Fréttablaðið - 07.12.2008, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 07.12.2008, Blaðsíða 56
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Davíðs Þórs Jónssonar Tungumálið er sennilega hættulegasta vopnið sem maðurinn hefur fundið upp. Með því virðist nefnilega vera hægt að svipta venjulegt fólk heilbrigðri skynsemi og telja því trú um nánast hvaða himinhrópandi vitleysu sem er. Einkum virðast mér þó Íslendingar berskjaldaðir fyrir áhrifum tungumálsins. Ef setning er sett fram í formi algildra sanninda eða spekiyrða og þulin nógu oft fer fólk sjálfkrafa að álíta hana rétta. Gildir þá einu hve miklum dómadags þvættingi hefur verið komið fyrir í henni. Dæmi um þetta gæti verið setningin: „Sjaldan lýgur almannarómur.“ Þeir sem almannarómur hefur tekið til umfjöllunar vita ósköp vel að hraðlygnara fyrirbæri er vandfundið, ef það á annað borð er til. ANNAÐ dæmi gæti verið setningin: „Það sem drepur mann ekki gerir mann sterkari.“ Þessi setning lýsir óskiljanlegu hugsunar- og tillitsleysi. Hvað með alla þá sem orðið hafa fyrir hremmingum sem marka þá fyrir lífstíð og gert hafa þá veikari fyrir? Hvað með bæklandi og limlestandi sjúkdóma, áföll og harm sem aldrei hverfur? Vissulega er hægt að lifa af sorg og kvöl og jafnvel að eflast við ágjöf. En margir lenda einnig í raunum sem veikja þá til muna það sem þeir eiga eftir ólifað, þótt þær dragi þá ekki beinlínis til dauða. SÖMULEIÐIS veit ég ekki hvaða húmorslausi þurs mælti fyrstur: „Öllu gamni fylgir nokkur alvara.“ Þetta er einhver mesta endemis þvæla sem ég hef nokkru sinni heyrt. Mörgu gríni fylgir hreint engin alvara. Fullt af gamni er sett fram í þeim tilgangi einum að kalla fram brosviprur og er ekki ætlað að hafa neina tengingu við neitt sem á nokkurn hátt má flokka undir alvöru. Með því að telja öllu gamni fylga einhver alvara er gamansömu fólki gerðar upp annarlegar hvatir, meiningar eru lesnar inn í fullkomlega græskulaust glens og ánægjan af hreinræktuðu og tæru gríni eyðilögð fyrir öllum. ÁSTÆÐA þess að ég er að vekja máls á þessu er að um þessar mundir virðist mér enn ein lygamantran af þessu tagi vera að fara á kreik. Sú setning hlýtur auðvitað að ofbjóða réttlætiskennd hvers manns og nísta hann í raunveruleikaskynið. Því má þessi blekking alls ekki verða að viðurkenndri staðreynd í huga nokkurs manns. Setningin er svona: „Við tókum öll þátt í þessu.“ Lygamöntrur Ef bókað er fyrir 1. febrúar 2009: Flugsæti, með sköttum og öðrum greiðslum, sem gildir fram og til baka til Köben, London eða Berlínar. Bókunartímabil: 26. desember 2008 –31. janúar 2009. Ferðatímabil: 15. janúar–15. maí 2009. Takmarkað sætaframboð. Ef bókað er eftir 1. febrúar 2009: Jólagjafabréfið verður inneign að upphæð 25.900 kr. Gildir til allra áfangastaða og gildir í tvö ár frá útgáfudegi. Jólagjöf handa þeim sem elska að ferðast! F í t o n / S Í A með ánægju Áttu vini og ættingja sem hafa gaman af ferðalögum? Jólagjafabréf Iceland Express er skemmtileg leið til að gleðja þína nánustu um jólin. Bókaðu vel heppnaða jólagjöf á www.icelandexpress.is Jólagjafabréf Iceland Express hittir beint í mark 25.900 kr. Verð: Sölutímabili lýkur kl. 18.00, 24. desember 2008. Ferðatímabilið er frá 15. janúar til 15. maí 2009 Tveggja manna herbergi á kr. 5.000 nóttin Uppbúið rúm í svefnpokaplássi kr. 2.000 nóttin Gesthús Dúna Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is Í dag er sunnudagurinn 7. desember, 342. dagur ársins. 11.02 13.19 15.36 11.14 13.04 14.54
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.