Fréttablaðið - 17.01.2009, Síða 2
2 17. janúar 2009 LAUGARDAGUR
VIÐSKIPTI Umboðsmanni Alþing-
is hefur verið send ábending um
„ólíka meðferð sambærilegra
mála“ þegar skuldug fyrirtæki eru
tekin til meðferðar í nýju bönkun-
um.
Bréfið sendi Bogi Guðmundsson,
lögfræðingur hjá Opus-lögmönn-
um, en hann hefur starfað fyrir
fyrirtæki í þessari stöðu.
Hann segir að meðferð sú sem
fyrirtækin hljóti í nýju bönkunum
sé jafn misjöfn og málin eru mörg.
Sumum fyrirtækjum sé haldið í
rekstri meðan önnur sambærileg
mæti hörku. „Og fólkið í bönkun-
um virðist ekki vita hvaða reglum
eigi að fylgja í hvert skipti,“ segir
Bogi.
Þetta bjóði upp á að einum sé
hyglt umfram annan; einkavina-
væðingu. Bankarnir hafi einkarétt
á nær öllum skuldum Íslendinga.
Þær séu ríkiseign og því ættu að
gilda um þær reglur stjórnsýslu,
svo sem réttmætis-, jafnræðis-, og
meðalhófsreglur. Starfsmennirn-
ir virðist hins vegar einungis telja
sig bundna af því regluverki sem
gilti fyrir fall bankanna.
Bogi tekur dæmi af einu fyrir-
tæki, sem átt hafi í áratugalöng-
um rekstri. Því hafi verið neit-
að um ákveðnar afskriftir lána,
sem hefðu gert fyrirtækinu kleift
að greiða af öðrum lánum. Hins
vegar hafi mátt skilja af starfs-
mönnum bankans að ef þriðji aðili
vildi kaupa rekstur fyrirtækisins,
yrði það leyft. Sá aðili gæti feng-
ið afskriftina sem skulduga fyrir-
tækið fékk ekki.
Elín Sigfúsdóttir, bankastjóri
Landsbankans, segir nýju bank-
ana vera hlutafélög í eigu ríkisins
og þurfi því ekki að lúta stjórn-
sýslulögum. Hins vegar sé farið
eftir settum reglum ríkisstjórnar
og Samkeppnis- og Fjármálaeftir-
lita og landslögum. Landsbankinn
birti sínar sérstöku reglur eftir
helgi.
Margir starfsmenn komi að
ákvörðunum sem varða líf og
dauða fyrirtækja. „En þetta ferli
er naumast farið af stað og von-
andi þurfum við að gera sem
minnst af því [að setja fyrirtæki á
hausinn eða selja til þriðja aðila]“.
Stefnt sé að skuldbreytingu í sem
flestum tilfellum.
Finnur Sveinbjörnsson, banka-
stjóri Kaupþings, segist vilji svara
umboðsmanni beint um misjafna
meðferð fyrirtækja, en tekur fram
að Kaupþing fari „að sjálfsögðu
eftir almennum reglum, svo sem
reglum Samkeppniseftirlits“. Ekki
náðist í bankastjóra Glitnis.
klemens@frettabladid.is
Árni Þór, er þetta sannkallað
bræðralag?
„Já, enda erum við góðir lagsbræð-
ur.“
Bræðurnir Árni Þór, Ævar Örn og Sigurður
Einar Guðjónssynir syngja allir bakraddir
í laginu Undir regnboganum í undan-
keppni Eurovision í kvöld.
MENNTUN „Ég hef ekki enn fengið
myndavélina senda, en þegar ég fæ
hana ætla ég taka mynd af kenn-
aranum mínum, henni Kristvinu,“
segir Gréta María Halldórsdótt-
ir, nemandi í fimmta bekk Varma-
hlíðarskóla í Skagafirði. Gréta
hlaut fyrstu verðlaun í Nýyrðasam-
keppni fimmtu til sjöundu bekkja
sem hleypt var af stokkunum á degi
íslenskrar tungu hinn 16. nóvember
síðastliðinn. Hún stakk upp á orðinu
„skjóla“ fyrir höfuðfatið buff og fær
stafræna myndavél og bók að laun-
um.
„Ég bjóst alls ekki við að fá fyrstu
verðlaun, en ég er mjög ánægð,“
segir Gréta María, og bætir við að
henni þyki nýyrðasmíðar skemmti-
legar og jafnvel sé von á fleiri slík-
um tillögum frá henni á næstu
árum.
