Fréttablaðið - 11.12.2008, Síða 54
11. desember 2008 FIMMTUDAGUR
Alþjóðadagur mannréttinda var haldinn hátíðlegur í gær en
þá varð mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna (SÞ) 60
ára. „Yfirlýsingin var samþykkt af allsherjarþingi SÞ árið
1948 og var það í raun mikið þrekvirki að það skyldi takast
þar sem þetta var skömmu eftir seinni heimsstyrjöldina. Þá
var heiminum enn skipt upp af nýlenduherrum og kynþátta-
aðskilnaðarstefna enn við lýði,“ segir Guðrún D. Guðmunds-
dóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands.
„Mannréttindayfirlýsingin var fyrsta alþjóðlega viður-
kenningin á að allir menn séu jafnir alls staðar. Síðan hefur
yfirlýsingin orðið grunnur að hinu alþjóðlega mannréttinda-
kerfi og öllum þeim mannréttindum sem við tölum um í dag,“
segir Guðrún. „Að alþjóðasamfélagið skuli hafa komið saman
og ákveðið að þessi réttindi giltu fyrir alla alls staðar voru
mikil tímamót.“
Að sögn Guðrúnar urðu í kjölfarið til ýmsir mannrétt-
indasamningar sem sprottnir eru úr yfirlýsingunni. „Mann-
réttindasáttmáli Evrópu og mannréttindadómstóllinn komu
til árið 1950. Hugmyndafræðilegur ágreiningur gerði það
síðan að verkum að ekki tókst að samþykkja tvo samninga
með öllum réttindum mannréttindayfirlýsingarinnar fyrr
en 1966. Þessir tveir grundvallarsamningar SÞ, sem eru al-
þjóðasamningar um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi
annars vegar og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg
réttindi hins vegar, eru byggðir á mannréttindayfirlýsing-
unni,“ útskýrir Guðrún. Þar sem mannréttindayfirlýsingin
er vilja yfirlýsing þá þarf að gera samninga til að skapa þjóð-
réttarlegar skuldbindingar ríkja. „Öll mannréttindakerfi og
stjórnarskrár ríkja sækja í þessa yfirlýsingu.“
Mannréttindayfirlýsingin telur 30 efnisgreinar auk inn-
gangsorða. „Allir samningar, eins og til dæmis Barnasátt-
máli Sameinuðu þjóðanna, samningar um afnám misréttis
gegn konum og gegn kynþáttahatri, eru sprottnir úr mann-
réttindayfirlýsingunni og í raun nánari útlistun á réttindum
tiltekinna hópa sem þurfa frekari vernd,“ segir Guðrún og
nefnir að nýjasti samningurinn kveði á um réttindi fólks með
fötlun.
„Mannréttindayfirlýsingin hefur ómælda þýðingu fyrir
heimsbyggðina alla þar sem áhrifa hennar gætir í lögum og
stjórnarskrám um allan heim. Hún er viðurkennt leiðarljós
þeirra sem vinna í mannréttindum og þeirra sem brotið er
á,“ segir Guðrún og bætir við að yfirlýsingin sé í raun lifandi
plagg sem hefur staðið af sér ýmsar breytingar. „Yfirlýs-
ingin er lögð til grundvallar þegar metið er hvort ríki virði
mannréttindi eða ekki. Nú þegar við horfum til erfiðari tíma
á Íslandi þá teljum við að yfirlýsingin sé mjög þarft leiðar-
ljós í þeirri uppbyggingu sem við þurfum að takast á hendur.
Mannhelgi, réttlæti og jöfn tækifæri fyrir alla eru leiðarljós
sem halda þarf til haga. Þó svo mannréttindi á Íslandi teljist
í nokkuð góðum farvegi þá koma þau ekki af sjálfu sér. Til að
þekkja rétt þinn og annarra er nauðsynlegt að halda mann-
réttindayfirlýsingunni á lofti.“
Í tilefni afmælisins hefur verið gefin út ný þýðing á yfir-
lýsingunni sem færð hefur verið í nútímalegra horf og auk
þess var gefin út myndabók þar sem fimmtán íslenskir graf-
ískir hönnuðir teikna myndir við ákvæði yfirlýsingarinn-
ar. „Á afmælisdaginn voru meðal annars flutt ávörp og ný
hreyfimynd kynnt með frumsaminni tónlist hljómsveitarinn-
ar Hjaltalín á hátíðarfundi með utanríkisráðuneytinu í Iðnó,“
segir Guðrún ánægð og bætir einlæg við: „Mannréttindi eru
algild og óafsalanleg fyrir alla alls staðar.“ hrefna@frettabladid.is
MANNRÉTTINDAYFIRLÝSING SÞ: 60 ÁRA
Ómæld þýðing
GUÐRÚN D. GUÐMUNDSDÓTTIR Framkvæmdastjóri Mannréttindaskrif-
stofu Íslands.
FRÍÐA Á. SIGURÐARDÓTTIR
RITHÖFUNDUR FÆDDIST ÞENNAN
DAG ÁRIÐ 1940.
„Það eru ekki allar ástir í
andliti fólgnar.“
Fríða Á. Sigurðardóttir hlaut Ís-
lensku bókmenntaverðlaunin
og Bókmenntaverðlaun Norð-
urlandaráðs fyrir skáldsöguna
Meðan nóttin líður, sem kom út
árið 1990.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og frændi,
Hilmar Friðþórsson
fyrrum vélstjóri,
lést á dvalarheimilinu Dalbæ, Dalvík, fimmtudaginn
4. desember. Útför hans fer fram frá Dalvíkurkirkju
laugardaginn 13. desember. nk. kl. 13.30.
