í stafrænu
formi. Lagið, sem er hennar
útgáfa af lagi Snow Patrol, Run,
seldist í tæpum sjötíu þúsund
eintökum á fyrstu tveimur
dögunum, sem er nýtt met.
Þar með sló það út lag Estelle,
American Boy, sem seldist á
sínum tíma í tæpum 52 þúsundum
eintaka á einni viku. Lewis, sem
vann X-Factor í Bretlandi fyrir
tveimur árum, hefur selt sína
fyrstu plötu, Spirit, í fjórum
milljónum eintaka síðan hún kom
út fyrir ári.
Leona Lewis
slær sölumet
LEONA LEWIS Nýjasta lag hennar seldist
í 70 þúsund eintökum í gegnum Netið á
aðeins tveimur dögum.
Margt hefur breyst í lífi tónlist-
armannsins Prince eftir að hann
varð vottur Jehóva árið 2001.
Þessi fyrrum glaumgosi og
saurlífisseggur ritskoðar nú
marga af gömlu textunum
sínum og breytir þeim til að
þeir passi betur við nýja lífern-
ið. Auðvitað er hann líka alveg
hættur að koma fram í háum
hælum og í bikiníi.
Nýleg ummæli Prince um
samkynhneigða vöktu mikla
athygli á dögunum. Í viðtali við
The New Yorker var hann
spurður um skoðun sína á rétt-
indabaráttu samkynhneigðra.
Prince svaraði með því að
klappa Biblíunni sinni sem hann
er alltaf með undir hendinni og
sagði: „Guð kom til jarðar og sá
fólk otandi sínum tota og pot-
andi út um allt og gerandi það
með hverjum sem er og Guð
sagði: Nú er komið nóg af þessu!
og svo henti hann bara öllum
út.“
Hér var Prince að tala um
söguna um Sódómu og Gómorru
og viðbrögð Guðs við ólifnaðin-
um þar. Hann býst við að eitt-
hvað svipað gerist aftur bráð-
lega og að þúsund ára ríki
vottanna taki við. Ekki þarf að
fjölyrða um það að samkyn-
hneigðir eru ekki ánægðir með
orð smávaxna popparans.
Prince móðgar samkynhneigða
Í STUÐI MEÐ GUÐI Prince er hættur að
troða upp í háum hælum.
NORDICPHOTOS/GETTY
Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið | Sími 533 2220 | www.lindesing.is
Lín Design fagnar 4 ára afmæli, 15-25% afslátt af völdum
vörum föstudag & laugardag. Mesta úrval landsins af íslenskum
sængurfatnaði, yfi r 30 tegundir. Íslensk hönnun er jólagjöfi n í ár.
SPRENGHLÆGILEG
GAMANMYND
SEM KEMUR
ÞÉR Í JÓLASKAP
E I N F A L T G O T T Ó D Ý R T B E N S Í N D Í S E L