Íslensk málnefnd hafði frum-
kvæði að keppninni en aðrir
aðstandendur voru Námsgagna-
stofnun, Stofnun Árna Magnússon-
ar og Skýrslutæknifélag Íslands.
Markmiðið var að vekja athygli á
því að unnt er að nota íslensk orð
þar sem oft eru notuð erlend orð
eða slettur.
Alls bárust úrlausnir frá 1.763
nemendur í 82 skólum um land allt.
Auk Grétu Maríu fengu sjö aðrir
nemendur viðurkenningu fyrir
góðar tillögur á borð við „fjaðurdúk-
ur“, „stökkdúkur“ og „hoppa“ fyrir
trampólín, „lófaspilari“ og „dverg-
spilari“ fyrir Mp3 og „leggjabuxur“
og „leggjur“ fyrir leggings. - kg
Gréta María Halldórsdóttir hlaut fyrstu verðlaun í nýyrðasamkeppni:
Fær myndavél fyrir skjóluna
EFNILEG Gréta María Halldórsdóttir og
Sigfinnur Andri Marinósson
NORÐUR-KÓREA, AP Kim Jong-il,
leiðtogi Norður-Kóreu, hefur
ákveðið að yngsti sonur sinn taki
við af sér, að því er fréttastofa í
Suður-Kóreu heldur fram. Hins
vegar bárust einnig fréttir af því
að elsti sonur hans sé tilbúinn að
taka við af föður sínum.
Kim verður 67 ára í næsta
mánuði. Fréttir af því að hann
hafi veikst alvarlega í sumar
urðu til þess að ýta undir slíkan
orðróm. Sjálfur tók Kim Jong-il
við af föður sínum, Kim Il Sung,
stofnanda landsins. - gb
Kim Jong-il leiðtogi N-Kóreu:
Vill að sonur
sinn taki við
KIM JONG-IL Synirnir Kim Jong Un og
Kim Jong Nam þykja líklegir arftakar.
NORDICPHOTOS/AFP
KJARAMÁL Forseti Íslands hefur
samið við fjármálaráðuneytið um
að laun forseta verði lækkuð til
samræmis við lækkun á launum
forsætisráð-
herra.
Í úrskurði
kjararáðs, sem
opinberað-
ur var í gær,
kemur fram
að ráðinu sé
óheimilt að
lækka laun for-
seta, þrátt fyrir
að hann óski
eftir því. Stjórnarskrá mæli fyrir
um að óheimilt sé að lækka laun
hans á miðju kjörtímabili.
Í úrskurði kjararáðs er ekki
tekin afstaða til þess hvort sá
sem embættinu gegni geti sjálfur
afsalað sér launum að hluta. - bj
Launalækkun forseta Íslands:
Lækkar eins og
Geir H. Haarde
ÓLAFUR RAGNAR
GRÍMSSON
NORÐURLÖND ESB-umræða
Íslendinga og áhrif hugsanlegra
aðildarviðræðna við ESB er til
umræðu á öllum Norðurlöndunum.
Margir Norðmenn túlka heimsókn-
ir norskra þingmanna, sem and-
vígir eru ESB, sem svo að Norð-
menn beiti sér í baráttunni gegn
ESB hér á landi. Norðmenn ótt-
ast einangrun gangi Íslendingar
í ESB, að samningsstaða þeirra í
EES-starfinu veikist eða hreinlega
að innganga Íslands stofni EES í
hættu.
Øystein Djupedal, þingmað-
ur Sósíalíska vinstriflokksins,
telur að staðan verði flókin gangi
Íslendingar í ESB. Hann telur að
innganga Íslands geti einkum
haft áhrif á sjávarútveginn því þá
verði Íslendingar að taka meira
tillit til Spánverja og Portúgala en
Norðmanna í sjávarútvegsmálum.
Norskir sjómenn eru margir ósátt-
ir við það.
Ný skoðanakönnun sýnir að
meirihluti Norðmanna vill halda
áfram að standa utan ESB þó að
Íslendingar sæki um aðild. Ef
aðildarviðræður Íslendinga hafa
þau áhrif á EES-samninginn að
hann sé í hættu vill meirihluti
Norðmanna hins vegar láta reyna
á aðildarviðræður. „Ísland getur
dregið Noreg með í ESB,“ segir
danska blaðið Jyllandsposten.
