Fréttablaðið - 07.12.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
7. desember 2008 — 335. tölublað — 8. árgangur
BLEND
JÓLABÆKLINGURINN
FYLGIR BLAÐINU Í DAG
KRINGLAN // SMÁRALIND // KEFLAVÍK
Opið13-18
Nýtt kortatímabil
MÆÐGURNAR BRYNDÍS OG KOLFINNA
Eru samrýmdar og
hafa aldrei rifist 12
SJÁVARÚTVEGSMÁL Hvalkjöt eru for-
réttindi efnaðra Japana, segir tals-
maður Greenpeace-samtakanna í
Japan. Ljóst er að hvalveiðar
myndu gefa milljarða í útflutnings-
tekjur og skapa rúmlega hundrað
störf við veiðar og vinnslu.
Umhverfisráðherra segir sölu á
hvalkjöti í Japan ekki breyta
afstöðu sinni um að með hvalveið-
um væru Íslendingar að fórna
meiri hagsmunum fyrir minni.
Íslenska hvalkjötið sem sent var
til Japans í sumar er komið í dreif-
ingu á markaði. Um er að ræða 65
tonn af kjöti af þeim sjö langreyð-
um sem veiddar voru haustið 2006.
Junichi Sato, talsmaður Græn-
friðunga í Japan, segir að verð á
hvalkjöti á Japansmarkaði sé afar
hátt. „Kjötið er mjög dýrt og aðeins
fyrir vel efnað fólk sem kaupir það
fyrir sérstök tilefni.“ Hann segir
að eldri kynslóð Japana hafi smekk
fyrir kjötinu og yngri kynslóðin
neyti þess sjaldan eða aldrei. Verð
á hrefnukjöti í júní var um 50 evrur
á hvert kíló en 80 evrur á lang-
reyðarkjöti. „Þetta er þó misjafnt
eftir því hvaða hlutar hvalsins um
er að ræða og kjötið var þrisvar
sinnum dýrara fyrir tíu árum.“
Neysla á hrefnukjöti er um 4.000
tonn á ári en meiri eftirspurn var
eftir langreyðarkjöti á sínum tíma.
Gunnar Bergmann Jónsson,
framkvæmdastjóri Félags hrefnu-
veiðimanna, segir að í Japansheim-
sókn árið 2007 hafi þeir heimsótt
fiskmarkaði og komist að því að
fyrir góða bita af kjöti fáist fimmt-
án til tuttugu þúsund krónur.
Árni Finnsson, formaður Nátt-
úruverndarsamtaka Íslands, telur
að sala kjötsins breyti engu. Hann
telur ekki að íslenskt kjöt seljist á
háu verði eftir langa flutninga og
geymslu í frysti í langan tíma. „Það
verða aldrei leyfðar hvalveiðar
eftir ráðleggingum Hafrannsókna-
stofnunar. Við erum Evrópuríki og
nágrannar Bandaríkjanna. Þetta
væri gjörsamlega út í bláinn póli-
tískt.“ - shá / sjá síðu 6
Langreyðarkjötið
er matur hinna ríku
Verð á hvalkjöti er mjög hátt, segir talsmaður Grænfriðunga í Japan. Íslenska
kjötið er komið þar á markað. Salan breytir ekki afstöðu umhverfisráðherra.
ÉLJAGANGUR Í dag verða vestan
3-8 m/s en stífari við S-ströndina.
Slydda eða snjókoma SA-lands og
víða éljagangur til kvölds. Hiti frá 2
stigum niður í 5 stiga frost, mildast
syðst.
VEÐUR 4
0
1
-3
-3
-1
Kjötið er mjög dýrt og
aðeins fyrir vel efnað
fólk sem kaupir það fyrir sérstök
tilefni.
JUNICHI SATO
TALSMAÐUR GRÆNFRIÐUNGA Í JAPAN
HUGMYNDIN
KOM Í DRAUMI
Stephenie Meyer
hefur slegið í gegn
með bókum sínum
um Ljósaskiptin
VIÐTAL 14
NÁTTÚRA Jarðskjálfti af stærðinni
3,6 á Richter varð klukkan 14.16 í
gær. Upptök voru við Skálafell á
Hellisheiði, um tíu kílómetra
norður af Þorlákshöfn.
Skjálftans varð víða vart og
bárust tilkynningar í gegnum vef
Veðurstofunnar frá Stokkseyri,
Selfossi, Hveragerði, Þorláks-
höfn, Reykjavík, Kópavogi,
Hafnarfirði og Álftanesi.
Ekki hefur verið tilkynnt um
mikið tjón vegna skjálftans, en
húsmunir hristust og fólk fann
fyrir bylgjuhreyfingum í gólfi. - kg
Upptök skjálfta við Skálafell:
Jarðskjálftans
varð víða vart
GAFFLAÞEFUR GÆGIST HÉR INN Sannkölluð jólastemning ríkti í jólaþorpinu í Hafnarfirði í gær þegar ljósin voru tendruð á
Cuxhaven-trénu svokallaða, sem er gjöf frá vinabænum Frederiksberg í Danmörku. Eins og sjá má sættir Lalli töframaður sig við
ýmislegt í því augnamiði að vekja kátínu hjá yngstu aðdáendum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍELVEÐRIÐ Í DAG
matur[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ]Desember 2008 Forréttir með fyrirheit um góðar stundirÞjóðlegt, hollt og gottHvalkjöt og sykurbrúnaðar kartöfl ur Ljúffeng tilbreytingJón Þór Finnbogason eldar rjúpur um jólinVeislukrásirveiðimannsins
Há ð
FYLGIR Í DAG
SKIPULAGSMÁL Hollensk yfirvöld
hafa í hyggju að loka fyrir
starfsemi helmings vændishúsa,
kynlífstækjabúða og kaffihúsa
þar sem neysla kannabisefna er
stunduð í Rauða hverfinu í
Amsterdam. Þessar fyrirhuguðu
aðgerðir miða að því að hrekja
skipulagða glæpastarfsemi úr
miðborg Amsterdam.
Í nýju áætluninni er gert ráð
fyrir að fækka „vændisgluggum“
úr 482 í 243, og einnig að loka
helmingi þeirra 76 hass-bara sem
eru í Rauða hverfinu. - kg
Rauða hverfið í Amsterdam:
Vændisglugg-
um lokað
SLYS Björgunarsveitin á Akureyri
var kölluð út í gær vegna manns
sem fór úr axlarlið þegar hann
var á ísklifursnámskeiði við
Einhamar í Hörgárdal.
Í tilkynningu frá Landsbjörgu
segir að um fimmtán björgunar-
menn hafi farið á staðinn, og
notuðu þeir dráttarvél til að koma
manninum yfir mestu ófærurnar
á leiðinni niður bergið. Greiðlega
gekk að koma manninum í
sjúkrabíl, sem flutti hann á
sjúkrahús á Akureyri. - kg
Björgunarsveitin á Akureyri:
Fór úr axlarlið
við ísklifur