Fréttablaðið - 11.12.2008, Qupperneq 4
4 11. desember 2008 FIMMTUDAGUR
STJÓRNMÁL „Ég gerði þetta til að
koma í veg fyrir að við misstum
skuldir í dráttarvexti og lögfræði-
kostnað,“ segir Guðjón A. Kristj-
ánsson, formaður Frjálslynda
flokksins. Hann lánaði flokknum
fjórar milljónir króna á síðasta
ári.
Guðjón segir fjárhagsstöðu
flokksins hafa verið erfiða að
afloknum kosningunum 2007 og til
að grynnka á skuldum hafi fast-
eign frjálslyndra við Aðalstræti 9
verið seld. Í framhaldinu voru
gerðar áætlanir um greiðslu
skulda.
Salan á Aðalstrætinu gekk
óvænt til baka og þar með komust
áætlanirnar í uppnám. „Það varð
að bjarga málunum svo flokkur-
inn lenti ekki í margra milljóna
króna kostnaði,“ segir Guðjón sem
sótti milljónirnar fjórar inn á
bankabók. Aðspurður kveðst hann
ekki vera stóreignamaður, hann
eigi kannski um tuttugu milljónir
þegar allt er talið.
Síðar á síðasta ári seldist fast-
eignin með tæplega tuttugu millj-
ón króna hagnaði og í kjölfarið var
hægt að ráðast í greiðslu skulda.
Guðjón segist hafa fengið tvær og
hálfa milljón endurgreidda; þau
mál gangi eðlilega fyrir sig. Kjör-
in á láni Guðjóns til flokksins eru
þau sömu og flokkurinn nýtur hjá
Landsbankanum.
Í rekstrarreikningi Frjálslynda
flokksins fyrir árið 2007 kemur
fram að félagsgjöld námu 1,4
milljónum og framlög og styrkir
tæplega 42 milljónum. Með hagn-
aði af sölu Aðalstrætisins og
öðrum tekjum voru rekstrar-
tekjurnar samtals tæpar 63 millj-
ónir. Rekstrargjöld voru rúmlega
88 milljónir. Kosningabarátta upp
á 65 milljónir vegur þyngst en
laun og annar rekstrarkostnaður
námu 22 milljónum.
Þegar allt er tiltekið var tap á
rekstri Frjálslynda flokksins árið
2007 rúmar 28 milljónir. Skuldirn-
ar í árslok námu tæpum 30 millj-
ónum.
Guðjón segir unnið eftir aðhalds-
samri útgjaldastefnu enda ætlun-
in að losna við skuldirnar. Greið-
lega hefur gengið að greiða af
þeim og telur Guðjón þær nema
tólf til fjórtán milljónum í dag.
Auk þess að hafa átt handbært
fé upp á rúma milljón um síðustu
áramóti átti Frjálslyndi flokkur-
inn gamla Dodge bifreið sem
metin var á tæpa hálfa milljón. Að
sögn Guðjóns var bíllinn keyptur
til að nota í kosningabaráttunni.
Honum hafi verið lagt en sé í
ágætu lagi og verði eflaust notaður
í næstu kosningabaráttu.
bjorn@frettabladid.is
Guðjón lánaði flokki
sínum fjórar milljónir
Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, lánaði flokknum fjórar
milljónir króna á síðasta ári. Flokkurinn skuldaði tæpar 30 milljónir um ára-
mót. Skuldirnar hafa lækkað mikið síðan þá. Aðhalds er gætt í flokksstarfinu.
FORMAÐUR OG LÁNARDROTTINN Guðjón A. Kristjánsson á enn eina og hálfa milljón
króna inni hjá Frjálslynda flokknum af fjögurra milljóna króna láni. Vel hefur gengið
að greiða niður skuldir flokksins á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
14°
4°
3°
2°
2°
3°
3°
3°
2°
4°
19°
5°
3°
22°
-3°
4°
13°
3°
2
1
Á MORGUN
8-13 m/s vestan til,
annars hægari.
13
0
LAUGARDAGUR
3-10 m/s, hvassast
austan til.
1
0
3
5
3
2
2
-3
10
8
6
6
6
6
13
0 0
1
0
0
-3 -4
-2-3
VONSKUVEÐUR Í
KVÖLD
Veðurútlit fyrir
sunnan- og vestan-
vert landið sem og
hálendið er slæmt nú
þegar líður á síðdegið,
einkum þó í kvöld. Má
búast við suðaustan
18-25 m/s á þessum
svæðum með kvöld-
inu og mikilli rigningu
á láglendi en hætt
við stórhríð á fjöllum.
Vindurinn verður
hægari á austurhluta
landsins lengst af en
verður þó á bilinu 10-
15 m/s í kvöld.
15
13
8
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
BANDARÍKIN, AP Barack Obama
hvetur Rod Blagojevich,
ríkisstjóra í Illinois, til að segja
af sér. Blagjov-
ich var
handtekinn
fyrir að hafa
boðið þingsæti
Obama í
öldungadeild-
inni til sölu.
Obama segist
ekkert hafa
vitað af
þessum
áformum ríkisstjórans.
Þótt Blagojevich hafi verið
handtekinn hefur hann þó enn
formlegt vald til að ráða því
hver tekur við af Obama í
öldungadeildinni í byrjun næsta
árs, þegar Obama verður forseti
Bandaríkjanna.
Ríkisþingið í Illinois reynir nú
að svipta hann þessu valdi. - gb
Barack Obama:
Ríkisstjórinn á
að segja af sér
BARACK OBAMA
BANDARÍKIN, AP Krabbamein
verður algengasta dánarorsök
jarðarbúa innan fárra ára.