Sænska dagblaðið Expressen
talar um norskan ESB-ótta. „Þegar
EES-landið Ísland gengur í ESB þá
breytast forsendurnar fyrir Noreg
í grundvallaratriðum. Sérstök líf-
lína norskra stjórnmálamanna
til ESB, EES-samningurinn, er í
hættu að verða hertekin,“ segir
leiðarahöfundur Expressen og
bendir á að vissulega verði Liecht-
enstein áfram í EES „en í raun-
inni verður Noregur eina landið
eftir“.
- ghs
ÓTTAST VERRI SAMNINGSSTÖÐU Norð-
menn óttast breytta og verri samnings-
stöðu gangi Íslendingar í ESB.
Heit umræða um ESB-aðildarviðræður Íslendinga á hinum Norðurlöndunum:
Ísland dragi Noreg með í ESB
Björn Ingi Hrafnsson hefur látið
af störfum sem ritstjóri Markað-
arins, viðskipta-
blaðs Frétta-
blaðsins, en
þar hefur hann
starfað frá því
2. apríl í fyrra.
Óli Kristján
Ármannsson
heldur áfram
störfum sem
ritstjóri Mark-
aðarins.
Björn Ingi
hefur þó ekki sagt skilið við 365,
því hann mun eftir sem áður
stjórna þættinum Markaðurinn
með Birni Inga á fimmtudags-
kvöldum á Stöð 2.
Fréttablaðið þakkar Birni Inga
vel unnin störf og óskar honum
góðs gengis á nýjum vettvangi.
Ritstjórn Markaðarins:
Björn Ingi læt-
ur af störfum
BJÖRN INGI
HRAFNSSON
VIÐSKIPTI Eimskip hefur samið
um frest á gjaldfellingarákvæð-
um við eigendur 90 prósenta virði
skuldabréfa upp á rúmlega 1,6
milljarða króna í einum skulda-
bréfaflokka félagsins.
„Eimskip hefur nú heimild til
að fresta gjalddaga þar til 30
dögum eftir sölu eigna í Norður
Ameríku er lokið en þó eigi síðar
en 30. júní. Þá verði öllum vaxta-
greiðslum frestað yfir sama tíma-
bil og gjaldfallnir vextir bætast
við höfuðstól,“ segir í tilkynn-
ingu. Áður hefur verið greint
frá sams konar samkomulagi við
meirihluta eigenda tveggja ann-
arra skuldabréfaflokka og unnið
er að samkomulagi við eigend-
ur annarra skuldabréfaflokka
útgefnum af félaginu. - óká
Hf. Eimskipafélag Íslands:
Semja um frest
á gjalddögum
Telur fyrirtækjum
mismunað í bönkum
Bankarnir sýsla með hagsmuni ríkissjóðs en þurfa ekki að fara eftir stjórnsýslu-
lögum. Umboðsmanni Alþingis hefur verið bent á að þeir fari misjafnlega með
skuldug fyrirtæki. Kaupþing fer eftir almennum reglum, segir bankastjórinn.
Fólkið í bönkunum virð-
ist ekki vita hvaða reglum
eigi að fylgja í hvert skipti.
BOGI GUÐMUNDSSON
LÖGFRÆÐINGUR HJÁ OPUS-LÖGMÖNNUM
VIÐSKIPTI Endurgreiðsla til
breskra sparifjáreigenda sem
áttu innistæðu í Kaupþing Singer
& Friedlander er hafin.
Breski innistæðutrygginga-
sjóðurinn vonast til að greiða
3.500 sparifjáreigendum í þess-
ari viku og að aðrir fái greitt eins
fljótt og unnt er. Í heildina mun
innistæðutryggingasjóðurinn
greiða 500 milljónir punda.
Meirihluti Icesave reiknings-
hafa fékk endurgreitt fyrir jól,
en þar sem innistæður í Singer
& Friedlander voru ekki bundn-
ar við netreikninga þurfti mun
meiri pappírsvinnu til að hefja
endurgreiðslu. - ss
Kaupþing S & F:
Endurgreiðsla
hefst í vikunni
■ Dæminu um fyrirtækið mætti líkja við íbúðareiganda sem ekki gæti greitt
af húsnæðislánum, nema hann fengi tíu milljónir felldar niður af skuldun-
um.
■ Í stað þess að
fallast á það
myndi bankinn
selja þriðja aðila
íbúðina með allt að
tíu milljóna króna
afslætti.
EINS OG AÐ SELJA ÍBÚÐ TIL ÞRIÐJA AÐILA
BOGI
GUÐMUNDSSON
FINNUR
SVEINBJÖRNSSON
ELÍN
SIGFÚSDÓTTIR
SPURNING DAGSINS