Fréttablaðið - 17.01.2009, Síða 8

Fréttablaðið - 17.01.2009, Síða 8
 17. janúar 2009 LAUGARDAGUR Verið velkomin í Nettó Mjódd - Salavegi - Hverafold Akureyri - Höfn - Grindavík www.netto.is ...röð og regla! TILBOÐIN GILDA 15. - 18. JANÚARww w .m ar kh on nu n. is PLASTKASSAR M/LOKI 50l 1.999 kr/stk. PLASTKASSAR M/LOKI 31l 999 kr/stk. FRAMKVÆMDIR „Það er mikið ólán að ógæfumenn leggi undir sig svona skúra. Það er algengt að menn hafi verið að undirbúa sig undir miklar framkvæmdir sem ekki verður neitt úr, og nú þegar allt er sofnað þarf að hreinsa allt í burtu sem getur orðið að húsnæði fyrir meindýr,“ segir Þórður Búa- son, yfirverkfræðingur hjá Bygg- ingarfulltrúa. Skilmálafulltrúi Byggingarfulltrúa beindi þeim tilmælum til Þ.G. Verktaka, sem hafa umráð með Hampiðjulóð- inni svokölluðu á mótum Stakk- holts og Mjölnisholts í Reykja- vík, að fjarlægja vinnuskúr sem útigangsfólk hefur búið um sig í á undanförnum mánuðum. Verk- takafyrirtækið brást vel við til- mælunum og fjarlægði skúrinn í gær. Nokkuð hefur verið um kvart- anir nágranna skúrsins til lög- reglu og Byggingarfulltrúa vegna óþrifnaðar sem fylgir hinum óboðnu ábúendum. Þórður segir býsna algengt að kvartanir berist vegna svipaðra mála. „Við verðum vör við að úti- gangsfólk beitir ýmsum aðferðum og fólk kvartar yfir því að hafa þetta fólk í kringum sig. Svona lagað hefur verið að gerast allt fram á þennan dag og mun halda áfram,“ segir Þórður Búason. - kg Vinnuskúr við Mjölnisholt sem útigangsfólk hefur búið um sig í fjarlægður: Kvartað undan útigangsfólki HAMPIÐJULÓÐIN Yfirverkfræðingur hjá Byggingarfulltrúa segir nokkuð algengt að útigangsfólk búi um sig í vinnuskúr- um eins og þessum við Mjölnisholt, sem hefur nú verið fjarlægður. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM STJÓRNMÁL Framsóknarmenn verða að líta í eigin barm og horfast í augu við eigin ábyrgð á fjár- málahruninu, sagði Valgerður Sverrisdóttir, fráfarandi formað- ur Framsóknarflokksins, í ræðu á flokksþingi flokksins í gær. Þar vísaði hún til þess að flokk- urinn hefði setið í ríkisstjórn í tólf ár. Í ljós hefði komið að laga- rammi fjármálamarkaðarins, sem innleiddur hefði verið að erlendri fyrirmynd á því tímabili væri gall- aður. Það bitni hart á Íslendingum, en einnig á öðrum þjóðum heims. „Aðhald með hinum frjálsa markaði hefði þurft að vera meira og tryggingarkerfið með allt öðrum hætti. Þetta er lærdómur sem alþjóðasamfélagið mun draga af þessu og mun bregðast við í náinni framtíð,“ sagði Valgerður. Því fer hins vegar fjarri að Framsóknarflokkurinn beri ábyrgð á efnahagshruninu, eins og formaður Samfylkingarinnar ýjar gjarnan að, sagði Valgerður. Eftir því sem fleiri kurl komi til grafar verði sífellt ljósara að núverandi stjórnvöld hafi sofið á verðinum. „Það er nöturlegt að svo háttar til á þessum örlagatímum að nú situr við völd í landinu ríkisstjórn sem er ekki starfi sínu vaxin og er rúin trausti meðal þjóðarinnar. Því miður hafa aðgerðir ríkisstjórnar- innar einkennst af ráðleysi og dáð- leysi,“ sagði Valgerður. Flokksþing Framsóknarflokks- ins mun taka afstöðu til þess hvort flokkurinn vill fara í aðild- arviðræður við Evrópusambandið (ESB). Valgerður hvatti til þess að sú leið yrði farin, og þjóðin fengi að greiða atkvæði um aðild. Flokkurinn þyrfti þó að ákveða hvaða markmiðum yrði að ná fram í aðildarviðræðum. Tryggja yrði innlent eignarhald auðlinda til lands og sjávar. Þá yrði óskorað fullveldi að haldast, og ákvæði um að að landið gæti sagt sig úr sam- bandinu yrði að vera til staðar. „Náist þessi atriði ekki fram í aðildarviðræðum tel ég enga þörf á að leggja samning undir dóm þjóðarinnar. Svo sammála tel ég að þjóðin sé um þessar grundvallar- forsendur aðildar,“ sagði Valgerð- ur. brjann@frettabladid.is Gallaður lagarammi innleiddur á Íslandi Framsóknarmenn verða að horfast í augu við eigin ábyrgð, segir formaður flokksins. Gallaður lagarammi fjárlagakerfisins innleiddur á vakt Framsóknar. Náist ekki markmið um innlent eignarhald auðlinda er aðild að ESB útilokuð. FLOKKSÞING „Ísland er eitt þeirra landa sem legu sinnar vegna er mjög háð samskiptum og viðskiptum við aðrar þjóðir. Það felast meiri tækifæri og ríkari hagsmunir í að auka slík samskipti fremur en að loka landinu og hverfa til búskaparhátta fortíðar- innar,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir á flokksþingi Framsóknarflokksins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÖRYGGISMÁL „Ef einhverjir krakk- ar fara þarna inn þá þarf ekki að spyrja að leikslokum,“ segir Sveinn Henrysson, íbúi í Graf- arholti um óvarðan og ólæstan pressugám við verslun Nóatúns í Grafarholti. Hann segir íbúa í hverfinu oft- sinnis hafa kvartað til stjórnenda verslunarinnar yfir því að gám- urinn sé skilinn eftir ólæstur, allan sólarhringinn, allan ársins hring. Sveinn segir íbúana óttast slysa- hættu sem af þessu geti hlotist og því hafi þeir hringt og sent bréf og tölvupóst. Baráttan hafi stað- ið vel á annað ár en enn hafi ekk- ert gerst. Þá segist Sveinn einnig hafa kvartað til umhverfissviðs Reykjavíkurborgar auk þess sem hann hafi gert sér ferð í höfuð- stöðvar Kaupáss, eiganda Nóa- túns, til að kvarta. Anna Larsen, verslunarstjóri Nóatúns í Grafarholti, segir öryggishnapp á gámnum og því sé ekki hægt að kveikja á press- unni nema með rofa sem er inni í versluninni. Aðeins starfsmenn hafi aðgang að rofanum. „Við erum með gáminn opinn þegar við erum að vinna hérna á daginn en hann á að vera lokaður á kvöldin,“ segir Anna. „Ég hef ekki fengið neina kvörtun hingað inn á borð til mín,“ segir hún. - ovd Íbúar í Grafarholti segja slysahættu af pressugámi við verslun Nóatúns: Óttast slys í opnum ruslagámi PRESSUGÁMURINN Gámurinn við verslun Nóatúns í Grafarholti er útbúinn þannig að hægt er að pressa ruslið saman svo það taki minna pláss. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.