Magnús Þór Hilmarsson Anna Þ. Ingólfsdóttir
Gunnar Jón Hilmarsson Hildur I. Sölvadóttir
barnabörn, barnabarnabörn, frændfólk og aðrir
aðstandendur.
Elskuleg móðir okkar og amma,
Helga Þ. Árnadóttir
frá Burstafelli, Vestmannaeyjum,
Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
andaðist hinn 8. desember sl. Útförin fer fram hinn
12. desember nk. frá Akraneskirkju kl. 14.00. Blóm og
kransar afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hennar er
bent á MND-félagið.
Árnný Sigurbjörg Guðjónsdóttir Edmund Bellersen
Oddfríður Jóna Guðjónsdóttir Ágúst P. Óskarsson
Emil Þór Guðjónsson Stella S. Sigurðardóttir
Guðm. Helgi Guðjónsson Inga Dóra Þorsteinsdóttir
Ásbjörn Guðjónsson Guðrún V. Friðriksdóttir
Elín Ebba Guðjónsdóttir Kristján Albertsson
Lárus Jóhann Guðjónsson Margrét Ósk Ragnarsdóttir
og ömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafað-
ir, bróðir, mágur, afi og langafi,
Stefán Ágústsson
loftskeytamaður, Lautasmára 1,
lést á Landspítalanum Fossvogi 6. desember. Útförin
fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn 15. desember
kl. 13.00.
Lilja Bjarnadóttir
Ágúst Stefánsson Chularak Stefansson
Guðrún Stefánsdóttir Bergþór Þormóðsson
Sigrún Anna Stefánsdóttir Vigfús Halldórsson
Bjarni Vilhelm Stefánsson Íris Pálsdóttir
Sigurborg Kristín Stefánsdóttir Helgi Sverrisson
Pálmi Ágústsson Guðlaug Jónsdóttir
afabörn og langafabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og
tengdafaðir, afi og langafi,
Trausti Guðjónsson
frá Skaftafelli í Vestmannaeyjum,
síðast til heimilis á Hjúkrunarheimilinu
Grund,
andaðist að kvöldi 2. desember. Jarðarförin fer fram
frá Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu föstudaginn
12. desember kl. 15.00. Blóm og kransar afþakk-
aðir, en þeir sem vilja minnast hins látna er bent á
Hvítasunnukirkjuna Fíladelfíu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ragnheiður Jónsdóttir
Halldóra Traustadóttir Einar Jónasson
Guðjón Traustason Kristín Erlendsdóttir
Kornelíus Traustason Elín Pálsdóttir
Símon Eðvald Traustason Ingibjörg Jóhannesdóttir
Sólveig Traustadóttir Sigurður Wiium
Vörður Leví Traustason Ester K. Jacobsen
G. Ingveldur Traustadóttir Geir Jón Þórisson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Ágústa Pétursdóttir
Snæland
sem lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
6. desember síðastliðinn, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, fimmtudaginn
11. desember, kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast Ágústu
er vinsamlega bent á að láta dvalar- og hjúkrunarheim-
ilið Grund njóta þess.
Pétur H. Snæland Valgerður Kristjánsson
Sveinn Snæland Jónína M. Guðnadóttir
Halldór Þ. Snæland Ásta B. Benjamínsson
Gunnar Snæland Kristín E. Kristleifsdóttir
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Þóra Sigríður Þórðardóttir
Neshaga 10, Reykjavík,
andaðist á Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi, þriðju-
daginn 2. desember. Hún verður jarðsungin frá
Seljakirkju föstudaginn 12. desember nk. kl. 13.00.
Steinþór Haraldsson Guðríður Hulda Haraldsdóttir
Ólafur Haraldsson Ragnheiður Ragnarsdóttir
Ingibjörg Haraldsdóttir Páll Stefánsson
Elín Haraldsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum öllum sem sýndu okkur hlýhug
og samúð við andlát og útför ástkærrar
sambýliskonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Sigrúnar Guðnýjar
Guðmundsdóttur
frá Bala, Stafnesi,
Stapavöllum 19, Reykjanesbæ.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja fyrir umhyggjusama og kærleiksríka
umönnun meðan á erfiðri sjúkralegu stóð.
Guð blessi ykkur öll.
Guðmundur H. Ákason
Guðrún Gunnarsdóttir
Jón Gunnarsson Guðrún Gunnarsdóttir
Kristþór Gunnarsson Ásrún Rúdólfsdóttir
Guðmundur G. Gunnarsson Þórhalla M. Sigurðardóttir
Þjóðbjörg Gunnarsdóttir Reinhard Svavarsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Kærar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Einars Grétars
Þorsteinssonar.
Innilegar þakkir til heimahlynningar Sólvangs,
Jóhönnu, þjálfara hans, og starfsfólks St. Jósefsspítala
fyrir sérstaka umönnun og alúð. Guð blessi ykkur.
Sigurbjörg Guðrún Karlsdóttir,
Suðurgötu 30, Hafnarfirði.
Okkar ástkæri
Jón Halldórsson
húsasmíðameistari, frá Arngerðareyri,
lést mánudaginn 8. desember á Landspítala í Fossvogi.
Steinunn Jónsdóttir
Halldór Jónsson Rannveig Jónsdóttir
Kristín S. Jónsdóttir Óli Hilmar Briem Jónsson
Guðrún S. Jónsdóttir Þórður Yngvi Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
timamot@frettabladid.is