Fréttablaðið - 07.12.2008, Síða 24
Þetta er frekar klassískur for-réttur með smá tvisti þannig að hann kemur líka á óvart,“
segir Hrefna Rós Sætran, yfir-
kokkur og eigandi veitingastaðar-
ins Fiskmarkaðurinn.
„Rétturinn er í raun frekar ein-
faldur en þó þarf að gefa sér tíma
til að grafa fiskinn. Í raun má
grafa alls konar fisk. Það getur
verið lúða, lax eða skötuselur en í
þetta sinn notaði ég bleikju sem ég
svo steikti,“ útskýrir hún og bætir
við að það sé smekksatriði hversu
mikið grafinn fiskurinn er.
Kryddblandan sem Hrefna
útbjó er fremur nýstárleg með
kardimommum og stjörnuanís og
kanillinn gefur hátíðlegan blæ.
Sósan er líka ný af nálinni. „Hún
er frekar mild og passar mjög vel
með þessum fiski. Það myndi ekki
virka að vera með venjulega graf-
laxsósu,“ segir Hrefna áhugasöm
og nefnir að rétturinn standi til
boða á matseðli Fiskmarkaðsins.
„Þar er rétturinn reyndar aðal-
réttur. Við bjóðum upp á níu rétta
jólaborðsseðil þar sem réttirnir
eru bornir fram á borðið til fólks-
ins. Við erum ekki með þetta týp-
íska en erum samt með jólalegt
hráefni,“ segir hún um matseðill-
inn þar sem velja má um ferska og
holla rétti. „Við erum töluvert í
asískri matreiðslu úr íslensku hrá-
efni.“ - hs
Sælkeramatur
Nýstárleg matreiðsla
á sígildum forrétti
Graflax er algeng fæða á íslenskum heimilum yfir hátíðarnar. Hægt er að bregða
frá venjunni og grafa sinn eigin fisk en Hrefna Rós Sætran, yfirkokkur og eigandi
Fiskmarkaðarins, útbjó fyrir okkur grafna bleikju með nýmóðins graflaxsósu.
BLEIKJA
1 stk. bleikjuflak
50 g Himalajasalt (má
nota hvaða salt sem
er)
50 g sykur
2 stk. stjörnuanís
4 stk. kardimommur
1 stk. kanilstöng
1 stk. rautt greip
Beinhreinsið bleikju-
flakið. Takið þurrkrydd-
in og merjið í mortéli.
Bætið saltinu og
sykrinum í. Setjið
kryddblönduna í mót,
bleikjuna þar ofan á og
síðan meiri krydd-
blöndu yfir. Grafið í 3
klukkustundir í kæli.
Hitið olíu á pönnu.
Steikið bleikjuna á
roðhliðinni í um 3
mínútur. Þar sem
bleikjan er grafin er
mjög gott að hafa
hana létt eldaða.
PIKKLAÐAR
RAUÐRÓFUR
2 stk. rauðrófur
50 ml hrísgrjónaedik
50 g sykur
1 msk. hunang
Skerið rauðrófurnar
niður. Blandið edikinu,
sykrinum og hunanginu
saman. Leggið
grænmetið í löginn yfir
nótt eða eftir smekk.
NÝMÓÐINS GRAF-
LAXASÓSA
100 g majónes
2 msk. púðursykur
2 msk. sojasósa
½ stk. rautt chili
fínt saxað
Ferskt dill eftir
smekk
Blandið öllu hráefninu
saman í skál . Saxið
dillið og bætið út í.
LÉTTGRAFIN BLEIKJA með pikkluðum rauðrófum, agúrkum og blómkáli
Hrefna Rós skreytir réttinn meðal
annars með gúrku en hún passar vel
með þar sem hún er fersk. Pikkluðu
rauðrófurnar eru síðan skornar í hring.
Hrefna Rós Sætran útbýr ferska og
gómsæta rétti á Fiskmarkaðnum og
nú fyrir jól er þar boðið upp á níu
rétta jólaborðseðil.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
RN
ÞÓ
R
F