Fréttablaðið - 11.12.2008, Síða 44
11. DESEMBER 2008 FIMMTUDAGUR10 ● fréttablaðið ● veljum íslenskt
ÁLFAR OG MENN
NÝ
SPIDERWICKBÓK!
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
ALGER
FREKJUDÓS!Hugljúft ævintýri um
samskipti manna og
álfa eftir Guðnýju S.
Sigurðardóttur. Dóttir hennar,
Júlía Guðmundsdóttir,
myndskreytti bókina þegar
hún var níu ára.
Frábær saga um litla
frekjudós sem lærir á
endanum mikilvæga lexíu.
Bráðskemmtileg saga um
stelpu sem veit ekkert
hvað hún á að gera við
skapið í sér.
NÝR SKELMIR
ENN BETRI!
Sjálfstætt framhald fyrstu bókarinnar um
Skelmi Gottskálks sem kom út í fyrra og
notið hefur mikilla vinsælda.
Hörkuspennandi unglingabók.
Nýjasta bókin í hinum
geysivinsæla Spiderwick-
bókaflokki. Æsispennandi
ævintýri handa krökkum á
aldrinum 7-14 ára.
NÝJAR BÆ
KUR
GAMALT V
ERÐ!
Írska listakonan Sarah Browne
hefur unnið athyglisvert verk-
efni í tengslum við íslensku
lopapeysuna.
Írska listakonan Sarah Browne
fæst við fjölbreytt verkefni. Hún
rannsakar hvernig samfélög eru
með því að skoða eins konar úrtak
úr þeim. „Þá fæ ég þátttakendur til
liðs við mig til að vinna fjölbreytt
verkefni,“ segir hún en eitt þessara
verkefna varð til á Íslandi.
Browne hreifst af íslensku lopa-
peysunni þegar hún kom hing-
að til lands fyrir nokkrum árum.
Hún var þá að vinna að verkefni
sem var hluti af evrópskum lista-
mannaskiptum á árunum 2005 til
2006 og tólf lönd tóku þátt í. „Ég
var einn þeirra listamanna sem
heimsóttu Ísland og þannig hófst
lopapeysuverkefnið mitt sem end-
aði með prjónabókinni A Model
Society. Kveikjan var rannsókn
sem gerð var fyrir nokkrum árum
og sýndi að Íslendingar væru
hamingjusamasta þjóð heims. Ís-
lenska lopapeysan er í senn vinsæl
hjá ferðamönnum og mikilvæg-
ur hluti af sjálfsmynd Íslendinga.
Þessir eiginleikar pössuðu vel við
minn skilning á þjóðinni,“ útskýrir
Browne en hún auglýsti eftir fyrir-
sætum til að klæðast prjónafatnaði
og mynduðu þær litla samfélag-
ið sem Browne þurfti til að fram-
kvæma verkið.
„Þátttakendur fylltu út stutta
könnun um lífið á Íslandi og síðan
voru valin svör sem stytt voru
niður í nokkur orð sem prjón-
uð voru í lopapeysur. Hver fyrir-
sæta klæddist peysu með sínu orði
eða orðum,“ segir Browne. Dæmi
um slík orð eru „Safe jobs / high
taxes“, „No war“, „Long work-
hours“ og „Expensive“.
Stellingar fyrirsætanna og lands-
lag vísa í hinar dæmigerðu ímyndir
sem birst hafa í prjónabókum. Þær
sýna til dæmis kjarnafjölskyld-
una og fólk í fullkomnum tengslum
við náttúruna. „Athyglisvert er að
sjá hvernig myndirnar koma fyrir
sjónir nú eftir þær breytingar sem
orðið hafa á Íslandi,“ segir Browne
íbyggin.
Titill verkefnisins, A Model Soci-
ety, vísar til fyrirsætanna sem tóku
þátt og til þeirra eiginleika sem
nauðsynlegir eru til að búa til full-
komið samfélag. Verkefninu lauk
árið 2007 og fyrr á þessu ári kom
út bók með upplýsingum um verk-
efnið og prjónauppskriftum. Hana
má nálgast á www.sarahbrowne.
info og á www.recirca.com. - hs
Slagorð á lopapeysum
Hér sitja Dolores Ros Valencia Walters og Jayden Isabelle Walters fyrir. Á peysuna
er ritað „awesome daycare“, eitt af svörum fyrirsætnanna. Sarah Browne hannaði
peysurnar en hún tekur þátt í Feneyjatvíæringnum á næsta ári. MYND/SARAH BROWNE
Þessi mynd prýðir kápu
bókarinnar „A Model
Society“. Á henni er
Hildur Skúladóttir í
peysu með slagorðinu
„gossip“ sem útleggst
slúður á íslensku.
M
Y
N
D
/S
A
R
A
H
B
R
O
W
N
E
Tillögur almennings að hönn-
un íslenska fánans á sínum
tíma eru komnar á bók. Út-
gáfudagur hennar var tákn-
rænn, 1. desember 2008, þegar
fagnað var 90 ára fullveldi Ís-
lands og fánans í þeirri mynd
sem við þekkjum hann.
Nýja bókin heitir einfaldlega
Fáninn og í henni eru 28 teikn-
ingar og texti úr skýrslu fána-
nefndar frá árinu 1914, ásamt
öðrum fróðleik um okkar full-
veldistákn.
Einn þeirra sem kom með
tillögu að fánanum var þjóð-
skáldið Einar Benediktsson.
Hann vildi hafa hvítan kross
á bláum feldi enda hafði verið
gerður fáni á öndverðri öldinni
eftir þeirri hugmynd hans. Sá
fáni var notaður við konungs-
glímuna árið 1907 og síðan tók
Ungmennafélag Íslands hann
upp á arma sína. Þegar Einar
sendi nefndinni tillögu sína
fylgdi henni hið ódauðlega ljóð
Til fánans.
Þetta er fyrsta erindið:
Rís þú unga Íslands merki
upp með þúsund radda brag.
Tengdu í oss að einu verki
anda, kraft og hjartalag.
Rís þú Íslands stóri, sterki
stofn með nýjan frægðardag.
Þegar fáninn varð til
Að fánanum til vinstri stóðu Árni Sveinsson Ísafirði, Kristján Sigurðsson
Akureyri, Félagið Stígandi á Ísafirði og Bjarni Jónsson í Nýjabæ en Jóhannes
Kjarval málari stakk upp á margbrotnum krossi sem hér er til hægri.
Magnús Steindórsson kom með
þessa tillögu að íslenska fánanum.
Ónafngreindur Vestfirðingur sá
fánann fyrir sér svona.
Hvítur kross á grænum fleti var
tillaga Juliusar Schou steinsmiðs í
Reykjavík.