Undanfarin ár hafa hjartasjúk-
dómar dregið flesta til dauða.
Strax árið 2010 verður
krabbamein orðið algengasta
dánarorsökin, samkvæmt nýrri
skýrslu frá krabbameinsrann-
sóknastöð Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar, WHO.
Búist er við að árið 2030 verði
krabbameinssjúklingar tvöfalt
fleiri í heiminum en nú er. Þá
muni 27 milljónir veikjast árlega
af krabba, og 17 milljónir deyja
af völdum hans.
- gb
Ný heilbrigðisskýrsla:
Æ fleiri falla
fyrir krabba
STJÓRNSÝSLA Almennir stjórnar-
menn í bankaráðum Glitnis og
Kaupþings fá 135 þúsund krónur
á mánuði. Varaformenn fá 202.500
og formenn 270 þúsund krónur.
Varamenn fá fjórðung af
almennum stjórnarlaunum fyrir
setu bankaráðsfundar. Það gera
tæpar 34 þúsund krónur fyrir
fund.
Þessar upplýsingar fengust frá
Glitni og Kaupþingi. Landsbank-
inn veitti ekki upplýsingar um
stjórnarlaun og sagði þau ákveðin
í fjármálaráðuneytinu. Fjármála-
ráðuneytið sagði bankana ganga
frá málinu í samráði við ráðu-
neytið. - bþs
Laun fyrir setu í bankaráðum:
Almennir með
135 þúsund en
formenn tvöfalt
EFNAHAGSMÁL Alþingi hefur
samþykkt frumvarp Jóhönnu
Sigurðardóttur félagsmálaráð-
herra um að lengja lánstíma
Íbúðalánasjóðs. Hámarkslánstími
er nú 70 ár í stað 55 ára.
Heimilt er að lengja lánstíma
vegna greiðsluerfiðleika um allt
að 30 ár í stað 15 ára áður.
Lenging hámarkslánstímans er
hugsuð til að allir geti nýtt sér 30
ára frestinn. Íbúðalánasjóði er nú
heimilt að leigja út húsnæði, eða
fela öðrum að annast það, sem
hann hefur leyst til sín á nauð-
ungarsölu. Með því á að gera
eigendum kleift að búa áfram í
íbúðinni gegn leigu. - kóp
Íbúðalánasjóður getur leigt:
Hámarksláns-
tími er 70 ár
EFNAHAGSMÁL Forsvarsmaður hóps
fólks sem átti fé í peningamark-
aðssjóðum Landsbankans segir
fátt hafa verið um svör á fundi
með stjórnendum bankans í gær-
kvöldi. Næsta skref verði að ráða
lögmann og ákveða næstu skref í
samráði við hann.
„Niðurstaða fundarins var
engin,“ segir Hörður Hilmarsson,
einn forsvarsmanna hópsins. Hann
segir stjórnendur bankans hafa
sýnt fundarmönnum ítarlegt bréf
sem bankinn muni senda í dag til
fólks sem átti í sjóðum bankans, en
þar hafi ekkert nýtt komið fram.
Hörður segir nú ljóst að Nýi
Landsbankinn ætli ekki að axla
ábyrgð á því fé sem tapast hafi í
sjóðum Landsbankans, þrátt fyrir
að starfsmenn hafi kynnt peninga-
markaðssjóðina sem fullkomlega
örugga fjárfestingu.
Svo virðist þó sem bankinn úti-
loki ekki með öllu skuldajöfnun
fyrir einhverja einstaklinga, þó að
bankinn hafi tekið fram að skoða
yrði hvert tilvik, segir Hörður.
Bankinn hafi að mestu vísað á
stjórnvöld.
Hópurinn hefur óskað eftir
fundi með Björgvini G. Sigurðs-
syni viðskiptaráðherra. Hörður
segir ekki komna dagsetningu á
þann fund, en vonandi verði af
fundi með ráðherranum fljótlega.
Hópurinn vilji vita hvar hann
standi áður en tekin verði ákvörðun
um málsókn. - bj
Fólk sem átti fé í peningamarkaðssjóðum hitti stjórnendur Landsbankans:
Engin niðurstaða af fundinum
FUNDAÐ Fulltrúar hóps fólks sem átti fé
í peningamarkaðssjóðum Landsbankans
komu til fundar við stjórnendur bankans
í gær. Hörður Hilmarsson er annar frá
hægri. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
GRIKKLAND, AP Átök urðu fyrir
utan þinghús Aþenu í gær þegar
lögreglumenn, sem urðu fimmtán
ára pilti að bana um helgina, voru
yfirheyrðir. Lögmaður lögreglu-
þjónsins sem ákærður hefur verið
fyrir manndráp segir rannsókn
sýna að banaskotið hafi fyrst farið
í jörð eða vegg og þaðan í piltinn.
Efnt var til allsherjarverkfalls í
gær og var skólum og sjúkrahús-
um lokað, flug lá niðri og opinber
þjónusta sömuleiðis. Rúmlega tíu
þúsund manns mættu á útifund í
Aþenu til að mótmæla efnahags-
stefnu hægristjórnar landsins. - gb
Óeirðirnar í Grikklandi:
Ákærður fyrir
manndráp
ÁTÖK Í ÞESSALONÍKU Lögregluþjónn
kastar táragashylki. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GENGIÐ 10.12.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
195,8442
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,29 114,83
168,92 169,74
147,47 148,29
19,792 19,908
16,114 16,208
13,94 14,022
1,2336 1,2408
170,58 171,6
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR