Fréttablaðið - 11.12.2008, Qupperneq 36
11. DESEMBER 2008 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● veljum íslenskt
Í hæfingarstöðinni Bjarkarási,
þar sem fólk með þroskahömlun
starfar, fer margþætt starfsemi
fram. Í Listasmiðjunni eru fram-
leiddir skrautmunir og nytja-
hlutir úr gleri, tré og leir og í
gróðurhúsi rækta starfsmenn
lífrænt grænmeti. Þá taka þeir
að sér ýmiss konar pökkunar- og
álímingarverkefni.
Forstöðukonan Þórhildur Garð-
arsdóttir segir glerdiska, skálar, gler-
krossa og skart meðal þess sem framleitt er í listasmiðjunni
og að fyrir jól líti hinir ýmsu jólamunir dagsins ljós. Hún segir
að oft og tíðum komi margir að framleiðslu á einum hlut og er
tekið mið af getu hvers og eins. „Einn starfsmaður hnoðar til að
mynda kúlu, annar þrýstir henni í mót og sá þriðji sér um loka-
frágang.“
Þórhildur segir nýjar hugmyndir fæðast og nýir hlutir líta
reglulega dagsins ljós, en þá er hægt að skoða í Smiðjubúð að
Stjörnugróf 9. Þá segir hún samstarf við Listaháskóla Íslands og
Háskólann í Reykjavík, sem leiddi til væntanlegrar framleiðslu
á leirpottunum Grow me, lyftistöng fyrir starfsemina.
„Listaháskólinn sá um sköpunarvinnuna en Háskólinn í
Reykjavík markaðshlutann. Framleiðslan verður svo í okkar
höndum en um er að ræða leirpotta sem fylltir eru af mold og
mismunandi kryddjurta-
fræjum. Þá þarf eingöngu
að vökva og bíða eftir upp-
skerunni. Pottarnir hlutu
fyrstu verðlaun í hug-
myndasamkeppni á dögun-
um og fara í framleiðslu hjá
okkur eftir áramót,“ segir
Þórhildur og bendir áhuga-
sömum á að næstkomandi
föstudag verði opið hús í
Bjarkarási þar sem gefst
kostur á að fylgjast með
fólkinu að störfum og skoða
framleiðsluna. - ve
Hjá mörgum fjölskyldum hefur
skapast sú hefð að fara saman
út í skóg fyrir jólin að velja
sér jólatré, saga það niður og
flytja í hús. Slíkt fyrirkomulag
hefur verið vinsælt hin síðari
ár og má geta sér þess til að
vinsældirnar aukist til muna nú
þegar Íslendingar vilja íslenskt
framar öðru.
Mörg skógræktarfélög bjóða fólki
að höggva sín eigin jólatré. Þeirra
á meðal er Skógrækt Reykjavík-
ur sem hefur boðið fólki að höggva
jólatré í Hjalladal í Heiðmörk í
fjögur ár. Jólaskógurinn í Hjalla-
dal opnar laugardaginn 13. desem-
ber og er opinn frá 11 til 16 um
helgar fram að jólum.
„Ég á nóg af trjám fyrir alla,“
segir Ólafur Erling Ólafsson, skógar-
vörður í Heiðmörk, kátur. „Þarna
erum við aðallega með stafafuru og
greni,“ útskýrir hann og áréttar að
verðið sé það sama og í fyrra, 4.900
krónur, og skiptir þá engu hversu
stórt eða lítið tré verður fyrir val-
inu. „Hér verða jólasveinar, varð-
eldur og ókeypis kakó,“ segir hann
og tekur fram að þetta sé líklega
ódýrasta leiðin á landinu til að ná
sér í jólatré. „Fyrir utan hvað þetta
er skemmtilegt.“
Í jólaskóginum er yfirleitt
margt fólk og mikið fjör. Þrátt
fyrir mannfjöldann segir Ólafur að
engin hætta sé á að jólatrén klárist.
„Við gróðursetjum 10.000 tré á
hverju ári og því eykst úrvalið á
hverju ári.“
Skógrækt ríkisins býður einn-
ig landann velkominn í skóga sína
fyrir jólin til að velja sér jólatré.
Hér á eftir fara upplýsingar um
hvar nálgast megi jólatré í skóg-
um ríkisins í landsfjórðungunum
fjórum.
Á Austurlandi getur fólk komið í
Hallormsstaðaskóg að trjásafninu
og höggvið sín eigin tré sunnudag-
inn 14. desember frá klukkan 13 til
16. Markaðsdagur Félags skógar-
bænda á Héraði, Skógræktar ríkis-
ins, Barra hf. og Héraðs- og Aust-
urlandsskóga verður svo haldinn
í húsakynnum Barra á Valgerðar-
stöðum í Fellum laugardaginn 13.
desember. Þar verða til sölu íslensk
jólatré alla daga fram að jólum.
Á Suðurlandi býður skógræktin
fólki að höggva sín eigin tré í
Haukadalsskógi sunnudaginn
14. desember frá 12 til 15. Einn-
ig er hægt að leggja inn pantanir
um jólatré hjá skógarverðinum á
Suðurlandi.
Skógrækt ríkisins á Vesturlandi
býður fólk velkomið í Selskóg til
að höggva sitt eigið tré helgarnar
13. og 14. desember og 20. og 21.
desember frá 11 til 16.
Skógrækt ríkisins á Norður-
landi selur sín jólatré í Kjarna-
skógi en býður ekki upp á að fólk
geti höggvið eigið tré. Skógræktar-
félag Eyfirðinga í Þelamörk býður
hins vegar þá þjónustu allar helgar
í desember frá 12 til 15.
Skógræktarfélög um allt land
bjóða fólki einnig að koma í sína
skóga til að velja sér jólatré. Nán-
ari upplýsingar má finna á jólavef
skógræktarfélaganna www.skog.
is/jolatre/felog.html. - sg
Nóg af jólatrjám fyrir
alla í skógum Íslands
Ólafur Erling Ólafsson, skógarvörður í Heiðmörk, á nóg af trjám handa öllum.
Fólk má taka eins stór tré og það vill. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Jólakúla Tinnu Gunnarsdóttur iðnhönnuðar er engin venjuleg kúla,
heldur hálfkúla.
Hún er annars vegar steypt í kopar og hins vegar í ál. Hún hangir í
svörtu girni og er ætluð úti í glugga þar sem hún „gefur þannig jafnt
til umhverfisins og heimilisins,“ eins og hönnuðurinn Tinna orðar það.
„Það er fallegt þegar hún snýst í kringum sjálfa sig og varpar birtu út
frá póleraða fletinum.“
Kúlan er framleidd hér á landi, steypt í sand og síðan handlituð og
pússuð. Handverkið gerir það að verkum að hver og ein kúla hefur sín
blæbrigði. Hún getur bæði hangið ein og sér og einnig er fallegt að hafa
margar saman.
Kúlan úr áli kostar 4.900 krónur en 6.400 krónur sé hún úr kopar.
Hún fæst í Aurum, Kokku, Kraumi og Gallery Turpentine. - gun
Hver með sín blæbrigði
Þórhildur umkringd fallegum munum í Smiðjubúð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Skraut, skart og
nytjahlutir
F
R
É
T
TA
B
L
A
Ð
IÐ
/A
R
N
Þ
Ó
R
Í Listasmiðju Bjarkaráss eru framleiddir
munir úr gleri, tré og leir.
Trélukt fyrir
útikerti.